Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 Er bíllinn tilbúinn TUDOR TUDOR TUDOR er hannaður til þess að þola það álag sem kaldar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start me ð TUDOR fyrir kuldann í vetur? ICQC 2018-20 Ásama tíma og Listasafnið áAkureyri var opnað íendurnýjuðum og stækk-uðum húsakynnum á Akureyrarvöku í lok ágúst, voru opn- aðar tvær einkasýningar á efstu hæð safnsins, þar sem tveir listamenn skipta með sér fimm sölum. Í tveimur salanna eru tvær innsetningar eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur, sem hún sýnir undir sameiginlegum titli, Hug- leiðing um orku. Aðalheiður er þekkt fyrir skúlptúra af mönnum og dýrum, sem hún setur saman úr fundnum trébútum og eru nokkrir slíkir skúlp- túrar á sýningunni, bæði sem hluti af innsetningunum og úti á svölum safnsins. Inni í öðrum salnum er stórt verk úr spónaplötum sem þekja heilan vegg frá gólfi til lofts. Verkinu mætti lýsa sem stóru veggmálverki eða lág- mynd, þar sem upphleypt form og fí- gúrur rísa upp úr tvívíðum fletinum. Auk þeirra stendur gólfskápur fyrir miðju verki, og framan við hann tveir kassar með glærum rörum sem vatn leikur um. Vatnsrennslið tengist hjóli sem stendur þétt upp við vegginn og sem gestir geta hjólað á og þannig framleitt rafmagn fyrir farsímana sína með eigin orku. Myndefnið á sjálfum flekanum sýnir hefðbundna landslagsmynd með skýra vísun í ís- lenska náttúru en einnig skírskotanir í íslenska listasögu. Geómetrísk form mynda fjöll og dali allra efst á mynd- inni, en í neðri hlutanum, þar sem smáblóm breiða úr sér á láglendi, fylgja óregluleg form línum viðarins. Hægra megin við skápinn falla þessi form og litir eins og óbeislað fallvatn frá lofti til gólfs. Í verkinu má greina vísanir í geómetríska abstraksjón, ex- pressjóníska tjáningu og fantasíu sem kallast á við málverk Kjarvals í þeim hluta myndarinnar, þar sem mennsk form birtast í landslaginu. Fleira ber fyrir augu þegar grannt er skoðað og því mætti segja að verkið væri ofhlaðið, en einnig innhaldsríkt þar sem settar eru fram brennandi spurningar um ýmsar hliðar á sam- bandi mannsins og náttúru, en þó ekki síst þá hvort það skipti máli á hvern hátt maðurinn nýtir sér þá orku sem náttúran býr yfir. Nýjar hliðar Veggverkið sýnir óvæntar hliðar á Aðalheiði sem undanfarið hefur verið að taka nýja stefnu sem listamaður, bæði í viðfangsefnum sínum og því hvernig hún nálgast miðilinn, viðinn og tréð, sem efnivið í byggingar og undirlag fyrir málverk. Málaðir fletir hafa ekki eins afgerandi nærveru í öðrum hluta þessa tvískipta verks, sem er frístandandi bygging, samsett úr mislitu timbri, staðsett úti á miðju gólfi. Tenging þess við sögu mál- verksins kemur ekki síst fram í formi byggingarinnar sem er í laginu eins og spírall. Formið vísar í gullinsnið og þá um leið myndbyggingu og jafn- vægi, en einnig vöxt út frá miðju. Á spíralnum er op inn í stigahús sem líta má á sem kjarna verksins. Gest- um er boðið að ganga upp stiga, sem endar á palli með útsýni yfir óreglu- lega málaðan fleka eða svalir með fimm skúlptúrum í formi hvítvoð- unga. Frá stiganum er einnig hægt að horfa niður og yfir þann hluta inn- setningarinnar sem ekki sést frá inn- ganginum í salinn. Í þessu verki er tengingin við eldri verk Aðalheiðar sterkari en í veggmyndinni. Auk hvít- voðunganna er í stiganum skúlptúr af sitjandi naktri konu, og í opna hlut- anum eru bæði hreindýr og refur, sem njóta sín betur en fyrrnefndu verkin, í hálfum opnum hluta spírals- ins. Við fætur hreindýrsins eru marg- ir litlir ljósmyndarammar með ein- staklega fallegum málverkum af blómum sem vísa í kvensköp og frjó- semi manns og jarðar. Enn annar hluti verksins er veggmynd utan á miðju spíralsins, þar sem lágmyndir af mannsandlitum falla að landslagi. Loks er myndbandsverk hluti af inn- setningunni en það sýnir lítinn hóp af fólki, sem með kóreógrafískum hreyf- ingum myndar spíral eða blóma- mynstur – eftir því hvernig á þær er horft. Myndbandsverkið bindur sam- an heildarhugsun verksins, en gæti hæglega staðið sjálfstætt. Viðkvæmt jafnvægi Hvort sjálf innsetningin býr yfir því jafnvægi sem hún fjallar um má velta fyrir sér, því sumir hlutar hennar eru betur heppnaðir en aðrir. Hitt er víst að Aðalheiði liggur augljóslega mikið á hjarta um málefni er snúa að jafn- vægi, bæði í sambandi manns og nátt- úru og í mannlegum samskiptum og samfélagi. Upphaf lífsins og endalok, en ekki síður endurnýjunarafl hring- rásar lífsins eru viðfangsefni verks- ins. Sýningin í heild sinni lýsir ein- lægri og ákafri löngun til að tjá allar þær hugsanir sem slíkar vangaveltur vekja, ekki síst í tengslum við um- ræðu um verndun náttúrunnar og virkjun fallvatna, en einnig þá sýn að það sé manninum mikilvægt að glata ekki tengslum við náttúruna og get- unni til að virkja eigin krafta í þágu betra mannlífs. Stærð verkanna er lýsandi fyrir þær mörgu hliðar um- ræðunnar sem Aðalheiður vill koma að. Hún sýnir að hún er óhrædd við að takast á við nýjar áskoranir og tekst á við þær þótt ekki sé ennþá að fullu ljóst hvert þær eiga eftir að leiða hana sem listamann. Sýningin stað- festir hins vegar að Aðalheiður er á leið frá skúlptúrunum sem hún er þekktust fyrir í átt að flóknari, en um leið innihaldsríkari verkum sem fjalla um mál er brenna á samtímanum. Einlægur ákafi Ljósmyndir/Listasafnið á Akureyri Frjósemi „Við fætur hreindýrsins eru margir litlir ljósmyndarammar með einstaklega fallegum málverkum af blómum sem vísa í kvensköp og frjósemi manns og jarðar,“ segir rýnir m.a. um þessa innsetningu Aðalheiðar. Listasafnið á Akureyri Hugleiðing um orku bbbnn Sýning Aðalheiðar Eysteinsdóttur. Sýn- ingunni lýkur 21. október 2018. MARGRÉT ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR MYNDLIST Litrík Önnur tveggja innsetninga Aðalheiðar í Listasafninu á Akureyri. Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, lauk í fyrrakvöld og á laugardagskvöld var tilkynnt hvaða kvikmynd hefði hlotið aðal- verðlaun hennar, Gullna lundann. Var það franska kvikmyndin Un couteau dans le coeur, eða Hnífur í hjarta, sem dómnefnd þótti best af þeim sem sýndar voru í aðalkeppnis- flokki RIFF, Vitrunum. Leikstjóri hennar er Yann Gonzales. Í aðal- dómnefnd hátíðarinnar sátu banda- ríska leikkonan og framleiðandinn Shailene Woodley, Anne Hubbel sem er framleiðandi og stofnandi Tangerine Entertainment og Mich- ael Stutz, framleiðandi og dagskrár- stjóri á alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Berlín, Berlinale. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um verð- launamyndina að Gonzalez hafi mik- ið sjálfstraust og beiti skopskyninu í frásögn sinni meðfram spennandi ástarsögu. Sérstök verðlaun dóm- nefndar hlaut svo kvikmyndin Styx í leikstjórn Wolfgang Fischer. Í flokknum Önnur framtíð hlaut heimildarmyndin América eftir Er- ick Stoll og Chase Whiteside verð- laun og verðlaunin Gullna eggið hlaut Nathalia Konchalovsky fyrir stuttmynd sína Vesna. Stuttmyndin Black line eftir Mark Olexa og Fran- cesca Scalisi hlaut einnig sérstök verðlaun dómnefndar. Verðlaunin fyrir bestu íslensku stuttmyndina hlutu Maddie O’Hara, Jack Bushell & Alex Herz fyrir Jörmund. Verðlaunuð Úr Hnífi í hjarta, kvikmyndinni sem hreppti Gullna lundann. Hnífur í hjarta hlaut Gullna lundann á RIFF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.