Morgunblaðið - 05.11.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Alls munu 36 ríki Bandaríkjanna og
þrjú sjálfstjórnarsvæði kjósa ríkis-
stjóra á þriðjudaginn. Ríkisstjóra-
kosningar í ár eru afar mikilvægar
því ný íbúatalning Bandaríkjanna
kemur út árið 2020 og verða kjör-
dæmi m.a. ákveðin eftir þeim. Ríkis-
stjórar hvers ríkis hafa mikið vald
yfir því hvernig kjördæmalínur eru
teiknaðar, sem skiptir miklu máli
fyrir kosningar í Bandaríkjunum
næstu 10 árin.
Kosið er um ríkisstjóra í 26 ríkj-
um þar sem repúblikani er ríkis-
stjóri og í níu ríkjum þar sem demó-
krati er sitjandi ríkisstjóri. Þá er
einnig kosið um ríkisstjóra í Alaska
en ríkisstjóri Alaska, Bill Walker,
stendur utan flokka. Mörg ríki sem
gætu skipt miklu máli fyrir forseta-
kosningar 2020 eru að kjósa ríkis-
stjóra í ár en þar má nefna Minne-
sota þar sem demókratinn Tim Walz
leiðir á móti repúblikananum Jeff
Johnsson en Johnsson vann fyrrver-
andi ríkisstjóra Minnesota, Tim
Pawlenty, í prófkjöri sínu.
Í Ohio eru demókratinn Richard
Cordray og repúblikaninn Mike
Dewine í hörðum ríkisstjóraslag.
Dewine er fyrrverandi þingmaður í
öldungadeildinni en Cordray er fyrr-
verandi forstjóri neytendastofu
Bandaríkjanna. Þeir hafa báðir
gegnt embætti dómsmálaráðherra
Ohio en þetta er í annað skiptið sem
Dewine og Cordray mætast í kosn-
ingum. Árið 2010 fóru Dewine og
Cordray báðir í framboð til dóms-
málaráðherra sem endaði með að
Dewine vann með 47,5% á móti
46,3%.
Í Wisconsin eru demókratar að
reyna að velta sitjandi ríkisstjóra,
Scott Walker, í þriðja sinn. Hann var
kjörinn árið 2010 og endurkjörinn
árið 2014. Kjósendur í Wisconsin
náðu að krefjast sérstakra kosninga
með undirskriftasöfnun árið 2012
sem Walker vann einnig. Tony
Evers er frambjóðandi demókrata
til ríkisstjóra í ár og samkvæmt
meðaltali skoðanakannana frá Real
Clear Politics leiðir hann með
nokkrum prósentustigum.
Demókratinn og fyrrverandi
borgarstjóri Tallahassee, Andrew
Gillum, er í framboði til ríkisstjóra
Flórída en spekingar vestanhafs
telja hann líklegan til að verða fram-
tíðarstjörnu innan Demókrata-
flokksins. Fulltrúadeildarþing-
maðurinn og repúblikaninn Ron
DeSantis sækist einnig eftir því að
verða ríkisstjóri Flórída. Leiðir Gill-
um með nokkrum prósentustigum
og verður því áhugavert að fylgjast
með hvað gerist í Flórída á þriðju-
daginn.
Rétturinn til að kjósa í suðrinu
Enginn ríkisstjóraslagur hefur
hins vegar fengið jafn mikla athygli
og í Georgíu. Þar sækist demókrat-
inn Stacey Abrams eftir því að verða
fyrsta blökkukonan til að vera kosin
ríkisstjóri í sögu Bandaríkjanna.
Repúblikaninn Brian Kemp, innan-
ríkisráðherra Georgíu, sækist einnig
eftir embættinu en hann og Abrams
hafa eldað grátt silfur saman í mörg
ár.
Abrams er leiðtogi demókrata á
ríkisþingi Georgíu, og Kemp er með-
al annars æðsti yfirmaður kosninga-
mála í ríkinu. Abrams hefur um ára-
bil leitt samtökin New Georgia
Project, sem vinna að því að hjálpa
minnihlutahópum að skrá sig á kjör-
skrá. Markmið samtakanna, sem
stofnuð voru 2013, er að skrá 800.000
blökkumenn á kjörskrá á tíu ára
tímabili. Hóf ráðuneyti Kemps rann-
sókn á samtökunum árið 2014 fyrir
fjársvik. Leiddi rannsóknin ekkert
saknæmt í ljós og sakaði Abrams
Kemp um nornaveiðar og sagði hann
„höfund kosningakúgunar“ í
Georgíu. Þau voru bæði ólíkleg til að
vinna prófkjör sín en eins og í sannri
Hollywood-bíómynd unnu þau bæði
og mætast því þessir miklu andstæð-
ingar í ríkisstjórakosningum í ár.
Kemp hefur komið á mjög
strangri kosningalöggjöf í Georgíu,
með fyrirkomulagi sem er þekkt
undir heitinu „Exact Match“. Í
Bandaríkjunum þarf að skrá sig til
að fá að kjósa og virkar „Exact
Match“ löggjöfin þannig að þegar
kjósandi sækir um að fara á kjör-
skrá er umsókn hans borin saman
við allar aðrar upplýsingar sem til
eru um hann í stjórnsýslunni. Ef ein-
hverjar upplýsingar stemma ekki,
allt niður í stafsetningarvillu eða
kommu á vitlausum stað, er viðkom-
andi ekki settur á kjörskrá. Hefur
Kemp m.a. kennt New Georgia
Project um lélega pappírsvinnu í
tengslum við skráningar þeirra á
kjósendum.
Í síðasta mánuði komst fréttaveit-
an AP yfir skjöl úr ráðuneyti Kemps
þar sem kom fram að 53 þúsund ein-
staklingar voru í bið um að fá að
komast á kjörskrá vegna nýju lag-
anna. Rúmlega 70% þeirra sem voru
í bið voru blökkumenn.
Komst dómstóll í Georgíu að
þeirri niðurstöðu á föstudaginn að
ríkið yrði að losa um þennan hóp
sem er í bið. Skipaði dómstóllinn
einnig ráðuneyti Kemps að senda frá
sér fréttatilkynningu um það hvern-
ig kjósendur í þessum hópi gætu
leyst úr sínum málum.
Yfir tvær milljónir kjósenda
teknar af kjörskrá síðan 2012
Að sögn Brennan Center for
Justice við New York-háskólann
hafa 1,5 milljónir manns verið tekn-
ar af kjörskrá í ríkinu á árunum 2012
til 2016. Samkvæmt Atlanta Journ-
al- Constitution fóru 665 þúsund ein-
staklingar til viðbótar af kjörskrá í
fyrra. Georgía er nefnilega eitt af
þeim fáu ríkjum Bandaríkjanna sem
skráir kjósendur „óvirka“ ef þeir
hafa ekki kosið í þrjú ár og fara þeir
í kjölfarið af kjörskrá og þurfa sækja
um á ný. Hæstiréttur Bandaríkj-
anna hefur sagt þetta ferli löglegt.
Íbúar ríkisins sem hafa ekki kosið í
þrjú ár fá bréf heim þar sem þeir
þurfa að staðfesta heimilisfang sitt
innan 30 daga og ef þeir gera það
ekki fara þeir af kjörskrá. Kemp
hefur sagt þessa löggjöf vera til þess
að koma í veg fyrir kosningasvindl.
Abrams segir þessa kosningalöggjöf
ekkert annað en tilraun til að fæla
minnihlutahópa frá kjörstað.
Georgía á ekki fagra sögu þegar
kemur að kosningarétti blökku-
manna og á sá réttur undir högg að
sækja á ný.
Hefur þessi harði kosningaslagur
dregið að sér mikla athygli og mætti
sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey til
Georgíu í síðustu viku til að ganga í
hús fyrir Abrams. Obama mætti
einnig á kosningaviðburð fyrir
Abrams um helgina og þá hefur
Donald Trump Bandaríkjaforseti
mætt á kosningaviðburði fyrir
Kemp. Það verða því allra augu á
Georgíu þegar talið verður upp úr
kjörkössunum.
Ríkisstjóraslagir í sveifluríkjum
Kosið um ríkisstjóra í 36 ríkjum Bandaríkjanna á morgun Demókratar sækja að sitjandi ríkis-
stjórum Repúblikanaflokksins Rétturinn til að kjósa aðalkosningamálið í einu Suðurríkjanna
Flórída Kjósandi í Flórída heldur á skilti til stuðnings framboði Andrew
Gillum til ríkisstjóra. Hann er talinn möguleg framtíðarstjarna demókrata.
AFP
Atlanta Demókratinn Stacey Abrams sækist eftir því að verða fyrsta blökkukonan í sögu Bandaríkjanna til að verða ríkisstjóri.