Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 19

Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Kostnaðaráætlunin fyrir Braggann var 159.000.000 kr. og kostnaðurinn er nú kominn í 410.000.000 kr. Umræðan snýst að- allega um framúr- keyrsluna og lítið er rætt um upphaflegu kostnaðaráætlunina. Hvernig var hægt var að gera svona háa kostnaðaráætlun? Ég hefði talið eðlilegra að hún hefði verið vel innan við 100.000.000 kr. og ekki 159.000.000 kr. Þá væri framúrkeyrslan enn svakalegri, hvort sem miðað væri við krónur eða prósentur. Kostnaður upp á 410.000.00 kr. hefur verið birt- ur og sundurliðaður:  Ástandskönnun 27 milljón kr.: Hvernig var það hægt? Bygginga- meistari hefði getað sagt eftir eina heimsókn að bragginn væri ónýtur og hagstæðast væri að rífa hann.  Rif á bragga 30 milljón kr.! Hvernig var það hægt? Það er fullt af verktökum sem hefðu getað jafn- að braggann við jörðu og fjarlægt af lóðinni á innan við viku. Þeir hefðu gjarnan gefið tilboð í vekið.  Allt hitt sem á eftir kemur og kostaði 353.000.000 kr. hefði mátt losna við með því að bjóða lóðina út. Borgin hefur reynslu af útboði lóða, t.d. í Úlfarsársdal. Einfaldast hefði verið að hafa sama hátt á í Nauthóls- vík með kvöð og lýsingu á þeirri starfsemi sem borgin óskaði eftir að færi fram í bragganum. Þá hefðu nokkur 100 milljón kr. komið í borgarsjóð í stað láns upp á 400 milljón kr. á fullum vöxtum. Það hlýtur að vera réttmæt krafa skattgreiðenda að upphafleg kostn- aðaráætlun verði birt þannig að sjá- ist svo ekki fari milli mála hvar framúrkeyrslan er. Það að afhenda einkaaðila bragg- ann á leigukjörum sem ekki standa undir vaxtakostnaði þarfnast skýr- inga. Hrólfur segir Dag ekkert hafa vit- að um stöðu braggamálsins. Það breytir því ekki að borgarstjóri ber ábyrgð á framkvæmd- inni. Það að vita ekkert af málinu er öllu alvar- legra og vekur upp spurningar: Hvernig fylgist borgarstjóri með öðrum verkefnum og framkvæmdum á veg- um borgarinnar? Hver stjórnar borginni og ber ábyrgð á skemmdarverkum mið- bæjarins? Það ætti öllum í borgarstjórn, og þar með talið borgarstjóra, að vera ljóst að Degi ber að segja af sér borgarstjóra- embættinu. Upphafleg kostnað- aráætlun braggans? Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson »Umræðan snýst aðallega um fram- úrkeyrsluna og lítið er rætt um upphaflegu kostnaðaráætlunina. Hvernig var hægt var að gera svona háa kostnaðaráætlun? Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Ný samgönguáætl- un samgönguráðherra, þar sem aukið um- ferðaröryggi er sagt grunnstefið, er mikil vonbrigði fyrir Seyð- firðinga og þann stóra hóp velunnara sem barist hafa fyrir og beðið eftir Fjarðar- heiðargöngum í tugi ára. Atvinnulífi og íbú- um er áfram sífellt ógnað og bænum ýtt til hliðar í harðri samkeppni um staðarval. Hótanir berast um niðurskurð og flutning. Fjárfestar forðast ófærð og öryggisleysi á 600 metra háum fjallvegi á Fjarðarheiðinni. Upplýs- ingar Vegagerðarinnar sýna að á sl. fimm vetrum hefur heiðin verið lokuð allri umferð í alls 152 daga. Þrátt fyrir þessar miklu og erfiðu tak- markanir er Seyðis- fjarðarhöfn stærsta skemmtiferðaskipa- höfn Austurlands og sú fjórða á landsvísu. Vegurinn yfir Fjarð- arheiði er fjölfarinn Evrópuvegur inn og út úr landinu og hefur sem slíkur verið það sl. 43 ár. Viðvarandi varnarbarátta hefur sett svip sinn á samfélagið sem þrátt fyrir mótlætið gengur stolt, samstiga og brosandi á móti bjart- ari tímum. Langtíma þreytandi áreiti og „andóf nágranna“ hefur svo sannarlega ekki hjálpað til í baráttunni. Nú hefur hinsvegar leg- ið fyrir í nokkur ár að samstaða er um það hjá sveitarfélögum á Austurlandi (SSA), þingmönnum kjördæmisins (NA) og Alþingi Ís- lendinga að Fjarðarheiðargöng verði næsta framkvæmd á eftir Dýrafjarðargöngum sem lýkur 2020. Fyrir hrun 2008 var ályktað hjá samgönguyfirvöldum að stefna bæri á að hafa í gangi samtímis tvenn jarðgöng þar til brýnustu fram- kvæmdum í þeim flokki væri lokið. Hrunið gerði það að verkum að sú ætlan varð ekki að veruleika. Meiri- hluti umhverfis- og samgöngu- nefndar Alþingis (2016) taldi að svigrúm væri til staðar til að hefja vinnu við Fjarðarheiðargöng sam- hliða gerð Dýrafjarðarganga. Því miður hefur það ekki gengið eftir. Já, sæll, ert’ ekki að grínast, Sig- urður Ingi? Það er því mikið reiðar- slag og „hreint rothögg“ nú þegar Fjarðarheiðargöng eru loksins inn- skrifuð og komin á dagskrá sem næst í röðinni, að þá leggur sam- gönguráðherra fram samgöngu- áætlun sem gerir ráð fyrir að allri jarðgangagerð á Íslandi verði frest- að í 10-15 ár. Hann hefur látið hafa eftir sér að hann hafi skilning á gagnrýni Seyðfirðinga og segir: „Göng undir Fjarðarheiðina eru komin tímasett í röðina og fáist aukið fé í samgöngumálin á næstu árum þá getur það opnað möguleika á að flýta þeirri framkvæmd“ (mbl. 25.10. sl). Jákvætt viðhorf til breyttrar gjaldtöku í vegakerfinu og aukinn skilningur á að fjármagna verði brýnustu stórframkvæmdir utan við sársvangan ramma fjárlaga ríkisins, er góðs viti og lykillinn að því að svo geti orðið. Bæjarstjórn Seyðis- fjarðar hefur sérstaklega ályktað um gjaldtöku ef það getur flýtt fyrir framkvæmdum. Æ fleiri taka undir það sjónarmið. Talað er um mikinn áhuga fjárfesta á verkefnum í sam- göngukerfinu, bæði innlendra og er- lendra. Virkja verður þann áhuga sem allra fyrst. Lífeyrissjóðir lands- manna, sem kvarta yfir að vörslufé þeirra sárvanti vinnu, eiga að sjálf- sögðu að svara kalli og mæta strax til leiks og sýna með því þroskaða samfélagslega ábyrgð. Fjármagnið er svo sannarlega til. En það verður að þora að sækja það. Verkefnið er því skýrt: Að finna því ásætt- anlegan skilvirkan farveg svo flýta megi bráðnauðsynlegum vegafram- kvæmdum sem nú bíða í öllum landshlutum. Hæstvirt Alþingi, samgöngu- ráðherra og ágætu þingmenn NA sem ítrekað og ákveðið hafið lýst yf- ir stuðningi við Fjarðarheiðargöng: Kærar þakkir fyrir stuðninginn. Verkefni ykkar er ekki lokið. Þið eruð nú við stýrið í bílstjórasætinu á lokasprettinum, sem er að tryggja langþráð gefin fyrirheit um að strax að loknum Dýrafjarðargöngum hefjist framkvæmdir við Fjarðar- heiðargöng. Látum þau fyrirheit verða að veruleika sem fyrst. Ertu að grínast, Sigurður Ingi? Eftir Þorvald Jóhannsson » Viðvarandi varnar- barátta hefur sett svip sinn á samfélagið sem þrátt fyrir mótlætið gengur stolt, samstiga og brosandi á móti bjartari tímum. Þorvaldur Jóhannsson Höfundur er fv. bæjarstjóri á Seyðisfirði en nú eldri borgari. brattahlid10@simnet.is Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.