Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 20

Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sú ákvörðun for- eldra að styðja barn sitt í því að stunda fjölbreytta þjálfun í æsku verður seinna meir dýrmæt gjöf fyr- ir barnið; veganesti sem það tekur svo með sér út í lífið. Gildir þá einu hvaða íþrótt það er enda skiptir mestu máli að barninu líði vel og það fái að njóta sín. Markmiðið ætti alltaf að vera að barnið öðlist aukið sjálfstraust og hafi gaman af æfingunum. Þegar barnið er orðið það stálpað að það geti verið sjálfstætt á æf- ingum er það því fyrir bestu að það fái að spreyta sig án aðstoðar frá foreldrum. Ef barn fær að stunda sína þjálfun á eigin for- sendum getur það gert það að verkum að barn endist mun leng- ur í þjálfun enda hefur það sýnt sig að áhrif foreldra hafa mikið með brottfall barna að gera. Áfram Ísland Á Íslandi erum við svo heppin að hafa allan þennan fjölda fag- lærðra þjálfara sem taka á móti börnunum og sinna því hlutverki á mjög faglegan hátt. Ég hvet þá foreldra sem þetta lesa til að bera virðingu fyrir þjálfurum barna sinna. Hér er ekki meiningin að gera lítið úr hlutverki foreldra enda eru þeir mikilvægar fyrir- myndir fyrir börnin. Á æfingum fylgja börn ákveðnum reglum sem kynntar eru í upphafi æfinga, það er ósanngjörn krafa að ætlast til þess að börn fari eftir reglum sem settar eru ef foreldrar eru ekki færir um að gera það sjálfir. Kæru foreldrar, það að þið séuð vel upplýst um líðan barna ykkar á æfingum skiptir miklu máli, jafnframt skiptir miklu máli að þið sýnið börnunum að þið hafið áhuga á íþróttinni og styðjið þau í því sem þau eru að gera. Það er vissu- lega alltaf þannig að foreldrar þekkja börnin sín best. Góð samskipti milli for- eldra og þjálfara skipta því miklu máli upp á upplýsingaflæði. Ef þér finnst barnið þitt ekki vera tilbúið að mæta á æfingar án þess að þú fylgist með þá er það eflaust rétt. Þá er um að gera að mæta og vera áhorfandi en stígðu nokkur skref aftur á bak og reyndu að tryggja að barnið þitt læri að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Allir foreldrar eiga það sam- eiginlegt að eiga börn sem eru það mikilvægasta sem til er; þá skiptir sköpum að vanda sína eig- in framkomu gagnvart annarra manna börnum því það sem sagt er í mikilli bræði og/eða af hvat- vísi getur haft skelfilegar afleið- ingar. Þarna úti eru margar litlar sálir með tilfinningar. Hróp og köll frá foreldrum inn á leiki eða æfingar ættu ekki að heyrast und- ir nokkrum kringumstæðum. Þeg- ar upp er staðið erum við öll í sama liði; liði sem byggir upp sterka einstaklinga framtíðar- innar. Virk þátttaka foreldra í íþróttum barna er vanda- samt verkefni Eftir Björk Varðardóttur Björk Varðardóttir » Góð samskipti milli foreldra og þjálfara skipta miklu máli. Höfundur er snyrtifræðingur, einka- þjálfari frá Keili og nemandi í íþrótta- fræði í HR. bjork18@ru.is Við Íslendingar er- um svo heppnir að það er næstum því sama hvar við borum holu eftir vatni í landinu okkar; við getum ákveðið fyrirfram hvort við ætlum að fá þetta yndislega kalda vatn okkar eða heitt vatn til annarra nota en drykkjar, þökk sé skapara okkar sem hefur úthlutað okkur þessu yndislega landi. Ég undirritaður varð fyrir því óláni að lamast á vinstri helmingi líkamans fyrir um það bil tíu árum og hef þurft að nota mér þá þjónustu sem í boði er fyrir fólk með mína fötlun og hef verið nokkuð víða í dagvist eða innlögn vegna fötlunar minnar. Lengst af var ég í dagvist hjá Sjálfsbjörg í Hátúninu hér í Reykjavík, þar sem margt, mikið og gott var í boði fyrir dvalargesti. Naut ég þess að komast ætíð einu sinni í viku í heita vatnið og með rétt útbúnum kútum gat ég synt nokkuð oft langsum eftir lauginni en uppi við bakkana gert æfingar með mínum lömuðu útlimum, fæti og handlegg. Tilgangur minn með þessu greinarkorni er að vekja athygli á því hvað heita vatnið er okkur sem glímum við líkamlega fötlun ótrú- lega dýrmætt; það að geta gert æf- ingar með annars máttlitlum fæti eða hendi sem annars svara kannski alls ekki boðum frá huga okkar. Það er ósegjanlega dýrmætt brotnum huga að finna sig geta haft þau áhrif á líkamann að hann svari þeim lágværu boðum sem hugur okkar kann að senda og geti fram- kvæmt þau boð sem máttlítill fótur kann að fá frá eiganda sínum. Það er því ekki bara líkaminn sem fer end- urnærður af hollri hreyfingu upp úr vatn- inu heldur er dvölin í vatninu ótrúlega mikil endurnæring fyrir brotinn huga og sannarlega mikil nær- ing sálartetrinu. Ég vil því endilega hvetja þá staði sem sjá um og taka á móti fötluðum í endur- hæfingu og hafa ekki þá aðstöðu sem vatnið gefur og er ég ekki að halda því fram að þeir staðir sem ekki hafa slíka aðstöðu geti byggt sér sundlaug bara si svona í hvelli. Það þarf enga fína sundlaug í svona aðstöðu; það nægir alveg að hafa sæmilega heita potta sem þurfa ekki svo mikið pláss og ætti að vera hægt að koma nokkuð víða við. Að- staðan þyrfti að vera þannig að hægt væri að velja milli eins til tveggja metra dýpis, því það sem gefur flestum tækifæri til að hreyfa sig talsvert í vatninu er að gera æf- ingar jafnt með handleggjum sem fótum. En endilega, þið sem eruð að byggja eða hanna nýja staði sem taka á móti fötluðum eða einstak- lingum sem hafa eitthvað bilaða heilsu; hafið í huga hvað heita vatn- ið okkar er dýrmætt, ekki bara ein- staklingunum sem þess njóta held- ur þjóðfélaginu sem heild og hjálpar einstaklingunum til þess að verða nýtir þjóðfélagsþegnar. Með allt þetta heita vatn okkar gæti Ísland orðið paradís fyrir fólk sem þarf á aðhlynningu í þessum málum að halda og mætti vel hugsa sér að Ísland eignaðist stað þar sem virkilega vel væri hugað að svona málum. Slíkan stað mætti útfæra með trjá- og blómagróðri og enn og aftur þá býður heita vanið okkar upp á óendanlega möguleika til þess að gera slíka staði sem suð- ræna paradís í umhverfi. Fyrirgefið, en nú er ég farinn að svífa um draumheima. Því í ósköp- unum byggjum við Íslendingar ekki upp virkilega góða og fallega að- stöðu sem heilsu- eða hressingar- stofnun fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda í heilsufarsmálum? Svona staður gæti haft fjölbreytta dag- skrá fyrir dvalargesti þar sem hver og einn gæti valið sér viðfangsefni eftir getu og áhuga og með allt þetta heita vatn ætti að vera hægðarleikur að útbúa umhverfi með fögrum gróðri og fallegri að- stöðu fyrir dvalargesti sem og starfsfólk þessara staða. Það er engin tilviljun að víða úti í heimi, þar sem einhver jarðhitavirkni er, eru svokallaðar heilsulindir þar sem þeir sem ekki ganga heilir til skóg- ar eru sagðir fá bata meina sinna. Má þar nefna Tékkland, Frakkland, Portúgal og fleiri staði í álfunni og auglýsa hótelin grimmt að þau séu búin þessum kostum. Sjálfur hef ég undirritaður komið í heilsulindir í Tékklandi, í Karlovy Vary, sem er í austanverðu hinu forna héraði Bæ- heimi, sem að stórum hluta mun enn þann dag í dag tilheyra Þýska- landi. Er á þessum slóðum framleitt mikið af hinum fagra fræga bæ- verska kristal sem er viðurkennd gæðavara um heim allan. Niður um alla borgina, þ.e. Prag, voru kristalsbúðirnar hlið við hlið og seldu allt frá litlum gripum, glös og fleira, og til stórra ljósakróna sem hefðu sómt sér vel í stórum kirkjum eða annars konar miklum salar- kynnum. Það var gaman að sjá þetta allt hjá Tékkunum. Þess má geta að í þessar heilsulindir kom ég undirritaður löngu áður en ég lam- aðist þannig að ekki kom til þess að ég prófaði lækningamátt vatnsins þeirra. Það eru ekki margar þjóðir sem státa af jafn miklu heitu vatni og við Íslendingar og það um allt landið. Nýtum endilega heita vatnið okkar sem allra best. Og notum til heilsu- bótar fyrir þá sem á þurfa að halda. Einn sem hefur verið bundinn við hjólastól í um það bil tíu ár. Heita vatnið og fatlaðir Eftir Hjálmar Magnússon » Því í ósköpunum byggjum við Íslend- ingar ekki upp virkilega góða og fallega aðstöðu sem heilsu- eða hressingarstofnun? Hjálmar Magnússon Höfundur er fv. framkvæmdastjóri en nú bundinn hjólastól. Ég er ung kona í rafmagnshjólastól. Í 25 ár hef ég þurft að notast við ferðaþjónustu fatlaðra, sem er gífur- lega hamlandi. Ég var í London um daginn og þar eru allir leigubílar með ramp og mjög auðvelt er að hóa í bíl hvenær sem er dags. Hér þarf að panta löngu fyrir fram og svo keyra þeir aðeins til miðnættis, eftir það þarf maður leigubíl sem er alls ekkert víst að komi. Það kostar fúlgur fjár að nota slíka bíla og einhvers staðar heyrði ég að hjólastólabíll væri 30% dýrari hér á landi en venjulegur bíll, en í London kostaði bíll með hjóla- stól það sama og venjulegur. Gugga. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Dýrt að nota ferða- þjónustu fatlaðra Aðgengi Auðveldara er að bera sig um í hjólastól í London en í Reykjavík. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.