Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018
Silica Renew getur grynnkað ör-hrukkur
lagað húðskemmdir af völdum of mikils
ss. geoSilica Renew er sink- og koparbætt,
u tveggja eru lífsnauðsynleg steinefni sem
uðlað að styrkingu nagla og hárs auk þess
nka hárlos og klofna enda. Bætum heilsuna
á með geoSilica.
enew Fyrir húð, hár og neglur
tituteofmineralresearch.org/mineral-elements
www.geosilica.is
15%
afsláttur
af Renew
250 kr. af hverri sölu
renna til Krabba-
meinsfélagsins
geo
og
sólarljó
en hvor
geta st
að min
innan fr
R
*http://ins
GeoSilica kísilsteinefnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum, matvöruverslunum og í vefverslun geoSilica.is
Íslenska kísilsteinefnið
sem slegið hefur í gegn
Alls bárust 27 umsagnir á sam-
ráðsgátt stjórnvalda um veiði-
stjórnun hrognkelsa. Margir um-
sagnaraðilar eru andvígir kvóta-
setningu grásleppu og telja meðal
annars að það hamli nýliðun í
greininni og geti verið erfitt fyrir
smærri byggðarlög. Annars staðar
kemur fram að breytingin myndi
auka arðsemi veiðanna.
Til umsagnar voru niðurstöður
starfshóps sem sjávarútvegsráð-
herra skipaði í vor til að fara yfir
veiðistjórnun á hrognkelsaveiðum
og gera rökstudda tillögu um
breytingar ef starfshópurinn sæi
ástæðu til. Í niðurstöðum starfs-
hópsins er bent á hvaða aðferð
starfshópurinn telur að taki best
tillit til aðstæðna verði ákveðið að
breyta veiðistjórn á hrognkelsum á
þann hátt að veiðunum verði
stjórnað á grundvelli úthlutaðs
aflamarks.
Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson,
formaður Smábátafélagsins Hrol-
laugs á Hornafirði, mótmælir
harðlega kvótasetningunni í um-
sögn sinni. „Það er margra ára
reynsla á kvótasetningu í okkar
þjóðfélagi. Samþjöppunin mun
hefjast frá fyrsta degi kvótasetn-
ingar. Smábátaútgerðum mun
fækka gríðarlega. Sumar byggðir
munu missa alla atvinnu við grá-
sleppuveiðar á meðan hún mun
aukast í örfáum byggðum,“ segir í
umsögninni og í lokin er hnykkt á
þessari skoðun: „Með öðrum orð-
um jafngildir kvótasetning á grá-
sleppu alvarlegu hryðjuverki á ís-
lenska smábátaútgerð og
samfélag.“
Mörg mál fyrir dómstóla
Í umsögn Vilhjálms Ólafssonar,
skipasala, segir að kvótasetning
muni, ef af verður, leiða til þess að
fjölmörg mál verði borin undir
dómstóla. „Þeir sem strituðu og
púluðu og bjuggu til þennan rétt
eiga hann. Ekki hinir sem ætla að
vera sniðugir og hrifsa þetta af
þeim sem eiga réttinn samkvæmt
samningi og hafa keypt upp leyfi
að undanförnu,“ segir m.a. í um-
sögn hans.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Grásleppuvertíð á vorin
og sumrin fylgir talsverð atvinna.
Óttast samþjöppun
við kvótasetningu
27 umsagnir bárust um grásleppu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Auðvitað er ástæða þess að ég bað
um að við fengjum þessa skýrslu sú
að ég sé tækifæri til betrumbóta.
Þessi tól eru auð-
vitað mörg og þau
eru flott að
mörgu leyti en
það má alltaf gera
betur,“ segir
Dóra Björt Guð-
jónsdóttir, for-
maður mannrétt-
inda- og lýðræðis-
ráðs Reykja-
víkurborgar.
Morgunblaðið
greindi í gær frá niðurstöðum
skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins Kol-
ibri þar sem fram kemur að gjör-
breyta þurfi verkefnum sem Reykja-
víkurborg hefur hrundið af stað á
undanförnum árum til að auka sam-
ráð og þátttöku íbúa. Segir í skýrsl-
unni að í sumum tilfellum séu snerti-
fletir við borgarana í mjög úreltu
viðmóti og taki ekki mið af þeim
tækni- og samfélagsbreytingum sem
hafi átt sér stað síðasta áratug. Til-
gangur verkefna sé ekki skýr í huga
borgara og ferli og samskiptum í
kringum innsendar hugmyndir eða
ábendingar sé ábótavant. Bent er á
að hugmyndafræðin á bak við verk-
efni á borð við Hverfið mitt, Þín rödd
í ráðum borgarinnar og Ábendingar/
Borgarlandið sé of óljós og óútskýrð
og því sendi notendur ábendingar og
hugmyndir í rangar gáttir.
„Ég vísa því algerlega á bug að
samráðsverkefni borgarinnar séu í
lamasessi. Það er ekki niðurstaða
þessarar skýrslu. Hins vegar er þar
bent á að það má vissulega gera ým-
islegt betur. Það er verkefni sem við
erum að fara að ráðast í,“ segir Dóra
Björt í samtali við Morgunblaðið.
Hún segir að heilt yfir haldi
Reykjavíkurborg úti metnaðarfull-
um verkefnum um samráð við borg-
arbúa. „Þau fóru af stað á mismun-
andi tímum eftir að farið var að
leggja meiri áherslu á styrkingu
beins lýðræðis. Smám saman hefur
leiðum fjölgað og verkefnin vaxið.
Nú ætlum við að taka þetta föstum
tökum til framtíðar. Það er ástæðan
fyrir því að ég bað um að þessi
skýrsla yrði kynnt fyrir ráðinu. Ég
fagna þessum upplýsingum og upp-
byggilegri gagnrýni og tillögum að
úrbótum.“
Telur þú sjálf að það sé lítið mál
eða stórt að bæta úr þessu?
„Það verður að koma í ljós. Við
munum fá kynningu á þessari
skýrslu á næsta fundi nefndarinnar.
Afgreiðslu hennar var frestað á síð-
asta fundi. Þá munum við leggjast
yfir þetta og hefja þessa vinnu af
fullum krafti.“
Hún segir að nú í upphafi kjör-
tímabils sé góður tímapunktur til að
keyra af stað kerfisbreytingar sem
auki íbúalýðræði enn frekar. Við það
tækifæri sé mikilvægt að skoða auk-
ið aðgengi ýmissa hópa, svo sem inn-
flytjenda og fatlaðra. „Fólki verður
að líða eins og rödd þess heyrist.“
Ekki allt í lamasessi
heldur tækifæri til bóta
Dóra Björt segir að bæta megi samráðskerfi borgarinnar
Samráðsvettvangur Nú geta borgarbúar kosið um verkefni í verkefninu
Hverfið mitt. Hugmyndafræðin á bak við það verkefni er sögð of óljós.
Dóra Björt
Guðjónsdóttir