Morgunblaðið - 05.11.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.11.2018, Blaðsíða 34
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fyrir tónlistarunnendur er senni- lega leitun að skemmtilegra starfi en því sem Sindri Ástmarsson sinnir. Hann er dagskrárstjóri Iceland Airwaves og kallar starfið á að vera á þeytingi milli tónlistarhátíða víða um heim á höttunum eftir framúr- skarandi listafólki til að fá til Ís- lands. Hann segir ekki erfitt að fá efni- legar hljómsveitir til að troða upp á Iceland Airwaves því hátíðin sé m.a. þekkt fyrir þá sérstöðu að mynda brú á milli evrópska og bandaríska tónlistarheimsins: „Í dag lítur bransinn erlendis á Iceland Air- waves sem mikilvæga hátíð og dag- lega berst okkur tölvupóstur með gylliboðum frá umboðsmönnum og tónleikastöðum sem keppast við að ýta böndunum sínum hingað.“ Þarf að laga reksturinn Viðburðafyrirtækið Sena Live keypti Iceland Airwaves fyrr á þessu ári og var Sindri í hópi nýrra starfsmanna sem ráðnir voru til að stýra hátíðinni. Er stefnt að því að snúa við miklum hallarekstri sem verið hefur á viðburðinum en þrátt fyrir mikinn sýnileika, góða aðsókn og sterka bakhjarla á borð við Ice- landair og Landsbankann hefur ver- ið tuga milljóna króna tap á Iceland Airwaves tvö ár í röð. „Við vitum að rekstrinum verður ekki snúið við á einu ári en vinnum út frá þriggja til fimm ára áætlun sem miðar að því að vera réttum megin við núllið. Við vit- um líka að Iceland Airwaves mun aldrei verða gróðamaskína sem skil- að getur milljónum í hagnað, og þarf að horfa raunhæfum augum á rekstrarforsendurnar. Aftur á móti er hátíðin mjög mikilvæg fyrir ís- lenskt tónlistarlíf og einhver besti vettvangur sem hugsast getur til að sýna umheiminum hvað íslenskt tón- listarfólk hefur upp á að bjóða. Fáum við ekki bara til landsins marga tugi erlendra hljómsveita heldur líka fulltrúa plötufyrirtækja, tónlistarforleggjara og blaðamenn.“ Auk þess að vera tækifæri fyrir ís- lenskt tónlistarfólk að koma sér á framfæri er Iceland Airwaves líka vítamínsprauta fyrir ferðaþjónust- una í annars rólegum vetrarmánuði. Segir Sindri að þau 250 bönd sem troða upp hafi á að skipa um 720 manns og þar af ríflega helming- urinn útlendingar sem þurfi að koma fyrir á hótelum og fljúga til Íslands úr öllum áttum. „Við eigum von á mörgum þúsundum gesta og ég heyri það bæði hjá hótelum, far- fuglaheimilum og meira að segja frá fólki með Airbnb-útleigu að þeim þykir gleðiefni að fá þennan bónus- skammt af ferðalöngum í nóvem- ber.“ Það sem ber af hverju sinni Í ár lendir Iceland Airwaves á helginni 7.-10. nóvember og mælt í fjölda atriða verður hátíðin stærri en nokkru sinni fyrr. Eins og áður sagði er von á 250 hljómsveitum af öllum stærðum og gerðum og dreifist dag- skráin á fjölda tónleikastaða í mið- bænum. Áherslurnar eru svipaðar og undanfarin ár að því leyti að leit- ast er við að tefla fram öllu því sem er nýtt, ferskt og framúrskarandi í íslenskri og erlendri tónlist. Er breiddin mikil og spannar allt frá orkumiklu rappi yfir í rólega og rómantíska nýklassík. „Það myndast alltaf, af sjálfu sér, lítil þemu innan hátíðarinnar sem endurspegla hvað er í gangi hverju sinni og hvaða stefnur eru rísandi. Dagskráin í ár ber þess t.d. merki að undanfarin tvö-þrjú ár hefur verið mikil nýliðun í klassíska geiranum á Íslandi og má m.a. þakka það Spotify að s.k. ný- klassík hefur rutt sér til rúms með listamönnum á borð við Gabríel Ólafs og Huga. Í þessum ranni má finna tónlistarfólk sem fáir hefðu giskað á fyrir nokkrum árum að gætu orðið nýjasta útflutningsvara íslenskrar tónlistarsenu en eru í dag Það sem er nýtt, ferskt og framúrskarandi  Iceland Airwaves fer að bresta á og er von á 250 hljóm- sveitum í þetta skiptið  Hátíðin hefur öðlast sess sem mikil- væg brú á milli bandaríska og evrópska tónlistarheimsins 34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Það er aldrei of seint að byrjaað elska sjálfan sig.Bubbi Morthens hefurfyrir löngu sannað að hann kann þá list að yrkja. Hann er lík- lega þekktastur fyrri slagara sem gripið er til í úti- legum á fallegum sumarnóttum en virðist ekki síðra ljóðskáld. Setn- ingin hér að ofan er nokkurs konar inngangur að hans þriðju ljóða- bók, Rofi, en áður komu út bæk- urnar Öskraðu gat á myrkrið (2015) og Hreistur (2017). Ljóðin í Rofi eru stutt en höf- undur hefur sjálfur sagt að þetta sé prósi eða fríljóð. Þau mynda heild þótt þau séu ekki sögð í „réttri“ röð og segja frá kynferðisofbeldi og áföllum sem höfundur varð fyrir í æsku og áhrifum þeirra á hann. Það má til dæmis sjá í ljóðinu Sólmyrkvi: hann rændi þig nándinni kyrðinni flæðinu getunni til að elska hjó niður skjólgarða vitundarinnar andlit hans skyggir á sólina Áhrif áfallanna á fullorðinsárin eru einnig greinileg í ljóðinu Þú: ég get talað við þig kysst þig planað vikuna með þér sagt að ég elski þig samt er ég fjarverandi þegar ég sef hjá þér hann er alltaf á milli okkar. Ef hægt er að tala um rauðan þráð í bókinni þá er það ekki beint brotið sjálft eða áfallið sem ljóðmælandinn varð fyrir. Það eru frekar afleiðing- arnar og hvernig hræðilegar minn- ingar sækja á hann þegar hann á síst von á þeim. Skýrt dæmi um það er ljóðið Boðflenna. Þar segir frá boð- flennu sem kemur til ljóðmælandans á skrítnum tímum, til að mynda í miðju lagi eða kossi. Viðbrögð hans hafi alltaf verið þau sömu; grafa dýpra og reyna að loka á minning- arnar. Bubbi hefur sagt í viðtölum að hann hafi ætlað að skrifa ævisögu en Unnið úr áföllum Ljóð Rof bbbmn Eftir Bubba Morthens. 59 ljóð, kilja. 64 bls.Mál og menning 2018. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— » „Það má finna svona„showcase“-hátíðir í flestum stærri borgum en leitun er að hátíð með aðra eins fjölbreytni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.