Morgunblaðið - 05.11.2018, Page 20

Morgunblaðið - 05.11.2018, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 ✝ Kjartan K.Steinbach fæddist í Reykjavík 16. desember 1949. Hann lést á deild 11G á Landspítal- anum 25. október 2018. Foreldrar hans voru Soffía Lopts- dóttir Steinbach talsímavörður, f. 16. apríl 1909, d. 29. janúar 1998, og Kjartan Steinbach, loftskeytamaður og símritari, f. 4. nóvember 1909, d. 30. nóvember 1991. Bróðir Kjartans er Guðmundur K. Steinbach, f. 5. júlí 1929, maki Kamilla Guðbrandsdóttir. Systir Kjartans er Ragnhildur Steinbach, f. 11. febrúar 1939, maki Hilmar Sigurðsson. Kjartan kvæntist 28. septem- ber 1973 Mörtu Guðmunds- dóttur, grunnskólakennara, f. 17. september 1950 í Garði. Foreldrar Mörtu voru Guðfinna Jónsdóttir, verkakona, f. 25. janúar 1930, d. 31. maí 2008, og Guðmundur Helgi Gíslason, verkamaður, f. 7. október 1926, d. 25. febrúar 1998. Börn Kjartans og Mörtu eru: 1) Karólína Steinbach, f. 13. í handbolta, gerðist handbolta- dómari 16 ára gamall og dæmdi handbolta í efstu deild á Íslandi í mörg ár. Kjartan gegndi mörgum félags- og trúnaðarstörfum innan íþrótta- hreyfingarinnar, hann var for- maður dómaranefndar HSÍ í fjölda ára og sat í stjórn HSÍ í áratugi. Hann sat í fram- kvæmdastjórn og var formaður dómara- og leikreglunefndar Alþjóðahandknattleikssam- bandsins í átta ár og var eftir- litsdómari hjá Evrópska hand- boltasambandinu í fjölda ára. Hann var eftirlitsmaður og var í mótsstjórn, bæði á heims- meistaramótum og á ólympíu- leikum svo að fátt sé nefnt. Hann var heiðursfélagi og handhafi gullmerkis HDSÍ, HSÍ, ÍSÍ og IHF. Kjartan sat í ótal stjórnum og nefndum, meðal annars heiðursmerkjanefnd HSÍ, for- maður starfsmannafélags RA- RIK, í stjórn félags ráðgjaf- arverkfræðinga, sat í orku- nefnd Sjálfsæðisflokksins, fjölmörgum mótsnefndum og var einn af stofnendum Klaka- mótsins, knattspyrnumóts Ís- lendingafélaga á Norður- löndum. Það var stöðugt leitað til Kjartans ef þurfti að túlka leikreglur er tengdust hand- bolta. Útför Kjartans fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 5. nóvember 2018, og hefst at- höfnin klukkan 15. apríl 1974, 2) Brynjar Steinbach verkfræðingur, f. 29. janúar 1979, kvæntur Fríðu Hjaltested, mark- aðsfræðingi, og eru börn þeirra Viktoría Arna, Þórey Emilíana og Arnór Mikkel. 3) Örvar Steinbach háskólanemi, f. 6. ágúst 1993. Kjartan lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1970, sveinsprófi í rafvirkj- un frá Iðnskólanum í Reykjavík 1975 og BS-prófi í rafmagns- tæknifræði frá Tækniháskól- anum í Óðinsvéum í Danmörku 1982. Á námsárunum starfaði Kjartan sem línumaður hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur, raf- virki hjá Bjarna S. Jónassyni og framkvæmdastjóri HSÍ. Að námi loknu starfaði Kjartan sem rafmagnstæknifræðingur hjá RARIK, 1982-1988 og stofn- aði síðan Verkfræðistofuna Afl og orku ásamt tveimur félögum sínum og rak hana fram til dauðadags. Kjartan var virkur í íþrótt- um. Hann þjálfaði yngri flokka „Hvernig verður morgun- dagurinn þinn?“ Þessa spurningu fékk ég nánast á hverju einasta kvöldi í ótal mörg ár. Pabbi sýndi öllu sem var að gerast í kringum mig áhuga. Ef ég tók upp nýtt áhugamál var pabbi ekki að lengi að lesa sér til um málefnið til að geta rætt það við mig. Það var í raun ótrúlegt hvað maðurinn vissi alltaf eitthvað, alveg sama hvert umræðuefnið var. Þeir eru ófáir vinir mínir sem hafa setið úti í garðstofu á spjallinu við pabba, jafnvel þótt ég væri ekki alltaf viðstaddur og stundum ekki einu sinni heima. Hann átti ótrúlega auðvelt með að kynnast fólki og það sást vel því alltaf þeg- ar ég fór eitthvert með pabba rakst hann á einhvern sem hann þekkti. Ég man vel eftir því þeg- ar við fórum saman til Austur- ríkis á EM í handbolta 2009. Það tók okkur óendanlega langan tíma að komast í sætin okkar því að fólk kom til að heilsa hvert á fætur öðru. Pabbi ferðaðist um allan heiminn og fór til um 120 landa, geri aðrir betur. Þegar ég fór að ferðast um Mið- og Suður- Ameríku var pabbi búinn að hringja á undan mér í hvert ein- asta land sem ég fór til og lét vita af mér hjá fólki sem hann þekkti. Hann sá til þess ég ætti tengilið hvar sem er ef eitthvað færi úr- skeiðis. Pabbi stóð með mér í gegnum allt. Þegar ég var yngri og lenti í veseni í skólanum lét ég alltaf hringja í pabba og oft sagði hann: „Við þurfum ekkert að segja mömmu þinni frá þessu.“ Ég gat alltaf treyst á að hann stæði við bakið á mér og hann var alltaf að- eins eitt símtal í burtu. Pabbi var alveg jafn mikill prakkari sextug- ur og hann var þegar hann var 10 ára. Á áramótunum hittist öll gatan og skýtur upp saman og vorum við feðgar alltaf síðastir inn. Á hverju einasta ári var sama lygin sögð þegar mamma spurði hversu mikið við hefðum keypt af flugeldum, við sýndum 20% og földum hin 80% inni í bílskúr þangað til tíminn var kominn að skjóta upp. Allar afmælisveislur hjá mér þurftu að innihalda bál og oft kveiktum við bál saman úti í garði, þangað til einn daginn munaði engu að ég brenndi húsið niður, en grenitréð við húsið slapp ekki svona vel. Þá hvíldum við það áhugmál okkar í tvo mán- uði. Það er eitthvað við eldinn sem heillaði okkur báða. Hann hafði skoðun á öllum málum og fór aldrei leynt með þær, hvort sem þær voru vinsæl- ar eða ekki. Þegar við unnum saman í framkvæmdum fórum við oft að rífast um það hvernig ætti að gera hlutina. Ég þurfti þó alltaf að lúta á endanum, enda hafði hann alltaf rétt fyrir sér. Þegar upp komu vandamál var alltaf mín fyrsta hugsun „pabbi veit hvað þarf að gera“. Pabbi reyndi eftir bestu getu að leiðbeina mér í gegnum lífið þó svo að ég hafi oft ekki viljað hlusta. Hann leyfði mér þá að gera mistök en var alltaf fyrstur til að rétta hjálparhönd. Hann kenndi mér að hlusta alltaf á sjálfan mig og ef ég gerði eitt- hvað rangt, þá skyldi ég læra af því. Pabbi lifði ótrúlegu lífi og fáir jafn hoknir af reynslu og hann var. Allt frá því að skamma Rom- an Abramovich í Serbíu yfir í að bjarga vinum sínum frá handtöku í Mið-Austurlöndum, pabbi hafði gert allt. Örvar Steinbach. Elsku pabbi, nú er liðin vika síðan þú fórst frá okkur og tilfell- unum fjölgar þar sem ég hugsa að pabbi veit hvar þetta er eða hvað á að gera í þessari aðstöðu. Ég finn hvernig söknuðurinn eykst dag frá degi og ég á erfitt með að sætta mig að ég geti ekki tekið upp símann og spurt þig ráða eða deilt með þér hvað er að gerast. Ég man þegar ég var lítill að ég átti stærsta pabbann í fjöl- skyldunni og á tímabili hélt ég að þú værir stærsti maður í heimi. Þú varst alltaf tilbúinn að taka mig með hvert sem þú fórst, hvort sem það var á landsleiki eða ferðalag út á land. Á ung- lingsárunum fékk ég líka að fara með þér í utanlandsferðir eins og til Egyptalands og á Ólympíu- leikana í Sidney, því mun ég aldr- ei gleyma. Í augum mínum varst þú stærsta hetja sem til var, hetja sem gat gert allt, hvort sem það var hér heima, í vinnunni eða í tengslum við íþróttir. Með aldr- inum fór ég, eins og líklega flest- ir, að efast um að þú gætir allt sem þú talaðir um en annað kom nú á daginn. Ég sá það svo vel í Sidney hversu mikilsvirtur þú varst í alþjóðaíþróttahreyfing- unni og hversu mikla vinnu og metnað þú lagðir í verk þín. Síðar þegar ég var að vinna að bygg- ingu Hellisheiðarvirkjunar, rann upp fyrir mér hver staða þín var innan rafmagnsbransans á land- inu. Þú gast í alvörunni allt sem þú talaðir um og gott betur en það – einn af yfirmönnum svæð- isins sagði að Kjartan kann betur að byggja virkjun en að klæða sig á morgnana. Þú gast aldrei bara verið þátttakandi og hafðir alltaf skoðun á málefnum líðandi stundar. Ef það er eitthvað sem hægt er að segja um þig, fyrir utan fá- dæma fagmennsku, þá er það þín óbilandi hjálpsemi við alla sem þurftu á því að halda, skilyrðis- laust. Þetta breytist heldur ekki eftir að þú byrjaðir í lyfjameðferð og enginn var eins og þú að fara beint úr lyfjameðferð í vinnuna yfir daginn og svo að hjálpa börn- um vina þinna og kunningjum á kvöldin í framkvæmdavinnu. Þú varst ekki bara kraftmikill, framkvæmdaglaður og atorku- samur einstaklingur, þú varst líka frábær pabbi og afi. Börnin mín eiga aldrei eftir að gleyma afa sínum sem sagði þeim sögur á lifandi hátt og lék tröllin eða draugana í sögunum. Þau tala oft um þegar þau fóru með þér út í bílskúr til að smíða eða búa til kerti. Þú kenndir þeim að það er hægt að búa til allt og núna erum við að smíða fuglahús saman og tala um góða tíma með þér. Þegar þú greindist var aldrei í stöðunni að gefast upp. Þú tókst niðurstöðunni eins og hverju öðru verkefni og byrjaðir að lesa þér til um öll lyf sem þú fékkst, virkni þeirra og verkun. Þú settir þig líka inn í allar mælingar og rannsóknir, hvaða þýðingu þær höfðu, hver væru næstu skref. Þetta lýsir þér svo vel, sjálf- menntaðasti og upplýstasti sjúk- lingurinn sem tók virkan þátt í sinni meðferð og gafst aldrei upp. Elsku pabbi, þú kenndir mér svo margt í gegnum lífið og varst mér og fjölskyldu minni svo góður. Ég á eftir að sakna þín það sem eftir er og ég mun halda minningu þinni á lofti. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi... (Úr Hávamálum) Brynjar. Í fyrstu tvö skiptin sem ég hitti Kjartan, þá hjálpaði hann mér að losa bílinn minn úr snjóskafli fyr- ir utan Lágabergið. Hann sagði ekkert við mig en spurði Brynjar hvort þessi stelpa kynni ekki að keyra. Ég komst fljótt að því að Kjartan talaði hátt, mikið og maður gat aldrei vitað á hvaða tungumáli símtölin hans, hinu- megin við herbergisvegg Brynj- ars, færu fram. Áttaði mig fljótt á því að Kjart- an er sennilega vanafastasti mað- ur sem ég hef kynnst. Mjólkin skal vera blá og þegar boðið var upp á lambalæri, þá áttu að vera fimm hlutir á borðinu. The jóla- súpa var gerð úr ákveðnum súpu- teningum sem síðan var hætt að framleiða. Hann gerði sér lítið fyrir og hringdi út um allt land og keypti landslagerinn, jólasúpunni var bjargað. Það eru fáir ef nokkur sem vita jafn mikið um rafmagn og hann og enn færri sem sjá fegurð í rafmagnslínum, en það gerði Kjartan. Hjálpsamur með ein- dæmum, hjálpaði okkur mikið með íbúðina okkar, jafnvel þó hann væri í lyfjameðferð. Hann var alltaf til í að hjálpa og þurfti ekki að þekkja fólk til þess að vilja hjálpa því. Sannur íþróttaálfur. Stofnaði Klakamótið með Lúlla, yfir vöggu Brynjars, þegar þeir voru „að passa“. Fótboltamótið er enn árlegur viðburður í Danmörku. Handboltinn spilaði stórt hlut- verk og í gegnum hann ferðaðist hann um allan heim. Hann setti sitt mark á heimsóknirnar. Í Íran fékk hann lögreglufylgd út í flug- vél, því hann gaf konum leyfi til að sitja inni í salnum á dómara- námskeiði. Já, honum fannst þetta fáránlegt, að sjálfsögðu mættu konur vera með! Þarna fékk tengdó minn mörg rokkstig hjá mér. Hann gat ekki horft á handboltaleik í sjónvarpinu án þess að dæma hann og þannig „dæmdi“ hann seinasta leikinn sinn, kvöldið áður en hann kvaddi. Mun sakna spjallstunda við stofuborðið, heyra rafmagnssög- ur, handboltasögur og sögur frá Birkimelnum. Krakkarnir fengu líka að heyra margar sögur og þá oft með dimmri röddu. Ég er ótrúlega þakklát fyrir ferðina okkar til Spánar í sumar og hringferðina seinasta sumar. Í þeirri ferð naut sögumaðurinn sín og ég mun seint gleyma svipn- um á honum á Mývatni þegar hann áttaði sig á því að það var búið að loka bensínstöð sem við ætluðum að stoppa á, maður breytir jú engu og hvað þá að færa til bensínstöðvar! Kjartan þekkir sitt fólk og var duglegur að stoppa til þess að ég gæti farið út úr bílnum til þess að taka myndir, þó það lengdi ferðina okkar. Kjartan fékk gula spjaldið. Karlinn lét ekki lyfjameðferðir á sig fá, fór í gegnum 58 lyfjameð- ferðir og ætlaði sér að vinna. Þeg- ar hann var kominn með lyfja- brunn gerði hann sér lítið fyrir og skellti sér í handstöðu á strönd- inni, þegar sonardæturnar voru að efast um að afi gæti staðið á höndum. Þrír molar sakna afa mikið, að bardúsa í skúrnum með afa var uppáhalds. Takk fyrir allt, elsku tengdó, þú varst einstakur og þú munt alltaf vera í hjörtum okkar. Eftir augnablik verður hér hljótt. Eftir augnablik er þessu lokið. Sástu það sem þú vildir? Heyrðir þú lífsins lag? Bráðum, bráðum erum við farin. Við sjáumst kannski aftur. (Kim Larsen) Þín tengdadóttir, Fríða. Mér þykir svo sárt að kveðja þig, elsku Kjartan. Ég hef þekkt þig alla mína ævi og hellast yfir mann óteljandi minningar. Þér fannst nú ekki leiðinlegt að segja sögurnar af því þegar ég var þriggja ára og yngri og ég fór alltaf að grenja þegar ég sá þig. Skelfingu lostin yfir hávaxna manninum með stóru svörtu augnabrýrnar. Enda gerðirðu í því að tala með djúpri röddu og hnykla brýrnar. En þarna var á ferð mesta ljúfmenni, góður maður, hjálpsamur sem gerði svo sannarlega allt fyrir alla. Þvílíkur kraftur í þér alltaf, tilbúinn í öll verkefni og alltaf að bardúsa eitt- hvað. Þú varst alltaf með plön og hlutina á hreinu. Ég hafði ótrú- lega gaman af því að margar setningar tengdar plönum end- uðu oft á „gerum þetta svona og ekkert kjaftæði“ og höndin með til áherslu. Þú ferðaðist mikið, út um allan heim tengt starfi þínu sem eftir- litsdómari. Þegar ég var yngri þá var oft sem þú komst til baka með fullt af límmiðum, nælum, merkt- um silkiborðum og fleira dóti og þú gafst mér. Mér fannst það æð- islegt. Ég hélt mikið upp á þetta safn og á það enn í dag. Önnur minning sem kemur upp í hugann er þegar við fjöl- skyldan vorum fyrir nokkrum ár- um í fríi á Spáni. Þú hefur alltaf verið ákveðinn maður með ákveðnar skoðanir og í þetta sinn var það ákveðin tegund af olíu sem þurfti að finna. Ég var skráð sem eini ökumaður bílaleigubíls- ins í þetta sinn og Örvar kom með og hófst þá mikill leiðangur hjá okkur þremur. Við keyrðum út um allt stórsvæði Torrevieja og úthverfi, fram og til baka, við fór- um í allar verslanir sem við sáum, stórar sem smáar, örkuðum inn í þær, skönnuðum allar hillur og niðurstaðan „neibb, ekki til hér, næsta búð“. Svona gekk þetta verkefni hjá okkur í nokkra daga. Við vorum öll farin í hláturskast að lokum því þetta var orðið svo grillað en þökk sé þér þá þekki ég þetta stórsvæði mjög vel þrátt fyrir að þessi olía fyndist aldrei. Við vorum að spjalla saman nýlega og rifjuðum upp margar góðar minningar. Meðal annars þessa sögu með olíuna og líka köngulóarsöguna. Fyrir tveimur árum, þegar Örvar átti afmæli, buðuð þið Marta mér að koma til ykkar í kvöldmat. Við sátum þarna fimm saman og vorum að borða dýrindis máltíð. Þá tekur þú upp lítið kusk af borðinu og kastar í mig og segir: „Hrund, passaðu þig á kóngulónni.“ Mér brá svo og tók eitt risa öskur. Svipurinn á þér og öllum við borðið var ómetanlegur, dauða- þögn í svona fimm sekúndur og svo sprungum við öll úr hlátri. Þú varst sko stríðnispúki með mikinn húmor. Ég sé fyrir mér svipinn sem þú settir svo oft upp sem endaði yfirleitt á setning- unni: „Hrund, þú veist ég er bara að stríða þér,“ og svo hlóstu. Þið Marta frænka hafið alltaf komið fram við mig eins og ykkar eigin dóttur, ávallt velkomin á ykkar heimili og börn ykkar eins og systkini mín. Það er ómetan- leg sú ást og væntumþykja sem þið bæði hafið sýnt mér og syni mínum. Hvíldu í friði, elsku Kjartan, ég mun aldrei gleyma þér! Þín Hrund. Elsku afi, Við söknum þín rosa mikið. Takk fyrir að vera afinn okkar. Takk fyrir að gera allt og smíða og geta galdrað. Takk fyrir að vita svo mikið um heiminn og geta bent okkur á það hvert við eigum að fara. Við eigum eftir að sakna þess hvað þú ert fyndinn og góður í að segja sögur. Þó þú sért ekki hérna hjá okkur og við getum ekki séð þig þá ertu enn í hjörtunum okkar og við vitum að þú passar upp á okkur. Við pössum vel upp á allar minningarnar um þig. Það er ekki hægt að fara í brúnkukeppni við afa Kjartan, hann vinnur allt- af. Afi kenndi okkur að gefast ekki upp, þó það líti svart út þá á maður ekki að gefast upp. Afi var ekki hræddur við neitt og skaut upp stórum flugeldum á gamlárskvöld. Afi Kjartan bjó til flottustu kertin, Coke-flösku- kertið var sérstaklega flott. Þú vissir allt um handbolta og það var gaman að sjá þig stund- um í sjónvarpinu. Við eigum eftir að sakna þess að fara með þér út í skúr að smíða og búa til kerti. Afi var besti snúðaveljarinn og kom alltaf heim með snúð í há- deginu og það var alltaf hægt að fá einn í viðbót þó að mamma væri búin að segja nei. Það var svo gaman að heim- sækja þig í vinnuna og fá að ljós- rita hendurnar. Maður vissi hvað afi vildi, bláa mjólk og ekki gula og afi átti sitt fasta sæti við matarborðið. Afi átti ótrúlega mörg „værk- tøj“ (verkfæri) og bjó til flottasta sverð í heimi, það er ótrúlega gott og ég elska það. Það var gaman að spila bingó við afa, hann laumaðist til þess að vinna, allt í einu sagði hann bingó. Það var gaman að ferðast saman, hvort sem það var í Dan- mörku, á Spáni eða að keyra hringinn um Ísland. Við elskum þig rosa mikið og eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Risastór knús til þín, Viktoría Arna, Þórey Emilíana og Arnór Mikkel. Kjartan svili minn er farinn úr þessari jarðvist. Krabbakvikind- ið lagði hann fyrir rest. Hann háði hetjulega baráttu til hinstu stundar og eins og sæmir góðum herforingja kortlagði hann and- stæðinginn með línuritum, sókn- aráætlunum og tangarsóknum. Uppgjöf var ekki í boði og lækn- um sínum hældi hann fyrir að tala mannamál. Þeir sem þekktu til Kjartans undruðust úthald hans og ótrú- legt atgervi. Á árum áður lenti hann í ýmsum svaðilförum sem gengið hefðu margar frá meðal- manninum, en Kjartan hristi allt af sér og reis upp aftur. Á yngri árum var hann m.a. línumaður hjá Rarik þar sem hann lenti í mjög alvarlegu slysi uppi í staur. Sjálfur nefndi ég það stundum í hálfkæringi við hann að láta gera á sér erfðafræðilega athugun til að reyna að kortleggja af hvaða tröllum hann væri kominn. Kynni okkar spanna bráðum hálfa öld. Á svo langri leið fer ekki hjá því að margs sé að minn- ast. Minningar af gleði og sorg, jólaferðum og sumarleyfisferð- um, samtölum um óréttlæti, skynsemi og heimsku. En manneskjunnar Kjartans minnist ég helst fyrir að vera góður drengur, fyrir óendanlega hjálpsemi og ósérhlífni fyrir fjöl- skyldu og vini, hispursleysi í að tjá skoðanir sínar á mannamáli og óþolinmæði fyrir aum- ingjaskap og bulli að hans mati. Þeir sem nær honum stóðu vissu líka af viðkvæmu hjarta, ást á dýrum og umhyggju fyrir þeim sem minna mega sín, en oftar en ekki var viðkvæmnin falin á bak við hryssingslegt fas. Hefði Kjartan verið uppi á landnámsöld hefði hann örugg- lega verið sagður hafa stokkið hæð sína í öllum herklæðum, kneyfað mungát eins og enginn væri morgundagurinn, jafnvel vegið mann og annan, eins og þá var siður. Í nútímanum leiddu líkamlegt og andlegt atgervi til þess að Kjartan stundaði ýmsar íþróttagreinar í æsku með góðum árangri en valdist síðar til ábyrgðarstarfa á alþjóðavett- vangi, mest í samtökum hand- bolta og handboltadómara. Aðrir eru betur að sér um þann þátt Kjartans í íslenskri handbolta- sögu og munu örugglega gera því skil. Fyrir störf sín á þessum vettvangi var Kjartan sæmdur æðstu viðurkenningum í þakk- lætisskyni. Kjartan K. Steinbach

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.