Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 24

Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 ✝ Hafsteinn Pét-ur Alfreðsson fæddist í Reykjavík 29. janúar 1941. Hann lést á Hlé- vangi í Keflavík 11. október 2018. Foreldrar hans voru Hulda Hraun- fjörð Pétursdóttir húsfreyja, f. 1921 í Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi, d. 1995, og Alfreð Hólm Björnsson, bóndi og vörubílstjóri, f. 1915 á Skálum á Langanesi, d. 1998. Systkini: Björn Reynir (sam- feðra), f. 1937, d. 2015. Alsyst- kin: stúlka, f. 1942, d. 1942; Ósk- ar Mar, f. 1944 og Sæmundur Unnar, f. 1945. Hafsteinn kvæntist Borghildi H. Flórentsdóttur, f. 1941, þann 23.4. 1961. Þau skildu 1969. Börn þeirra: 1) Hulda, f. 23.12. 1960, maki Daníel G. Gunnars- son, f. 1952. Hulda á fjögur börn: Hjördís Eva, f. 1980, á tvö börn; Stefán Þór, f. 1981, á tvo syni; Árni Björn, f. 1983; Hjört- ur, f. 1991. 2) Alfreð, f. 6.1. 1963, maki Guðrún Hallgríms- dóttir, f. 1962. Þau eiga þrjú börn: Guðrún Theodóra, f. 1986; Haukur Viðar, f. 1989; Hildur Ágústa, f. 1991. Borghildur átti syni; Jóhannes Snævar, f. 1965, á fjögur börn; Hörður Snævar, f. 1966, á þrjú börn; Eiríkur Hafberg, f. 1971, á tvö börn; Kristján Reykdal, f. 1974, á þrjár dætur og þrjú barnabörn. Hafsteinn bjó fyrstu árin í Sogamýrinni þar sem foreldrar hans voru í einu herbergi hjá móðurforeldrum. Um þriggja ára flytur hann í Kópavoginn, þar sem faðir hann reisti sér íbúðarhús að Borgarholtsbraut 11 ásamt bróður sínum. Voru þau með fyrstu nýbúum á þessu svæði. Árið 1950, þegar Hafsteinn var níu ára, skiptu Hulda og Al- freð á íbúðinni í Kópavoginum og jörðinni Útkoti á Kjalarnesi og flutti fjölskyldan þangað. Þar gegndi Hafsteinn ásamt bræðrum sínum almennum bú- störfum en jafnframt kynntist hann þar einnig vélum þar sem Alfreð faðir hans var einnig vörubílstjóri. Hafsteinn sótti skóla í Kléberg á Kjalarnesi, var góður námsmaður sem hefði haft hug á að stefna í lengra nám, en aðstæður heima fyrir urðu til þess að hann hætti í skóla 14 ára og fór að vinna. Hafsteinn var fyrst og fremst vörubílstjóri alla tíð, byrjaði ungur að keyra, fyrst hjá Þrótti, ávallt með sinn eigin bíl eða sem verktaki. Auk þess var hann bóndi í tíu ár í Eystra-Fíflholti í Vestur-Landeyjum frá árinu 1990-2000. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. son fyrir; Árni, f. 28.2. 1959, hann á fjögur börn og tvö barnabörn. Hafsteinn kvæntist Kristínu G. Lárusdóttur, f. 1943, þann 24.12. 1971. Þau skildu 1986. Börn þeirra: 3) Ragnheiður Edda, f. 22.12. 1970. fv. maki Guð- laugur Ágústsson, f. 1965, þau eiga eina dóttur, Júlíönu Lind, f. 1997. 4) Hafsteinn Þór, f. 25.8. 1974, maki Maria Chernyshova, f. 1984, þau eiga tvö börn; Mykhaiil, f. 2008; Evgenia Kristín, f. 2014. 5) Arnar Þór, f. 2.3. 1982, maki Elísabeth Granneman, f. 1981. Þau eiga þrjú börn; Mathias, f. 2009; Al- freð, f. 2011; Ísabel Katla, f. 2013. Kristín átti þrjú börn frá fyrra hjónabandi, þau eru: Lára Guðmunda, f. 29.1. 1961, hún á fimm börn og fjögur barnabörn; Vilhjálmur Þór, f. 24.07.1963, hann á 3 syni; Hjördís, f. 17.10. 1964, hún á tvo syni og fjögur barnabörn. Eiginkona Hafsteins er Guð- rún Þ. Jóhannesdóttir, f. 18.6. 1943. Þau gengu í hjónaband 12. maí 1990. Guðrún á fjóra Nú ertu lagður af stað í þinn hinsta túr, elsku pabbi. Langan túr þar sem þú hefur nóg fyrir stafni eins og þér líkaði best. Já, vinnan var þér allt, allt fram á síðasta dag. Ekki einu sinni í veikindun- um tókstu frí … þú varst alltaf að. Að fylgjast með þér sein- ustu árin var sárt. Sárt að sjá hvernig sjúkdómurinn hrifsaði þig í burtu frá okkur svo eftir sat hjartað þitt hlýja og umbúð- irnar. En eftir standa góðar minn- ingar og við þær yljum við okk- ur núna. Mér er sérstaklega minnisstæð ein setning „við skulum sjá til“. Já pabbi minn, þessi setning minnir mig mikið á þig. Ég fékk oft að heyra þessi orð og sennilega oftar en mig langaði þá. Man eftir ótal skiptum þegar við vinirnir ætl- uðum í þrjúbíó en þá þurfti ég að byrja að impra á þessu við þig snemma dags því þú gast ekki með nokkru móti svarað já eða nei og það strax. Við skul- um sjááá til Edda mín … úff aftur sagði hann þessa setningu hugsaði ég. Og svo þegar svarið kom og það var jákvætt þá var komið að því að semja um aukakrónur fyrir poppi og kók. Þú stakkst upp á því að ég poppaði heima og blandaði Egilsdjús í brúsa og tæki með. Nei, pabbi, allir hinir mega kaupa sér popp og kók og af hverju þarf ég þá að taka nesti með mér? Þegar allt var klappað og klárt og samn- ingar í höfn þá mátti maður ald- eilis setja undir sig hausinn til að ná strætó sem þá gekk að mig minnir á klukkustundar fresti, ef ekki tveggja í Garða- bæinn … því ef maður missti af honum þá varð suðið til einskis, ég færi þá bara í bíó næst. Setninguna sem ég þoldi ekki tileinkaði ég mér hinsvegar óvart sjálf seinna í lífinu. Svara dóttur minni með henni óspart, fjölskyldunni, vinum og vinnu- félögum. Ég get ekki sagt að ég sé beint vinsæl þegar ég slæ henni fram, t.d. þegar mér er boðið í jólamat nú eða áramótahitting þá kemur þessi gullna setning „við skulum sjá til“. Þú varst lífsglaður húmoristi og ekki má gleyma gallharður sjálfstæðismaður, svo harður að þú fluttir í Norðurbakkann í Hafnarfirði og beint fyrir neðan þig var skrifstofa flokks- ins … stutt að fara á fund, svar- aðir þú. En þetta er bara eitt af mörgu sem kemur upp í hugann þegar ég læt hann reika. En takk fyrir ferðalagið, pabbi minn, elska þig mikið og meira en ég kom orðum að. Veit að þú ert kominn í kaffi með ömmu, afa og Agga frænda og þið kallarnir veltið fyrir ykkur bílum og vélum af öllum stærð- um. Berðu kveðju til þeirra og stórt knús. Þín dóttir, Edda. Elsku pabbi minn, þá er svo sárt að kveðja þig. En eftir harða baráttu við illvígan og andstyggilegan sjúkdóm var þetta kærkomin blessun og hvíld. En þakklátur er ég fyrir allan þann góða tíma sem við áttum saman. Mér þótti það alltaf gaman að fá að koma með í vörubílinn, hvort sem um skutl í skólann var að ræða eða bara nokkra rúnta upp í gryfjur og á vinnu- stað. Alltaf var notalegt og áhugavert að hringja eða kíkja í kaffi til ykkar Guðrúnar og spjalla um málefni líðandi stundar, því af nógu var að taka. Ég sakna þess og hef gert um nokkra hríð, þar sem veik- indin voru verulega farin að segja til sín síðastliðin tvö ár. Sá áratugur sem þið bjugguð í sveitinni fer seint úr minni. Óteljandi góðar stundir, mikil vinna erfið og krefjandi. En gleðin og ánægjan sem fylgdi þegar uppskeran kom var svo mikil að allt puðið gleymdist og ánægja og stolt tóku yfirhönd- ina. Þaðan á ég mínar bestu minningar í fallegri náttúru inn- an um skepnur, tæki og af- bragðsfólk allt um kring í sveit- inni góðu. Þú kenndi mér svo margt um lífið bæði beint og óbeint. Sá lærdómur hefur gagnast mér vel og mun að vonum ganga yfir til minna barna. Bílar og vélar voru þér hugleikin, og var aðdá- unarvert að sjá og upplifa kunn- áttu þína og skilning á hinum ýmsu tækjum. Og oftar en ekki leystirðu hin ýmsu vandamál og bilanir á góðan máta. Vinna átti hug þinn allan allt fram á síðustu stundu, sem þýddi líka færri samveru- stundir og minni frítíma, en alltaf var eitthvað sem þurfti að laga, breyta eða bæta. En í heild yfir varstu traust- ur, heiðarlegur, réttlátur, harð- duglegur og góð fyrirmynd. Ég kveð þig með þakklæti í brjósti og ljóði sem þú raulaðir fyrir mig á kvöldin þegar ég var háttaður og kominn uppi i rúm. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði og lífsins veginn greiði. Mig styrk í stríði nauða, æ styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Páll Jónsson) Ég mun ávallt geyma í brjósti mér þessar góðu minn- ingar um þig, elsku pabbi minn. Hvíl í friði, minningin lifir. Þinn sonur. Hafsteinn Þór. Núna ertu kominn á leiðar- enda, elsku pabbi minn, úr þín- um allra seinasta túr og laus við þennan illvíga sjúkdóm Alz- heimer. Þú varst alla tíð iðinn og vinnusamur, sennilega sá duglegasti sem ég hef þekkt. Alinn upp að mestu í Hvalfirði á bænum Útkoti. Vörubílstjóri nánast alla þína tíð, að frátöld- um 10 árum sem bóndi í Vestur-Landeyjum. Ég á svo margar góðar minn- ingar um okkur saman að brasa eitthvað hvort sem það voru sveitastörf eða eitthvað annað. Þú varst alltaf úrræðagóður og varst vanur að bjarga þér, mað- ur orða þinna. Hafsteinn er nafn sem lýsir þér best, klettur í hafi sem stendur sína vakt sama hvað á dynur. Það var alltaf stutt í húmorinn þinn og eins og þú hreinlega nenntir ekki að sóa tíma í að ergja þig á smáatriðum. Þú hafðir keypt seinasta nýja vörubílinn þinn Volvo FH 480 árið 2007. Þá sjálfur orðinn 66 ára og mér fannst eins og þig langaði að keyra í nokkur ár í viðbót, enda alltaf við góða heilsu og hafðir gaman af starf- inu. Ári seinna var allt gjör- breytt og við tóku miklar áhyggjur sem ég trúi að hafi gengið þér mjög nærri. Þá lík- lega með sjúkdóminn á frum- stigi. Það var gríðarlega sárt að sjá og heyra af því hvernig Lýs- ing hf. beitti sér af hörku og viðhélt sínum óheiðarleika allt fram á seinustu stundu. Þar sem þú varst alltaf vanur að standa við þína samninga ólíkt Lýsingu, varð það þér svo erfitt að sætta þig við stöðuna sem upp var komin. Þótt þú hafir lít- ið talað um þetta vissi ég hvern- ig þér leið. Þetta álag tók þig frá okkur mun fyrr en annars hefði orðið, það er ég viss um. Í sveitinni var margt brasað, t.d. gáfuð þið Guðrún mér Trab- ant 601 sem er enn til. Þær voru ófáar ökuferðirnar sem við feðgar fórum í um landareign- ina á þessum bíl. Í einni ferð- inni gaf sig heddpakkning í honum og eins og þér einum var lagið smíðaðir þú nýja pakkningu, hún er enn í honum. Einn vetrardag í sveitinni komst þú labbandi neðan úr mýri svolítið skömmustulegur, en þú hafðir verið að gefa hest- unum á traktornum. Á klaka- bunka hafðir þú „lent“ í því að spóla traktornum í hálfhring þar til hann greip í fast og valt á hliðina. Þú gast ekki annað en hlegið að þessu. Þú varst alltaf mjög laginn við að keyra, sér- staklega vélar af gamla skól- anum. Í Fíflholti var gamall Ford-vörubíll sem var notaður heima við, hann var látinn renna í gang og því svo til bremsulaus. Þú fórst svo létt með að láta hann renna af stað, detta í gang, skella í bakkgír og bakka upp brekkuna. Þetta gat nú ekki verið flókið hugsaði ég. Ég reyndi þetta, en fór nú bara niður brekkuna á vörubílnum með eitt hlið með mér. En sein- ustu árin voru þér afar erfið, Þar sem sjúkdómurinn ágerðist mjög hratt og hamlaði þér al- gjörlega í einu og öllu. Orðin þín týndust eitt af öðru og þú þurftir að nota hjólastól. En þegar við horfðumst í augu náð- um við oftast saman, þó ekki alltaf. Elsku pabbi minn, núna kveð ég þig í seinasta skipti. Takk fyrir allar samverustund- irnar og alla hjálpina. Arnar Þór Hafsteinsson. Pabbi greindist með Alzheim- er fyrir þremur árum. Sjúk- dómurinn lagðist með fullum þunga á föður okkar og var nöt- urlegt að horfa upp á hraustan mann sem alla tíð vann mikið og var sjálfstæður með allt, hverfa inn í óminnisheim. Hann sem átti að eiga sín bestu ár um þessar mundir. Frá unga aldri var pabbi meira og minna í vinnunni. Hann flutti níu ára í Útkotið með foreldrum sínum, og eins og títt var byrjuðu börn að vinna ung, hann var að sjálf- sögðu fyrst að hjálpa foreldrum sínum með búið, en á unglings- aldri var hann m.a. fjósamaður í Hvammsvík í Kjós, og á Esju- bergi á Kjalarnesi. Þá var hann í byggingarvinnu við Reykja- lund um 15-16 ára. Oft á tíðum gekk hann alla leið frá Útkoti. Þegar pabbi var 16 ára keypti hann jarðýtu sem hann notaði í vegagerðina í Hvalfirði, upp frá því vann hann sjálfstætt. 17 ára keypti hann fyrsta vörubílinn, Studebaker, og keyrði hjá vega- gerðinni. Fyrst var hann í bíl- stjórafélaginu Goða, sem síðar rann inn í Þrótt. Þar keyrði hann í mörg ár. Hann var ávallt með sinn eigin bíl eða sem sjálf- stæður verktaki. Árið 1990 söðlaði hann um og gerðist bóndi að Eystra Fífl- holti í V-Landeyjum í 10 ár. Hann naut bústarfa, en sneri aftur til akstursins sem átti hug hans allan, allt þar til yfir lauk. Því þegar minnið fór að dvína þá leitaði hugurinn alltaf í keyrsluna og voru ófáar stund- irnar sem hann hélt sig vera að koma úr ferð – eða fara í aðra ferð. Enda sat pabbi aldrei auð- um höndum, var árrisull með eindæmum og einstaklega vinnusamur. Vörubílar og bílstjórar voru og eru í okkar ætt, í allar áttir ef svo má segja. Ekki var til fólksbíll á heimilinu þegar við eldri börnin vorum lítil, allar ferðir voru farnar á vörubílnum. Jafnvel í útilegu í Galtalæk, þá var farið á vörubílnum. Okkur þótti viðburður að setjast í fólksbíl, og fyrsti fólksbíllin sem við munum eftir hjá pabba, var Ford Taunus og var hann með plötuspilara. Það fannst okkur æðislegt. Pabbi var spaugsamur og hafði gaman af að segja frá þegar hann 16-17 ára fór einn túr á Neptúnus, átti hann að færa skipsfélögum sínum mat á bakka fram í lúkar. Eitthvað var veltingurinn mikill þannig að bollurnar rúlluðu af bakk- anum á dekkið. Hann gerði sér lítið fyrir og hljóp á eftir bollunum og kart- öflunum, skellti þeim aftur á bakkann og karlarnir átu þær síðan með bestu lyst, en skip- stjórinn sem sá til, hrósaði hon- um í hástert fyrir snaggaraleg viðbrögð. Auðvitað eigum við margar minningar með pabba sem föð- ur með okkur krakkana í leik og starfi, en þær hefðu mátt vera fleiri. Við fórum stundum í sund og var þá kannski keyptur ís. Það er stór barnahópurinn sem hef- ur verið í kringum pabba alla tíð, því auk okkar fimm barna hans, átti hann stjúpbörn og fullt af barna- og barnabarna- börnum. En hans tími var alltaf í vinnunni, sem minnir okkur á að við þurfum líka að njóta augnabliksins. Pabbi var orðvar maður, hæglátur, með mikið jafnaðar- geð sem ekki var haggað, en alltaf var stutt í spaugið og gat hann verið mjög orðhnyttin. Með pabba er genginn ákaf- lega heiðarlegur, traustur og góður maður. Hulda og Alfreð Hafsteinsbörn. Kvöldið 11. október fann ég mig knúinn til að hringja í Guð- rúnu konu Hafsteins til að frétta af líðan míns gamla vinar, skólabróður og sveitunga, Haf- steins frá Útkoti. Sat hún þá við dánarbeð manns síns. Næsta dag frétti ég að Hafsteinn hefði skilið við um klukkustund eftir að ég hringdi. Alzheimers-sjúk- dómurinn lagði þennan ljúfa sómamann að velli. Ég hitti Hafstein í síðasta skiptið á Hlévangi fyrir um tveimur mán- uðum, þá sviptur persónuleika, minni og gleði sem var rík í hans lífi. Ég lék á nikkuna fyrir vistmenn og það gladdi mig virkilega er Hafsteinn klappaði veiku klappi eftir hvert lag. Ég kom 12 ára inn í sam- félagið á Kjalarnesi, þá mótaður frá afskekktu byggðarlagi á Hafsteinn Pétur Alfreðsson Fyrir stuttu bár- ust okkur þær sorgarfréttir að vinur okkar, hann Geiri, hefði kvatt þennan heim. Við vinkonurnar kynnumst Geira í bæjarvinnunni árið 1989 þar sem við vorum í sumar- vinnu. Við urðum strax vinir og var hann okkur alltaf ótrúlega góður. Það var mjög þægilegt að Ásgeir Einar Steinarsson ✝ Ásgeir EinarSteinarsson fæddist 18. apríl 1958. Hann lést 6. október 2018. Ásgeir var jarð- sunginn 24. októ- ber 2018. vinna með honum, Geiri var alltaf svo hjálplegur og það var mikið hlegið og fíflast í vinnunni, okkur leiddist sjaldan. Ef eitt- hvert sprell var í gangi var Geiri allt- af tilbúinn að taka þátt enda einstak- lega léttur í lund. Það sem kemur fyrst upp í minningunni eru ótal skemmtilegar ferðir í Þórs- mörk, sem við elskuðum öll að heimsækja. Kom fyrir að við værum að vinna á laugardegi og það var ákveðið samdægurs að gaman væri að skella sér í Mörkina, það var pakkað í hraði og brunað úr bænum eftir vinnu. Svona óvæntar ferðir urðu að skemmtilegustu ferðun- um. Eitt sinn fórum við í ógleym- anlega ferð upp á Sólheimajök- ul, þar sem við lékum okkur á vélsleða og skíðum í bongóblíðu, skelltum okkur á eftir í sund í Seljavallalaug, þar tóku á móti okkur naktir Þjóðverjar sem vildu ekki hlýða fyrirmælum starfsmanna um að skipta um föt í búningsklefa eins og allir aðrir og fannst gaman að ögra öðrum gestum laugarinnar. Þessu hlógum við mikið að, svo var endað eins og venjulega í yndislegu Þórsmörkinni og yfir- leitt urðu Básar fyrir valinu, þar sem grilluð var yndisleg máltíð og sungið fram eftir nóttu. Geiri var alveg ótrúlega hjálplegur í eðli sínu, dekraði við alla í kringum sig og var ótrúlega góður við alla sem hann átti í samskiptum við. Við værum ótrúlega rík þjóð ef allir væru eins góðhjartaðir og Geiri, ekkert slæmt til í þessum dreng og ótrúlega ljúfur og við erum öll ríkari að hafa kynnst þessum gæðadreng. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt og hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þökk fyrir allt, Geiri, þínar vinkonur, Selma Gísladóttir og Sandra Margrét Björgvinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.