Morgunblaðið - 05.11.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
a
595 1000
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
etu
rb
re
ar
a. PORTO
Frá kr.
69.995
16. NÓVEMBER
3 NÆTUR
STÖKKTU TIL PORTO 16. NÓVEMBER
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Meðvirkni með eineltishrottum og
aðför gegn fólki innan flokksins er
meðal þess sem hefur átt sér stað
innan flokksstarfs Pírata ef marka
má orð Rannveigar Ernudóttur,
varaborgarfulltrúa Pírata, og Atla
Þórs Fanndal, blaðamanns og fyrr-
verandi pólitísks ráðgjafa Pírata.
Fyrir helgi sendi Rannveig skrif-
stofu borgarstjórnar erindi þar sem
hún vildi fá að vita um afleiðingar
þess ef hún sem kjörinn fulltrúi segði
sig úr Pírötum. Frá þessu greindi
hún á fésbókarsíðu sinni í kjölfar
þess að úrskurðarnefnd pírata úr-
skurðaði að virkja ætti uppsagnar-
ákvæði í ráðningarsamningi
aðstoðarmanns framkvæmdastjóra
flokksins. Þar sagði Rannveig úr-
skurðinn m.a. vera hluta af stærri og
ljótri mynd, reifaðri ofbeldi, vald-
níðslu, einelti, mikilli vanhæfni og of-
mati eineltistudda á eigin ágæti.
Þá sagði Atli Þór á fésbókarsíðu
sinni að hann skammaðist sín fyrir
hönd þeirra sem skrifuðu úrskurðinn
og að þau gerðu sér kannski ekki
grein fyrir því að þarna hefðu þau
formgert, samþykkt og styrkt ein-
elti.
Ráðinn án auglýsingar
Málið á rætur að rekja til þess
þegar Píratar réðu í vor Hans Benja-
mínsson í stöðu aðstoðarmanns
framkvæmdastjóra en ráðið var í
stöðuna með tímabundnum verk-
tökusamningi sem gilti til 1. júní, þ.e.
fram yfir sveitarstjórnarkosningar
26. maí síðastliðinn.
Eftir kosningar ræddu fram-
kvæmdastjóri og framkvæmdaráð
Pírata um þörf og nauðsyn þess að
Píratar hefðu tvo starfsmenn og
hvort ráða ætti í stöðuna til fram-
búðar, að því er fram kemur í um-
ræddum úrskurði.
Úr varð að framkvæmdastjóra var
falið að ráða í stöðu aðstoðarmanns
og var Hans valinn til að gegna stöð-
unni á ný. Frá ráðningunni var
gengið án auglýsingar í ágúst. Þá
segir í úrskurðinum: „Ráðningar-
ferlið var gagnrýnt af félagsmönnum
pírata og ljóst er að ekki var ein-
hugur innan framkvæmdaráðs um
það hvort nauðsynlegt væri að aug-
lýsa starfið eða ekki. Haldinn var fé-
lagsfundur sem lauk með áskorun á
framkvæmdarráð um að endurskoða
ferlið.“
Líta málið alvarlegum augum
Úrskurðarnefnd hefur nú komist
að þeirri niðurstöðu að ákvæði laga
Pírata sem kveður á um að eingöngu
sé heimilt að ráða starfsfólk að
undangenginni auglýsingu um stöð-
una hafi ekki verið framfylgt við um-
rædda ráðningu og telur rétt að
framkvæmdaráð virki uppsagnar-
ákvæði í ráðningarsamningi Hans
svo fljótt sem auðið er.
„Fólk er að tala saman. Það er
kannski ekki mikið sem hægt er að
segja á þessari stundu. Þetta er allt
tekið mjög alvarlega,“ segir Erla
Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pír-
ata, innt eftir viðbrögðum við málinu
í samtali við Morgunblaðið. Hún seg-
ir jafnframt að aldrei megi gera lítið
úr upplifunum fólks af einelti og því
verði að skoða málið ítarlega.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Pírata, segist hafa átt gott
samstarf við Rannveigu og tekur í
sama streng og Erla þegar hún
segir: „Ég hef sjálf ekki upplifað
[einelti] á eigin skinni en það væri
dónaskapur af mér að fara að ve-
fengja upplifanir annarra. Samskipti
eru flókin og þetta er upplifun [Erlu
og Atla]. Það er gott að hún komi
fram svo hægt sé að leysa það sem
þar liggur að baki.“
Einelti innan Pírata veldur úrsögnum
Varaborgarfulltrúi segir úrskurðinn tengjast einelti og valdníðslu og vill ganga úr flokknum
Pólitískur ráðgjafi segist skammast sín fyrir hönd úrskurðarnefndar Draga upplifanirnar ekki í efa
Erla
Hlynsdóttir
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
Í margra vitund markar basar Kvenfélagsins
Hringsins upphaf jólaundirbúnings. Hann var í
gær og var fjölmenni á Grand hóteli. Þarna
mátti kaupa ýmsa handavinnu, heimabakaðar
kökur og fleira og rennur andvirði sölunnar í
Barnaspítalasjóð Hringsins. Það sem af er þessu
ári hefur Hringurinn veitt styrki upp á 29 millj-
ónir króna, allt til tækjakaupa í þágu barna sem
þurfa þjónustu á sjúkrastofnunum. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Jólaundirbúningur
byrjar með
Hringsbasarnum
Hönnuðurinn og listamaðurinn
Brynjar Sigurðsson tók um helgina
við hvatningarverðlaunum í Sví-
þjóð sem bera yfirskriftina Torsten
og Wanja Söderberg 2018. Verð-
launin, ein milljón sænskra króna
eða um 13 milljónir íslenskra, eru
veitt af Röhsska-safninu í samstarfi
við Torsten Söderberg-samtökin.
Verðlaunanefndin valdi Brynjar
vegna verka hans sem eru undir
miklum áhrifum íslensks menning-
ararfs og bera merki um getu til að
tengja fortíðina við nútímann.
Brynjar býr og starfar í Auriol í
Suður-Frakklandi og hefur rekið
hönnunarstúdíó með hönnuðinum
Veroniku Sedlmair síðan árið 2015.
Verðlaunin hafa það að markmiði
að kynna list, handverk og hönnun
á Norðurlöndum og efla samstarf
Norðurlandaþjóðanna á því sviði.
Hlaut virt verðlaun
Heiður Brynjar tekur við verðlaununum.
Margar kisur frá Kattholti hafa
fengið nýtt heimili á undanförnum
tveimur vikum, að sögn Halldóru
Snorradóttur, rekstrarstjóra Katt-
holts. Hún segir umfjöllun sem birt-
ist í Vetrarblaði Morgunblaðsins
einkum hafa haft góð áhrif á að-
sóknina, en í blaðinu, sem nýlega
kom út, var greint frá því að gott
væri að eiga mjúka kisu til að
klappa á vetrardögum.
Halldóra segir að þegar veturinn
gangi í garð taki fleira fólk kisur að
sér.
„Oft gengur vel í september og
október og núna hefur verið brjálað
að gera. Vikurnar eru mismunandi,
síðustu tvær vikur hafa verið frá-
bærar, nokkrar kisur fá heimili á
dag. Svo hefur ljósmyndarinn Þór-
dís Reynisdóttir verið dugleg að
taka myndir af köttunum og setja á
facebooksíðuna okkar. Bara það að
sjá svona fallegar myndir af kött-
unum eykur áhugann hjá fólki að
kynnast þeim betur,“ segir Hall-
dóra.
Um 40 til 50 kisur eru í Kattholti
hverju sinni, en fjöldi katta sem
dvelja á heimilinu er árstíða-
bundinn. Fleiri dvelja þar á sumrin
en veturna, en ástæða þess er að
fleiri kettlingar fæðast á sumrin þar
sem læðurnar gjóta þá, að sögn
Halldóru.
Kettir koma í Kattholt af ýmsum
ástæðum. Sumir finnast úti og hafa
verið á vergangi en aðrir hafa kom-
ið vegna vandamála á heimilinu.
Margir kjósa fremur kettlinga en
fullorðna ketti en Halldóra segir að
það sé að breytast. „Fólk er alltaf
að verða meðvitaðra um það að taka
að sér fullorðnar kisur og síðan er
fólk meðvitaðra um að taka kis-
urnar sínar úr sambandi og þá eru
bara færri kettlingar að leita að
heimili, sem er jákvætt. Þá fá full-
orðnu kisurnar tækifæri. Það er
gott að það sé til fólk sem er til í að
gefa þessum kisum heimili, því þær
eiga það svo sannarlega skilið,“
segir Halldóra. veronika@mbl.is
Aukin umferð í Kattholti
Mikil eftirspurn eftir kisum Umfjöllun Vetrarblaðs
Morgunblaðsins um ketti hafði jákvæð áhrif að sögn starfsfólks
Kattholt Margar kisur vantar
heimili þótt eftirspurn hafi aukist.