Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 23

Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 ✝ Jónína KristínKristjánsdótt- ir, kölluð Ninna, fæddist á Ísafirði 3. maí 1922. Hún and- aðist á Hlévangi 1. október 2018. Foreldrar henn- ar voru Kristján Einarsson, f. 5.1. 1892, d. 24.3. 1979, og Katrín Hólm- fríður Magnúsdótt- ir, f. 7.10. 1897, d. 14.3. 1990. Systir Jónínu er Rebekka, f. 14.6. 1932, maki Sigurður Guð- jónsson, en önnur systkini þeirra, Hanna Helga, Margrét og Magnús Jakob, eru látin. Árið 1942 giftist Jónína Jóni Jónssyni frá Ljárskógum, f. 28.3. 1914, d. 7.10. 1945. Sonur Jónínu og Jóns er Hilmar Bragi, f. 25.10. 1942, var kvæntur Elínu Káradóttur, d. 22.9. 2016. Börn þeirra eru Jón Kári (börn: Ás- geir Valur og Guðmundur Karl) og Gyða Björk (börn: Hlynur Smári og Jónína Surata). Árið 1946 giftist Jónína Jó- hanni Péturssyni, f. 18.2. 1918, d. 2.4. 2006, en þau skildu. Sonur Jónínu og Jóhanns er Magnús Brimar, f. 18.6. 1947, kvæntur Sigurlínu Magnúsdóttur Wium. Börn þeirra eru Magnús Brimar Wium (barn: Sigurlína Wium), Haukssyni. Börn þeirra eru Tómas Tandri (maki: Guðný Rut Hafsteinsdóttir, börn: Katr- ín Ósk og Emelía Klara) og Kristín Kara (maki: Mads Win- kelmann). 4) Snorri, Már, f. 27.10. 1957. Jónína fæddist og ólst upp á Ísafirði. Hún sótti Húsmæðra- skólann á Staðarfelli veturinn 1940-41. Jónína flutti til Reykja- víkur 1945 og vann við sauma- skap og framreiðslustörf til 1954 er þau Sigfús fluttu til Keflavíkur. Árið 1963 byrjaði Jónína að leika með Leikfélagi Keflavíkur og var hún formaður leikfélagsins til fjölda ára. Í kjöl- farið sótti hún sér þekkingu á sviði leiklistar og leikstjórnar á fjölmörgum námskeiðum, eink- um á Norðurlöndunum. Hún starfaði síðan sem leikstjóri og leikstýrði yfir 20 leikritum víðs vegar um landið. Jónína var for- maður Bandalags íslenskra leik- félaga, í stjórn Norræna áhuga- leikarasambandsins Nordisk Amatör Teaterråd, tók þátt í stofnun Menningarsambands aldraðra á Norðurlöndum, Sam- nordisk Pensionist Kultur, og í stjórn þess 1982-1991. Hún var ein af stofnendum Eldeyjar, kórs eldri borgara, og Félags eldri borgara á Suðurnesjum, fyrsti formaður þeirra en einnig gjaldkeri í stjórn Landssam- bands aldraðra. Síðustu þrjú ár- in dvaldi hún á Hlévangi í Kefla- vík. Útför Jónínu fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 19. októ- ber 2018, klukkan 13. Sunna Kristín (barn: Brimar Nói) og Jóhann Pétur. Hinn 17. ágúst 1954 giftist Jónína Sigfúsi Sigurði Kristjánssyni frá Nesi í Grunnavík, f. 17.8. 1924, d. 9.7. 2012. Foreldrar hans voru Kristján Jónsson og Sólveig Magnúsdóttir. Börn Jónínu og Sigfúsar eru: 1) Hanna Rannveig, f. 9.8. 1951, gift Ágústi Péturssyni. Börn þeirra eru Stefán Páll (börn: Alfa Karitas, Elísabet Lea og Júlían Sigfús), Ásdís Björg (maki: Rune Skov Fey), Ásgeir Sigurður (maki: Guðlaug Helga Helgadóttir, barn: Álfrún Una) og Gunnar Ingi (maki: Aldís Geirdal Sverrisdóttir, börn: Þórunn Geirdal og ónefndur Geirdal). 2) Drífa Jóna, f. 8.7. 1954, gift Óskari Karlssyni. Börn þeirra eru Daníel (maki: Natalia Viktors, börn hennar Alexander og Viktor), Rakel Dögg (maki: Auðunn Elísson, börn: Guðbjörg Elva Dís, Lúkas Garpur og Mjölnir Þór), Kári Örn (maki: Guðrún Arna Ás- geirsdóttir, börn: Vignir Freyr og Fannar Logi). 3) Sjöfn Eydís, f. 2.2. 1956, gift Jóhanni Ólafi Ein minning er mér sterk í huga um mömmu. Ég var lítil og vaknaði við sólargeisla og suð í fiskiflugu. Það var ljúft og svo heyrði ég mömmu syngja með útvarpinu. Ég fór fram og þar var mamma að strauja glöð í bragði. Ég borðaði morgun- matinn og við spjölluðum saman milli þess sem hún söng. Þessi minning er yndislega ljúf og ég á margar slíkar. Mamma var vinnusamur dugnaðarforkur, skipulögð og glaðvær. Hún hélt átta manna heimili af miklum myndarskap. Það var tvíréttað í hádeginu og kvöldmat og alltaf til bakað með kaffinu. Hún saumaði fötin á okkur, ekki aðeins buxur og kjóla heldur einnig jakka og kápur. Þegar við urðum eldri teiknuðum við hvernig föt við vildum og hún saumaði þau. Fyrir jólin var allt þrifið hátt og lágt og síðan var föndrað. Þegar ég hugsa til baka á ég erfitt með að skilja hvernig hún kom öllu í verk á þessu stóra heimili en vinnudagurinn var oft langur hjá henni. Á þessum tíma voru börn í öllum húsum og konurnar heima. Þær komu gjarnan til mömmu til að fá hana til að spá í bolla og þá var oft fjör. Það voru alltaf allir velkomnir í mat og kaffi og veislurnar hennar voru umtalaðar. Hún var með einstaklega fallega rödd framan af og kunni ótrúlega marga texta. Þegar við fórum í bíl var iðulega sungið, einkum vísur eftir pabba. Henni fannst yndislegt að vera í sumarbústaðnum á Þing- völlum og hafði gaman af því að veiða og var fiskin. Mamma og pabbi spiluðu brids þegar færi gafst og tóku bæði þátt í starfsemi Leikfélags Keflavíkur. Hún lærði leik- stjórn og setti upp fjölda leik- rita víða um land. Þau voru bæði mjög handlagin og pabbi smíðaði húsgögn og mamma bólstraði þau. Þau höfðu yndi af því að ferðast og seinni árin ferðuðust þau mikið. Hún var einn af stofnendum kórs eldri borgara, Eldeyjar og Félags eldri borgara á Suðurnesjum og var fyrsti formaðurinn. Mamma var í norrænum stjórnum um eldri borgara og leiklist. Hún lærði Norðurlandamálin með því að lesa dönsku blöðin og hafa orðabókina á náttborðinu. Hún fékk lömunarveiki sem barn og lá lengi án þess að kom- ast á fætur en eftir það var hún stöðugt að hreyfa sig. Hún lenti í ýmsum áföllum en ýtti þeim til hliðar og reyndi að lifa í núinu en þegar aldurinn færðist yfir höfðu þessi áföll aftur áhrif á hana. Hún vissi að hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og því gætti hún þess að fá næga hreyfingu enda sá hún um sig sjálf til 93 ára aldurs. Þá fékk hún pláss á Hlévangi og það verður seint fullþakkað hve gott starfsfólkið er þar. Mamma var einstaklega hjálpsöm og eftir að barnabörn- in komu í heiminn var hún ætíð tilbúin til að passa þau. Og aldr- ei hélt ég veislu nema mamma byði fram aðstoð sína. Barnabörnin eiga góðar minningar um góða og glaðværa ömmu. Ég kveð móður mína með þakklæti og hlýju fyrir allt sem hún hefur gefið mér. Minn- ing hennar lifir áfram hjá stórum hópi afkomenda. Drífa Sigfúsdóttir. Elsku amma. Í andartaks þögn ég átta mig á að lífsneistinn er farinn þér frá. Ég græt og hugsa um tómarúmið í hjarta mínu en geri mér svo ljóst að mitt lífsins tré er laufgað fögrum minningum um þig. Þær verða aldrei frá mér teknar né heldur kærleikur þinn og trú. (RDÓ) Þær eru margar minningarn- ar sem koma upp í hugann þeg- ar ég sit hér og hugsa um þig. Hvort sem það var að sitja og spjalla um lífið og tilveruna inni í eldhúsi eða að hjálpa þér að baka var ég alltaf velkomin í heimsókn. Sérstaklega koma upp í hugann öll þau skipti sem ég kom í heimsókn eftir klipp- ingu og eitt skiptið hringdi ég dyrabjöllunni en þú svaraðir ekki svo ég ákvað að labba að eldhúsglugganum til að sjá hvort þú værir farin að sofa. Þú varst að fá þér vatnsglas á nátt- kjólnum og sprakkst úr hlátri þegar þú sást mig í gegnum gluggann. Við áttum langt og gott spjall saman og ég man hvað mér leið vel í hjartanu þegar ég fór heim það kvöldið. Ég var svo heppin að eiga þig að og á ég margar góðar minn- ingar frá því ég var krakki og fékk að leika uppi á háalofti og fara í leynigöngin milli her- bergja, það var mikið sport. Þingvellir eiga líka sérstakan stað í hjarta okkar og ég á margar af mínum bestu minn- ingum þaðan að spila, veiða og hlusta á fullorðna fólkið spjalla meðan ég lá og hlustaði í koj- unni. Þegar mamma kom með þér á Þingvelli fyrir þremur ár- um í dagsferð sátum við og rifj- uðum upp sögur af ykkur afa. Þú talaðir um að þetta væri lík- lega síðasta skiptið sem þú labbaðir um og snertir hluti og rifjaðir upp minningar þínar af heilli mannsævi því þar áttum við öll góðan tíma saman. Eftir að börnin komu í heim- inn hafa þau eignast góðar minningar um barngóða og hlýja langömmu sem leyfði þeim að gera það sem þau vildu heima hjá sér og nú síðast á hjúkrunarheimilinu. Þau máttu leika sér með potta og pönnur, leikföngin og allt sem þeim datt í hug, það var ekkert bannað sem þeim fannst auðvitað frá- bært. Alltaf var passað upp á að það væri nóg nammi fyrir þau og það vakti alltaf mikla lukku hjá þeim. Mér er minnisstætt þegar drengirnir fóru í kapp- hlaup við okkur langömmu á göngunum á Hlévangi. Amma í hjólastólnum og ég að keyra hana og drengirnir hlupu svo hratt að þeir unnu okkur ömmu með yfirburðum og við hlógum öll mikið að því. Dýrmæt minn- ing er af Mjölni Þór að skríða upp í rúmið hjá ömmu Ninnu um daginn og fá knúsið sitt hjá henni eins og alltaf, það hlýjar mér um hjartarætur hvað þau voru sterkt tengd. Rakel Dögg Óskarsdóttir. Elsku Ninna systir mín. Mikið á ég eftir að sakna þín þó að þú hafir verið farin fyrir alllöngu í algleymið. Það var alltaf gott að heimsækja þig, stundum varstu að halda ræður í útlöndum og hlóst að sumum á ráðstefnunum, ég lék bara með og við hlógum saman. Þú varst aldrei reið í þínum veikindum. Þú sofnaðir með dætur þínar þrjár þér við hlið og hlustaðir á fallega tónlist. Hugur minn fór á flug þegar ég hugsaði aftur til æskuáranna okkar á Ísafirði. Við vorum fimm systkinin. Hanna Helga dó af slysförum í Reykjavík, ég man þegar kist- an kom heim og farið var með hana inn í stofu og þar stóð hún fram að jarðarför. Ég var send til Svölu í Vallarborg og horfði á líkfylgdina út um glugga. Magnús bróðir var mikils virði, góður og þolinmóður við litlu systur. Það var mikil sorg þegar hann dó snögglega 1941. Þá vorum við systurnar eftir þrjár, Adda, Ninna og ég, ör- verpið. Við áttum góða æsku, pabbi sjómaður og mamma myndarleg í höndunum og vann stundum í Íshúsinu að panna. Pabbi byggði einbýlishús, Krók 2, 1930 og þótti mikið á þeim árum. Ég leit mikið upp til systra minna enda voru þær fallegar og myndarlegar. Adda og Ninna unnu báðar í húfugerð- inni Hektor sem þótti fínt. Adda fór í vist hjá Grími rakara og konu hans og áttu þau lítinn dreng um eins og hálfs árs og hljóp ég stundum til Öddu og fékk að keyra í kerrunni þenn- an fallega, ljóshærða dreng, ekki vissi ég þá að hann ætti eftir að verða forseti, hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Adda giftist Óskari Sumar- liðasyni. Þau eignuðust dreng sem skírður var Magnús Jó- hann við kistulagningu Magn- úsar bróður. Þau eignuðust síð- an Hafþór sem dó allt of ungur af slysförum og svo Veigar og Kristján. Ninna fór í húsmæðraskól- ann á Staðarfelli, þangað kom frægur söngvari úr MA-kvart- ettinum, Jón frá Ljárskógum, ásamt vini. Ninna var að sjálf- sögðu að leika og syngja á kvöldskemmtuninni og varð Jón yfir sig ástfangin af stúlk- unni. Hann fór að skrifa henni bréf og úr því varð hjónaband. Jón fór að kenna í Gagnfræða- skólanum. Í október fæddist drengur nefndur Dengsi, seinna skírður Hilmar Bragi. Fljótlega veikist Jón af berkl- um og í janúar var hann fluttur á Vífilsstaði. Ninna fór með honum og Dengsi varð eftir hjá okkur mömmu. Ninna fékk fljótlega vinnu á Vífilsstöðum, hún var þar í rúm þrjú ár þar til Jón dó 1945. Ninna giftist Jóhanni Péturssyni seinna og eignast með honum Magnús Brimar. Það hjónaband stóð stutt. Hún fór svo að vinna hjá VR veitingastofu á móti Iðnó en þangað kom oft brosmildur myndarlegur piltur sem síðan varð stóra ástin og hlekkurinn í lífi hennar, Sigfús Kristjánsson yfirtollþjónn. Þau eignuðust saman fjögur mannvænleg börn og tók Sigfús drengjunum tveimur sem hún átti fyrir sem sínum eigin. Það var alltaf mikill kærleik- ur á milli okkar systra og fjöl- skyldna og gott að koma á Hringbraut 69 í Keflavík til þeirra. Nú ert þú sofnuð, systir mín góð, og mikið sakna ég þín. Hvað á ég nú að gera þegar það er gott veður og ég fer ekki í heimsókn til þín í Keflavík? Hvíldu í friði, kæra systir, og samúðarkveðja til barnanna þinna og fjölskyldna. Þín systir, Rebekka (Bíbí). Fáein fátækleg kveðjuorð, yljuð miklu þakklæti, skulu flutt við leiðarlok Jónínu Krist- jánsdóttur, fyrrverandi for- manns Bandalags íslenzkra leikfélaga. Við áttum saman sæti í stjórn bandalagsins í fjögur farsæl ár og þriðji mað- urinn með okkur í stjórn var Jónas Árnason, rithöfundur og alþingismaður. Þetta voru um sumt átakaár en stjórnin starf- aði sem einn maður og allt gekk eftir á bezta veg. Jónína hélt svo formennsku áfram og var alls stjórnarmaður í 7 ár, þar af fimm ár formaður og gegndi svo formennsku í nor- rænu samstarfi með sóma. Hún var hógvær í orðum og bar með sér mikinn þokka, með ljúfri ýtni sinni náði hún ágætum ár- angri, ákveðin og stefnuföst og vann bandalaginu ljómandi starf. Fyrir samstarfið þessi ár á ég mætar minningar sem ég þakka nú. Sjálfboðaliðastarf eins og þetta stjórnarstarf var auðgaði og gladdi og alveg sér- staklega þegar samstarfsfólkið var svo indælt og gefandi. Þar átti hún Jónína sinn ríkulega hlut og fullyrða má að áhuga- leikstarfið í landinu á henni mikið að þakka. Um leið og hennar fólki eru sendar sam- úðarkveðjur skal færa þökk mína einlæga og hlýja. Blessuð sé mæt minning Jónínu Krist- jánsdóttur. Helgi Seljan. Jónína Kristín Kristjánsdóttir Guðný langamma var mjög góð og þótti okkur mjög vænt um hana. Langamma prjónaði mjög mikið og prjónaði allt mögulegt á okkur. Frá því við vorum pínulítil prjónaði hún á okkur lopapeys- ur, sokka og vettlinga sem komu oftast í mjúkum afmælis- og jólapökkum. Það var alltaf gaman að koma til langafa og langömmu sem áttu alltaf eitthvað gott handa okkur eins og vöfflur og mjög góðar pönnukökur. Sérstaklega var gaman að koma til langömmu og langafa um jólin þegar öll fjölskyldan hittist og borðaði saman hangi- kjöt. Þá spiluðum við oft og það fannst langömmu gaman. Guðný langamma var alltaf mjög góð við okkur og var hún oft fín með falleg hálsmen og armbönd. Hún spurði okkur oft hvernig okkur gengi í skólanum og sagði okkur sögur af því hvað hún kæmi úr stórum systkinahóp og hvað var oft mikið fjör þegar þau voru að alast upp á Hellnafelli. Guðný langamma var alltaf svo dugleg og hugsaði svo vel um alla og við söknum hennar mikið. Guðmundur Kári Jónsson, Bryndís Bára Jónsdóttir, Laufey Birta Jónsdóttir. En fyrir handan hafið þar hillir undir land, í gullnum geislum vafið það girðir skýjaband. Þar gróa í grænum hlíðum með gullslit blómin smá, í skógarbeltum blíðum í blómsturlundum fríðum má alls kyns aldin sjá. (Valdimar Briem) Guðný var glæsileg kona, hlý- leg í framkomu og alltaf stutt í vinalegt bros. Við systkinin minnumst henn- ar með hlýhug og þökkum sam- fylgdina. Halldóra Björk, Þorgerður Br. og Birna Ólafía Jónsdætur og Björn Jón Jónsson. ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín dóttir Matthildur. Elsku afi. Það hvílir mikil sorg yfir okkur systrunum því nú er komið að kveðjustund. En það sem við getum huggað okkur við eru all- ar minningarnar sem við eigum um góðan afa. Þú varst hjartahlýr og það var alltaf stutt í húmorinn. Þú varst stoltur af afkomendum þínum og það sást alltaf þegar þú spurðir okkur um okkar líf eða börnin okkar. Við erum sammála um að við duttum í lukkupottinn hvað varðar afa og ömmur í okkar lífi og erum þakklátar fyrir það. Umhyggjan og alúðin sem þú sýndir okkur skein í gegn og okkur leið vel í návist þinni. Það var alltaf gaman að koma á Löngufitina og skemmtilegast fannst okkur að mæta í árlegu gamlársboðin sem þið amma héld- uð þegar við vorum ungar, þar sem öll fjölskyldan kom saman og átti dásamlegar stundir. Það var alltaf stuð og mikil gleði sem ríkti, og gerir enn þann dag í dag þegar börn, barnabörn og barnabarna- börnin hittast. Þín verður ætíð saknað og þú átt alltaf stað í hjarta okkar um ókomna tíð. Við elskum þig og við sjáumst í sumarlandinu einn daginn. Nú ert þú farinn á feðranna fund við hugsum til þín með sorg í hjarta, þín verður saknað um ókomna stund, guð geymi þig um veröld bjarta. (Höf. ók.) Þín barnabörn Unnur María og Þóra Sif. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, ÓMAR INGI FRIÐLEIFSSON, Rauðalæk 41, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 13. október. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 26. október klukkan 15. Kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Svala Lind Ægisdóttir Oliver Ómarsson Arna Björk Óðinsdóttir Mikael Freyr Oliversson Ingi Þór Ómarsson Anice Theodór Chebout Abraham Amin Chebout Friðleifur Björnsson Elva Regína Guðbrandsdóttir Gunnar Þór Friðleifsson Inga Guðmundsdóttir Elskulegur sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ÚLFAR EYSTEINSSON, Leiðhömrum 44, Reykjavík, lést miðvikudaginn 10. október. Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 24. október klukkan 15. Ingibjörg Ólöf Magnúsdóttir Stefán Úlfarsson Bjarklind Guðlaugsdóttir Guðný Úlfarsdóttir Heimir Helgason barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.