Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 ✝ RagnhildurHafliðadóttir fæddist á Garð- stöðum við Ísa- fjarðardjúp 19. júlí 1937. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 27. októ- ber 2018. Hún var dóttir Hafliða Ólafssonar, f. 1900, d. 1968, og Líneikar Árnadóttur, f. 1902, d. 1980. Systkini hennar eru Lára, f. 1930, Halldór, f. 1933, d. 2009, Guðríður f. 1934, d. 1956, Erla, f. 1940, d. 2015, og Ása, f. 1941, d. 1998. Ragnhildur giftist árið 1959 Erlingi N. Guðmundssyni, f. 1932, d. 2014. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Ragnhildur Beat- rice, f. 1958, gift Sigurjóni Hannessyni, f. 1955. Börn henn- ar af fyrra hjónabandi eru: a) Gunnlaugur Már Sigurðsson, f. 1978, kvæntur Sigríði Höllu Steinsdóttur, f. 1980. Börn þeirra eru Jökull Logi, f. 2005, Freyja Ísold, f. 2008 og Katla Katrín, f. 2015. b) Sandra Rún Sigurðardóttir, f. 1981. Sam- býlismaður hennar er Hannes Hall, f. 1977. Barn hennar úr unnusti hennar er Lasse Holm Jensen, f. 1990. Börn þeirra eru Isak Milo Holm, f. 2014, og Eva Bjørk Holm, f. 2017. c) Kristján Leó Davíðsson, f. 1999. 5) Guð- mundur, f. 1968. Barn hans úr fyrra sambandi er Kolbeinn Sturla, f. 1996. Ragnhildur ólst upp í Ögri við Ísafjarðardjúp. Hún lauk gagn- fræðaprófi og gekk í Hús- mæðraskólann á Varmalandi. Hún gerðist húsfreyja á Hörðu- bóli í Dalasýslu 1959 og flutti síðar á Hornafjörð og giftist Sigurgeiri Helgasyni, sem lést árið 2006. Árið 2007 flutti hún í Hamraborg í Kópavogi en dvaldi síðar á Hrafnistu í Hafnarfirði og í Sunnuhlíð ásamt sambýlismanni sínum, Ingibirni Hallbertssyni, sem lést í apríl síðastliðnum. Ragnhildur var félagslynd og tók virkan þátt í félagsmálum, gegndi m.a. formennsku í kvenfélaginu Fjól- unni í Miðdölum og Sambandi breiðfirskra kvenna, og átti einnig þátt í að endurvekja Jörfagleði í Dölum 1977. Hún tók mikinn þátt í starfi kirkj- unnar, var í sóknarnefnd Snóks- dalskirkju í Dalabyggð og vann ötult starf við endurbyggingu kirkjunnar 1975-1978. Ragn- hildur hafði unun af garðyrkju og ræktaði bæði skraut- og mat- jurtir af natni. Útför Ragnhildar er gerð frá Kópavogskirkju í dag, 5. nóvem- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. fyrra sambandi er Sunna Alba Cost- anzo, f. 2011, og barn þeirra Hann- esar er Kristján Ax- el Hall, f. 2018. 2) Kristrún Erna, f. 1960, gift Baldri Kjartanssyni, f. 1958. Börn þeirra eru: a) Kjartan, f. 1982. b) Erling Orri, f. 1984. c) Ás- laug, f. 1985. Börn hennar eru: Ingólfur Myrkvi Torfason, f. 2004, Rakel Emma Róberts- dóttir, f. 2006, og Erna Kristín Róbertsdóttir, f. 2008. d) Hafliði Baldursson, f. 1991. 3) Guðríður, f. 1961. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru: a) Ingiberg Þór Þorsteinsson, f. 1985, sambýlis- kona hans er Elena Rebekka Götting, f. 1984. b) Helgi Steinar Þorsteinsson, f. 1987, kvæntur Hilde Björk Didriksen Smith, f. 1994. Börn þeirra eru Margrét Lovísa, f. 2015 og Hanna Guð- rún, f. 2017. c) Ragnhildur Lind Þorsteinsdóttir, f. 1995. 4) Lín- eik Dóra Erlingsdóttir, f. 1967. Börn hennar af fyrra hjóna- bandi eru: a) Sighvatur Sveinn Davíðsson, f. 1990. b) Hildur Karen Davíðsdóttir, f. 1991, Það hefur legið fyrir síðustu mánuði að lífsgöngu mömmu færi brátt að ljúka en þó er það skrýt- in tilfinning að sitja hér og minn- ast hennar. En mamma er komin á góðan stað og vel tekið á móti henni af foreldrum hennar, systkinum og Inga sem var mömmu svo kær. Æskuheimilið Ögur var mömmu afar kært og flest sumur fór hún með okkur þangað til að dvelja hjá ömmu og afa. Ýmislegt fannst okkur skrýtið í Ögri, lík- lega helst að ekki var salerni í þessu stóra húsi heldur var kam- ar úti á túni og á nóttunni var settur „pottur“, eins og amma kallaði koppinn, undir hvert rúm. Eftirminnilegt var að fá að fara með Fagranesinu út á Ísafjörð sem í barnsminningunni jafnaðist á við stórborgina New York. Þegar horft er yfir líf mömmu koma upp margar góðar minn- ingar. Í apríl 1958 flutti mamma á Hörðuból til pabba, Auðar fóstur- systur hans, afa Guðmundar og ömmu Beatrice með Rabbý ný- fædda. Amma Beatrice veiktist ári síðar og kom aðeins á Hörðu- ból til sumardvalar eftir það. Þá var Auður aðeins tíu ára og má segja að mamma hafi gengið Auði í móðurstað og tenging þeirra hefur alla tíð verið sterk og góð. Börnunum fjölgaði og tíu árum seinna vorum við systkinin orðin fimm. Á sumrin var gestkvæmt, Líneik amma, systkini mömmu úr Ögri, ekki síst Lára og Erla dvöldu hjá okkur í sveitinni part úr flestum sumrum þegar við vorum börn, og mörg sumur voru frændsystkini í sveitadvöl. Frændfólk og vinir komu við og oft þurftum við að sofa úti í tjaldi því rúmin okkar voru lánuð gestum. Mamma var ákveðin kona, dugnaðarforkur og vinnusöm. Hún vann sem ráðskona í slát- urhúsinu í Búðardal á haustin og kom þá aðeins heim á sunnudög- um. Mamma deildi verkefnum á okkur systkinin þegar hún var við vinnu og sá til þess að okkur félli ekki verk úr hendi og alltaf voru næg verkefni við heimilis- störf og í búskap. Síðar vann mamma við verslunarstörf í kaupfélagi Hvammsfjarðar. Það gefur augaleið að ung vorum við systkinin látin axla ábyrgð. Það var mömmu mikilvægt að vera fín um hárið og við dæturnar vor- um varla nema tíu ára byrjaðar að setja rúllur í hárið á mömmu. Mamma með rúllur í hárinu með slæðu yfir, stússandi í eldhúsinu, útvarpið í gangi og stundum söng hún með er sterk minning frá Hörðubóli. Leiðir mömmu og pabba skildu og hún flutti til Horna- fjarðar og giftist Sigurgeiri Helgasyni. Þau voru mjög sam- hent um að skapa fallegt heimili. Á Hornafirði blómstraði mamma í sínum áhugamálum garðyrkju og handavinnu. Mamma og Geiri gerðu garðinn sinn mjög fallegan og ræktuðu fjölbreyttar matjurt- ir, blóm og runna. Þau áttu mörg góð ár saman þar til Geiri lést ár- ið 2006. Ári síðar flutti mamma suður og keypti íbúð í Hamra- borginni, þar bjó hún í 7 ár. Inga- birni kynntist mamma tveimur árum eftir að hún flutti suður og þar með sannaði hún að maður getur orðið ástfanginn á hvaða aldri sem er. Hjá mömmu gátu barnabörnin alltaf fundið skjól og hlýju og alla afmælisdaga mundi hún, þótt barnabörnunum og barnabörnunum fjölgaði sífellt. Við minnumst mömmu með hlýju og þakkæti. Hennar verður sárt saknað. Ragnhildur, Kristrún, Guðríður, Líneik og Guðmundur. Ég kynntist Ragnhildi þegar ég byrjaði að vinna á leikskólan- um Lönguhólum á Höfn haustið 1992 og náðum við strax vel sam- an. Ragnhildur var góður og sam- viskusamur starfsmaður. Þarna vann góður og skemmtilegur hópur og vorum við duglegar að hittast utan vinnutíma, t.d. voru árshátíðirnar alltaf frábærar með skemmtiatriðum sem við sömd- um sjálfar, bæði leikin og sungin. Ragnhildur var létt og skemmti- leg og mjög bókhneigð. Ragnhildur hafði mörg áhuga- mál. Garðrækt var henni hugleik- in, hún ræktaði alls konar græn- meti í garðinum hjá sér. Hún var félagslynd, hafði verið í kven- félagi í Dölunum. Hún kom til liðs við okkur í Lionsklúbbnum Kol- grímu á Höfn og gegndi þar ýmsum störfum, m.a. var hún gjaldkeri klúbbsins þegar ég var formaður og gerði hún það með sóma. Ragnhildur og Sigurgeir fóru mörg haust austur á land að tína ber, þegar heim var komið var hafist handa við að sulta og búa til saft. Fórum við Eydís Ben. og Ragga stundum til þeirra í saft- sopa. Þau gerðu það að mikilli snilld. Stuttu eftir að Sigurgeir féll frá flutti Ragnhildur í Hamra- borg í Kópavogi, þar tók hún virkan þátt í félagsstarfi aldr- aðra. Í Kópavogi kynntist hún Inga, þau urðu góðir vinir og fóru að búa saman. Það var ánægjulegt að heimsækja þau og sjá hvað þau voru ánægð með hvort ann- að. Ég heimsótti þau í Sunnuhlíð, þá var heilsu þeirra farið að hraka. Ingi lést sl. vor. Ragn- hildur átti við vanheilsu að stríða síðustu ár og tók því með æðru- leysi. Ég votta öllum aðstandend- um Ragnhildar samúð mína. Blessuð sé minning Ragn- hildar Hafliðadóttur. Ólafía Hansdóttir. Ragnhildur Hafliðadóttir ✝ Örn Arasonfæddist í Höfn á Svalbarðsströnd 16. mars 1955. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 25. október 2018. For- eldrar hans voru Svanhildur Frið- riksdóttir, f. 11. janúar 1933, og Ari Jónsson, f. 12. júní 1926, d. 19. janúar 2007, bændur í Sólbergi á Svalbarðs- strönd. Systkini Arnar eru: Rúnar, f. 1952, kona hans er Inga Jó- júní 2005, bændur á Uppsölum í Eyjafjarðarsveit. Börn Arnar og Ásdísar eru: a) Freyr Ragnarsson, f. 11. nóvember 1971, kona hans er Katja Laun, f. 9. nóvember 1978. Börn þeirra eru: Marvin Páll, f. 10. ágúst 2006, Emma Marie, f. 9. júní 2014, og Jó- hanna Ásdís, f. 7. október 2015. b) Svanhildur Arnardóttir, f. 9. febrúar 1976. Börn hennar eru: Haukur Örn Halldórsson, f. 7. maí 1997, og Eva Dís Svanhild- ardóttir, f. 5. janúar 1999. Aðalstarf Arnar var sjó- mennska fram til ársins 1979 er hann varð fyrir alvarlegu slysi og var öryrki upp frá því. Útför Arnar fer fram frá Glerárkirkju í dag, 5. nóvem- ber 2018, klukkan 10.30. hannsdóttir, Úlfar, f. 1956, kona hans er Larisa Seleznj- ova, og Edda Guð- björg, f. 1965, mað- ur hennar er Halldór Arin- bjarnarson. Örn kvæntist 25. ágúst 1979 eftir- lifandi konu sinni, Ásdísi Jóhanns- dóttur, f. 15. maí 1953, foreldrar hennar voru þau Hulda Herborg Marvins- dóttir, f. 16. janúar 1931, d. 7. mars 1995, og Jóhann Páll Ing- ólfsson, f. 16 ágúst 1931, d. 17. Hann Örn bróðir minn er dá- inn og ég er viss um að Svana dóttir hans hafði rétt fyrir sér morguninn sem hann kvaddi og hún sagði: „Nú er pabbi örugg- lega á handahlaupum í himna- ríki“. Eitt af því góða sem lífið hef- ur gefið mér eru þrír eldri bræð- ur sem hafa alltaf verið til staðar fyrir mig. Þegar ég var lítil kall- aði ég þá Mimma, Pamma og Lemma. Örn var Pammi, hann var tíu árum eldri en ég, stóri bróðir sem var alltaf til í leiki og skildi manna best að stundum er óþarfi að fullorðna fólkið viti hvað krakkar aðhafast. Seinna fékk hann yndislega konu, þau gáfu mér litla frænku og með í kaupunum fylgdi bróðir hennar, pjakkur í alveg réttri stærð til að stússast með. Nú til dags þætti sennilega vel í lagt að rúmlega tvítugur maður væri kominn með fjölskyldu en Örn axlaði glaður þá ábyrgð og stundaði sjómennsku af kappi til að sjá fyrir sér og sínum. Þegar Örn var aðeins 24 ára dundi ógæfan yfir litlu fjölskyld- una. Örn og Dísa hans lentu í al- varlegu bílslysi og lágu næstu vikur og mánuði stórslösuð á sjúkrahúsi í Reykjavík, á meðan ömmur og afar gerðu sitt besta til að veita börnunum þá ástúð sem þau þurftu á að halda. Það var kraftaverk að Örn lifði af, kraftaverk manns sem var ungur og hraustur og heil- brigðisstarfsfólks sem lagði ómælda umhyggju í að bjarga honum. En kraftaverk mann- anna eiga sín takmörk og þegar upp var staðið var ljóst að líkam- inn yrði aldrei samur og heilinn var ekki lengur það skarpa stjórntæki sem áður var. Sálin er á vegum æðri máttar en mannanna og fallega sálin hans bróður míns fór alveg ósködduð í gegnum þetta allt. Hann átti alla tíð óendanlega hlýju sem hann útdeildi án nokk- urra skilyrða og það fór ekki framhjá neinum hvað hann elsk- aði konuna sína, börnin þeirra og fjölskylduna. Sjálf var ég ekki nógu sterk til að umgangast Örn eins mikið eftir slysið og ég hefði óskað. Sársaukinn var of mikill, sama hversu mörg ár liðu. Sem betur fer eru aðrir sterkari en ég og Örn hafði alltaf hóp af dásam- legu fólki í kringum sig, með Dísu mágkonu mína í fylking- arbrjósti. Mig brestur ekki oft orð en ekkert getur lýst því hvað hún Dísa er heilsteypt og inni- lega góð manneskja. Það hefur líka reynt mikið á mömmu okkar á þessum 39 ár- um og nú þarf hún, á gamals aldri, að horfa á eftir drengnum sínum í gröfina. Elsku Pammi minn, ein af bestu æskuminningunum mínum er að fljúga með þér. Það var gert þannig að þú hélst í höndina á mér og við hlupum eitthvað út í buskann en þú varst svo stór- stígur og öflugur að fljótlega hættu stuttu fæturnir mínir að koma mikið við jörðina og þegar ég horfði upp til þín sá ég bara himininn og skellihlæjandi fésið á þér. Og svo flugum við … Ég fékk að halda í höndina á þér stuttu áður en þú flaugst til himnaríkis, það var mér óendan- lega mikils virði. Ég fæ líka að halda undir kistuna þína þegar þú verður kvaddur hinstu kveðju og það verður síðasta handtakið okkar. Elsku Dísa mín, Svana og Freysi, ég votta ykkur og öllu fólkinu ykkar innilega samúð og sendi ykkur hjartans þakkir fyr- ir allt gott í gegnum árin. Edda. Nú er hann elsku mágur minn allur. Kominn á góðan stað þar sem honum líður vel. Kynni mín af Erni eru samofin sögu Dísu systur minnar, en þar sem þetta er minningargrein um hann en ekki hana mun ég reyna að láta greinina ekki snúast um Dísu. Það verður erfitt þar sem hún hefur af mikilli elsku annast um Örn allt frá því að þau, 24 og 26 ára, lentu í hræðilegu bílslysi. Þarna tók við líf mikilla örlaga og mikilla erfiðleika. Hamarstíg- ur varð draumsýn ein hjá Erni og stofnanalífið tók við. Hinsveg- ar, þegar horft er um öxl og yfir sviðið á þessi 39 ár sem liðin eru frá slysinu og líf þeirra metið, standa þau bæði uppi með ein- kunnina 10 úr skóla lífsins. Ég kynntist Erni fyrst þegar Dísa og hann voru að draga sig saman. Áður hafði hún eignast litla guttann Frey og gekk Örn honum glaður í föðurstað. Hann var ákaflega góður við strákinn sinn og ekki minnkaði ánægjan þegar dóttirin Svanhildur fædd- ist. Örn var hláturmildur dugn- aðarforkur. Alltaf að brasa eitt- hvað, gjarnan að reyna að láta einhverja bíldrusluna hrökkva í gang, haugdrullugur upp fyrir haus. Spenntur fyrir lífinu og alltaf til í smá ævintýri. Dísa og Örn voru ástfangið par, þar sem heimurinn blasti við í allri sinni dýrð. Þau giftu sig, en hálfum mánuði síðar var nýgifta mann- inum vart hugað líf. Það var þungt högg. Örn missti eftir þennan ör- lagaríka atburð mikið af þeirri færni sem gerir lífið gott og þess virði að lifa því, en við nánari at- hugun er það ekki rétt. Hann hélt eftir gildum sem einungis mannverur með mikla reisn hafa: Góðvild, húmor og æðru- leysi. Hann gaf líka af sér. Nán- ast undantekningarlaust laumaði hann fallegum og uppörvandi orðum að fólki sem hann heilsaði upp á. Frasann sinn „þú ert gull- falleg“ notaði hann mikið á kon- ur og ekki er ósennilegt að við höfum margar gengið glaðari af hans fundi eftir slíka gullhamra. Gott dæmi um húmorinn og æðruleysið er þegar hann fyrir stuttu var á ferð á hjólastólnum sínum og varð fyrir því óhappi að rúlla niður stiga og hvolfa tækinu. Þarna lá hann bjargar- laus í einhvern tíma og mildi að ekki fór verr. Í stað þess að æsa sig og æpa lá hann rólegur og beið eftir hjálp. Þegar bjarg- vætturinn kom aðvífandi, miður sín yfir þeirri sjón sem við blasti, glotti Örn sallarólegur og veif- aði. Það var líka gaman að spila við hann, en í því var hann góð- ur. Ég svindlaði náttúrlega ef ég mögulega gat og þegar upp um mig komst höfðum við bæði gaman af. Hann elskaði líka að syngja í veislum eða afmælum og söng þá manna hæst, ævin- lega með textann á hreinu. Hressileiki, þróttur og óend- anlegur dugnaður einkenndi Örn fyrir slys, eftir slys var það æðruleysi og húmor. Hann elsku mágur minn tók örlögum sínum af mikilli reisn en Dísin hans stóð líka þétt við hlið hans. Hún var hans traustasti hlekkur og studdi hann óbogin allt fram að hans síðasta andardrætti. Þegar við Rúnar komum norður til að kveðja Örn var einstakt að sjá og upplifa hvað þær mæðgur Dísa og Svana og reyndar starfs- fólkið allt önnuðust um hann af miklum óendanlegum kærleika. Þó að lífsganga Arnar og þá um leið fjölskyldu hans hafi reynst erfið, er hún þegar upp er staðið óður til lífsins. Þau sýndu okkur hvernig hægt er að snúa á illúðlegar örlaganornir þannig að fegurðin ein sitji eftir. Blessuð sé minning Arnar. Inga. Enn er höggvið skarð í hópinn í Skógarlundi. Vinur okkar og fé- lagi Örn Arason er látinn. Við sem lengst höfum starfað í Skógarlundi áttum langa sam- leið með honum. Örn var hávaxinn og glæsi- legur maður. Sem ungur maður lenti hann í hörmulegu slysi sem dró mjög úr færni hans. En þrátt fyrir erfitt lífshlaup var hann yfirleitt glaður og stutt í húmorinn. Hann var mjög ánægður með allar þessar gullfallegu konur sem voru í kringum hann og honum til aðstoðar. „Þú ert gull- falleg, bæði sæt og góð,“ sagði hann gjarnan og ekki var ama- legt að fá slíka kveðju og það stundum oft á dag. En þrátt fyr- ir allar þessar fallegu konur var Dísa hans alltaf fallegust og best. Fyrir nokkrum árum heim- sótti þáverandi forseti Íslands Skógarlundinn ásamt konu sinni og fylgdarliði. Þar hitti Örn heldur betur fallega og fína frú. Hún heilsaði honum og hann henni að hætti herramanns og tóku þau spjall saman. Eðlilega gat hún ekki heilsað öllum per- sónulega en Erni heilsaði hún þannig. Örn vann ýmis verkefni hér í Skógarlundi og gekk það lengst- an tíma vel. Hann spilaði líka mikið á spil og vann hann fólk nánast undantekningarlaust. Kapla lagði Örn og einhverra hluta vegna gengu þeir alltaf upp. Þegar halla fór undan fæti hjá honum varð úthaldið og get- an minni. Örn var trúr sinni pólitík og sagði okkur að hann hefði alltaf kosið og kysi alltaf Fram- sóknarflokkinn. Aldrei annað. Síðustu misseri kom Örn ekki mikið í Skógarlundinn. Heilsan og þrekið leyfðu það ekki. Dag- legi dvalartíminn varð styttri en áður en þó eru ekki margir dag- ar síðan hann var hjá okkur síðast. Elsku Dísa, Svana, Freyr, Svanhildur eldri, Edda og fjöl- skyldan öll. Ykkur öllum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðj- ur og biðjum allar góðar vættir að umvefja ykkur og styrkja á erfiðum tímum. Nú veit ég að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva sem hismi sé feykt á bál, uns sérhver sorg öðlast vængi og sérhver gleði fær mál. (Tómas Guðmundsson) Elsku Örn. Hlutverki þínu hér á jarðríki var að ljúka og nú skil- ur leiðir. Þú hefur verið leystur frá þrautum þínum og erfiðleik- um. Þrátt fyrir allt varstu já- kvæður og duglegur. Við höfum verið mjög lánsöm að þekkja þig og njóta samvista við þig. Fyrir það erum við þakklát. Í hjörtum okkar eigum við minningu um þig lífsglaðan og frískan. Megi almættið geyma þig. Far vel, elsku Örn. Fyrir hönd allra í Skógarlund- inum, Margrét Ríkarðsdóttir. Örn Arason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.