Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Ég er nokkuð viss um, að á nýj- um slóðum hafi Kjartan þegar fundið ástvini sína, foreldra, tengdaforeldra og jafnvel Flóka og Fífu með dinglandi skott. Þar þarf að skipuleggja ýmsa hluti sem fáum er betur gefið að gera en Kjartani Steinbach. Ef þess er nokkur kostur mun hann líka finna leið til að gefa okkur sem eftir lifum skýrslu um stöðu eilífð- armálanna. Um leið og ég sendi mínar inni- legustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar þakka ég þér, kæri vinur, samfylgdina og kveð með sorg í hjarta. Ólafur Örn Ingólfsson. Kjartan Steinbach var ein- stakur maður. Hann var afburða- maður, eldklár og skarpgreindur. Snöggur til að leysa mál, finna lausnir, rökstuddar með reglum og þekkingu. Gott að hlíta hans ráðum. Hann var einfaldlega á undan að hugsa. Í vinnu vann hann oft á hraða ljóssins. Fjar- vera vegna áhugamáls hans hand- bolta tók mikinn tíma en hann var fljótur að vinna upp og skila verkum. Við vorum unglingar þegar við kynntumst og til varð vinátta sem aldrei brast. Síðar vantaði hann makker í dómgæsluna og dreif mig með sér. Með flautuna stóð- um við marga vaktina með vini okkar Óla Steingríms. Kjartan vissi fjölda leikja sem við dæmd- um enda þótt við Óli tryðum ekki tölunni. Í mörg ár sátum við sam- an í nefndum og stjórnum HSÍ og það var aldrei hangs þegar Kjart- an var á fundum. Á erlendum vettvangi var hann afburðamaður í tungumálum og algjörlega ófeiminn að taka þátt í umræðum. Kjartan varð fljótt einn af mátt- arstólpum í dómaramálum EHF og IHF. Allt baktjaldamakk fór illa í hann. Hann talaði gegn öllu slíku og hlaut ekki lof fyrir hjá æðstu mönnum handboltans, sem gerðu margt til að losa sig við þessa sterku rödd sannleikans. Lengi barðist hann en var að lok- um svikinn af valdaklíkunni sem stakk hann ómaklega í bakið. En hugsjón Kjartans slokknaði ekki. Kjartan þekkti líka sína veik- leika sem hann vildi þó lítt ræða. Menn notuðu þennan veikleika gegn honum og þar köstuðu ýms- ir þessara háu erlendu herra- manna steinum úr glerhúsi. Kjartan gaf íþróttinni mikinn tíma og borgaði oft með sér í bar- áttunni. Ekkert af þessu hefði nokkru sinni getað gengið upp nema af því Marta eiginkona hans þekkti þessa ástríðu hans og vissi að hún yrði aldrei slökkt. Karó, Brynjar og Örvar þurftu oft að bíða þegar handboltinn var ann- ars vegar. HSÍ, handboltinn á Íslandi og á alþjóðavettvangi á Kjartani margt að þakka. Á stórum al- þjóðamótum var oftar en ekki treyst á lausnir og úrræði Kjart- ans þegar eitthvað fór úrskeiðis. Hann var oftar en ekki maðurinn sem vann vinnuna en aðrir tóku við þakklætinu. Það var ekki til í Kjartani að biðja um lof eða þakk- ir. Við sem þekktum hann vel vissum að hann var mannlegur og brosið sem kom á andlit hans þeg- ar honum var sýndur sómi sagði meira en mörg orð. Kjartan barðist hetjulega við illvígan sjúkdóm. Vissi hvert stefndi og gat talað um líf og dauða. Mætti í vinnu, bölvaði á dönsku og gaf fyrirskipanir. Við áttum langt samtal áður en hann lést. Við vissum báðir að við yrð- um líklega hvor í sínu landinu þegar að þessu kæmi og okkar maður sagði: „for helv.“. Svo kom hann með hugmyndir að lausnum sem við vissum báðir að ekki voru í boði. Hann sagðist ekki óttast að kveðja en þætti það skítt. Nú væri hann farinn að trúa á fleira en reikniformúlur og handbolta- reglur. Brosti og sagði: þú hefur haft meiri áhrif á mig en þig grun- ar. Þá hlýtt faðmlag, okkar síð- asta vinakveðja. Kæra Marta, Karó, Brynjar, Örvar, Fríða og afabörnin, Guð blessi ykkur öll. Munum að hann lifir. Pálmi Matthíasson. Fallinn er í valinn bekkjar- félagi okkar og vinur, Kjartan Steinbach, eftir harða baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Það var ein- staklega gefandi að vera í návist Kjartans. Hann var skemmtilega uppátækjasamur, húmoristi góð- ur og hafði lifandi frásagnar- máta. Hann var sá sem mætti alltaf, stundum heill, oft með brotinn fót eða lemstraður, en alltaf brosandi. Kjartan hafði þann eiginleika að hrífa aðra með sér. Kjartan sagði gaman- og hrakfallasögur af sjálfum sér, en ekki öðrum. Hann sýndi áhuga og áræði í hverju því sem hann fékkst við í leik og starfi og aldrei var glettnin langt undan. Það orð fór af Kjartani í vinnu að hann væri mjög samviskusam- ur í öllum sínum störfum og gott að vinna fyrir hann og einnig að gott væri að fá hann til samstarfs á hans sérhæfða verksviði. Hann stofnaði Verkfræðistofuna Afl og orku ásamt Pétri Karli Sigur- björnssyni og stjórnaði öllu er varðaði hönnun, uppbyggingu og rekstur háspennuvirkja. Kjartan var talinn með allra færustu mönnum í sínu fagi varðandi þekkingu á orkukerfum landsins og lausnum þar að lútandi. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur bekkjarfélaga Kjart- ans að eiga minningu um þær gleðistundir sem við áttum með honum austur á fjörðum nú á haustdögum. Kjartan var sami glaðværi einlægi drengurinn með broshýra yfirbragðið. Skynsemin og fyndnin leyndu sér ekki í þeim fyrirlestri sem hann hélt fyrir okkur leikmennina um virkjanir þar eystra. Þar duldi hann erfið veikindi með þeim mannkostum sem alla tíð einkenndu hann. Þar mættu til leiks kjarkur, dreng- skapur, æðruleysi og gamansemi. Aðdáunarvert var hversu vel hann bar sig í veikindum sínum, aldrei kvartað heldur seiglast áfram á lífsgöngunni. Kjartan var fyrst og síðast skynsamur og raunsær og á þriggja manna tali í þessari ferð orðaði hann það þannig, að það væri sér „engin skemmtun að fást við krabba- meinið“. Þannig var léttleikinn aldrei langt undan alvöru lífsins. Við bekkjarfélagarnir varð- veitum bekkjarkladda 6.T og höf- um merkt reglulega í hann, þegar við höfum hist. Nú hefur verið merkt fjarvera úr þessu jarðlífi í kladda 6.T hjá þessum kæra bekkjarfélaga okkar. Við færum Mörtu, eiginkonu Kjartans, og fjölskyldu hans allri okkar inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. 6.T (1970) í Menntaskól- anum í Reykjavík, Þórður Magnússon. Kæri vinur og félagi til mjög margra ára. Nú þegar þú ert allur eftir hetjulega og miskunnarlausa baráttu við illvígan sjúkdóm hvarflar hugurinn til baka um fjölmörg atriði, enda af mörgu að taka. Þegar við kynntumst í fyrsta skipti var það á æfingu hjá Knattspyrnufélaginu Þrótti á Melavellinum. Ég var að vísu ein- um tveimur árum eldri en þú en hæð þín og göfuglyndi vó það upp. Þegar við hugðumst hefja framhaldsnám í Danmörku lágu leiðir okkar af hreinni tilviljun saman á ný og við það tókst órjúf- anleg vinátta okkar á milli og fjöl- skyldna sem varir enn þótt þú sért nú frá okkur horfinn langt um aldur fram. Það er mikil sjón- arsviptir að þér, kæri félagi, og verður þín lengi minnst á ýmsan og afar jákvæðan hátt. Kjartan var mikill vinur vina sinna og einstakur drengur. Hann var að vísu nokkuð harður í horn að taka og gustaði oft af honum en hann var ávallt sann- gjarn og hjálplegur og skildi aldrei í illu við nokkurn mann þótt tekist væri á um málefnin. Hann réðst aldrei á manninn þegar skipst var á skoðunum, eingöngu á málefnið. Hann var einstaklega víðsýnn og fljótur að átta sig á aðalatriðunum og lá ekkert á skoðunum sínum, enda hafði hann oftar en ekki rétt fyrir sér. Hann var hrókur alls fagn- aðar þegar fólk kom saman og fór oft mikinn. Hann naut almennt mikillar virðingar sinna sam- ferðamanna, hvort sem var við vinnu eða í leik. Í heimsókn minni til Kjartans á spítalann kvöldið áður en hann lést áttum við saman ágætis spjall þrátt fyrir að dregið hefði af honum líkamlega. Ekkert vantaði þó á rökfestuna þótt hann ætti erfitt með að tala og var hann jafn staðráðinn og rök- fastur sem fyrr. Við kvöddumst glaðir en ekki átti ég von á að fá símtalið um andlát hans strax næsta dag. Það verður erfitt að fylla þitt skarð, kæri Kjartan, enda vand- fundinn slíkur öðlingsfélagi. Við munum sakna þín verulega og vonum að tíminn lækni öll sár þótt missirinn sé stór. Lífið held- ur áfram þótt okkar njóti ekki lengur við. Kæra Marta, Karó, Brynjar og Örvar, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Lúðvík B. Ögmundsson, Guðrún Sigurðardóttir og fjölskylda. Árið 2015 var Kjartan sæmdur heiðursmerki Handknattleiks- dómarasambands Íslands, HDSÍ, á krossi. Heiðursmerkið er æðsta orða sambandsins og var veitt fyrir vel unnin störf. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Kjartani upp úr alda- mótum. Þá var ég að stíga mín fyrstu skref í dómgæslu í efstu deildum handknattleiks hér á landi og einnig á alþjóðavett- vangi. Allir sem ég þekki til báru ómælda virðingu fyrir Kjartani. Virðingin var ávallt gagnkvæm. Hans helsti kostur var hvernig hann nálgaðist aðra sem jafn- ingja og átti þar af leiðandi auð- velt með að miðla af sinni víð- tæku reynslu til okkar sem vorum að taka sín fyrstu skref. Þeir voru fáir á þessari jarð- kringlu sem höfðu jafn mikla þekkingu og hann á íþróttinni og regluverkinu í kringum hana. Kjartan gerði oft mikið grín að okkur ungu strákunum. Eitt sinn eftir að hafa dæmt leik á Selfossi þá var venju samkvæmt hringt í kærustuna og látið vita að maður væri að leggja af stað heim yfir Hellisheiðina. Kjartan átti ekki til orð yfir þessa „tilkynninga- skyldu“. Hann hafi sjálfur eitt sinn verið kominn alla leið til Danmerkur áður en hann gat lát- ið Mörtu vita að hann væri kom- inn til útlanda og yrði því ekki í mat. Kjartan var alltaf á ferð á flugi í störfum sínum í þágu handknattleikshreyfingarinnar. Í starfi sínu sem forseti al- þjóða dómara- og leikreglunefnd- ar Alþjóðahandknattleikssam- bandsins, IHF, lét Kjartan aldrei undan pólitískum þrýstingi. Með augum verkfræðingsins átti hann auðvelt með að taka ákvarðanir með hag íþróttarinnar að leiðar- ljósi. Elsku Marta, Karólína, Brynj- ar og Örvar. Ég votta ykkur inni- lega mína samúð. Minningin um góðan mann lifir. Arnar Sigurjónsson. Góður vinur til margra ára, Kjartan Steinbach, er fallinn frá aðeins 69 ára að aldri. Það voru erfið skilaboð að meðtaka að hann væri látinn og að við mynd- um ekki hittast aftur í lifanda lífi. Leiðir okkar lágu saman í fyrsta sinn er hann annaðist verkumsjón með stækkun að- veitustöðvarinnar á Rangár- völlum við Akureyri fyrir hönd Rarik en ég sá þar um eftirlit fyr- ir Landsvirkjun sem skyldi taka stöðina yfir að lokinni stækkun. Það kom strax í ljós á fyrstu klukkustund samskipta okkar hvaða mannkostum hann bjó yfir. Hann sagði skoðun sína umbúða- laust og dró sjaldnast neitt undan þegar hann lagði eitthvað til mál- anna. Þó svo að samskipti okkar hefðu byrjað með dálitlum hvelli þá kom það ekki í veg fyrir það að við vorum góðir vinir frá þessum fyrsta degi. Við áttum síðar eftir að fara oft á ári hverju um 10 ára skeið út um allt land til prófana á varnarbúnaði spennistöðva Rarik og Landsvirkjunar. Vorum við saman í slíkum ferðum að minnsta kosti einn mánuð á ári hverju og höfðum báðir mjög gaman af. Áhugi hans á íþróttum var allt- af stutt undan. Sérfræðingur var hann í málefnum handboltans og þá einkum öllu er viðkom dóm- gæslu. Valdist hann til æðstu metorða á því sviði innanlands sem utan. Við ræddum oft ein- stök dómgæsluatriði og útskýrði hann þá fyrir mér hvers vegna dómar hefðu fallið eins og þeir gerðu og alltaf með sama áhug- anum og ástríðunni. Aðeins einu sinni sá ég Kjart- an fella tár og voru það gleðitár. Við vorum við veiðar og ekkert sjónvarp á staðnum. Kjartan bjargaði því svo hann og við hin gætum horft á Ísland keppa um silfurverðlaun á Ólympíuleikun- um 2008 og er úrslitin lágu fyrir, silfurverðlaunin tryggð, þá sá maður hversu ástríða hans á handboltanum risti djúpt. „Strákar, gerið þið ykkur grein fyrir því hvað þetta er stórt,“ sagði hann að leik loknum með gleðitár á hvarmi er úrslit leiks- ins lágu fyrir. Kjartan rak Verkfræðistofuna Afl og orku með Pétri Karli Sigurbjörnssyni félaga sínum til margra ára. Á þeim vettvangi vann Kjartan að fjölmörgum verkefnum á sviði raforkukerfa. Við eftirlit og úttektir á nýbygg- ingum og breyttum mannvirkjum þótti hann öðrum fremri. Ég færi Mörtu, börnum henn- ar og öllum ættingjum innileg- ustu samúðarkveðjur. Þórður Guðmundsson. Hann kallaði mig helvítis kommúnista og ég kallaði hann helvítis kapítalista. Farsælt sam- starf okkar Kjartans varði þó í hartnær tíu ár. Ég gerði nokkrar tilraunir til að hætta hjá Afli og orku en þegar kom að mánaða- mótum hringdi Kjartan iðulega og spurði grunsamlega flókinna spurninga um launareikninga. Það endaði alltaf með því að ég mætti á svæðið og mér þótti reyndar mjög vænt um að starfs- krafta minna væri óskað þó ég væri löngu haldin á önnur mið. Við grínuðumst með að þegar ég væri orðin aðalritari Sameinuðu þjóðanna þá myndi Afl og orka borga undir mig flugfarið mán- aðarlega til að gera launaútreikn- inga. En mikið á ég Kjartani og Pétri Karli að þakka, réðu óút- skrifaðan tækniteiknara til starfa og tóku þar með áhættu. Ekki síst þegar ég fékk að taka yfir bókhaldið þar sem rafteikning- arnar voru orðnar frekar leiði- gjarnar og hugurinn kominn á önnur mið. Þegar ég hóf störf á Afli og orku fyrir rúmum tuttugu árum varð mér fljótt ljóst að þetta var ekki hefðbundinn vinnustaður. Félagslífið var með fjörlegasta móti og þetta var frekar eins og fjölskylda með öllum sínum flækjum, gleði og samvinnu. Það var sama hvað ég tók mér fyrir hendur, ágreiningur um pólitík var látinn lönd og leið þegar kom að því að styðja sitt lið. Hvort sem ég var í prófkjöri fyrir Kvennalistann sáluga eða að sökkva mér í kynjafræðirann- sóknir. Kjartan, Pétur Karl og SJÁ SÍÐU 22 Elskulegi maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, BIRGIR KRISTJÁNSSON rafvirkjameistari, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 26. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 13.30. Elísabet Gestsdóttir Harpa Birgisdóttir Magni Rúnar Magnússon Hulda Birgisdóttir Eyvindur Karlsson Helga Birgisdóttir Óskar Helgi Adamsson Rósa Birgisdóttir Sverrir Ingimundarson og barnabörn Elskulegur sonur okkar, barnabarn og bróðir, GUÐMUNDUR BÁRÐARSON, sem lést af slysförum miðvikudaginn 31. október, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að styrkja Klúbbinn Strók, reikn. 308 -13-301165, kt. 471105-0820. Sigríður Ingibjörg Jensdóttir Bárður Guðmundsson Jens Guðmundur Hjörleifsson Kristjana Hrund Bárðardóttir Jens Hjörleifur Bárðarson Helgi Bárðarson Hlynur Bárðarson og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, VALDÍS STEFÁNSDÓTTIR Stapavegi 6, Vestmannaeyjum lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja miðvikudaginn 31. október. Útförin fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum, laugardaginn 10. nóvember klukkan 14. Svavar Garðarsson Erna Fannbergsdóttir Baldvin Þór Svavarsson Harpa Sigmarsdóttir Edda Sigrún Svavarsdóttir Ragnar Þór Ragnarsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR ARASON kaupmaður, Patreksfirði Espigerði 4, Rvk lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn 1.nóvember. Útför verður auglýst síðar. Sjöfn Ásgeirsdóttir Fjóla Ingólfsdóttir Björn Garðarsson Arnar Már Ingólfsson Rannveig S Þorvarðard Eygló Ingólfsdóttir Kristín E Ingólfsdóttir Guðlaugur V Þórarinsson Okkar elskaði BRYNJAR BERG GUÐMUNDSSON lést þann 29. október. Útför hans fer fram í Hallgrímskirkju, fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja sýna litlu börnunum hans og unnustu stuðning, er bent á styrktarreikning 0326-26-003131, kt. 021283-3399 Kristín Sif Björgvinsdóttir Heiðar Berg Brynjarsson Sara Björg Brynjarsdóttir Anna Einarsdóttir Gísli Gíslason Íris Guðmundsdóttir Soffía Guðmundsdóttir Pétur Þór Guðjónsson Guðmundur V. Guðsteinsson Svava B. Svavarsdóttir Sunna Líf Stefánsdóttir Jón Hall Ómarsson Brynja Gestsdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.