Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Rjúpnaveiðitímabilið er að bresta á og í huganum er ég straxbyrjaður að undirbúa veiðitúrana sem eru fram undan. Þettaer einn skemmtilegasti tími ársins,“ segir Dúi Landmark, sem er 53 ára í dag. Hann starfaði árum saman sem kvikmyndagerðar- maður, lengi fyrir Stöð 2 og síðar á eigin vegum. Gerði meðal annars ýmsa heimildarþætti, svo sem um náttúru landsins, ferðalög og veiði- skap sem um margt endurspeglar manninn sjálfan. Yfir tólf ára tíma- bil vann Dúi nær einungis heimildamyndir fyrir franskar sjónvarps- stöðvar, viðfangsefnin þau sömu ferðalög, náttúra, stangveiði og skotveiði. „Í tímans rás hef ég alltaf verið mikið á ferðinni um landið og finnst skemmtilegt. Núna er ég að mestu hættur í kvikmyndagerðinni og er að mestu leyti í leiðsögn með erlenda ferðamenn. Ég hef mest verið með Frakka og Ameríkana en einnig frá Mumbai í Indlandi. Indverj- arnir eru áhugavert fólk og lífsglaðir enda segi ég stundum að í ferð- unum ríki jákvæður glundroði. Stundum brestur á með söng og dansi jafnvel í miðri ferð,“ segir Dúi, sem ætlar að halda upp á daginn í sumarbústað með fjölskyldunni. Þegar rjúpnaveiðitímabilið hefst, hinn 26. október, verður farið vestur í Dali með fjölskyldu og vina- fólki. Vera á helgarlangt í sumarbústað sem verður væntanlega mikil gæðastund. Maki Dúa er Hrafnkatla Valgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur. Dætur Dúa frá fyrra hjónabandi eru þær Sædís og Margrét. Fyrir á Hrafnkatla tvo syni, Lúkas Kató og Viktor Birki – og saman eiga þau tvo syni; Hrafn sem er tveggja ára og Grím Jóhann sjö mánaða. Ljósm/Aðsend Pabbi Dúi með synina tvo; Hrafn, til vinstri, og Grím Jóhann. Rjúpnaveiði hugans Dúi Landmark er 53 ára í dag H alldóra Ólafsdóttir fæddist á Akureyri 19.10. 1948 og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1968, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1976, stundaði sérnám í geð- lækningum við University of Roch- ester, Strong Memorial Hospital í Rochester í Massachusetts 1980-83 og framhaldsnám í geðlækningum við New England Medical Center, Tufts University í Boston í Massa- chusetts 1983-85. Hún fékk almennt lækningaleyfi á Íslandi 1977, í Bandaríkjunum 1982, og sérfræð- ingsleyfi í geðlækningum í Banda- ríkjunum 1984 og á Íslandi 1985. Halldóra var kandídat á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 1976, héraðslæknir í Ísafjarðarhéraði sama ár, kandídat á Landspítalanum og Landakotsspítala, og héraðs- læknir í Vopnafjarðarhéraði 1977, aðstoðarlæknir á barnadeild Land- spítalans 1978, á Kleppsspítala 1978- 79 og á taugalækningadeild Land- spítalans 1979-80. Hún hefur verið starfandi sérfræðingur í geðlækn- ingum við geðdeild Landspítalans frá 1985 og yfirlæknir við geðdeild Landspítalsns frá 2002. Samhliða störfum á Landspítala starfaði Hall- dóra sjálfstætt á stofu 1985-2003. Halldóra var metin hæf sem klín- ískur lektor við HÍ 2006. Hún kenndi við Hjúkrunarskóla Íslands á vor- önn 1977 og hefur seinna kennt læknanemum og deildarlæknum um árabil. Þá hefur hún kennt reglulega við Endurmenntun HÍ. Halldóra sat í stjórn Geðlækna- félags Íslands 1988-92, var varafor- maður félagsins 1990-92 og formað- ur þess 1996-2000. Hún átti sæti í stjórn Norrænu geðlæknasamtak- anna 1993-2008 og var formaður samtakanna 2005-2008. Hún er fulltrúi Læknafélags Íslands í stöðu- Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir – 70 ára Dætur F.v.: Halldóra, Kjartan, Anna, Mitch, Jackson, Audrey, Helga Guðrún, Gunnlaugur, Úlfur og Kjartan Leó. Bók er best vina Í París Halldóra og Kjartan slappa af á frábærum veitingastað í París. Borgarnes Elma Davíðsdóttir fæddist 7. desember 2017 kl. 17.22. Hún vó 4.024 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Íris Gunnarsdóttir og Davíð Ásgeirsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.