Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 30

Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Haukur Ingvarsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2018 fyrir ljóða- bókina Vistarverur. Verðlaunin voru afhent í Höfða í gær og eru veitt fyrir óprentað handrit að ljóðabók, frumsamið á íslensku. Reykjavíkur- borg leggur til verðlaunaféð, 800.000, en verð- launin hafa verið veitt í 19 skipti á 25 árum. „Verðlaunin hafa mjög mikið að segja fyrir mig, ég hef fengist við ljóðagerð frá unglings- aldri,“ segir Haukur Ingvarsson ljóðskáld, sem gaf út sína fyrstu ljóðabók, Niðurfall og þætti af hinum dularfulla Manga, árið 2004. Haukur skrifaði fræðibókina Andlitsdrætti samtíðar- innar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness árið 2009 og skáldsöguna Nóvember 1976 sem gefin var út 2011. „Það hafa birst eftir mig greinar, ljóð og þýð- ingar í bókum og tímaritum á Íslandi, Þýska- landi og á Norðurlöndunum,“ segir Haukur, sem telur að áhugi á ljóðalestri og ljóðrænni tjáningu hafi aukist. Beinskeytt form ljóðsins „Sumum finnst ljóð kannski vera fjarlæg en mér finnst öll skapandi hugsun með tungumál ljóðræn. Fólk sem tjáir sig á samfélagsmiðlum gerir það oft á ljóðrænan hátt. Margir fást við ljóðagerð og fólk fer í vaxandi mæli út í búð til þess að kaupa ljóðabækur handa sjálfu sér. Beinskeytt form ljóðsins virðist höfða til fólks og ég geri ekki greinarmun á því hvort ljóð sé gefið út í bókarformi eða sungið,“ segir Haukur, sem notar frjálst form og klippitækni í verð- launabókinni Vistarverum. „Í ljóðunum notaðist ég við leik sem ég fór í með systur minni: hvað myndir þú taka með þér á eyðieyju? Í Vistarverum safna ég saman minn- ingum, tilfinningum og vísunum í skáldskap annarra. Ég er að reyna að bjarga sem mestu af því sem mér þykir vænt um líkt og Nói gerði þegar hann smalaði saman dýrum af öllum teg- undum í Örkina,“ segir Haukur, sem notar myndljóð til að skipta upp löngu ljóðabálkunum „Allt sekkur“ og „Hrundar borgir“. „Myndljóðin gefa lesandanum smáhvíld. Þau eru einföld og að einhverju leyti lýsandi fyrir það hvernig ég hugsa þessi ljóð. Bókin byggist upp á klippitækni þar sem stefnt er saman ólík- um myndum eða hugmyndum til þess að kalla fram eitthvað óvænt í huga lesenda.“ segir Haukur, sem skrifaði ljóðabókina sem einhvers konar viðbragð við þeirri sterku vá sem steðjar „Kalla fram eitthvað óvænt“  Haukur Ingvarsson fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar  Skapandi hugsun með tungumáli ljóðræn  Myndljóð sem gefa hvíld  Ótti, skelfing og einhver fáránlegur húmor að fólki í samtímanum vegna hlýnunar jarðar, loftlagsbreytinga og umhverfismengunar. „Ég er ekki vísindamaður eða sérfræðingur í loftslagsmálum. Það sem ég reyni að gera er að fella hugmyndir og tilfinningar í orð. Þessi ljóð fjalla um ótta og skelfingu en um leið er í þeim einhver fáránlegur húmor,“ segir Haukur og bætir við að eitt af því sem hann hafi oft velt fyrir sér séu viðbrögð fólks í bíómyndum við yfirvofandi hættu, árás frá geimverum, ofsa- veðri eða eldgosum. Það sé nóg að það birtist frétt í blaði og þá æði fólk öskrandi út á göt- urnar. Ekki missa trúna á ævintýri „Vísindamenn hafa varað við þeirri vegferð sem mannkynið er á reglulega síðustu áratugi, nú síðast í skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Engu að síður horfumst við ekki í augu við hættuna,“ segir Haukur og bætir við að þrátt fyrir ógnina finnist sér mikilvægt að missa ekki trúna á ævintýrið. „Þá á ég ekki við að við treystum á lausn mála að ofan heldur verða bæði börn og fullorðnir að lifa sig inn í frásögn þar sem orð þeirra og gerð- ir skipta máli. Mikilvægast er að almenningur setji pressu á stjórnvöld um að herða lög og reglugerðir. Það má vera að við þurfum að færa fórnir en þá skiptir máli að við séum meðvituð um að við séum að leggja góðum málstað lið,“ segir Haukur, sem um nokkurt skeið hefur unn- ið að nýrri skáldsögu, fjölskyldusögu með sjávarútveginn og síldarævintýrið baksviðs. Hógværð, íhygli og kímni Í rökstuðningi dómnefndar um Vistarverur segir meðal annars að í ljóðabókinni sé tónteg- und sem einkennist af hógværð í bland við íhygli og kímni. Heildarmyndin sé falleg, margræð og fjölkunnug. Orðið sjálft, vistarvera, gefi til kynna tilfinningu fyrir stað og íbúa auk þess að vísa til tilvistarinnar sjálfrar og stöðu verunnar í henni. Ljóðmælandi sé á stundum líkt og eins konar draugur í eigin tilveru; hann velti fyrir sér stöðu sinni í umhverfi sínu og sjálfsmynd og gluggi í stórar spurningar jafnt sem smáar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vistarverur Haukur Ingvarsson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. hefurðu tekið eftir greinaknippum sem vaxa á trjám misvísandi spákvistum sem minna á hreiður? þeir kallast nornavendir og vekja hjá mér hrylling þegar ég verð hræddur langar mig til að hringja í mömmu en ég er miðaldra munaðarlaus í tungumálinu þegar frumstæður ótti er annars vegar kannastu við þá tilfinningu að taka upp símann en vita ekki hvert þú átt að hringja? standa úti á víðavangi velta símanum í höndum þér en detta enginn í hug? vandamálið er að þú veist ekki hvað þú átt að segja það sem þér býr í brjósti er handan við orð hefurðu lent í því að síminn hringi og þegar þú svarar þá er þögn eða hljóður andardráttur á hinum enda línunnar? það gæti hafa verið ég Hrundar borgir LJÓÐ ÚR VISTARVERUM Síðumúli 13 • 108 Reykjavík • 552 9641 • seimei.is seimeiisland • seimei.is Opið mánud.-fimmtud. kl. 12-18, föstud. og laugard. kl. 12-16 Stjórn Styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns auglýsir eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu árið 2019 Veittir verða styrkir til tónlistarmanna og/eða tónlistarhópa. Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur og rafræn umsóknareyðublöð eru á slóðinni: http://styrktarsjodursut.is/ Styrkir til tónleikahalds í Hörpu 2019 Umsóknarfrestur er til kl. 24.00 fimmtudaginn 22. nóvember 2018 Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.