Morgunblaðið - 06.11.2018, Page 9

Morgunblaðið - 06.11.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 4 8 2 BMW 225xe PLUG-IN HYBRID MEÐ FJÓRHJÓLADRIFI. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR BMW 225xe xDrive. Verð: 5.750.000 kr. með LUXURY LINE. Dakota leðuráklæði, vetrardekk, upphitað stýri, aðfellanlegir og birtutengdir speglar, lykillaust aðgengi, rafdrifinn afturhleri með snertilausri opnun, bakkmyndavél og nálgunarvarar framan og aftan, skyggðar afturrúður, 9 hátalara hljómkerfi, LED aðalljós og inniljós, rafdrifin framsæti með minni á ökumannssæti, leggja í stæði hjálp og þakbogar. Sheer Driving Pleasure Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Tíu vikum áður en kjarasamningar renna út á viðræðuáætlun milli samningsaðila að liggja fyrir. Það er búið að skila inn þremur við- ræðuáætlunum vegna 82 kjara- samninga sem renna út um ára- mót. Það þýðir ekki að þurfi að skila inn 82 við- ræðuáætlunum, þar sem stéttar- félög í samfloti skila einni áætl- un fyrir allan hópinn,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir ríkis- sáttasemjari, en á heimasíðu Ríkis- sáttasemjara er hvatning til samningsaðila um að skila inn viðræðuáætlun. Bryndís segir að ef áætlun sé ekki skilað geri embættið slíka áætlun. „Viðræðuáætlanir voru settar í lög um stéttarfélög og vinnudeilur árið 1996. Þær eru eðlilegur liður í undirbúningi kjarasamninga og vel ígrunduð áætlun getur skipt miklu máli. Viðræðuáætlanir sem ríkis- sáttasemjari gerir eru yfrleitt byggðar á fyrri áætlunum og því aldrei eins vel ígrundaðar og við- ræðuáætlanir sem aðilar koma sér saman um,“ segir Bryndís og bætir við að sáttasemjari leitist sífellt við að bæta verklag í samningaferlinu og í ár sé samninganefndum og þeim sem koma að kjarasamningum boðið upp á þriggja daga námstefnu í samningagerð að fyrirmynd ILO, Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Samningatækni kennd Þar sitji saman fulltrúar beggja samningsaðila, þeir sem eru að stíga sín fyrstu skerf í kjarasamn- ingagerð og margreyndir samn- ingamenn. Námstefnan gangi út á að kenna góða samningahætti. Á námstefnunni sé m.a. farið yfir samningatækni, lagaramma kjara- samningagerðar, efnahagslega þætti og mörkin sem gilda um þagnarskyldu. Bryndís segir þagnarskyldu gilda um það sem fram fari á samningafundum. Á sama tími geti myndast togstreita milli samninganefnda og baklands þeirra, sem vilji að sjálfsögðu fá að fylgjast með gangi mála sem og al- menningur. Aðsókn að námstefnunum hefur farið fram úr björtustu vonum, að sögn Bryndísar, en þrjú hundruð manns muni sitja þær. Fullt sé á allar fjórar námstefnurnar og hugsanlegt að einni námstefnu verði bætt við eftir áramót ef eftir- spurn verði næg. Aðstoðarsátta- semjurum fjölgar Bryndís býr sig og embættið undir miklar annir á næstunni og segir sífellt unnið að því að gera samningaviðræður og aðkomu Ríkissáttasemjara að þeim skilvirk- ari. „Í samningaviðræðunum nú verð- ur sú nýbreytni að við bjóðum upp á fleiri aðstoðarsáttasemjara en verið hefur. Magnús Jónsson, fyrr- verandi veðurstofustjóri, var í hlutastarfi og kom inn á álags- punktunum. Nú munum við að norskri fyrirmynd kalla til hóp fólks í verktöku sem aðstoðar sátta- semjara til þess að tryggja að það standi ekki á Ríkissáttasemjara að samningalotur klárist,“ segir Bryn- dís og bendir á að með þessu fáist aðstoð í mestu törnunum án þess að embættið bæti við sig föstu starfs- fólki. „Aðstoðarsáttasemjararnir eiga að mínu mati eftir að betrumbæta vinnuumhverfið í kringum kjara- samninga,“ segir Bryndís, sem tók við starfi ríkissáttasemjara í miðri kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og VR árið 2015. Kallað eftir fleiri viðræðuáætlunum  Aðeins þrjár viðræðuáætlanir komnar til sáttasemjara  82 samningar lausir um áramót  Námstefna haldin Bryndís Hlöðversdóttir Fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrarleyfi til bráðabirgða til tíu mánaða fyrir laxeldi í sjókví- um í Patreksfirði og Tálknafirði samkvæmt ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Frá þessu var greint í fréttatilkynningu á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins í gær. Matvælastofnun veitti fyrirtækj- unum rekstrarleyfi í lok árs 2018 en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi þau úr gildi 27. september síðastliðinn. Lögum breytt í síðasta mánuði Í tilkynningunni segir að með breytingum sem gerðar voru á lög- um um fiskeldi í síðasta mánuði hafi ráðherra verið veitt heimild, að fenginni umsögn Matvælastofn- unar, til að gefa út tímabundið rekstrarleyfi til allt að tíu mánaða. „Við ákvörðun leyfis til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eftir umsögnum frá Matvæla- stofnun, Byggðastofnun, Skipulags- stofnun og Umhverfisstofnun. Jafn- framt var andmælendum veitt tækifæri til að koma sínum sjónar- miðum á framfæri,“ segir í tilkynn- ingu ráðuneytisins. Leyfin eru bundin ákveðnum skilyrðum, m.a. skal Matvæla- stofnun hafa eftirlit með fjölda út- settra laxaseiða, leyfishafi ber ábyrgð á vöktun og rannsóknum til að meta vistfræðileg áhrif á nán- asta umhverfi og leyfishafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldis- laxa til ákveðinna sjókvíaeldis- stöðva. Auk þess ber fyrirtækj- unum að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göllum sem úr- skurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála taldi vera á málsmeðferð við útgáfu rekstrarleyfisins sem var ógilt og, eða, láta reyna á lög- mæti ógildingar þeirra fyrir dóm- stólum. Bráðabirgðaleyfi til sjókvíaeldis  Arctic Sea Farm og Fjarðalax fá leyfi til tíu mánaða Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Leyfi fiskeldisfyrirtækj- anna voru felld úr gildi í september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.