Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 30
G
uðmundur Einarsson
fæddist 5. nóvember
1948 í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. „Ég
náði að vera söngvari í
tveimur grúppum sem urðu ekki
landsfrægar fyrr en ég hætti í þeim;
Ríó tríó og Tatarar. Ég var formaður
skólafélags Gagnfræðaskólans í
Kópavogi, stússaðist í skátunum og
var í Leikfélagi Kópavogs og tók þátt
í leikstarfi MR, Herranótt.“
Á sumrin dvaldi Guðmundur í
Svínafelli í Öræfum. „Þar gekk ég á
jökla og fór yfir Skeiðará á hesti þeg-
ar ég var að smala Skeiðarársand og
einnig á Drekanum; amerískum
beltapramma. Svo veiddi ég sel, allt
fyrir fermingu. Ég fór síðan að vinna
við olíumalarlögn í Kópavogi á sumr-
in og fólkið var svo fegið að fá göt-
urnar lagaðar að það bakaði pönnu-
kökur handa okkur.“
Guðmundur gekk í Kópavogsskóla
og Gagnfræðaskólann í Kópavogi.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1968, BS í líf-
fræði frá Háskóla Íslands, 1973, MSc
í taugalífeðlisfræði frá Háskólanum í
Birmingham, 1975, og kláraði Leið-
söguskólann í Kópavogi 2018.
Guðmundur vann rannsóknir við
háskólann í Birmingham í Englandi
1975-1976, var við kennslu og rann-
sóknir við HÍ og nám í vefjarann-
sóknum við Montreal-háskóla í Kan-
ada (níu mánuðir) 1976-1980, var
lektor í lífeðlisfræði við læknadeild
HÍ 1980-1985, alþingismaður 1983-
1987 og formaður þingflokks Banda-
lags jafnaðarmanna, 1983-1986, fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins 1987-
1990, aðstoðarmaður viðskipta- og
iðnaðarráðherra 1990-1993, starfs-
maður við vinnumarkaðsnefnd
EFTA í Genf og aðstoðarmaður
Guðmundur Einarsson líffræðingur – 70 ára
Hjónin Guðmundur og Dröfn stödd í skíðafríi í Grimentz í Svissnesku Ölpunum.
Fjölbreyttur starfsferill
Barnabörnin Guðmundur ásamt Dröfn, Þórarni og Guðrúnu.
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018
Soffia Vagnsdóttir,skrifstofustjórigrunnskólaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar,
á 60 ára afmæli í dag.
„Stutta svarið við því hvað
í starfinu felst er líklega
það að leggja mitt af
mörkum til að börnin í
borginni fái góða og ham-
ingjuríka skólagöngu.“
Soffía vinnur náið með
skólastjórnendum og öðru
fagfólki á fagskrifstofunni
við að styðja við skóla-
starfið, en alls eru 36 skól-
ar í Reykjavík. „Það er
metnaðarfullt starf unnið
hér í borginni, en hlutverk
skólanna hefur breyst
mikið. Það er ekki bara
verið að hugsa um námið heldur líka taka á móti örum samfélags-
legum breytingum, tækninni og að vinna stöðugt að góðu samstarfi
við foreldra.“
Soffía tók við starfinu í upphafi ársins og er komin aftur til Reykja-
víkur eftir 20 ára fjarveru. Hún er fæddur og uppalinn Bolvíkingur en
hafði búið í Reykjavík í mörg áður en hún fór aftur til heimahaganna
þar sem hún stýrði fyrst tónlistarskóla Bolungarvíkur og síðar grunn-
skólanum.
„Það var ný Reykjavík sem tók á móti mér eftir öll þessi ár. Svo
ótrúlega margt hefur breyst og borgin þanist út, jafnvel komin með
heimsborgarlegt útlit. Það er gott að vera nálægt börnunum og
barnabörnunum, en ég er þó algjör þorpsstelpa inn við beinið, ég er
búin að komast að því. Þorpslífið er á einhvern hátt fallegra fyrir mér
með öllum sínum kostum og göllum. Hver og einn er svo mikilvægur
og þorpið þarf jafnan á öllum að halda.
Ég hef grun um að fjölskyldan mín sé undirbúa eitthvað til að fagna
afmælinu en sjálf er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa náð þessum
aldri. Það er ekki sjálfgefið. Svo set ég mér örugglega ný markmið
fyrir næsta áratuginn!
Eiginmaður Soffíu er Roland Smelt tölvunarfræðingur en hann
starfar m.a. við rekstur íbúðaleigu sem þau hjónin eru með í Bol-
ungarvík. Börn þeirra eru Paul Lukas, Vagn Margeir og Hermann
Andri en eldri börn Soffíu eru Gestur Kolbeinn og Birna Hjaltalín
Pálmabörn. Barnabörnin eru orðin átta. „Það er hamingja að vera ná-
lægt þeim. Lífið snýst um fjölskylduna og að rækta falleg og góð
tengsl við hana.“
Hamingja Soffía og Roland ásamt
yngstu barnabörnunum, Önju og Nóru,
en þær eiga eins árs afmæli á morgun.
Ný Reykjavík eftir
20 ára fjarveru
Soffía Vagnsdóttir er sextug í dag
Reykjavík Elísabet
Anna Grbic fæddist 5.
febrúar 2017 kl. 2.05.
Hún vó 3.735 g og var
52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Stefanía
Björk Blumenstein
Jóhannesdóttir og
Denis Grbic.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
DRIFSKÖFT
LAGFÆRUM – SMÍÐUM
JAFNVÆGISSTILLUM
OG SELJUM NÝ
Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða