Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Beindu orkunni sem er allt um kring þessa dagana í réttan farveg í vinnunni. Taktu þér tíma til að sinna heilsurækt og íhugun. Vertu fordómalaus og sanngjarn. 20. apríl - 20. maí  Naut Gáðu að þér í dag, þú gætir lent í illvígu rifrildi við einhvern alveg óvart. Gerist það skaltu láta glósur hans sem vind um eyru þjóta. Þú veist betur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft á aukinni einveru að halda til að hugsa um lífið og tilveruna og til að ná áttum. Reyndu að lesa í hug samstarfsmanna þinna og fáðu þá svo til að tjá sig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það vefst fyrir þér að gera upp hug þinn í persónulegu máli. Gefðu þér tíma til þess því án skilnings annarra verður þér ekk- ert úr verki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Athyglin beinist að þér í dag, sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Sýndu drengskap og taktu forystuna fyrir félögum þínum. Láttu ekkert verða til að egna þig upp. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er ekki rétti tíminn til þess að skrifa undir pappíra, gera samninga eða eiga mikilvæg viðskipti í vinnunni. Gefðu þér tíma til að skoða allar hliðar málanna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Til að ná árangri eða byrja í sambandi þá er lykilatriði að vera reiðubúinn. Með það á hreinu ættu allir framtíðarvegir að vera þér færir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er upplagt tækifæri til þess að hefjast handa við verk, sem þú hefur lengi látið þig dreyma um. Hjólin snúast þér í hag um leið og þú hefst handa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki deigan síga þótt menn sýni hugmyndum þínum takmarkaðan áhuga. Leggðu ekki út í neitt, sem þú hefur ekki efni á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt það sé mikið að gerast í kringum þig máttu ekki gleyma að gefa þér tíma til að hvílast og safna kröftum. Haltu því sem truflar í burtu frá þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú tekur þér hluti fyrir hendur, sem öðrum þykja flóknir. Vertu því jafnan viðbúinn og mundu að hver er sinnar gæfu smiður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt þú hafir lagt þig fram um að koma máli þínu til skila, er einhver sem vill ekki hlusta. Haltu stillingu innan um vinnu- félagana og finndu þér svo vinaröxl til að gráta á. Vinstri grænir lögðu til á fundi sín-um um helgina að vinnuvikan yrði stytt í 30 stundir. Jú, auðvitað er hægt að hagræða og breyta vinnubrögðum svo þetta sé gerleg og dýrmætur frítími lengist. Vík- verji vill þó halda til haga orðum lát- ins vinar sem rak verktakafyrirtæki, vann myrkranna á milli og naut þess. Sagði síðan þegar um fór að hægjast í lífinu: „Enginn vinnudag- ur er nógu langur það er alltaf svo margt sem bíður morgundagsins.“ Með þessi orð í huga er Víkverji efa- semdarmaður um styttri vinnuviku. x x x Kolbrún Baldursdóttir, borgar-fulltrúi Flokks fólksins, leggur til að kjörnir fulltrúar í borginni fái frítt í bílastæði. Víkverja finnst þessi tillaga mislukkuð. Borgarfulltrúar fá starfskostnað greiddan og það dug- ar þeim. Munum líka að forystufólk í þjóðfélaginu nýtur hylli ef það setur sig ekki á háan sess og deilir kjörum með almenningi. Á skipum tíðkast ekki lengur að sé yfirmannamessi, allir sitja við sama borð. Í þessu samhengi rifjar kunningi Víkverja upp að fyrir um 40 árum að aflokinni samkomu í Háskóla Íslands stóð fólk við tíkallasíma til að hringja eftir leigubíl. Afast í biðröðinni var forseti Íslands Kristján Eldjárn. Þvílíkur töffari, algjör jafningi fólksins. x x x Víkverji var um helgina við opnuntveggja áhugaverðra listsýninga hér í Reykjavík. Í Ásmundarsal sýn- ir Ragnar Axelsson jöklamyndir og Erró er svart-hvítur í Hafnarhúsinu. Báðir þessir listamenn sjá heiminn í öðru ljósi en við flest gerum; þeir opna okkur nýjar víddir og fá okkur til að hugsa mál öðruvísi vaninn bíð- ur. Frásagnir RAX af náttúru lands- ins sem sífellt breytist eru stór- brotnar og Erró sýnir okkur beint í kviku truflaðrar tilveru á gervi- hnattaöld. Stundum er sagt að inn- tak listviðburða sé myndin sem gest- ir fari með í huganum heim nema hvað nú eru þessar myndir býsna margar. Fyrir svo utan að við opnun sýninganna var fjöldi fólks sem þangað kom til að gleðjast, njóta, spá og spekúlera. Maður er manns gaman. vikverji@mbl.is Víkverji En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir Guði hjálpræðis míns. Guð minn mun heyra til mín. (Míka 7.7) fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 26. október PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. október. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Vertu viðbúinn vetrinum –– Meira fyrir lesendur Bragi Bergmann sendi mér inn-legg í braggaumræðuna. Það er á þessa leið: „Það verður sko örugglega engin Magga í sagga í þessum bragga, svo vitnað sé óbeint í Magnús Eiríksson. En dýr mundi Hafliði allur, svo vitnað sé mun lengra aftur í tímann. Og jafnvel gamalt orðatiltæki fær nýja merk- ingu – og stingur gat á pyngjuna: Mörgum í borginni brá, bragginn mun kosta þá „smá“! Er salernið gullið? Og svo er það bullið um öll þessi stingandi strá! Bjarki Karlsson skrifar á Boðn- armjöð: Ég held að ég hafi aldrei hitt Dag borgarstjóra svo að mig hlýtur að hafa dreymt að hann hafi sagt þetta við mig: Nú halda blá með bágum, braggast og slá með ljáum. Ei má þó lá mér lágum að leika mér smá að stráum. Hjálmar Freysteinsson talar um „Sjálfsánægju“: Sannlega hef ég ævinni á afrekað þetta og hitt. Nú er ég orðinn óttalegt strá, það eykur verðgildi mitt. Stefán Gíslason yrkir í von um að sér fyrirgefist þessi slæma afbökun á Áföngum Jóns Helgasonar: Séð hef ég bústin suðræn strá sólvermd í aldinskíri; áburð og ljós sem fengu frítt fræ þeirra vel svo spíri; mér var þó löngum meir í hug melgrasskúfurinn dýri hjá bragganum innundir Öskjuhlíð, utan við Norðurmýri. Magnús Halldórsson er á svip- uðum slóðum með þeirri at- hugasemd að „margur vildi Áfanga kveðið hafa“: Séð hef ég margan sinuskúf, sauðfé og merar naga, víði og birki veslast upp, í votlendum rýrðarhaga. Mér er nú heldur meir i hug, melgrasskúfurinn dýri, höfundaréttarvarinn víst og vex ekki’í blautri mýri. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich malar: „Nú rifjast upp vísa sem ég orti fyrir nokkrum árum af öðru tilefni en ekki ólíku“: Ég er glöð og góðum Degi gef ég þetta heillaráð að hann láti ekki í bráð finna sig á förnum vegi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Braggablús „Í DAG SKULUM VIÐ KYNNA OKKUR SÖGUNA Á BAK VIÐ SÖGUNA“ „HVORT VILTU FÁ Í AFMÆLISGJÖF, RAFHLÖÐUPRÓFARA EÐA SKRÚFJÁRNASETT?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... augljóst val. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann OG ÞÁ ÁTU ÍKORNARNIR SKÓNA MÍNA… MEÐAN ÉG VAR ENN Í ÞEIM! ÉG SÉ Á SVIPNUM AÐ ÞÚ HEFUR VERIÐ AÐ TALA VIÐ JÓN ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ BÁTURINN MINN VERÐI GERÐUR UPPTÆKUR! HEYRÐU, BRÓÐIR ÓLAFUR SÉR UM SÆRINGAR! Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.