Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið Framtíð íslensks körfubolta er
björt. Það mátti glögglega sjá í
Grafarvoginum í helgina þar sem
körfuknattleiksdeild íþróttafélags-
ins Fjölnis hélt svonefnt Sambíóa-
mót fyrir yngstu iðkendurna. Alls
mættu á svæðið um 600 krakkar á
aldrinum 6-11 ára og komu þeir alls
staðar að af landinu. Mótið hófst
snemma á laugardag og lauk síð-
degis í gær, sunnudag. Keppni fór
að mestu fram í íþróttahúsinu við
Dalhús og í Fjölnishöll, nýjasta
hluta Egilshallar, auk þess sem
nokkrir leikir voru teknir í íþrótta-
húsi Rimaskóla.
Að venju var á þessu móti ekki
keppt um sæti og stigin ekki talin
opinberlega heldur fékk leikgleðin
að ráða ríkjum. Allir keppendur
fengu svo verðlaunapening og liðs-
mynd að móti loknu.
Mót þetta hefur skipað sér sess
meðal stórmóta vetrarins og þar
600 krakkar á körfuboltamóti í Grafarvogi
Engin stigatalning og leikgleðin réð ríkjum
má jafnan sjá fullt af væntanlegum
stórstjörnum, bæði hjá stelpum og
strákum. Þarna sjást oft tilvonandi
þjálfarar í efstu deildum sem
gjarnan stíga sín fyrstu skref með
yngri körfuboltakrakka sem í fyll-
ingu tímans komast í fremstu röð
ef að líkum lætur. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraðaupphlaup Stelpurnar eru kná-
ar í körfunni og sýndu tilþrif.
Lagni Útsjónarsemi þarf til þess að
komast fram hjá andstæðingunum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Stemningin var einstök oghópurinn ein sál. Þessi við-burður hefur líka fest sig ísessi og tilhlökkunarefni
okkar allra,“ segir Linda Hilmars-
dóttir, framkvæmdastjóri heilsu-
ræktarinnar Hress í Hafnarfirði.
Hinir árlegu Hressleikar sem stöðin
stendur fyrir voru á laugardaginn og
voru þar þátttakendur um 250 tals-
ins. Hópnum var svo skipt upp í alls
átta 30 manns lið. Á þeim tveimur
klukkustundum sem keppnin stóð
reyndi fólk í hópunum sig í flestu því
sem býðst í Hress; svo sem tækjaæf-
ingum, spinning, hot jóga og svo
mætti áfram telja. Hvert lið var í
sínum litnum, gulur, rauður, grænn,
blár og svo framvegis.
Sagan snertir
Fyrir þátttöku í Hressleikunum
greiðir hver þátttakandi 3.000 krón-
ur en hvert sinn er safnað peningum
til fólks eða fjölskyldna í Hafnarfirði
sem er hjálpar þurfi. Að þessu sinni
fá stuðninginn hjónin Fanney Ei-
ríksdóttir og Ragnar Snær Njáls-
son. Saga þeirra var sögð í Morgun-
blaðinu um þar liðna helgi en hún er
sú að taka þurfti son þeirra með
keisaraskurði á 29. viku meðgöngu
Fanneyjar, sem hafði þá greinst með
leghálskrabbamein. Sonurinn Erik
Fjólar er nú á vökudeild á Landspít-
alanum og Fanney í lyfja- og geisla-
meðferð. Fyrir eiga Fanney og
Ragnar dótturina Emilý Rósu, sem
er þriggja ára.
„Við í Hress þekkjum til Fann-
eyjar, en Gyða systir hennar hefur
lengi starfað hjá okkur,“ segir
Linda. „Þá hefur saga þessarar litlu
fjölskyldu og erfiðleikanna sem hún
stendur andspænis verið sögð í fjöl-
miðlum og eðlilega snertir hún fólk.
Því var auðvelt að þessu sinni að
finna gott málefni til að styrkja.“
Linda lýsir Hressleikunum sem
samfélagslegu verkefni þar sem allir
leggist á eitt. Þannig renna öll þátt-
tökugjöldin til styrkþeganna og eins
andvirði seldra miða í happadrætti
sem efnt er til samhliða Hressleik-
unum. Þar eru í boði veglegir vinn-
ingar, gjafir frá fyrirtækjunum í
Hafnarfirði og víðar.
„Það var sérstaklega ánægju-
legt og sömuleiðis áhrifaríkt þegar
Fanney, Ragnar og Emilý mættu til
okkar og tóku við stuðningi okkar.
Við höfum þegar safnað 1,6 millj-
ónum króna og þar sem reikning-
urinn er enn opinn vona ég að meira
safnist á næstu dögunum,“ segir
Linda Hilmarsdóttir.
Komast heil á fjallstoppinn
„Vonandi léttir þetta undir með
þessum vinum okkar; við höfum fulla
trú á að fjölskyldan komist heil á
fjallstoppinn þó þau séu að klífa
bratta brekku einmitt þessa dagana.
Og sú ganga verður auðveldari þeg-
ar fólk fær hjálp og góðan stuðning.
Máttur fjöldans er mikill og á Hress-
leikunum liggja oft einhverjir töfrar
í loftinu.“
Máttur fjöldans á Hressleikunum
Töfrar í heilsurækt. 250
þátttakendur lögðu lið.
Hjálpa fjölskyldu sem
glímir við veikindi.
Hresst fólk Starfsfólk heilsuræktarinnar var í skrautlegum búningum.
Ljósmynd/Kristján Ari
Stuðningur Linda Hilmarsdóttir lengst til vinstri, Gyða Eiríksdóttir og svo Fanney systir hennar, Ragnar Snær
Njálsson og dóttir þeirra Emilý Rósa, fjölskyldan sem þátttakendur í Hressleikunum studdu að þessu sinni.
Ljósgrænt Hóparnir sem tóku þátt voru alls átta og hver hafði sinn lit. Lyftingar Hér var hressilega tekið á því og vöðvarnir stæltir rækilega. Einn helsti menningarviðburður kom-
andi viku er tónleikar Stuðmanna í
Þjóðleikhúsinu næstkomandi laugar-
dagskvöld, 10. nóvember. Haldnir
verða tvennir tónleikar, hinir fyrri eru
klukkan 22 og þeir síðari hefjast kl.
22.30. Með þessari skemmtun er 100
ára afmæli fullveldis Íslands fagnað
með skemmtun þar sem ekkert er til
sparað. Flutt verða ný lög í bland við
vinsælustu lög Stuðmanna, sem eru
sennilega langlífasta hljómsveit Ís-
landssögunnar. Sérhvert lag höfðar
til tiltekins áratugar og viðburða þar
sem tónlistin, myndheimur og leik-
húsið kallast á. Sérstakar gesta-
stjörnur Stuðmanna þetta kvöld
verða Ragnhildur Gísladóttir og Teit-
ur Magnússon.
Stuðmenn fá fullveldi
Öld er fagnað
Stuðmenn Hljómsveit allra lands-
manna og er enn í fullu fjöri.
Rauði krossinn á Íslandi hefur hrund-
ið af stað neyðarsöfnun vegna vopn-
aðra átaka og yfirvofandi hungurs-
neyðar í Jemen. Með því að senda
SMS-ið HJALP í númerið 1900 er
starf Rauða kross hreyfingarinnar í
Jemen styrkt um 2.900 kr., sem dug-
ar til að fæða þrjú börn mánaðar-
langt. Vandamál í Jemen eru gríðar-
leg og margslungin. Mannfall er
mikið vegna vopnaðra átaka, skorts á
mat, heilbrigðiskerfið hefur eyðilagst
í átökunum og innviðir hafa eyði-
lagst. Hjálparstarf reynist erfitt og
hættulegt. Um 80% þjóðarinnar, eða
um 22 milljónir af 27 milljónum Jem-
ena, þurfa á aðstoð að halda og 2,9
milljónir eru á flótta.
Þá er áætlað er að 60% jemensku
þjóðarinnar skorti mat, eða um 17,8
milljónir einstaklinga. Ástandið í
landinu hefur einnig leitt til þess að
heilbrigðiskerfi hefur hrunið. Gríðar-
legur skortur er á bólusetningum
barna og fjöldi vannærðra barna er
mikill.
Neyðarsöfnun RKÍ
Hjálp til Jemen
Jemen Barn á flótta í landi þar sem
allir innviðir hafa hrunið.