Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
Píratar eru ekki óvanir innan-flokksátökum. Fyrir rúmum
tveimur árum fór allt í hund og kött í
þingflokknum þegar þingmenn
flokksins hættu að geta átt eðlileg
samskipti. Niður-
staðan varð sú að
kalla til vinnustaða-
sálfræðing, sem er
einsdæmi í sögunni.
Ekki tókst þó bet-ur til en svo að
Birgitta Jónsdóttir,
stofnandi flokksins
og helsti forsprakki,
endaði með því að
segja sig úr honum
og hafði í kveðju-
skyni, fyrir rúmu
ári, margt misjafnt
að segja um flokks-
starfið.
Enn glíma píratar við sams konarinnanflokksmein. Varaborgar-
fulltrúi flokksins, Rannveig Ernu-
dóttir, sagði frá því fyrir helgi að
einelti og yfirgangur tiltekins hóps
innan flokksins væri slíkur að hún
gæti ekki lengur starfað innan hans.
Fleiri píratar sem gegna trún-aðarstörfum í stofnunum
flokksins hafa sagt af sér að undan-
förnu vegna svipaðra mála.
Rannveig lýsir framgöngu ákveð-inna pírata, sem meðal annars
hafi hrakið starfsmenn frá flokkn-
um, sem „ofbeldi, valdníðslu, einelti,
mikilli vanhæfni og ofmati eineltis-
tudda á eigin ágæti“. Og hún bætir
við: „Hreyfing sem kemur svona
fram við starfsfólkið sitt er ekki fær
um að leiða baráttuna fyrir bættu
samfélagi.“
Píratar gerðu vel í því að taka tilheima hjá sér áður en þeir
bjóða öðrum krafta sína.
Birgitta
Jónsdóttir
Sundurlyndir
sjóræningjar
STAKSTEINAR
Rannveig
Ernudóttir
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á lambið
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Norður á Akureyri var unnið hörð-
um allan daginn í gær að því að
ferma flutningaskipið Antje sem
notað er til að flytja heyrúllur til
Noregs.
Gert er ráð fyrir að skipið leggi
frá landi í kvöld og þá verða um borð
alls um 5.700 rúllur af heyi frá bæj-
um víða á Norðurlandi. Skipið er nú
hér í sinni fjórðu ferð og fer að
minnsta kosti eina til viðbótar, en
sala á alls um 33.000 heyrúllum er
frágengin. „Þetta er törn. Við
byrjum klukkan átta á morgnana og
vinnum til níu á kvöldin. Dagarnir
eru langir en svo verður líka að vera
svo dæmið gangi upp,“ segir Bene-
dikt Hjaltason, sem hefur verið lykil-
maður í þessu útflutningsverkefni.
Fyrir hverja rúllu af nýju heyi fá
bændur greiddar 8.500 kr. og 3.500
kr. fyrir það sem eldra er. Saman-
lagt er áætlað að flutt verði frá Ís-
landi 20.000 tonn af heyi og að út-
flutningsverðmætið verði um 350
milljónir króna. sbs@mbl.is
Ferma Antje af heyi sem
er selt til norska bænda
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Útflutningur Benedikt Hjaltason á Krossanesbryggju í nepjunni í gær.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Engilbert Sigurðsson, deildarforseti
læknadeildar Háskóla Íslands, segir
að stefnt sé að því að fjölga nemum í
læknisfræði, úr 50 í 60. Þó beri að
fara varlega í slíkar aðgerðir þar
sem þær gætu dregið úr gæðum
námsins.
„Við stefnum að því að fjölga í allt
að 60 nemendur á næstu árum, en
hversu hratt það gengur er háð
endurskoðun námsins, sem er í
gangi. Við viljum ekki fjölga nem-
endum á kostnað þess að námið verði
lakara. Við bjóðum upp á mjög gott
nám samkvæmt samanburði við
ameríska prófið, sem er sama stöðu-
prófið og amerískir læknastúdentar
þreyta. Þennan ytri mælikvarða höf-
um við fyrir gæði námsins og við vilj-
um halda okkur á svipuðum slóðum,“
segir Engilbert.
Á laugardag var greint frá því í
frétt Morgunblaðsins að fjöldi nem-
enda í læknisfræði erlendis, svo sem
í Ungverjalandi og Slóvakíu, leitaði
heim til Íslands til að klára kandí-
datsárið á Landspítalanum. Spurður
hvers vegna ekki séu skapaðar enn
betri aðstæður fyrir nemendur sem
vilja klára læknis-
fræði á Íslandi
segir Engilbert
að nýlega hafi
Háskóli Íslands
fjölgað læknis-
fræðinemum úr
48 í 50.
„Markmiðið er
ekki að útskrifa
eins marga nema
og hægt er heldur
að mennta hámarksfjölda í þeim
gæðum sem við viljum sækjast eftir.
Gæði námsins gætu rýrnað mjög ef
við tækjum við of mörgum. Við mun-
um aldrei svara eftirspurninni, held-
ur verðum við að gera það sama og
aðrar Vesturlandaþjóðir gera. Um
300 manns þreyta inntökuprófið í
júní á hverju ári, svo það er erfitt að
svara þeirri eftirspurn,“ segir Engil-
bert.
Læknanemar fara í gegnum sex
ára nám en fyrsti hluti námsins er
BS-nám í samskiptafræði, siðfræði
og klínískri aðferð. Engilbert segir
að á seinni þremur árunum sé mikil
kennsla í sérgreinum læknisfræð-
innar en hluti af því sé klínísk þjálfun
þar sem skort hefur pláss fyrir fleiri
nemendur í því fagi.
Plássum í lækna-
deild fjölgi í 60
Endurskoðun á læknanámi við HÍ
Engilbert
Sigurðsson