Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
Viðskipti og
verðmyndun
Orkumarkaðir í mótun:
Dagskrá
Hörður Arnarson forstjóri opnar fundinn.
Sveinbjörn Finnsson, Dagný Ósk Ragnarsdóttir
og Valur Ægisson frá viðskiptagreiningu verða með erindi.
Pallborðsumræður
Jón Vilhjálmsson, sviðsstjóri Orkusviðs hjá EFLU.
Eyrún Guðjónsdóttir, sérfræðingur viðskiptaþróunar í Noregi
á sviði endurnýjanlegra orkugjafa.
Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og
viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun.
Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður stýrir pallborði.
Hverjir eru helstu áhrifaþættir raforkuverðs í Evrópu?
Hver eru áhrif endurnýjanlegrar orku?
Hvernig er viðskiptum með raforku háttað á Íslandi?
Viðskiptagreining Landsvirkjunar fjallar um
stöðu orkumarkaða á Íslandi og erlendis á
morgunverðarfundi.
Hilton Reykjavík Nordica
Þriðjudagur 6. nóvember
kl. 8:30-10:00 (morgunkaffi hefst kl. 8:00)
Verið öll velkomin
Skráning á www.landsvirkjun.is
„Þessi ríkisstjórn sýnir algjöran
aumingjaskap í því hvernig hún
nálgast hin stóru verkefni sam-
félagsins,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Miðflokks-
ins, á flokkráðsfundi flokksins á Ak-
ureyri á laugardag. Í ræðu sinni þar
gagnrýndi hann ríkisstjórnina harð-
lega og sagði hana bæði verklitla og
kjarklausa. Ráðherrar höguðu sér
eins og bundið væri fyrir augun á
þeim og sæju hvorki vandamálin
sem uppi væru né þau tækifæri sem
fyrir hendi væru.
Þá gagnrýndi hann Framsóknar-
flokkinn og sagði hann hafa þráð að
komast í ríkisstjórn hvað sem það
kostaði og hann hefði „fallið bar-
dagalaust frá öllum helstu kosninga-
loforðunum“.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa
svikið íslenskan landbúnað og mat-
vælaframleiðslu og bætti við í þeim
efnum að aðeins tíu ár væru liðin frá
því að landbúnaðurinn bjargaði
landinu frá gjaldþroti.
Gagnrýndi
ríkisstjórn
harðlega
Sagði ríkisstjórn
sýna aumingjaskap
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Gagnrýninn Sigmundur Davíð í
ræðustól á Akureyri á laugardag.
Bæjarstjórn Garðs og Sandgerðis
mun í vikunni væntanlega taka
endanlega ákvörðun um að sam-
einað sveitarfélag þessara byggða
verði nefnt Suðurnesjabær. Efnt
var til kosninga um helgina þar
sem íbúar greiddu atkvæði um
nafn á sveitarfélagið. Kosninga-
þátttaka var 34,44% og fékk til-
laga um nafnið Suðurnesjabær
75,3% atkvæða. Nöfnin Sveitar-
félagið Miðgarður og Heiðarbyggð
fengu 17,1% og 6,1% atkvæða.
„Við lögðum upp með að reyna
að fá sem flesta á kjörstað og gáf-
um það út að ef fleiri en 50% íbúa
mættu á kjörstað og eitthvert nafn
fengi yfir 50% atkvæða yrði það
endanleg niðurstaða,“ sagði Einar
Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar,
í samtali við mbl.is í gær.
Hann segist sáttur við niður-
stöðuna. Betra hefði vissulega ver-
ið ef kosningaþátttaka hefði verið
meiri, en niðurstaðan sé þrátt fyrir
allt mjög afgerandi. Það auðveldi
bæjarstjórn að leiða málið til
lykta.
Fjallað verður um nafnamálið á
bæjarstjórnarfundi næsta miðviku-
dag. „Ég geri fastlega ráð fyrir
því að tillagan um nafnið Suður-
nesjabær verði lögð fyrir og geri
ekki ráð fyrir öðru en að hún verði
samþykkt miðað við niðurstöðu
kosningarinnar,“ segir Einar Jón.
Að lokum þarf ráðherra sveitar-
stjórnarmála að gefa grænt ljós.
„Við vonum að ráðherra verði
fljótur að staðfesta nafnið,“ segir
forseti bæjarstjórnar.
thorgerdur@mbl.is/sbs@mbl.is
Flestir vilja Suðurnesjabæ
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Suðurnesjabær Sandgerði er önnur tveggja byggða í nýju sveitarfélagi.
Dræm kjörsókn en niðurstaða fengin í nafnamálinu
Erlendur ferðamaður tilkynnti að
jakka sínum hefði verið stolið á veit-
ingahúsi í Reykjavík á laugardags-
kvöld. Um klukkan hálftvö um nótt-
ina tilkynnti starfsfólk veitinga-
hússins að meintur þjófur væri
kominn þangað aftur og var hann
handtekinn skömmu síðar. Hann
reyndist vera með umræddan jakka
í fórum sínum en munir voru horfnir
úr honum. Maðurinn var vistaður í
fangageymslu lögreglu.
Þá leitaði karlmaður aðstoðar á
slysadeild eftir tilefnislausa árás í
Austurstræti á laugardagskvöld.
Maðurinn var meðal annars með
brotna tönn en gerendur eru
óþekktir.
Þá lenti ungur maður í líkamsárás
í Hafnarfirði á laugardagskvöld og
var tilkynnt um ofurölvi mann sem
væri til vandræða á veitingahúsi í
Grafarvogi.
Bíll valt á Hólmsheiðarvegi en
engin meiðsli voru skráð.
Erill hjá
lögreglunni
um helgina