Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, skýrði í gær frá því að hann hefði ákveðið að tilnefna Ulf Krist- ersson, leiðtoga hægriflokksins Moderaterna, í embætti forsætisráð- herra á mánudaginn kemur. Tillagan verður borin undir atkvæði á þinginu í næstu viku. Sænskir fjölmiðlar sögðu að atkvæðagreiðslan færi lík- lega fram miðvikudaginn 14. nóvem- ber, daginn áður en umræða hefst um fjárlög næsta árs. Kristersson fær því rúma viku til að ræða við leiðtoga annarra flokka um myndun starfhæfrar ríkisstjórnar. Norlén viðurkenndi að ekki væri víst að tilnefningin fengi nægan stuðning á þinginu. Hvorugt gömlu flokkabandalaganna fékk meirihluta þingsætanna í kosningunum 7. september þegar Svíþjóðardemó- kratarnir styrktu oddastöðu sína á þinginu og fengu 17,6% atkvæðanna. Kristersson þarf því að reiða sig á flokka í rauðgræna bandalaginu eða Svíþjóðardemókratana til að geta myndað ríkisstjórn, annaðhvort að fá þá til að greiða atkvæði með til- nefningunni eða sitja hjá. Um 67% kjósenda Moderaterna eru hlynnt því að flokkurinn hefji viðræður við Svíþjóðardemókratana samkvæmt könnun sem sænska ríkisútvarpið birti á sunnudaginn var. Leiðtogar tveggja samstarfs- flokka Moderaterna, Miðflokksins og Frjálslynda flokksins, ljá hins vegar ekki máls á því að mynda ríkis- stjórn með stuðningi Svíþjóðar- demókratanna og Kristersson sagði í gær að hann hefði ekki í hyggju að hefja viðræður við leiðtoga flokksins. Hann á rætur að rekja til nasista- hreyfinga og er talinn eiga langt í land með að þvo af sér öfgastimpil- inn, m.a. vegna hatursfullra yfirlýs- inga fulltrúa hans á samfélagsmiðl- um um innflytjendur. Leiðtogi Frjálslynda flokksins hefur gagnrýnt Moderaterna fyrir að hindra tilraun Annie Lööf, leið- toga Miðflokksins, til að hefja við- ræður um að bandalag hægri- og miðflokkanna myndi stjórn með stuðningi Umhverfisflokksins. Tilnefndur forsætis- ráðherra Svíþjóðar  Þingið greiðir atkvæði um tilnefninguna í næstu viku AFP Forsætisráðherra? Ulf Kristers- son, leiðtogi Moderaterna. Fær fjögur tækifæri » Forseti sænska þingsins getur tilnefnt forsætisráðherra alls fjórum sinnum. Boða þarf til nýrra kosninga innan þriggja mánaða ef þingið hafnar til- lögum hans í fjórum atkvæða- greiðslum. » Ekki er nauðsynlegt að til- nefningin fái meirihluta at- kvæða á þinginu, en hún fellur ef meirihluti greiðir atkvæði gegn henni. Gestir smakka kæstan hákarl frá Íslandi á sænsku safni sem helgað er mat sem þykir viðbjóðslegur. Safnið var opnað í Malmö í vikunni sem leið og verður aðeins opið í þrjá mánuði, eða þar til í lok janúar. Sýndir eru alls átta- tíu réttir sem þykja lostæti í sumum löndum þótt flestir þeirra sem hafa ekki vanist þeim telji þá algeran viðbjóð. Hvern dag er gestum boðið að smakka á tíu réttanna. Auk kæsta hákarlsins er meðal annars boðið upp á sur- strömming, kæsta síld, sem sumum Svíum þykir herra- mannsmatur þótt aðrir fyllist viðbjóði þegar sur- strömming-dósirnar eru opnaðar. Lyktin af síldinni er svo megn að margir Svíar eru sagðir opna þær utandyra til að ekki verði ólíft í íbúðinni. Á meðal annarra rétta á sýningunni er cuy, steiktur naggrís að hætti Perúmanna, casu marzu, maðkaostur frá Sardiníu, og dáraaldin sem þykir mjög gómsætt í Taílandi og fleiri Suðaustur-Asíu- löndum en gefur frá sér mjög sterka lykt sem verður nánast óbærileg ef ávöxturinn nær að þroskast um of. AFP „Viðbjóðslegur“ matur borinn á borð Teheran. AFP. | Hassan Rouhani, forseti Írans, segir að landið ætli að sneiða hjá refsiaðgerðum Bandaríkjanna sem tóku gildi í gær. Stjórn Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta segir að þetta séu hörðustu refsiaðgerðir sem nokkru sinni hafi verið gripið til gegn klerkastjórn- inni í Íran. Markmiðið með þeim er að draga verulega úr olíuútflutningi Írans og einangra banka landsins. Hálfu ári áður ákvað Trump að draga Bandaríkin út úr samn- ingi sex landa við klerkastjórnina um kjarnorkuáætlun hennar. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Kína, Rúss- landi og Þýskalandi segjast ætla að standa við samning- inn og telja að Íranar hafi staðið að fullu við skilmála hans. Rússar sögðust í gær vera staðráðnir í því að beita sér fyrir auknum viðskiptum við Íran. Olíuútflutningur Írans hefur þegar minnkað um allt að milljón fata á dag frá því í maí þegar Trump tilkynnti ákvörðun sína. Indland er eina ríkið sem hefur aukið olíukaupin síðasta árið Heimild: Bloomberg Ríkin sem kaupa mest af olíu frá Íran 416.667 488.333 Kína Íra n ESB-ríki Indland Tyrkland S-Kórea Japan September 2018 (1,6 milljónir fata á dag) September 2017 (2,3 milljónir fata á dag) 600.000 500.000 533.333 300.000 Ætla að sneiða hjá refsiaðgerðunum Donald Trump Bandaríkjaforseti fór í gær til þriggja sambandsríkja, Ohio, Indiana og Missouri, til að hvetja stuðningsmenn sína til að mæta á kjörstað í kosningunum sem fara fram í landinu í dag. Skoð- anakannanir hafa bent til þess að mikill áhugi sé á kosningunum meðal félaga í tveimur stærstu flokkunum og kjörsóknin geti ráðið úrslitum í baráttu þeirra um þingið. Hún er yfirleitt lítil í kosningum á miðju kjörtímabili forseta Banda- ríkjanna, var aðeins 37% fyrir fjór- um árum en útlit er fyrir að hún verði mun meiri nú. „Þetta snýst allt um kjörsóknina,“ sagði Chris Van Hollen, demókrati í öldunga- deildinni, um sigurmöguleika flokkanna í þingkosningunum. Heimildir: RealClearPolitics,senate.gov, ballotpedia Kosningarnar vestra Kosið um 35 af 100 sætum Kosið er um öll sætin 435 Kosið er um 36 af 50 embættum Ríkisstjórar Laus sæti Skipting þingsæta Mismikil barátta Demókratar Óháðir* Ekki kosið Óörugg sæti Örugg sæti Repúblikanar 16 193 33 235 47 51 Öldungadeildin Fulltrúadeild Bandaríkjaþings 7 2* *Styðja demókrata 1 +2 Fjöldi sæta sem demókratar þurfa að bæta við sig +X +23 Líkur á að kjörsóknin verði óvenjumikil Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.