Morgunblaðið - 15.10.2018, Page 22

Morgunblaðið - 15.10.2018, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 Eirvík flytur heimilistæki inn eftir þínum séróskum Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Bergljót Arn-alds, rithöf-undur, söng- kona, leikkona og leikstjóri, fagnar 50 ára afmæli sínu í dag. Ellefta barnabókin hennar er komin í verslanir en Forlagið gefur hana út. Bókin heitir Rosi fer í bað og fjallar um Rosa risaeðlu. „Ég held að þetta sé fyrsta íslenska baðbókin og hug- myndin er að gera baðferðir ennþá skemmtilegri og svo er bókin líka fyrir krakka sem eru ekki ólmir í að fara í bað. Ég vil kynna bækur snemma fyrir börnum og þessi bók er mjög fín fyrir þau sem eru rétt komin með grip. Hún er rúnnuð og þau geta nagað hana og flett.“ Núna er Bergljót að vinna að endurútgáfu á bók þar sem hún kennir krökkum á klukku og kemur bókin út á næsta ári. Bergljót hefur verið leikstjóri leikhópsins Perlan síðustu tvö ár og er þetta þriðja starfsárið hennar með hópnum. Í tilefni af 35 ára af- mæli Perlunnar í ár verður leikhópurinn með sýningu á Bessastöðum núna í nóvember. Sjálf verður Bergljót með tónleika í nóvember í Selfosskirkju ásamt kór eldri borgara á Selfossi. „Ég hef verið að vinna með píanista hóps- ins, Guðmundi Eiríkssyni, og hefur hann útsett lög eftir mig fyrir kór- inn og svo tökum við líka þekkta standarda. Þetta samstarf hófst í kjölfarið á að ég söng með Mótettukórnum í Hallgrímskirkju á Menn- ingarnótt á dagskránni Sálmafoss. Þetta verður því í þriðja sinn á stuttum tíma sem ég syng með kór, sem er nýtt og spennandi fyrir mig,“ en Bergljót söng einnig með Kirkjukór Kópavogs á tónlist- arhátíð nýlega. Bergljót er búin að fara í ævintýraferðina í tilefni dagsins, en hún skellti sér til Balí. Afmælisveisluna hélt hún síðastliðinn laugardag, en auk þess er stefnan hjá henni að skella sér á helgarnámskeið í dansi. „Í dag ætla ég að taka á móti þeim sem komust ekki til mín á laug- ardaginn og svo hef ég heyrt að það eigi að koma mér á óvart en ég veit ekkert hvað það er. Síðan ætla ég að bjóða leikhópnum mínum heim á miðvikudaginn.“ Börn Bergljótar eru Matthías Arnalds Stefánsson, en hann á soninn Egil Vála Arnalds sem er eins árs, og Elíndís Arnalds Pálsdóttir, en hún átti níu ára afmæli síðastliðinn fimmtudag. Ljósmynd/Bjarney Lúðvíksdóttir Afmælisbarnið Bergljót Arnalds. Dansað, sungið, leikstýrt og skrifað Bergljót Arnalds er fimmtug í dag G uðmundur Knútur Egils- son fæddist í Reykjavík 15.10. 1928 og ólst þar upp á Laugavegi 72: „Ég var skírður eftir Guð- mundi Knúti Guðjónssyni stýrimanni sem fórst með Jóni forseta 1928. Hann hafði vitjað nafns hjá móður minni og þá þótti sjálfsagt að verða við því.“ Guðmundur var í Austurbæjar- skólanum, stundaði nám við Hand- íðaskólann í Reykjavík í tvo vetur og sótti námskeið við Námsflokka Reykjavíkur í nokkur ár. Auk þess lauk hann námi í verkstjórnarfræðum. Guðmundur hóf störf hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur 15 ára, árið 1944, með föður sínum, og starfaði þar nær óslitið til 2010, eða í rúmlega 66 ár. Við starfslok var hann sá starfsmanna fyrirtækisins sem hafði lengstan starfsaldur. Guðmundur hóf störf í jarðlínudeild en starfaði síðar í spennistöðvadeild þar sem hann var verkstjóri í fjölda ára. Hann var um árabil í orlofsnefnd og trúnaðarráði Verkstjórafélags Reykjavíkur. Árið 1988 tók Guðmundur að sér að skrá muni og halda til haga sögulegum þáttum í starfi Rafmagnsveitunnar. Hann varð fyrsti forstöðumaður Minjasafns Rafmagnsveitu Reykjavík- ur, síðar Orkuveitu Reykjavíkur, við Elliðaár, sem opnað var vorið 1990. Guðmundur var í fjölda ára í rit- nefnd og síðar ritstjóri Línunnar, tímarits starfsmanna Rafmagnsveit- unnar. Þá hafði hann umsjón með gerð kvikmyndarinnar „Virkjunar- framkvæmdir í Sogi“ sem frumsýnd var 1992 og með gerð nokkurra stuttra heimildamynda, ásamt Guðjóni Magn- ússyni, skrifstofustjóra RR. Guðmundur sinnti fjölda trún- aðarstarfa fyrir Félag heyrnarlausra Guðmundur Knútur Egilsson, fv. forstöðumaður – 90 ára Fjöldi afkomenda Guðmundur og Sigurbjörg Hervör með börnum, tengdabörnum, barna- og barnabarnabörnum. Byggði upp Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur Gömul mynd Guðmundur, Sigurbjörg Hervör og börnin á 8da áratugnum. Akureyri Haukur Snær Vignisson fæddist 16. september 2017 kl. 05.50 á Akureyri. Hún var 53 cm löng og vó 4.200 g við fæðingu. Foreldrar hennar eru Vignir Hauksson og Kolfinna Snæbjörg Haraldsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.