Fréttablaðið - 04.03.2019, Qupperneq 2
ÖSKUDAGSFJÖR
í Hókus Pókus!
Verslun og vefverslun
Laugavegi 69 S. 551-7955
www.hókuspókus.is
Daglegt brauð
Margt var um manninn í Hörpunni um helgina þegar árlegur Matarmarkaður
Íslands fór þar fram. Fjölmörg fyrirtæki kynntu þar gómsæta framleiðslu sína,
Þessi unga stúlka stóð vaktina í bás frá Brauði & co. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNSÝSLA HS Veitur, sem eru
að stærstum hluta í eigu sveitar-
félaga, neita að veita Fréttablaðinu
sundurliðaðar upplýsingar um
launagreiðslur til y f irstjórnar
fyrirtækisins.
Ógag nsæi einkennir f r a m-
setningu í nýbirtum ársreikningi
HS Veitna. Forstjórinn segir árs-
reikninginn standast lög og reglur
og að stjórnarákvörðun þurfi fyrir
frekari upplýsingagjöf. Bæjarstjóri
Reykjanesbæjar telur líklegt að
óskað verði eftir upplýsingum um
málið.
HS Veitur eru í meirihlutaeigu
Reykjanesbæjar sem á 50,1 prósent
í fyrirtækinu, HSV eignarhalds-
félag Heiðars Guðjónssonar á tæp
34 prósent og Hafnarfjarðarbær
rúm 15 prósent. Félagið var stofnað
í árslok 2008 í kjölfar skiptingar
Hitaveitu Suðurnesja hf. í HS Orku
og HS Veitur. Annast félagið dreif-
ingu á rafmagni og vatni.
Ólíkt því sem gengur og gerist
eru greiðslur til sjö manna stjórnar
félagsins og fjögurra manna fram-
kvæmdastjórnar sem forstjórinn
tilheyrir ekki sundurliðaðar í árs-
reikningi félagsins. Aðeins er gefin
upp samtala heildarlaunagreiðslna
til þessara ellefu einstaklinga sem
námu 112 milljónum á síðasta ári
samanborið við 105 milljónir árið
áður.
Í ljósi þessa ógagnsæis óskaði
Fréttablaðið eftir sundurliðun á
þessum launatölum hjá forstjóra
félagsins, Júlíusi J. Jónssyni. Hann
telur sig ekki geta veitt þær upp-
lýsingar.
Júlíus bendir á að þarna sé verið
að tala um laun framkvæmda-
stjórnarinnar, stjórnar auk tilfall-
andi launa varamanna auk mót-
framlags í lífeyrissjóði.
„Skýringin eins og hún er í
reikningnum er í samræmi við lög
og reglur og breytingar verða ekki
gerðar á þessari upplýsingagjöf
nema stjórn félagsins samþykki
það sérstaklega þannig að ég get
ekki gefið frekari upplýsingar á
þessu stigi,“ segir í skrif legu svari
forstjórans við fyrirspurn blaðsins.
Fréttablaðið leitaði viðbragða
hjá bæjarstjóra Reykjanesbæjar,
Kjartani Má Kjartanssyni. Hann
kvaðst ekki hafa séð ársreikning-
inn sjálfur.
„Mér þykir þó ekki ólíklegt að
Reykjanesbær óski eftir nánari
sundurliðun á aðalf undinum
sem fram fer þann 27. mars,“ segir
Kjartan Már. Fulltrúi sveitarfélags-
ins á fundinum verður formaður
bæjarráðs, Friðjón Einarsson, en
stjórnarformaður HS Veitna, fyrir
hönd sveitarfélagsins, er bæjarfull-
trúinn Gunnar Þórarinsson.
mikael@frettabladid.is
Neita að sundurliða
laun lykilstjórnenda
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar telur að óskað verði sundurliðunar á greiðslum
til lykilstjórnenda HS Veitna á aðalfundi. Framsetning á launagreiðslunum er
ógagnsæ í ársreikningi og forstjórinn synjaði Fréttablaðinu um sundurliðun.
Hagnaður HS Veitna, sem er að stærstum hluta í eigu sveitarfélaga, dróst
saman milli ára og nam 682 milljónum króna í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar.
Veður
NA 8-15 eftir hádegi og dálítil él,
en léttir til S- og V-lands. Hiti 0 til
5 stig, Hiti nálægt frostmarki og
mildast syðst. SJÁ SÍÐU 20
40
°C 81°C
18-4
°C 51
°C
3-2
°C
FÉLAGSMÁL Þorbjörg Þorvaldsdóttir
var sjálfkjörin sem formaður Sam-
takanna �78 á aðalfundi í gær.
Þorbjörg er við doktorsnám í
íslenskri málfræði við Háskóla
Íslands. Hún er kvænt Silju Ýr S.
Leifsdóttur lífeindafræðingi og eiga
þær eina dóttur. Þorbjörg er tvíkyn-
hneigð að því er segir í tilkynningu
frá Samtökunum �78.
Þorbjörg sagði á fundinum í gær
að þótt ekki væri eftirsóknarvert að
vera fordómafullur gagnvart hin-
segin fólki á Íslandi í dag þá væri
ofbeldi og mismunun gegn hinsegin
fólki staðreynd. „En stundum er
okkar helsta vandamál það að fólk
áttar sig ekki á því hvenær það er
fordómafullt og hvenær ekki.“ – gar
Samtökin �78 fá
nýjan formann
Þorbjörg Guð-
mundsdóttir.
Fleiri ljósmyndir af markaðnum er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
EUROVISION „Keppnin var æðis-
leg,“ segir Klemens Hanningan,
einn liðsmanna Hatara sem sigraði
í Söngvakeppni Sjónvarpsins á
laugardagskvöld.
Hatari verður því fulltrúi Íslands
í Eurovision-keppninni í Ísrael um
miðjan maí.
„Að skapa krítíska umræðu og
vekja athygli á dystópíunni sem er
að eiga sér stað,“ svarar Klemens
spurður um aðalmarkmið Hatara
í Ísrael.
Meðlimir Hatara skoruðu á dög-
unum á Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísraels, að keppa við
þá í íslenskri glímu. „Hann hefur
ekki svarað okkur ennþá,“ segir
Klemens. „En við bíðum spenntir
eftir svari og við erum sannfærðir
um að hann muni samþykkja áskor-
un okkar.“
Aðspurður hvort hann telji til-
teknar þjóðir umfram aðrar munu
styðja Hatara svarar Klemens: „Evr-
ópa sér Hatara í spegilmynd og mun
taka þessari viðvörun.“
Klemens segir keppnina á laugar-
dagskvöld hafa verið mjög ánægju-
lega. „Það stóðu sig allir með prýði
og keppnin gekk alveg samkvæmt
áætlun.“
Ekki er óþekkt að listamenn
breyti atriðum sínum frá undan-
keppninni og fram að aðalkeppn-
inni. Klemens segir að Hatari muni
gera miklar breytingar. „Það verður
ennþá meiri eldur.“ – gar
Boðar meiri
eld í Ísrael
Klemens Hannigan og Matthías
Haraldsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-B
F
D
8
2
2
7
8
-B
E
9
C
2
2
7
8
-B
D
6
0
2
2
7
8
-B
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K