Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 25
Þýskalandi. Mér hefur alltaf fundist það töff að hún væri ekki frá Íslandi. Það gerði hana sérstaka. Í heimilishaldinu var hún amma mín ofurmenni. Hún gerði allt og sá um allt. Minnti svolítið á Súperman. Eldaði góðan mat nokkrum sinnum á dag, lagaði kaffi, gekk frá, þvoði þvott, saumaði og prjón- aði o.s.fv. Allt sem þurfti að gera gerði hún. Afi datt svo sannarlega í lukkupottinn með hana ömmu. Nokkrum sinnum í viku bakaði amma. Alltaf sömu kökurnar en þær voru alltaf jafn góðar. Við baksturinn sat ég næstum alltaf uppi í glugga- kistunni og ræddi við hana um allt á milli himins og jarðar. Hjónabandssælurnar hennar ömmu voru þær bestu í heimi og allir í fjölskyldunni eru á sama máli um það. Sérstaklega hann pabbi minn. Ef hann vissi að þær voru til þá voru góðar líkur á því að þær kláruðust. Amma brosti og hló alltaf að því og hjálpaði hún mér að fela eitt boxið svo að við gætum not- ið þeirra aðeins lengur. Stundum kölluðum við barna- börnin hana Fríðu ömmu okkar „þýska stálið“ í jákvæðri merk- ingu þess orðs. Hún var stálið sem ekki bognaði og jafnframt var hún ávallt hlý og góð, mikill vinur og mjög félagslynd. Ég mun sakna hennar mikið. Hvíldu í friði, amma mín. Arnúlfur Hákonarson. Þegar við hugsum um ömmu Fríðu kemur fyrst í hugann hversu hlý hún var og hvað hún hafði góða nærveru. Amma setti mann alltaf í fyrsta sætið og sá til þess að maður væri hvorki svangur né þyrstur og sæi pottþétt nægi- lega vel á sjónvarpið. Jafnvel þegar hún var komin á Hjúkr- unarheimilið Sóltún, þar sem hún fékk alla þá þjónustu sem hún þurfti, spurði hún alltaf hvort hún gæti ekki boðið manni eitthvað að borða eða drekka. Hlýrri manneskju en ömmu Fríðu er erfitt að finna og við verðum alltaf þakklátir fyrir að hafa átt hana að. Amma var alltaf mjög já- kvæð manneskja. Sama hvað á gekk var alltaf stutt í húmorinn og hún sá alltaf það jákvæða í öllu. Við höldum að jákvæðnin hafi hjálpað ömmu í gegnum sín áföll og þetta er viðhorf sem við getum öll lært af. Elsku amma, takk fyrir allt. Takk fyrir að elska alla í kringum þig eins heitt og þú gerðir. Takk fyrir allar sund- ferðirnar okkar þegar við vor- um yngri. Takk fyrir allar stundirnar í garðinum í Kjalarlandinu. Takk fyrir allar jólastundirnar sem við áttum saman. Takk fyrir matinn, hann var góður. Við munum aldrei gleyma ást þinni og hlýju. Grímur og Gunnar. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Raðauglýsingar Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30- 11.30. BINGÓ kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans fellur niður í dag. Bólstaðarhlíð 43 Notendaspjall kl. 9.30-10. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10- 10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Qigong kl. 10.30-11.30. Bók- band með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 14 HAUSTFAGNAÐUR , tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson kemur og flytur okkur nokkur lög, því næst verður kaffihlaðborð á 1500 kr. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Gullsmári Handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir D.G. kl. 13.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13, allir velkomnir, kostar ekkert að horfa. Hraunsel Föndur í vinnustofu kl. 9-12. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju kl. 9-10, botsía kl. 10.15-11.20, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdæg- urs). Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30, Zumbadansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13-13.50, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, föstudagsskemmtun kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri 30, kl.13.30. Nú eru síðustu forvöð að skrá sig í ,,ÓVISSUFERÐINA" sem farin verður í Perluna nk. þriðjudag 23. október. Þar stendur yfir sýning undir nafninu Undur íslenskrar náttúru. Skráning og upplýsingar í síma 8939800. Allir vel- komnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Íslendingasögu-námskeið kl. 13, Hávarðar-saga Ísfirðings, kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnu- dagskvöld kl. 20-23, Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Sviðaveisla laugardaginn 3. nóvember, frábær matur og góð skemmtun, skráning hafin, uppl. feb@feb.is, s. 588-2111. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Furuás 25, 50% ehl.gþ. Hafnarfjörður, fnr. 233-0103, þingl. eig. Lilja Margrét Olsen, gerðarbeiðandi Lautasmári ehf., þriðjudaginn 23. október nk. kl. 10:00. Eyrarholt 4, Hafnarfjörður, fnr. 207-4508, þingl. eig. Jóhanna Sif Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðjudaginn 23. október nk. kl. 11:00. Mávanes 10, Garðabær, fnr. 207-1809, þingl. eig. Aðalströnd ehf., gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Pillar Securitisastion SARL, þriðjudaginn 23. október nk. kl. 13:30. Árakur 7, Garðabær, fnr. 229-7110, þingl. eig. Örvar Sigurðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður verslunar- manna, þriðjudaginn 23. október nk. kl. 14:00. Iðnbúð 4, Garðabær, fnr. 207-0958, þingl. eig. Vigfús Morthens og Inger Rut Hansen, gerðarbeiðandi Garðabær, þriðjudaginn 23. október nk. kl. 14:30. Birkiholt 87% ehl.gþ. Garðabær, fnr. 226-4351, þingl. eig. Hrannar Gestur Hrafnsson og Kristjana Ósk Veigarsdóttir, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 23. október nk. kl. 15:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 18. október 2018 Félagsstarf eldri borgara Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? Ingibjörg, eða Dúa eins og fjöl- skylda hennar og vinir kölluðu hana, fæddist í húsi fjölskyldunn- ar sem faðir hennar byggði á Laufásvegi 61 í Reykjavík. Dúa var dóttir hjónanna Ingu Skúla- dóttur Hansen, f. 28. maí 1886, d. 16. febrúar 1958, og Jörgens Hansen, f. 17. september 1887, d. 30. október 1957. Inga var heimavinnandi hús- móðir en Jörgen var m.a. fram- kvæmdastjóri Happdrættis Há- skóla Íslands. Dúa var yngst systkina sinna, en eldri voru þau Ragnheiður, f. 1912, Regína, f. 1913, Jörgen, f. 1916, Skúli, f. 1918, Guðrún, f. 1921, Sigrún, f. 1922, og Axel, f. 1924. Tvö systkinanna létust í bernsku, þau Sigrún og Axel. Dúa gekk í Miðbæjarbarna- skólann í Reykjavík og Kvenna- skólann, síðan fór hún til Dan- merkur og lagði stund á verslunarstörf. Dúa var vinmörg, enda var hún falleg, kát og fjörug Reykja- víkurstúlka sem naut lífsins í bestu merkingu orðanna, það var aldrei logn í kringum Dúu. Hún ólst upp í stórum syst- kinahópi þar sem líf og gleði ríkti í anda tímanna. Hún fékk gott uppeldi hjá foreldrum sínum og móðurömmu, Guðrúnu Tómas- dóttur, sem einnig bjó á heim- ilinu. Gestkvæmt var alltaf á Laufásveginum en þangað komu ættingjar og vinir sem bjuggu í Reykjavík og líka ættingjar og vinir utan af landi. Dúa giftist árið 1956 James Joseph Gallagher, Bandaríkja- manni af írskum ættum. Segja má að James hafi fallið vel inn í Hansen-fjölskylduna því þar mættust írskur húmor og sá dansk-íslenski. Ingibjörg Hansen Gallagher ✝ Ingibjörg Han-sen Gallagher fæddist 3. maí 1929. Hún lést 9. apríl 2018. Bálför Ingibjarg- ar fór fram á Long Island, N.Y., í Bandaríkjunum 11. apríl 2018. Fyrsta búskapar- ár sitt áttu ungu hjónin heima í Reykjavík og eign- uðust dótturina Margréti Ingu 26. október 1957, síðan bjuggu þau í París til ársins 1964, þar eignuðust þau son- inn James Jörgen sem fæddist 9. júlí 1959. Frá París fluttu þau til Banda- ríkjanna, áttu fyrst heima í Washington en fluttu árið 1965 til Long Island í New York-ríki þar sem varð framtíðarheimili þeirra. Þau hjónin voru vinmörg og umgengust marga Íslendinga sem bjuggu og störfuðu bæði í Washington og New York á þess- um árum; starfsmenn Loftleiða og þá sem störfuðu við utan- ríkisþjónustu Íslands – og fleiri og fleiri. Dúa átti gott og farsælt líf í Bandaríkjunum og hún bjó í húsi sínu allt til dauðadags. Það gerði hún með stuðningi og aðstoð barnanna sinna, en eftir að James lést flutti sonur hennar heim aftur og studdi hana í einu og öllu, var hennar gleðigjafi og vinur. Dóttir hennar bjó líka stutt frá og saman studdu þau og aðstoð- uðu mömmu sína eftir föngum. Eftir að James lést talaði Dúa oft um að sig langaði til að flytja heim til Íslands og ræddi gjarnan um foreldra sína, bræður og syst- ur og hversu oft hún hefði saknað þeirra. Síðustu árin voru Dúu oft erfið, heilsu hennar fór hrakandi og einnig heilsu sonar hennar, sem hefur mátt kljást við þung- bær veikindi um nokkurra ára skeið. Vegna veikinda hans áttu þau systkinin ekki heimangengt til að vera við útför móður sinnar. James Joseph lést um aldur fram 14. janúar 1988 og er aska hans jarðsett í fjölskyldugraf- reitnum í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, þar sem Dúa mun nú hvíla honum við hlið. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd systkinabarna, Ragnheiður Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.