Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 33
Í tilefni af 10 ára samstarfsafmæli
UNICEF á Íslandi og Te & kaffi
verður opnuð ljósmyndasýning fyr-
ir framan kaffihúsið í Smáralind á
morgun. „Á síðustu 10 árum hafa
UNICEF á Íslandi og viðskiptavinir
Te & kaffi tryggt börnum í Kól-
umbíu menntun, brugðist við ebólu-
faraldri í V-Afríku, hjálpað börnum
í S-Súdan þegar landið var á barmi
hungursneyðar og útvegað yfir 250
þúsund bólusetningar gegn mænu-
sótt! Ljósmyndasýningin sýnir
hvernig bóluefni sem safnast á
kaffihúsum Te & kaffi ferðast á
áfangastað, m.a. til barna í Jemen
og Sýrlandi,“ segir í tilkynningu.
Afmælisljósmynda-
sýning opnuð í dag
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Mig langaði að kafa dýpra ofan í
einhvern myndheim sem er óhlut-
bundinn og órökrænn, þar sem ég
elti línuna og fæ eitthvað óvænt á
blaðið, sem hefur ekkert með rök-
hyggjuna að gera,“ segir Sara Riel
um þema einkasýningar sinnar sem
verður opnuð á morgun á Kling &
Bang í Marshallhúsinu kl. 17.
Á sýningunni, sem ber yfirskrift-
ina Sjálfvirk / Automatic, verða nýj-
ar teikningar, málverk og skúlptúr-
ar í anda sjálfvirkninnar en einnig
verður daglegur gjörningur, þar
sem Sara mun teikna eftir innsæi
fyrir framan áhorfendur, sem stend-
ur yfir frá miðvikudeginum næst-
komandi til laugardags.
Heillandi að horfa á
teikningu verða til
„Ég vildi prófa þetta form af því
að það er eitthvað heillandi við það
að horfa á teikningu verða til. Í
staðinn fyrir að vera búin að taka
upp teikninguna fyrirfram þá verð
ég á staðnum og sýni hvernig þetta
verður til og leyfi mistökunum þá að
verða,“ segir Sara. Þannig verði hún
í samtali við umhverfið og áhorfend-
una, sem smitar frammistöðuna. Þá
verður lifandi teikningin einnig tek-
in upp á myndavél sem verður stað-
sett undir glerborðinu, svo að áhorf-
endur sjá aðeins skuggamynd af
hendi Söru og verkfærinu, en um
leið varpast myndin inn í annað
rými.
„Þetta er kannski svolítið við-
kvæmur staður til að vera á en ég
hef gert mörg veggverk og ég er al-
veg vön því að fólk sé í kringum
mig.“ Lifandi teikningarnar sem
Sara teiknar í tvo tíma í senn meðan
á sýningunni stendur, frá miðviku-
degi til laugardags, munu safnast
saman í eitt verk sem ber nafnið
„Stundir á staðnum“.
Verk í anda John Cage
Að undanförnu hefur Sara stund-
að teikniæfingar þar sem hún sæk-
Listin laus við alla rökhyggju
Sara Riel kafar ofan í nýjan myndheim og leyfir mistökunum að gerast á einka-
sýningu í Marshallhúsinu Teiknar fyrir framan áhorfendur í tvo tíma í senn
ist eftir að komast í flæðiástand,
kyrra hugann og kanna heiminn
sem býr innra með henni. Þá aðferð
hefur hún notast við síðan 2015,
þegar hún lagðist inn á heilsustofn-
un og byrjaði að kanna nýjar hug-
sjónir.
„Ég hafði verið að stúdera stærð-
fræðina og heilaga formfræði í sýn-
ingunni Ontonine. Eftir þá sýningu
þurfti ég að gefast upp fyrir líkam-
anum, af því að ég er með tvöfalt
brjósklos og maleríið fór alveg með
bakið, og leggjast inn á heilsustofn-
un. Þá byrjaði ég að hlusta á tónlist
og gera verk sem ég kalla Graphic
Score, í anda John Cage. Hugsunin
er að það eru engin mistök, þú ert
ekki að laga neitt, allt er eins og það
á að vera.
Það er ekki hik í myndefninu
heldur leiði ég bara áfram línuna og
með því að gera það þá komst ég að
myndheimi, sem ég gat síðan tekið
áfram og þurfti síðan ekki tónlistina.
Þetta er einhver óendanleg lína sem
ég get alltaf gripið í. Þá er hvíta
blaðið ekki lengur ógnandi staður
heldur bara þægindarými þar sem
ég sest niður og höndin á mér byrj-
ar að gera eitthvað,“ segir Sara.
„Oft er heilinn að hlusta á tónlist,
rafbók eða eitthvert hlaðvarp. Af
því að ég hef ákveðið líkamsminni,
þá er ég með verkfæri, kannski
pensil eða oftast blýant, þá teikna
ég eftir innsæinu. Þetta er eitthvað
mannlegt, við þekkjum það flestöll,
t.d. að tala í símann og krafsa eitt-
hvað á blað. Heilinn er í spjallinu en
höndin er að búa til eitthvað og
myndlist er svo efnisleg að hún skil-
ur eitthvað eftir sig, það er alltaf
„hljóðupptaka“ í gangi.“
Kúnstin að komast í
flæðiástand
Nafn sýningarinnar, Sjálfvirk,
varpar ljósi á þema sýningarinnar.
En til þess að vera í flæðiástandinu
þarf Sara, að eigin sögn, að kunna
ýmis ráð. „Til þess að komast í þetta
ástand þarf ég að nota ákveðin
brögð, ég þarf að tappa af lík-
amanum. Ég geng á bak við tank-
ana úti á Granda tvisvar á dag, fer
reglulega í sund og morgunorkan er
góð í þetta. Svo fer maður að vakna
og hafa skoðanir, þá er gott að nýta
flæðið því annars detturðu úr því, og
þá er einhver útivera og hreyfing og
öndunin dýpkar. Sjálfvirknin er
hluti af því að ég hef teiknað mjög
lengi og kann það vel og það er eins
konar framlenging á mér og líkam-
anum mínum.“
Á sýningunni sjálfri verða skúlp-
túrar, teikningar, málverk og vörp-
un en einnig verður vegleg bók um
sýninguna og nálgun hennar. Krist-
ín Eiríksdóttir samdi ljóð sem verð-
ur í bókinni og einnig frumsýnt á
sýningunni. „Vonandi bætir það
upplifunina á myndefninu. Svo í lok-
in er texti eftir sýningarstjórann,
Daníel Björnsson, þar sem hann
greinir viðfangsefnið og skýrir
sögnina fyrir áhorfendum.“
Listakonan Sara Riel
kannar nýjar slóðir á sýn-
ingunni Sjálfvirk þar sem
hún lætur innsæið ráða för.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018
Gunni Helga og
töfrahurðar-
hljómsveitin er
yfirskrift dag-
skrár fyrir alla
fjölskylduna sem
fram fer í dag,
föstudag, í
Gerðubergi kl.
11, Spöngunni kl.
14 og Grófinni kl.
16. Flytjendur eru Gunnar Helga-
son, Leifur Gunnarsson, Svanhildur
Lóa Bre, Tómas Jónsson og Rósa
Guðrún Sveinsdóttir. Allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Ókeypis aðgangur.
Djass fyrir börn
í vetrarfríi í dag
Gunnar Helgason
Border
Rómantísk spennumynd í leikstjórn
Alis Abbasis. Þar segir af landa-
mæraverði sem laðast á undarlegan
hátt að dularfullum ferðalangi sem
er stöðvaður í tollinum. Svo koma
skrýtnir hlutir í ljós sem breyta
öllu. Meðal leikara eru Eva Mel-
ander, Eero Milonoff, Viktor Åker-
blom og Jörgen Thorsson.
The Music of Silence
Sönn saga ítalska söngvarans
Andreas Bocellis sem fæddist með
augnsjúkdóm og varð endanlega
blindur 12 ára að aldri. Bocelli
sýndi snemma mikinn áhuga á tón-
list og byrjaði í píanókennslu aðeins
sex ára að aldri. Á næstu árum
lærði hann á fleiri hljóðfæri þar til
söngurinn tók yfir og Bocelli varð
heimsfrægur fyrir hæfileika sína.
Leikstjóri er Michael Radford og
meðal leikara Antonio Banderas,
Jordi Mollà og Toby Sebastian.
Billionaire Boys Club
Dramatískur spennutryllir í leik-
stjórn James Cox. Hópur auðugra
ungra manna í Los Angeles á ní-
unda áratug síðustu aldar ákveður
að búa til svikabrask til að auðgast
með skjótum hætti en það á eftir að
reynast þeim dýrt. Meðal leikara
eru Ansel Elgort og Kevin Spacey.
Bad Times at the El Royale
Spennutryllir í leikstjórn Drews
Goddards. Sjö ólíkir einstaklingar,
sem allir hafa einhverju að leyna,
hittast á El Royale-hótelinu við
Tahoe-vatn þar sem skuggaleg for-
tíðin svífur yfir vötnum. Á einum
sólarhring fá allir tækifæri til að
gera yfirbót – áður en allt fer til
andskotans. Meðal leikara eru
Chris Hemsworth, Jon Hamm og
Dakota Johnson.
Legend of Hallowaiian
Teiknimynd um þrjá vini á Hawaii
sem óvart leysa illan vætt úr læð-
ingi. Vinunum mun aðeins takast að
ráða niðurlögum vættarins ef þeir
kynna sér og trúa fornum hefðum.
Lér konungur
Bíó Paradís sýnir upptöku NT Live
á Lé konungi eftir William Shake-
speare í leikstjórn Jonathans Mun-
bys með Ian McKellen í titilhlut-
verkinu. Hann hlaut mikið lof fyrir
frammistöðu sína hjá breskum
gagnrýnendum. Sýningar verða á
morgun, laugardag, og mánudag-
inn 22. október kl. 20 bæði kvöld.
Bíófrumsýningar
Vættir og lygar
Lér konungur Ian McKellen.
Meira til skiptanna
ICQC 2018-20