Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 26
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Mörgum þykir óperan fegurst list-
forma. Hún blandar allri þeirri vídd
sem mannsröddin býr yfir saman við
hljóðfæraleik, leikrænna tjáningu,
fallegar sviðsmyndir og sögur um
goð og kónga jafnt sem þræla og
gleðikonur.
Verst að ekki skuli vera til á Ís-
landi almennilegt óperuhús og raun-
ar leitun að þeirri höfuðborg Evrópu
þar sem óperumenningin er fátæk-
legri – og það þrátt fyrir að margir
íslenskir óperusöngvarar séu í
fremstu röð í sínu fagi. Takmarkað
framboð á óperuuppfærslum býr
síðan til vítahring þar sem tækifærin
til að smitast af óperubakteríunni
eru fá sem svo veldur því að eftir-
spurnin eftir óperusýningum er
minni en ella.
Guja Sandholt og Ása Fanney
Gestsdóttir vilja breyta þessu. Þær
eru listrænir stjórnendur Óp-
erudaga í Reykjavík (www.operu-
dagar.is) en um er að ræða framhald
á Óperudögum í Kópavogi sem
haldnir voru árið 2016: „Með hátíð-
inni langar okkur m.a. að gefa fleir-
um tækifæri á að kynnast þessu list-
formi og vonandi fá bakteríuna,“
segir Ása. Hún bætir við að á dag-
skránni séu bæði stutt og aðgengileg
verk sem og lengri sýningar og
framúrstefnulegri verk. „Við gerum
hátíðina eins aðgengilega og hægt er
með því að dreifa Óperudögum á
marga staði í borginni og koma með
óperurnar og ýmsa söngviðburði til
fólksins. Samtals verða um það bil
30 viðburðir í boði og fáum við inni
hjá mörgum menningarstofnum
borgarinnar; heimsækjum grunn-
skóla og hjúkrunarheimili og höld-
um meira að segja óperuviðburð í
Árbæjarlaug,“ segir Guja og bendir
á að margir ókeypis viðburðir verði í
boði á hátíðinni.
Óperan gerð aðgengileg
Dagskrá Óperudaga er líka ætlað
að sýna hversu fjölbreytt verkefni
klassískir söngvarar taka sér fyrir
hendur enda syngja þeir jú ýmislegt
annað en óperutónlist. Guja og Ása
segja það útbreiddan misskilning að
það eina sem óperuheimurinn hafi
upp á að bjóða séu risastórar og
langar sýningar sem útheimti stóra
kóra, dýrar sviðsmyndir og heilan
her af einsöngvurum. Þær segja það
líka misskilning að til að njóta þess
að hlusta á óperu þurfi fólk að klæð-
ast síðkjólum og nýpressuðum
jakkafötum, og jafnvel klára eins og
eina dós af sterkum orkudrykk eða
nokkur skot af espressó til að sofna
ekki í rólegu köflunum:
„Það er svo miklu meira í boði í
óperuheiminum. Þýskur vinur minn
sem býr hér á Íslandi nefndi við mig
hvað hann saknaði þess að njóta óp-
eru á hversdagslegan hátt eins og
hann var vanur í heimalandinu, þar
sem það að skjótast á óperusýningu
getur verið jafn sjálfsagt og frjáls-
legt og að fara í bíó – og ekkert að
því að mæta á gallabuxunum,“ segir
Ása.
Meðal verka á dagskrá Óperu-
daga í Reykjavík má nefna flutning á
Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson og
Trouble in Tahiti eftir Leonard
Bernstein. „Verk Jóns Ásgeirssonar
er fyrsta íslenska óperan og að-
gengileg gamanópera sem er undir
tveimur tímum að lengd. Bernstein
er þekktastur fyrir söngleikina sína
en hann samdi þessa óperu þegar
hann var ungur maður og er hún
undir klukkustund í flutningi,“ segir
Guja og bætir við að Barokkbandið
Brák verður með mikla flugeldasýn-
ingu á opnunarkvöldi hátíðarinnar í
Fríkirkjunni þar sem fluttar verða
aríur, dúettar og hljóðfæratónlist
eftir Händel og fleiri snillinga bar-
okksins. „Þeir sem vilja prófa eitt-
hvað ævintýrakenndara gætu t.d.
haft gaman af sýningu Operation
Opera í Norræna húsinu þar sem
verkið In the Darkness verður flutt í
niðamyrkri; brúðuóperuna STÖV í
Tjarnarbíói eða óperugjörninginn
FREE PLAY í Hafnarhúsinu.“
Ása bendir á að upplagt sé fyrir
fólk að fara á sem flesta viðburði til
að kynnast óperuheiminum frá
mörgum ólíkum hliðum. „Það mætti
líta á dagskrána sem smökk-
unarmatseðil fyrir þá sem hafa ekki
kynnst óperuforminu eins vel og
þeir hefðu viljað og ættu flestir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi á
þessum söngva-seðli.“
Mikli ekki hefðirnar fyrir sér
En í hvaða stellingar á fólk að
setja sig þegar farið er á óperusýn-
ingu? Eru ekki alls kyns óskrifaðar
reglur sem óinnvígðum hættir til að
brjóta og verða að athlægi? Hvað ef
fólk klappar á röngum stað og neyð-
ist til að fara í sjálfskipaða menning-
arútlegð til Svalbarða?
Guja og Ása segja að það megi
einmitt alls ekki gera of mikið úr
Tugir smárra og stórra viðburða
verða á dagskrá Óperudaga í Reykja-
vík dagana 20. október til 4. nóvember
Markmiðið er m.a. að gefa sem flest-
um tækifæri á að fá innsýn í óperu-
heiminn og vonandi fá bakteríuna
Metnaður Ása Fanney (fyrir miðju) og Guja (þriðja frá
hægri) ásamt hljómsveitinni sem leikur undir í flutningi
Trouble in Tahiti. Hljómsveitin er skipuð nemendum úr LHÍ
og MÍT ef undan er skilin Hrönn Þráinsdóttir kennari sem
spilar á píanóog stjórnandinn Gísli Jóhann Grétarsson.
Smökkunarmatseðill fyrir þá sem vilja
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Ljósmyndarinn RAX opnar sýninguna Jökul
Myndaskáld Ljósmyndararnir Spessi og RAX skoða verkin í Ásmundarsal.
Gamlir samstarfsmenn Sveinn Andri Sveinsson og Skapti Hallgrímsson.