Fréttablaðið - 04.03.2019, Side 16

Fréttablaðið - 04.03.2019, Side 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Þegar unga fólkið kemur hingað og er að gera upp baðherbergið þá tekur það undantekningar- laust svart,“ segir Íris Jensen hjá Inn- réttingum og Tækjum í Ármúla 31. Fyrirtækið hennar er ekki það stærsta í bransanum en hún hefur vart undan að sækja vörur niður á höfn. Nú eru það sturtubotnar frá Gala á Spáni sem seljast eins og heitar lummur. „Botnarnir eru úr granít/Stonex efni sem er sérstaklega endingar- gott. Það er hægt að skera af botninum til að aðlagast veggjum og efnið er sett beint á gólfið. Það þarf ekkert að þrífa neinar fúgur eða neitt vesen. Þetta er til í svörtu, drapplituðu og hvítu og gráu og við erum að fá sendingu í hverri einustu viku af þessum botnum. Það er brjálað að gera í þessu og við erum mjög ánægð með þær góðu viðtökur sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt þessum nýjungum,“ segir hún. Botninn er gerður fyrir opnar sturtur, svokallaðar „walk in“ sturtur. Gala-sturtubotnarnir fást í eins til tveggja metra lengdum og koma tilbúnir með innbyggðum halla sem auðveldar alla upp- setningu til muna. Flísarnar eru í þriggja sentimetra þykkt og er hægt að skera eftir máli þannig að þær passa inn í flesta sturtuklefa og sturtulausnir. Í versluninni er einnig merki- legt úrval af handklæðaofnum. Þar hefur hönnun tekið öll völd og hægt er að fá mjög fallega ofna, sem sumir minna frekar á skúlptúra en hinn hefðbundna ofn. „Litirnir á ofnana eru valdir eftir litakorti og skiptir engu hvort hann sé íturbleikur eða gulur eða rauður. Þetta er orðið meiri skúlptúr og mikil hönnun á bak við handklæðaofninn. Það er til handklæðaofn í and- dyrið sem er með snögum á og í raun er það þannig að úrvalið er nánast endalaust. Það tekur um þrjár til fjórar vikur að panta ofn sem er ekki til hjá okkur á lager.“ Fyrir utan svörtu, möttu blönd- unartækin frá FIMA Carlo Frattini á Ítalíu fást einnig litaðar hand- laugar og lituð salerni frá GLOBO. Það er í raun merkilegt að ganga inn í verslunina og skoða úrvalið og litavalið af þessari gæðaframleiðslu frá Evrópu. „Globo er til í öllum litum og nán- ast í hvaða hönnun sem er,“ segir Íris og sýnir nokkra vaska og upp- hengd salerni í mismunandi litum og lögun. „Svo má ekki gleyma litla dekurhorninu okkar þar sem sápur og annað frá Ítalíu og Spáni er að finna. Eða snjallspeglinum sem seldist upp á skömmum tíma. Spegillinn er með hátalara og sýnir hitastig og annað. Ljós í hill- unum og eitthvað fleira. Ég hélt að ég myndi ekki selja einn einasta en hann rann út og er uppseldur.“ Það er vel þess virði að rúlla í Ármúla til Írisar og skoða úrvalið. Þar er vel tekið á móti öllum. Framhald af forsíðu ➛ Sturtuklefarn- ir geta komið í alls konar útfærslum og í Ármúla er hægt að finna sína lausn. Handklæða- ofnarnir taka á sig margar myndir og koma í ótal litum. Rauði ofninn er ekkert minna en stórkostlegur. Hönnun á hæsta stigi. Íris segir að unga fólkið sé mjög hrifið af svörtu. Þarna má sjá granítbotninn í sturtunni sem er svo vinsæll þessa dagana að ný sending kemur til landsins frá Spáni í hverri viku. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -D D 7 8 2 2 7 8 -D C 3 C 2 2 7 8 -D B 0 0 2 2 7 8 -D 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.