Morgunblaðið - 19.10.2018, Side 4

Morgunblaðið - 19.10.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr lífrænni ull og silki Kíktu á netverslun okkar bambus.is Veður víða um heim 18.10., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Akureyri 8 rigning Nuuk -4 heiðskírt Þórshöfn 9 rigning Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 heiðskírt Stokkhólmur 9 heiðskírt Helsinki 11 léttskýjað Lúxemborg 14 þoka Brussel 15 skýjað Dublin 11 léttskýjað Glasgow 11 léttskýjað London 14 skýjað París 17 heiðskírt Amsterdam 14 léttskýjað Hamborg 13 heiðskírt Berlín 14 alskýjað Vín 16 heiðskírt Moskva 14 heiðskírt Algarve 18 skýjað Madríd 19 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 20 rigning Róm 23 heiðskírt Aþena 19 léttskýjað Winnipeg 14 léttskýjað Montreal 2 léttskýjað New York 8 heiðskírt Chicago 9 heiðskírt Orlando 29 rigning  19. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:31 17:56 ÍSAFJÖRÐUR 8:44 17:53 SIGLUFJÖRÐUR 8:27 17:36 DJÚPIVOGUR 8:02 17:23 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Suðvestan hvassviðri eða stormur með rigningu og síðan skúrum en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á Austurlandi. Suðvestan 8-18 m/s og skúrir en rofar aftur til norðaustan- og austanlands. Vaxandi suðaustan- átt með rigningu við suðurströndina um kvöldið. Hiti 3 til 10 stig en fer kólnandi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin hefur tilkynnt sveitar- stjórn Norðurþings að hún muni hætta að þjónusta göngin um Húsavíkurhöfða um næstu mán- aðamót. Verður því væntanlega slökkt á lýsingu í göngunum og enginn snjór mokaður í vetur. Sveitarstjórn telur þetta geta haft í för með sér ófyrirséðar afleiðingar fyrir fyrirtækin sem þurfa að flytja hráefni og afurðir til og frá iðn- aðarsvæðinu á Bakka. Ríkið kostaði gerð ganganna og annaðist Vegagerðin verkið. Göngin eru ætluð til að auðvelda flutninga á hráefni frá Húsavíkurhöfn til fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu Bakka og á afurðum til baka. Óvissa hefur verið um rekstur ganganna og veganna beggja vegna. Nú hefur Vegagerðin tekið af skarið og tilkynnt að þar sem göngin eru ekki opin til almennrar umferðar og ekki hluti af þjóðvega- kerfi landsins sé ekki heimilt að þjónusta þau með opinberu vegafé. Slökkt á lýsingu 1. nóvember Kristján Þór Magnússon, sveitar- stjóri Norðurþings, segir að göngin séu í eigu ríkisins og hafi verið byggð samkvæmt sérstökum lög- um. Það sé ekki hlutverk sveitar- félagsins að annast þjónustu og við- hald ganganna heldur ríkisins. Hann segir að svo virðist sem tog- streita sé á milli ráðuneyta um það hvar verkefnið eigi að vistast. „Það þarf að leysa þetta og tryggja reksturinn. Það verkefni ætti að vera hjá Vegagerðinni,“ segir Kristján Þór. Hann segir að lítið hafi reynt á snjómokstur á síðasta vetri enda notkun lítil þar sem gangsetning kísilvers PCC seinkaði. Næst þegar komi hálka og snjór verði vand- ræði. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar hefur stofnunin sinnt lágmarksþjónustu í göngunum, aðallega lýsingu. G. Pétur Matt- híasson upplýsingafulltrúi segir að Vegagerðin muni ekki greiða reikn- inga fyrir lýsingu eftir 1. nóvem- ber. Kristján Þór segir, spurður hvort fyrirtækin eigi að greiða fyrir þjón- ustuna, að göngin eigi að vera opin öllum sem nota iðnaðarsvæðið á Bakka. Þau hafi verið forsenda uppbyggingar á iðnaðarsvæðinu, ekki aðeins fyrir eitt fyrirtæki heldur fleiri, og þannig réttlætt fyrir Eftirlitsstofnun EFTA. Einn- ig sé vonast til að þungaflutningar að austan, til dæmis með fisk, fari um þau og beint niður að höfn. Verði leyst hið snarasta Byggðaráð Norðurþings fjallaði um málið í vikunni og skoraði á þrjú ráðuneyti, atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og fjár- málaráðuneytið, að ganga frá mál- inu hið snarasta. Hættir að þjón- usta göng um Húsavíkurhöfða  Tilheyrir ekki þjóðvegakerfinu  Sveitarstjórn varar við afleiðingum Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Flutningar Göngin voru tekin í notkun á síðastliðnu ári. Húsavíkurhöfði » Jarðgöngin tengja iðnaðar- svæðið á Bakka við Húsa- víkurhöfn. Um þau fara þungaflutningar í þágu iðn- aðarins. Þau eru ekki opin al- mennri umferð. » Göngin eru tæpur kílómetri á lengd og Bakkavegur í heild er 2,4 km. » Í sérlögum um innviða- uppbyggingu sem samþykkt voru 2013 var gert ráð fyrir 1,8 milljarða kr. kostnaði. Hann varð um 3,6 milljarðar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum gert ráð fyrir að staða krónunnar undanfarin ár væri ósjálfbær. Við höfum átt von á ein- hverri veikingu. Hún er að koma fram núna,“ segir Bogi Nils Boga- son, starfandi forstjóri Icelandair Group. Bogi Nils segir áhrifin ekki komin fram í bókunum. „Í okkar rekstri kemur veiking krónunnar fram með tvennum hætti; annars vegar með því að Ís- land verður ódýrara fyrir erlenda ferðamenn, sem eykur eftirspurn eftir flugi til landsins, afþreyingu og gistingu. Það er alltaf einhver töf á því að þau áhrif komi fram, enda búið að selja fargjöldin fram í tím- ann. Hins vegar batnar afkoman vegna þess að við erum með lang- stærstan hluta af okkar tekjum í er- lendri mynt en stóran hluta kostn- aðarins í íslenskum krónum. Veiking krónunnar kemur fljótt fram í okkar rekstri vegna þessa samspils.“ Voru komin að þolmörkum „Við heyrum á ferðaþjónustu- aðilum sem við erum í viðskiptum við úti í heimi, að gengið var komið að þolmörkum. Þegar gengi breytist í þessa átt verður staðan betri hvað það varðar að selja og markaðssetja Ísland. Fyrir þá sem eru að selja landið í samstarfi við okkur er þetta mjög jákvætt. Þetta lækkar kostnað ferðamanna sem hingað koma,“ segir Bogi Nils, sem kveðst að- spurður ekki eiga von á mikilli breytingu á hlutfalli tengifarþega – flugfarþega sem fara ekki út af Keflavíkurflugvelli á leið sinni yfir haf – vegna veikingar krónunnar. Hótelsalan undirbúin Icelandair hefur undirbúið sölu á Icelandair-hótelunum. Þau eru önn- ur stærsta hótelkeðja landsins. Bogi Nils segir gengisbreyt- inguna undanfarið ekki hafa haft mikil áhrif í þessu efni. Formlegt söluferli sé ekki hafið. Nú sé fyrst og fremst verið að undirbúa söluna. „Vinnan sem við settum í gang með okkar ráðgjöfum er á fullu. Það hefur ekkert óvænt komið upp á sem tefur ferlið. Við erum að vanda okkur frekar en að flýta okkur. Við munum fyrir lok mánaðarins senda upplýsingapakka á mögulega kaup- endur en margir hafa lýst áhuga, einkum erlendir aðilar, þótt eigin- legt söluferli sé ekki hafið.“ Bogi Nils segir veikingu krónunn- ar til þess fallna að styðja við af- komu hótela úti á landi. Vegna styrkingar krónunnar hafi ferða- menn haldið sig nær Reykjavík og stytt dvöl sína. Það hafi haft nei- kvæð áhrif á hótel úti á landi. Hann staðfestir að alþjóðlegar hótelkeðjur hafi sýnt Icelandair-hótelunum áhuga. Hefur bein áhrif á afkomu Icelandir Group var að meðaltali með um 4.300 starfsmenn í fyrra. Bogi Nils segir aðspurður að gengisbreytingin hafi áhrif á launa- kostnað félagsins mældan í erlendri mynt. „Rúmlega 90% af okkar laun- um eru í krónum og hér um bil 80% af okkar tekjum eru í erlendri mynt. Þetta samspil veldur því að veiking krónunnar hefur bein áhrif á af- komu,“ segir Bogi Nils. Morgunblaðið/Eggert Á Keflavíkurflugvelli Sviptingar hafa verið í rekstri Icelandair á þessu ári. Icelandair taldi gengið ósjálfbært  Forstjórinn segir veikingu krónu styrkja samkeppnisstöðu Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjón- ustu, segir tilkynningar frá áhyggjufullum félagsmönnum streyma inn út af veikingu krónu. „Eins og við Íslendingar þekkjum mætavel hefur veiking krónunnar þau beinu áhrif að verð á innfluttri vöru hækkar. Það er að gerast núna hjá heildsölum sem flytja inn vörur og hjá innlendum framleiðendum. Margir innlendir framleiðendur nota innflutt aðföng. Þau verða dýr- ari fyrir vikið. Fyrirtækin hafa lengi tekið á sig þann kostnað sem á þeim hefur dunið. Þá varðandi launahækkanir og aukið mót- framlag í lífeyrissjóð sem kom til framkvæmda 1. júlí sl. Allt þetta spilar saman. Þannig að okkur sýn- ist vera mjög mikið um verðhækk- anir í pípunum. Sumar eru þegar orðnar,“ segir Andrés. Hann segir þær „óraunhæfu kröf- ur sem birtast í kröfugerð stærstu verkalýðsfélaganna“ ýta enn undir „að fyrirtækin leiti allra leiða til að hagræða og sjálfvirknivæða“. Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda, segir fréttir af kröfugerð launþegasamtaka hafa örugglega haft sitt að segja um gengis- þróunina síðustu daga með því að slá á væntingar í efnahagsmálum. Horfur séu á meiri óróa í kjara- og efnahagsmálum á næsta ári en útlit var fyrir. Stöðugleiki síðustu ára sé í hættu. „Við þurfum ekki nauðsyn- lega að taka kollsteypu. Kröfugerð launþegasamtakanna eykur vissu- lega áhyggjur okkar af því að miss- um lendingu hagkerfisins úr bönd- unum. Að hún verði mjög hörð í staðinn fyrir að vera mjúk.“ Óraunhæfar launakröfur hafi veikt gengið FÉLAG ATVINNUREKENDA TELUR AUKNAR LÍKUR Á HARÐRI LENDINGU Í HAGKERFINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.