Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Lágfargjaldaflugfélagið WOW air var stofnað í nóvember árið 2011 af athafnamanninum Skúla Mogen- sen, sem á þeim tíma var hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað og rekið hugbúnaðarfyrirtækið OZ. Hann hagnaðist á sölu þess til Nokia árið 2008, eftir að hafa keypt það af Landsbankanum og endurreist ásamt samstarfsmönn- um í Montreal í Kanada, en OZ varð upphaflega gjaldþrota þegar tæknibólan sprakk árið 2001. Jómfrúrflug WOW air var flogið til Parísar 13. maí árið 2012, en í október sama ár tók WOW yfir rekstur Iceland Express. Eftir þá yfirtöku voru starfsmenn WOW 165 talsins og 90.000 farþegar tóku sér far hjá félaginu þetta fyrsta rekstrarár. Ári síðar fékk WOW air flug- rekstrarleyfi frá Samgöngustofu, en það var í fyrsta skipti í 30 ár sem Samgöngustofa gaf út slíkt leyfi til handa félagi sem stundar áætlunarflug til og frá Íslandi. Með leyfinu fékk félagið stjórn yfir öllum rekstri og var ekki lengur háð öðrum flugrekstraraðila. Fjöldi flugfarþega sem WOW air flutti óx jafnt og þétt, og árið 2013 flaug WOW air með yfir 400 þús- und gesti. Í lok árs 2014 var sú tala komin upp í eina milljón far- þega það ár. Þá bættust reglulega við nýir áfangastaðir. Flug til Bandaríkjanna Árið 2014 var tilkynnt að fyrir- tækið hygðist byrja að bjóða upp á flug til Bandaríkjanna frá og með vorinu 2015, með flugi til Boston og Washington DC. Síðar átti fjöldi annarra áfangastaða í Bandaríkjunum eftir að bætast við, eins og New York, San Francisco, Detroit, Dallas, St. Louis, Cleve- land, Cincinnati og Los Angeles, en félagið varð t.d. fyrst íslenskra flugfélaga til að bjóða upp á beint áætlunarflug til síðastnefndu borgarinnar. Í Evrópu var flogið til Lundúna, Kaupmannahafnar, Dublin, Rómar, Tenerife og Billund svo fáeinir staðir séu nefndir. Samhliða auknum fjölda farþega jukust tekjur félagsins með ógnar- hraða. Í samtali við Morgunblaðið í október 2015 sagði Skúli að velta félagsins væri orðin 17 milljarðar króna, og árið á eftir var horft til 25 milljarða króna veltu. Í sama viðtali spáði Skúli því að félagið myndi auka við farþegafjöldann upp í þrjár milljónir árið 2018. Til að mæta auknu framboði á flugleiðum var tilkynnt haustið 2015 að félagið myndi taka í þjón- ustu sína þrjár nýjar Airbus A330- 300 breiðþotur, sem urðu þar með, að sögn WOW, stærstu þotur sem flogið hafði verið í áætlunarflugi til og frá Íslandi. Með viðbótinni sagði Skúli að félagið myndi meira en tvöfalda sætaframboð sitt milli ára, úr 900 þúsund sætum það ár í tæplega 2 milljónir sæta ári síðar. Árið 2017 flugu u.þ.b. 2,8 milljónir farþega með WOW air og spár fyr- ir árið 2018 gengu út á 3,6 millj- ónir gesta. Óveðursský hrannast upp Óveðursský hrönnuðust upp á himininn haustið 2017, þegar fregnir bárust af því í september að breska lágfargjaldaflugfélagið og áttunda stærsta flugfélag Bret- lands, flugfélagið Monarch, væri orðið gjaldþrota, en gjaldþrotið átti eftir að hafa ófyrirséðar afleið- ingar fyrir WOW air. Í október 2017 kom í ljós að Monarch hefði verið stór viðskiptavinur greiðslu- miðlunarfyrirtækisins Kortaþjón- ustunnar, sem í kjölfar gjaldþrots- ins fékk þungt högg. Korta- þjónustan reyndist vera eitt átta fyrirtækja sem sáu um færsluhirð- ingu fyrir Monarch. Kortaþjónust- ann rambaði nú á barmi gjaldþrots og var í kjölfarið seld til Kviku banka og fleiri aðila. Þar sem Kortaþjónustan sá einn- ig um færsluhirðingu fyrir WOW air, þá þrengdist nú verulega um öll viðskiptakjör WOW air. Þurfti félagið nú að bíða mun lengur eftir þeim fjármunum sem viðskipta- vinir reiddu af hendi, því Korta- þjónustan hélt nú lengur eftir fyrirframgreiðslum viðskipta- manna sinna en hún gerði fyrir Monarch-áfallið. En WOW air var ekki af baki dottið og hélt áfram að bæta við áfangastöðum. Athygli vakti þegar félagið hóf áætlunarflug til Ben Gurion-flugvallar í Tel Aviv í Ísrael í lok árs 2017, fyrst ís- lenskra flugfélaga. Þá tilkynnti félagið í lok árs 2017 að það hygðist hefja flug til Ind- lands frá og með 6. desember 2018. Auk þess sem farþegum og áfangastöðum fjölgaði, þurfti enn að bæta við flugflotann. Fjórar A330-900neo-breiðþotur með Trent 7000-hreyflum frá Rolls-Royce bættust við 2018, en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu WOW eiga alls 24 Airbus-farþegaþotur að verða í flugflota WOW air nú í lok árs 2018. Flotinn er sagður einn sá yngsti sem þekkist í heiminum, en meðalaldur flugvéla félagsins er 2,9 ár. Tap á síðasta ári WOW air sendi frá sér upplýs- ingar um rekstur ársins 2017 fyrr á þessu ári, og kom þar fram að tekjurnar hefðu numið 486 millj- ónum bandaríkjadala það ár, eða næstum 60 milljörðum króna. Þetta ár tapaði félagið 22 millj- ónum dala, en hafði hagnast um 35,5 milljónir dala árið á undan. Orðrómur um aukinn rekstrar- vanda WOW air fór vaxandi eftir því sem leið á árið 2018, en þar spilaði meðal annars inn í mikil hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu, en WOW air notast ekki við varnir gegn olíuverðshækkunum. Starfsmannafjöldi félagsins er þegar hér er komið sögu, um mitt ár 2018, kominn upp í 1.500 en var 1.100 á sama tíma árið á undan. Í ágúst 2018 berast fregnir af því að hlutafé félagsins hafi verið aukið um meira en tvo milljarða króna, en þar var um að ræða eignarhlut Skúla Mogensen í frakt- flutningafyrirtækinu Cargo Ex- press ehf., auk þess sem hann breytti kröfum sínum á hendur fé- laginu í hlutafé. Enn syrti í álinn í september síðastliðinn þegar Morgunblaðið birti frétt af tveggja milljarða króna skuld WOW air við Isavia, vegna lendingargjalda. Af þeirri skuld var sagt að um helmingurinn hefði þá þegar verið gjaldfallinn. Umræður um 50 milljóna evra skuldabréfaútboð félagsins, sem átti að verða brúarfjármögnun þar til félagið yrði skráð á hlutabréfa- markað árið 2019, voru miklar síðla sumars og fram á haustið, sem endaði með því þann 18. september að félagið tilkynnti að útboðinu hefði lokið farsællega með þátttöku bæði innlendra og erlendra fjárfesta. 50 milljarða virði Á þessum tímapunkti var vikið að því í frétt Financial Times að minnihluti í félaginu væri verðmet- inn á 200-300 milljónir dala, eða jafnvirði 24-33 milljarða íslenskra króna, og félagið því allt á nálægt 50 milljarða króna. Arion banki og Arctica Finance, sem sáu um undirbúning fyrir skráningu félagsins í kauphöll, svöruðu því til þegar leitað var eft- ir staðfestingu á þessum tölum, að verðmat hefði ekki verið gert. Í síðasta mánuði héldu áfram að berast neikvæðar fregnir af félag- inu, þegar það tilkynnti að það hygðist ekki fljúga til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco yfir vetrarmánuðina og hefði aflýst flugferðum frá 5. nóvember og fram í byrjun apríl á næsta ári. Í gær, þann fimmta nóvember, í kjölfar þess að viðskipti með bréf Icelandair í Kauphöll voru stöðvuð, var tilkynnt að Icelandair hefði keypt allt hlutafé WOW air. Þannig fór um sjóferð þá  1.500 manns störfuðu hjá félaginu þegar mest lét  Airbus þotur félagsins 24 í lok þessa árs  Stefnt var að skráningu félagsins á markað á næsta ári Nýlegt skuldabréfaútboð átti að brúa bilið Morgunblaðið/Golli Ný Árið 2015 tók WOW air við nýrri vél frá Airbus og fékk við það tækifæri Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoða til að blessa vélina. Hún hlaut nafnið Freyja. Dorrit Mousaieff, þáverandi forsetafrú, tók virkan þátt í athöfninni. Upphaf Þegar WOW air var hleypt af stokkunum fékk Skúli sr. Jónu Lovísu Jónsdóttur vaxtarræktarkonu til að opna vefsvæði félagsins og blessa það. Icelandair kaupir WOW air

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.