Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, æli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla K Veður víða um heim 5.11., kl. 18.00 Reykjavík -1 skýjað Akureyri -3 heiðskírt Nuuk -8 léttskýjað Þórshöfn 4 léttskýjað Ósló 8 skýjað Kaupmannahöfn 10 súld Stokkhólmur 8 þoka Helsinki 6 skýjað Lúxemborg 10 heiðskírt Brussel 12 heiðskírt Dublin 11 skýjað Glasgow 9 alskýjað London 13 rigning París 16 heiðskírt Amsterdam 9 þoka Hamborg 11 þoka Berlín 13 heiðskírt Vín 12 skýjað Moskva 1 þoka Algarve 17 léttskýjað Madríd 7 skúrir Barcelona 17 skýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 16 skúrir Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 1 skýjað Montreal 1 rigning New York 10 rigning Chicago 8 þoka Orlando 27 þoka  6. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:28 16:56 ÍSAFJÖRÐUR 9:48 16:46 SIGLUFJÖRÐUR 9:31 16:29 DJÚPIVOGUR 9:01 16:22 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Norðaustan 13-20 m/s og slydda NV-til, en hægari og úrkomuminni með kvöldinu. Annars austan 8-15 og rigning með köflum, hvassast úti við ströndina. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast SA-lands. Gengur smám saman í austanstorm með úrkomu, einkum seinnipartinn, hvassast syðst og einnig NV-til. Talsverðar vindhviður við fjöll. Hiti 1 til 9 stig seinni partinn en vægt frost nyrðra. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Strand sementsflutningaskipsins Fjordvik við Helguvík aðfaranótt laugardags minnir á að oft hafa orð- ið skipströnd við Íslandsstrendur. Mestu skiptir að allir um borð björguðust. Morgunblaðið ákvað að rifja upp nokkur nýleg strönd flutningaskipa við Ísland þegar skipin losnuðu ekki af sjálfsdáðum af strandstað. Stuðst var við skýrslur rannsóknanefndar sam- gönguslysa (rnsa.is) og fréttir Morgunblaðsins. Frystiskipið Green Freezer strandaði neðan við bæinn Eyri í Fáskrúðsfirði 17. september 2014. Skipið var að koma til hafnar á Fá- skrúðsfirði þegar skiptiskrúfan fest- ist í afturábak og bakkaði skipið upp í fjöru. Varðskipið Þór dró Green Freezer af strandstað. Talsverðar skemmdir urðu á stýris- og skrúfu- búnaði og var skipið dregið til Pól- lands til viðgerðar. Flutningaskipið Arnarfell var á leið frá Akureyri til Reyðarfjarðar 6. september 2014 þegar skipið strandaði við skerið Bak utan við Vattarnes. Talið var að stýrimaður á vakt hefði sofnað. Skipið var dregið til hafnar á Eskifirði og síðar til Reyðarfjarðar þar sem farminum var skipað upp. Skipið var dæmt ónýtt og var það dregið utan til niðurrifs. Frystiskipið Silver Copenhagen var á leið út úr Vopnafjarðarhöfn 1. ágúst 2012 þegar það strandaði. Með því að dæla úr tönkum tókst að losa skipið á flóði. Litlar skemmdir urðu og fékk skipið að halda för sinni áfram. Tankskipið Kaprifol var að koma til Þórshafnar á Langanesi 4. októ- ber 2011 þegar það strandaði á grynningum í höfninni. Rifa kom á botn skipsins og skemmdir urðu á öllum skrúfublöðum. Með því að toga í skipið frá landi tókst að losa það. Frystiskipið Axel var að fara frá Sandgerði 7. október 2011 þegar það strandaði rétt fyrir utan hafnar- garðana. Skipið sat fast með bak- borðssíðu að grynningum. Drag- nótabáturinn Örn KE og björgunar- sveitarbátur komu til aðstoðar. Með því að dæla á milli tanka og toga í skipið tókst að losa það. Skipinu var siglt til Helguvíkur og skemmdir kannaðar. Þær reyndust ekki miklar og fékk skipið að halda för sinni áfram. Tankskipið Leoni Theresa var að koma til hafnar á Ísafirði 9. septem- ber 2008 með olíufarm. Á leið að bryggju fór allt rafmagn af svo það drapst á báðum aðalvélunum og skipið varð stjórnlaust. Skipið strandaði á sandbakka austan við Sundabakka. Hafnsögubátur reyndi að toga skipið laust en það losnaði ekki fyrr en afl komst á aðalvél- arnar. Skipið skemmdist ekki við óhappið. Flutningaskipið Wilson Muuga var á leið frá Grundartanga til Rúss- lands 19. desember 2006. Fyrir sunnan Sandgerði beygði skipið sjálfkrafa í átt að landi, sigldi yfir grynningar og tók niðri út af Hvals- nesi. Leki kom að vélarrúmi og í alla botntanka nema einn. Danskt varð- skip og tvö íslensk komu á strand- staðinn. Áhöfninni var bjargað í land með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Skipverji af danska varðskip- inu fórst. Skipið náðist á flot í apríl 2007 og var það selt til Líbanon. Mörgum er í fersku minni þegar nýtt 9.200 tonna þýskt gámaflutn- ingaskip, Víkartindur, varð vélar- vana og strandaði á Háfsfjöru 5. mars 1997. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar bjargaði 19 manna áhöfninni í land. Varðskipið Ægir gerði tvær tilraunir við mjög erfiðar aðstæður til að bjarga skipinu áður en það rak upp. Elías Örn Kristjánsson báts- maður á Ægi fórst við björgunar- tilraunina. Flutningaskip hafa oft lent í vandræðum  Mörg flutningaskip hafa strandað við Íslandsstrendur á seinni árum Morgunblaðið/ÞÖK Björgun Wilson Muuga sigldi upp í fjöru við Hvalsnes og strandaði. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Þeir fóru tveir niður í [gær]morg- un og tóku út hvernig skipið situr og fóru svo bakborðsmegin og tóku myndir af skemmdum. Það myndskeið fer fljótlega í yfirferð hjá Ardentmönnum og út frá því verður hægt að gera frekari að- gerðaáætlun,“ segir Helgi Hinriks- son, verkefnastjóri hjá Köfunar- þjónustunni. Ekki var talið öruggt að senda menn í köfun til að kanna skemmdir á flutningaskipinu Fjor- dvik fyrr en í gær, en aðstæður voru mjög erfiðar um helgina. Þriggja manna teymi frá Köfunar- þjónustunni fór í einnar og hálfrar klukkustundar langan köfunarleið- angur í gærmorgun. Verulegar skemmdir eru á skip- inu, að sögn Helga, og aðspurður segir hann Köfunarþjónustuna til- búna í fleiri köfunarleiðangra ef þörf verður á. Köfunarfélagið ehf. er undirverktaki alþjóðlega björg- unarfyrirtækisins Ardent sem fengið hefur verið í verkið af út- gerð flutningaskipsins og voru tíu manns frá Köfunarfélaginu að störfum á vettvangi þegar mest lét. „Við erum fengnir þeim til að- stoðar og til að verða þeim úti um allan þann búnað sem þeir þurfa til þess að geta staðið að þessari björgun á sem skilvirkastan hátt,“ segir Helgi. Dæling gengur betur nú Dæling á olíu úr skipinu hófst síðdegis í fyrradag, en gekk hægt. Ákveðið var að stöðva aðgerðir yf- ir nóttina til þess að útvega öflugri búnað. Aðgerðir hófust að nýju í gærmorgun og var ágætisgangur kominn í dælinguna þegar mbl.is náði tali af Helga. „Dælingin gengur vel núna og miðað við þennan gang ættum við að verða búnir um miðja nótt, en erum að skoða möguleika til þess að auka afkastagetuna,“ segir hann. Um björgunaraðgerðirnar al- mennt segir Helgi ómögulegt að segja hversu langan tíma þetta muni taka. Ofuráhersla sé nú lögð á að koma olíu frá borði til þess að minnka líkur á umhverfisslysi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjordvik Skipið hefur farið harkalega utan í hafnargarðinn í veðurofsa og orðið fyrir verulegum skemmdum. Verulegar skemmdir á flutningaskipinu  Þriggja manna teymi kafara hefur skoðað skipið Grunnkort/Loftmyndir ehf. H ei m ild :m ar in et ra ffi c. co m Kl. 00:50 Sendir út neyðarkall Hólmsbergsviti Kl. 00:44 Stefna: 286° Hraði: 3,3 hnútar Kl. 00:37 Stefna: 206° Hraði: 8 hnútar Kl. 00:40 Stefna: 253° Hraði: 5,3 hnútar Helgu- víkurhöfn Helguvík Strand Fjordvik aðfaranótt laugardags

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.