Fréttablaðið - 04.03.2019, Síða 46

Fréttablaðið - 04.03.2019, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is VIÐ BIÐJUM ALLA SEM HAFA FENGIÐ BOÐSMIÐA HINGAÐ TIL Í GEGNUM ÁRIN AÐ SÝNA ÞESSU SKILNING OG HJÁLPA OKKUR AÐ DREPA NIÐUR ÞENNAN SÉRÍSLENSKA BOÐSMIÐA­ KÚLTÚR, SEM ER AÐ SLIGA HÁTÍÐINA. www.husgagnahollin.is 558 1100 Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafjörður Skeiði 1 LOKADAGUR 339.992 kr. 399.990 kr. PINNACLE 3ja sæta La-Z-Boy sjónvarpssófi. Svart eða brúnt leður. Stærð: 210 × 95 × 105 cm HELGARTILBOÐANNA KAMMA Þriggja sæta sófi með viðar- fótum. Dökkgrátt eða ljósgrátt áklæði. Stærð: 201 x 84 x 105 cm 104.993 kr. 139.990 kr. MATI Opinn hornsófi. Dökkgrátt áklæði. Stærð: 284 x 213 x 80 cm 239.994 kr. 399.990 kr. HABOR TOWN La-z-boy hægindastóll. Svart eða brúnt leður. St.: 87 × 98 × 110 cm 143.992 kr. 179.990 kr. Við erum hér til að bjarga hátíðinni Ísleifur segir að árið 2019 sé úrslitaár, því að hátíðin þoli ekki svipað tap núna og síðustu ár. Ísleifur Þórhallsson, hátíðarstjóri Iceland Airwaves, segir breytingar og nýjung- ar í farvatninu þegar kemur að hátíðinni. Boðsmiðar verða alfarið úr sögunni og sérstakur sjóður settur á laggirnar fyrir frambærilegustu íslensku böndin. Ísleifur segir síðustu Airwaves-hátíð hafa gengið mjög vel og 500 tónleika verið haldna á fjórum dögum. „Viðbrögðin frá gestum, tónlistarmönn- um og virðulegum fjölmiðlum um allan heim hafa verið gríðarlega jákvæð að hátíð lokinni. Þegar þungavigtarfjölmiðlar úti í heimi segja að Ice land Airwaves sé besti staður í heimi til að uppgötva nýja tónlist, þá er verið að gera eitthvað rétt. Fjárhagslega kom hátíðin þó enn og aftur illa út. En við vissum að við þyrftum að halda eina hátíð til að læra almennilega á hana og litum alltaf á það sem 3-5 ára verkefni að koma rekstrinum í lag. Þetta voru dýrmætar lexíur síðast og við teljum að með þeim breytingum og nýjungum sem við höfum nú ákveðið að innleiða muni þetta loksins takast. En það má segja þetta sé úrslitaár, því hátíðin þolir ekki svipað tap núna og síðustu ár, það verður að sjást núna að það sé að minnsta kosti hægt að nálgast núllið. Það er erfitt að hugsa það til enda að Iceland Airwaves hverfi og hætti að vera til, en við verðum að muna að það er ekki náttúrulögmál að hátíðin sé til. Tapið af rekstri hennar síðustu þrjú ár fer að slaga í 200 milljónir og það þarf að stöðva þessa blæðingu.“ Sprengjur á leiðinni Ísleifur segir að til standi að fækka bæði böndum og tónleikastöðum, það hafi einfaldlega verið of mikið af hvoru tveggja síðast. „Þetta þýðir að slottum fækkar talsvert sem þýðir aftur að þau verða verð- mætari fyrir þau bönd sem koma fram. Fleiri bönd munu einnig spila tvisvar, en þar erum við ekki bara að spara heldur að svara kalli gestanna. Við munum halda áfram að leggja áherslu á grunntilgang hátíðarinnar; að vera „showcase“ fyrir íslensku tónlistarsenuna, sem er þekkt undrafyrirbæri um allan heim. Það verður f lott úrval af „up and coming“ erlendum böndum en þeim mun fækka; á móti kemur meiri áhersla á að bóka nokkur erlend bönd í stærri kantinum, ekki síst til að fá Íslendinga til að stunda hátíðina í meiri mæli.“ Undirbúningur fyrir næstu hátíð er ansi langt kominn og þegar sé búið að bóka stór bönd. „Já, það eru sprengjur á leiðinni, bæði í íslensku og erlendu deildinni, og það stefnir í einstaklega f lotta hátíð í ár.“ Airwaves Plus sjóður stofnaður „Frumtilgangur Airwaves er að vera „showcase“ fyir íslensk bönd, hátíðin er gríðarlega mikilvæg fyrir alla tónlistarsenuna og er stökk- pallurinn fyrir öll bönd sem hafa slegið í gegn erlendis. Við viljum einfaldlega styrkja enn frekar þennan hluta hátíðarinnar og taka beinan þátt í því að styrkja góðar sveitir áfram til góðra verka. Þetta virkar þannig að eftir hverja hátíð eru þrjú bönd valin sem komu fram á Airwaves og fá þau fjármagn til að reka sig í ein- hvern tíma. Hugmyndin er að efni- legar sveitir sem eru að stíga sín fyrstu skref geti einbeitt sér að tón- listinni og fái aðstoð við að koma sér á framfæri. Sérstakt ráð velur eina sveit, Airwaves-teymið velur eina og svo kýs almenningur besta nýliðann.“ Allir boðsmiðar úr sögunni Ísleifur segir sjóðinn fjármagnaðan á tvo vegu. „Í fyrsta lagi rennur hluti af Airwaves Plus tekjum í sjóðinn. Plus er nokkurs konar klúbbur fyrir hina sjóðheitu tónlistaráhugamenn og aðdáendur Airwaves; með því að ganga í Plus styrkirðu gott málefni en færð einnig alls konar fríðindi. Hin fjármögnunarleiðin kemur út úr því að við erum að leggja niður með einu og öllu allt sem heitir boðsmiðar, en þeir eru risastórt vandamál í rekstri hátíðarinnar. Um er að ræða aðallega bransann, listamenn og samstarfsaðila. Þeir sem eiga inni hjá okkur frí- miða næstu árin samkvæmt samn- ingum verða beðnir um að greiða sérstakt færslugjald per miða sem rennur óskipt í sjóðinn. Listamenn fá tækifæri til að kaupa allt að 10 miða með 50 prósenta afslætti í stað þess að fá einn frímiða. Ef við myndum engu breyta þyrftum við að gefa hátt í 2.000 boðsmiða á hverja hátíð sem er að verðmæti sirka 30 milljónir og þetta gengur einfaldlega ekki upp. Það er ómögulegt að ná tökum á þessu öðruvísi en að einfaldlega ganga alla leið og leggja boðsmiða niður með öllu. Við biðjum alla sem hafa fengið boðsmiða hingað til í gegnum árin að sýna þessu skilning og hjálpa okkur að drepa niður þennan sér- íslenska boðsmiðakúltúr, sem er að sliga hátíðina. Við erum hér að reyna að bjarga hátíðinni. Frá þessari stundu er miðakerfið þannig gert að það er bókstaf lega ekki hægt að búa til boðsmiða á Iceland Airwaves. Ég bið því alla þá sem hingað til hafa fengið boðs- miða á Iceland Airwaves að vin- samlegast ekki drepa mig,“ segir Ísleifur að lokum. 4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -C E A 8 2 2 7 8 -C D 6 C 2 2 7 8 -C C 3 0 2 2 7 8 -C A F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.