Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir því hefur verið tekið hve vel Íslendingum gengur að sækja fé í sameiginlega rannsóknar- og þróun- arsjóði Evrópusambandsins. Þetta segir Andrés Vallés Zariova hjá spænsku ráðgjafarstofunni Inspir- alia. Frá árinu 2016 hafa Inspiralia og íslenska ráðgjafarfyrirtækið Evris átt í samstarfi við að aðstoða fjölda íslenskra fyrirtækja við að sækja um úthlutun úr sjóðum sem heyra undir Horizon 2020-áætlun ESB. „Sem dæmi um sérstöðu Íslands þá hefur Grikkland ekki fengið nein- ar úthlutanir úr öðrum fasa styrkja- kerfis ESB það sem af er þessu ári en Ísland fengið styrk fyrir þrjú verkefni á árinu og samtals sex út- hlutanir frá upphafi. Ísland skákar líka Póllandi sem hefur fengið tvær úthlutanir úr öðrum fasa á árinu en er samt hundrað sinnum fjölmenn- ari þjóð,“ útskýrir Andrés. Að mati Andrésar á þetta sér ýmsar skýringar. „Fyrir það fyrsta verður að nefna að á Íslandi má finna fjölda öflugra fyrirtækja sem stunda áhugaverða nýsköpun, s.s. á sviði sjávarútvegs, orkunýtingar, lyfjaframleiðslu og upplýsinga- tækni. En íslenskt atvinnulíf hefur líka verið duglegt að nýta þjónustu sérfræðinga við að sækja um styrki og er því oftar að senda inn verkefni sem eiga alvöru erindi við styrkja- áætlun ESB og skila inn öflugum umsóknum.“ Horizon 2020-áætlunin hefur það að markmiði að efla nýsköpun og rannsóknir í Evrópu og bæta sam- keppnishæfni álfunnar gagnvart Bandaríkjunum og Asíu. Verkefnið hófst árið 2014, lýkur árið 2020 og hefur úr 80 milljörðum evra að spila. „Styrkirnir dreifast á nokkra undir- flokka og er t.d. hluti af fjármagninu frátekinn fyrir vísindarannsóknir, annar hluti fyrir iðnað og svo er bú- ið að eyrnamerkja um það bil 2,7 milljarða evra smáum og meðalstór- um fyrirtækjum,“ útskýrir Andrés og bætir við að Evrópusambandið hafi boðað áframhaldandi stuðning við nýsköpun fyrirtækja eftir 2020. Gera tillögur sambandsins ráð fyrir allt að 43% aukningu í þessum styrkjaflokkum. Umsóknarferlið fyrir smá og meðalstór fyrirtæki er í tveimur umferðum þar sem hægt er að hreppa 50.000 evra styrk í fyrsta fasa til að standa straum af áreið- anleikakönnun, og í framhaldinu hljóta allt að 2,5 milljóna evra styrk í öðrum fasa. Svar á sex vikum Anna Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evris, segir að það komi mörgum á óvart hversu skilvirkt umsóknarferlið er en yf- irleitt taki ekki nema hálfan annan mánuð að fá svar vegna umsóknar í báðum fösum. Alla jafna fái um 10% umsókna styrk í fyrsta fasa en inn- an við 5% komast í gegnum síunina í öðrum fasa: „Í tilviki íslenskra um- sókna sem hafa farið í gegnum okk- ur hefur árangurinn aftur á móti verið í kringum 60-70% í fyrsta fasa og rúmlega 30% í öðrum fasa, og ástæðan að hluta sú að við hjálpum fyrirtækjum ekki að senda inn um- sóknir nema við teljum líklegt að verkefnið falli að kröfum og mark- miðum Horizon 2020.“ Að sögn Önnu Margrétar olli samstarfið við Inspiralia straum- hvörfum og mátti mjög fljótlega greina betri árangur umsókna frá Íslandi. Síðan þá hefur Evris átt þátt í að afla íslenskum fyrirtækjum samtals nærri tveggja milljarða króna úr styrkjakerfi ESB. Viðskiptamódel Inspiralia byggist á því að fyrirtæki leggja fram 10.000 evrur fyrir umsókn í fyrsta fasa. „Ef verkefnið fær styrk er sú upphæð endurgreidd og styrkurinn notaður til að gera áreiðanleikakönnun og sækja um styrk úr fasa tvö. Hljóti seinni umsóknin brautargengi fær Inspiralia 6% árangursþóknun en í gegnum allt ferlið fylgja þrír sér- fræðingar hverri umsókn eftir, og í þau tvö ár eftir styrkveitingu sem þróunarverkefni fyrirtækjanna standa alla jafna sér Inspiralia um verkefnastjórnun og að ganga frá öllum formlegum og lagatæknileg- um atriðum,“ segir Anna Margrét og bætir við að mörg íslensk sprota- fyrirtæki eigi erindi við evrópska styrkjakerfið en hafi reynst erfitt að komast yfir fyrsta hjallann. „Ég hef hvatt fjárfesta og fjárfestingarsjóði til að leggja þeim fyrirtækjum lið með framlagi sem dugar til að hefja umsóknarferlið. Bara það eitt að komast í gegnum fyrsta fasa er dýr- mætur gæðastimpill og eðlilega mikill fengur í að komast yfir í ann- an fasa.“ En hvað þarf til að komast í gegn- um síuna? „Grunnforsenda er að varan sem um ræðir hafi burði til að styrkja samkeppnishæfni álfunnar. Hún þarf að vera einstök og hafa greinlega sérstöðu á markaði, auk þess sem fyrirtækið þarf að búa að öflugu teymi. Síðast en ekki síst þarf viðskiptaáætlunin að vera góð, byggjast á vönduðum forsendum og góðar horfur á því að fólk og fyrir- tæki hafi áhuga á að kaupa það sem á að framleiða.“ Hafa fengið nærri tvo milljarða Morgunblaðið/Eggert Hvati Meðal þeirra sem fengið hafa nýsköpunarstyrk frá ESB er Skaginn 3X sem fékk úthlutað rúmlega tveimur milljónum evra fyrr á árinu. Styrkurinn verður notaður til að þróa nýja kynslóð flokkunartækja fyrir skip.  Það sem af er árinu hafa þrjú verkefni frá Íslandi hlotið stór framlög úr Horizon 2020-áætlun ESB  Ísland með fleiri úthlutanir úr öðrum fasa áætlunarinnar á þessu ári en t.d. Grikkland og Pólland Anna Margrét Guðjónsdóttir Andrés Vallés Zariova Innspýting » Samanlagt hafa íslensk verkefni fengið nærri tvo millj- arða á þremur árum. » Samstarf við sérhæft ráð- gjafarfyrirtæki á Spáni virðist hafa haft veruleg áhrif. » Árangur íslenskra styrk- umsókna langt yfir meðaltali. 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Eignarhaldsfélagið Travelco hefur keypt allar ferðaskrifstofur Primera Travel Group og tekið yfir skuldir við Arion banka. Kemur þetta fram í tilkynningu sem send var fjölmiðlum á laugardag. Travelco er nýstofnað félag og er stærsti hluthafi þess Andri Már Ingólfsson, eigandi flug- félagsins Primera Air sem varð gjaldþrota í byrjun mánaðarins. Segir í tilkynningu að rekstur ferðskrifstofanna verði færður undir Travelco Nordic A/S í Danmörku og rekstri þeirra haldið óbreyttum. Segir þar jafn- framt að félagið muni standa við allar skuldbind- ingar sínar gagn- vart starfsfólki og birgjum. Þá var greint frá því á sunnu- dag að Arion banki hefði fengið allsherjarveð í eignum Primera Travel Group; þar með talið húseign Heimsferða, vöru- merkjum Heimsferða og Terra Nova auk léna ferðaskrifstofanna. Ferða- vefurinn Túristi sagði fyrstur frá þessu. ai@mbl.is Ferðaskrifstofur Primera til Travelco Morgunblaðið/ÞÖK Skellur Flugfélagið Primera Air varð gjaldþrota í byrjun október. Andri Már Ingólfsson  Arion banki með allsherjarveð í eignum Primera Travel Group

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.