Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Alls munu 36 ríki Bandaríkjanna og þrjú sjálfstjórnarsvæði kjósa ríkis- stjóra á þriðjudaginn. Ríkisstjóra- kosningar í ár eru afar mikilvægar því ný íbúatalning Bandaríkjanna kemur út árið 2020 og verða kjör- dæmi m.a. ákveðin eftir þeim. Ríkis- stjórar hvers ríkis hafa mikið vald yfir því hvernig kjördæmalínur eru teiknaðar, sem skiptir miklu máli fyrir kosningar í Bandaríkjunum næstu 10 árin. Kosið er um ríkisstjóra í 26 ríkj- um þar sem repúblikani er ríkis- stjóri og í níu ríkjum þar sem demó- krati er sitjandi ríkisstjóri. Þá er einnig kosið um ríkisstjóra í Alaska en ríkisstjóri Alaska, Bill Walker, stendur utan flokka. Mörg ríki sem gætu skipt miklu máli fyrir forseta- kosningar 2020 eru að kjósa ríkis- stjóra í ár en þar má nefna Minne- sota þar sem demókratinn Tim Walz leiðir á móti repúblikananum Jeff Johnsson en Johnsson vann fyrrver- andi ríkisstjóra Minnesota, Tim Pawlenty, í prófkjöri sínu. Í Ohio eru demókratinn Richard Cordray og repúblikaninn Mike Dewine í hörðum ríkisstjóraslag. Dewine er fyrrverandi þingmaður í öldungadeildinni en Cordray er fyrr- verandi forstjóri neytendastofu Bandaríkjanna. Þeir hafa báðir gegnt embætti dómsmálaráðherra Ohio en þetta er í annað skiptið sem Dewine og Cordray mætast í kosn- ingum. Árið 2010 fóru Dewine og Cordray báðir í framboð til dóms- málaráðherra sem endaði með að Dewine vann með 47,5% á móti 46,3%. Í Wisconsin eru demókratar að reyna að velta sitjandi ríkisstjóra, Scott Walker, í þriðja sinn. Hann var kjörinn árið 2010 og endurkjörinn árið 2014. Kjósendur í Wisconsin náðu að krefjast sérstakra kosninga með undirskriftasöfnun árið 2012 sem Walker vann einnig. Tony Evers er frambjóðandi demókrata til ríkisstjóra í ár og samkvæmt meðaltali skoðanakannana frá Real Clear Politics leiðir hann með nokkrum prósentustigum. Demókratinn og fyrrverandi borgarstjóri Tallahassee, Andrew Gillum, er í framboði til ríkisstjóra Flórída en spekingar vestanhafs telja hann líklegan til að verða fram- tíðarstjörnu innan Demókrata- flokksins. Fulltrúadeildarþing- maðurinn og repúblikaninn Ron DeSantis sækist einnig eftir því að verða ríkisstjóri Flórída. Leiðir Gill- um með nokkrum prósentustigum og verður því áhugavert að fylgjast með hvað gerist í Flórída á þriðju- daginn. Rétturinn til að kjósa í suðrinu Enginn ríkisstjóraslagur hefur hins vegar fengið jafn mikla athygli og í Georgíu. Þar sækist demókrat- inn Stacey Abrams eftir því að verða fyrsta blökkukonan til að vera kosin ríkisstjóri í sögu Bandaríkjanna. Repúblikaninn Brian Kemp, innan- ríkisráðherra Georgíu, sækist einnig eftir embættinu en hann og Abrams hafa eldað grátt silfur saman í mörg ár. Abrams er leiðtogi demókrata á ríkisþingi Georgíu, og Kemp er með- al annars æðsti yfirmaður kosninga- mála í ríkinu. Abrams hefur um ára- bil leitt samtökin New Georgia Project, sem vinna að því að hjálpa minnihlutahópum að skrá sig á kjör- skrá. Markmið samtakanna, sem stofnuð voru 2013, er að skrá 800.000 blökkumenn á kjörskrá á tíu ára tímabili. Hóf ráðuneyti Kemps rann- sókn á samtökunum árið 2014 fyrir fjársvik. Leiddi rannsóknin ekkert saknæmt í ljós og sakaði Abrams Kemp um nornaveiðar og sagði hann „höfund kosningakúgunar“ í Georgíu. Þau voru bæði ólíkleg til að vinna prófkjör sín en eins og í sannri Hollywood-bíómynd unnu þau bæði og mætast því þessir miklu andstæð- ingar í ríkisstjórakosningum í ár. Kemp hefur komið á mjög strangri kosningalöggjöf í Georgíu, með fyrirkomulagi sem er þekkt undir heitinu „Exact Match“. Í Bandaríkjunum þarf að skrá sig til að fá að kjósa og virkar „Exact Match“ löggjöfin þannig að þegar kjósandi sækir um að fara á kjör- skrá er umsókn hans borin saman við allar aðrar upplýsingar sem til eru um hann í stjórnsýslunni. Ef ein- hverjar upplýsingar stemma ekki, allt niður í stafsetningarvillu eða kommu á vitlausum stað, er viðkom- andi ekki settur á kjörskrá. Hefur Kemp m.a. kennt New Georgia Project um lélega pappírsvinnu í tengslum við skráningar þeirra á kjósendum. Í síðasta mánuði komst fréttaveit- an AP yfir skjöl úr ráðuneyti Kemps þar sem kom fram að 53 þúsund ein- staklingar voru í bið um að fá að komast á kjörskrá vegna nýju lag- anna. Rúmlega 70% þeirra sem voru í bið voru blökkumenn. Komst dómstóll í Georgíu að þeirri niðurstöðu á föstudaginn að ríkið yrði að losa um þennan hóp sem er í bið. Skipaði dómstóllinn einnig ráðuneyti Kemps að senda frá sér fréttatilkynningu um það hvern- ig kjósendur í þessum hópi gætu leyst úr sínum málum. Yfir tvær milljónir kjósenda teknar af kjörskrá síðan 2012 Að sögn Brennan Center for Justice við New York-háskólann hafa 1,5 milljónir manns verið tekn- ar af kjörskrá í ríkinu á árunum 2012 til 2016. Samkvæmt Atlanta Journ- al- Constitution fóru 665 þúsund ein- staklingar til viðbótar af kjörskrá í fyrra. Georgía er nefnilega eitt af þeim fáu ríkjum Bandaríkjanna sem skráir kjósendur „óvirka“ ef þeir hafa ekki kosið í þrjú ár og fara þeir í kjölfarið af kjörskrá og þurfa sækja um á ný. Hæstiréttur Bandaríkj- anna hefur sagt þetta ferli löglegt. Íbúar ríkisins sem hafa ekki kosið í þrjú ár fá bréf heim þar sem þeir þurfa að staðfesta heimilisfang sitt innan 30 daga og ef þeir gera það ekki fara þeir af kjörskrá. Kemp hefur sagt þessa löggjöf vera til þess að koma í veg fyrir kosningasvindl. Abrams segir þessa kosningalöggjöf ekkert annað en tilraun til að fæla minnihlutahópa frá kjörstað. Georgía á ekki fagra sögu þegar kemur að kosningarétti blökku- manna og á sá réttur undir högg að sækja á ný. Hefur þessi harði kosningaslagur dregið að sér mikla athygli og mætti sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey til Georgíu í síðustu viku til að ganga í hús fyrir Abrams. Obama mætti einnig á kosningaviðburð fyrir Abrams um helgina og þá hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti mætt á kosningaviðburði fyrir Kemp. Það verða því allra augu á Georgíu þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Ríkisstjóraslagir í sveifluríkjum  Kosið um ríkisstjóra í 36 ríkjum Bandaríkjanna á morgun  Demókratar sækja að sitjandi ríkis- stjórum Repúblikanaflokksins  Rétturinn til að kjósa aðalkosningamálið í einu Suðurríkjanna Flórída Kjósandi í Flórída heldur á skilti til stuðnings framboði Andrew Gillum til ríkisstjóra. Hann er talinn möguleg framtíðarstjarna demókrata. AFP Atlanta Demókratinn Stacey Abrams sækist eftir því að verða fyrsta blökkukonan í sögu Bandaríkjanna til að verða ríkisstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.