Morgunblaðið - 21.11.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.11.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 20% afsláttur af hreinsun/ þvotti á gluggatjöldum út nóvember Traust og góð þjónusta í 65 ár Álfabakka 12, 109 Reykjavík • s 557 2400 • www.bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veggjöld fjármagni vegagerðina  Samgönguráðherra boðar uppbyggingu umferðarmannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum  Boðar niðurstöður varðandi borgarlínu, innanlandsflug og breytta gjaldtöku í vegakerfinu á Íslandi Baldur Arnarson baldura@mbl.is Viðræðuhópur Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og ríkisins hefur skilað niðurstöðu varðandi samgöngur á höfuðborgar- svæðinu. Þar er m.a. fjallað um áform um borgarlínu. Fulltrúar ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu munu nú yfirfara tillögurnar. Þær verða ekki birtar opinberlega fyrr en þeirri yfirferð lýkur. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir niðurstöð- urnar mikilvæg- an áfanga í að ná sameiginlegri sýn á uppbyggingu samgöngumann- virkja á höfuð- borgarsvæðinu. Núverandi samn- ingur ríkis og sveitarfélaga varðandi eflingu almenningssamgangna á höfuðborg- arsvæðinu, á kostnað uppbyggingar samgöngumannvirkja, renni út árið 2022. Augljóst sé að taka verði upp þann samning. Samningurinn var gerður 2012 og gildir til 2022. Á tímabilinu fær Strætó meira fé. Fjármögnun langt komin Haft var eftir Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, formanni skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborg- ar, í Morgunblaðinu í byrjun mán- aðarins að viðræður væru langt komnar milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um fjármögn- un borgarlínu. Þá sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í samtali m.a. að skýrslu um eflingu innan- landsflugsins sem er að koma fram. Hún getur hugsanlega skilað ein- hverjum tillögum í vinnu umhverfis- og samgöngunefndar. Starfshópur um nýja fjármögnun og breytta gjaldtöku í vegakerfinu gæti líka verið að skila af sér ákveðnum hug- myndum sem munu þá nýtast í vinnunni í umhverfis- og samgöngu- nefnd,“ segir Sigurður Ingi. Hann segir aðspurður m.a. horft til þess að nýta slíka gjaldtöku við uppbyggingu þjóðvega frá höfuð- borgarsvæðinu. við Morgunblaðið sl. föstudag að tíð- inda væri að vænta af borgarlínu. Sigurður Ingi segir umhverfis- og samgöngunefnd leggja mikla vinnu við að ljúka samgönguáætlun fyrir jólahlé þingsins. „Núverandi samgönguáætlun rennur út um áramótin. Það er mik- ilvægt að ná að klára hana í þinginu þannig að við höfum heimildir til að fara af stað strax á nýju ári. Á sama tíma erum við að ljúka mörgum mikilvægum verkefnum sem við höfum unnið að samhliða vinnu þingsins að samgönguáætluninni. Þá Sigurður Ingi Jóhannsson Hagnaður Eimskipafélagsins nam 6,6 milljónum evra, jafnvirði 928 milljóna króna, á þriðja ársfjórðungi, saman- borið við 8,8 milljónir evra á sama fjórðungi í fyrra. Nemur samdráttur- inn ríflega 28% milli tímabila. Þannig dregst hann saman þótt félagið hafi aukið tekjur sínar verulega. Þannig jukust tekjurnar um 4,8% frá þriðja fjórðungi 2017 og námu 182,2 milljón- um evra, jafnvirði 25,6 milljarða króna. Segir í tilkynningu frá félaginu að slakari afkomu megi rekja til sam- dráttar í starfsemi félagsins í Noregi sem nemur 1,7 milljónum evra, jafn- virði 239 milljóna króna, rekstraráfalla þegar frystiskip biluðu og þá hafi af- koma af flutningsmiðlun dregist sam- an um 1,4 milljónir evra, jafnvirði 197 milljóna króna, miðað við fyrra ár. Á fyrstu 9 mánuðum ársins hagnaðist Eimskip um 9,2 milljónir evra, jafn- virði tæplega 1,3 milljarða króna, sam- anborið við 13,9 milljónir evra, jafn- virði tæplega 2 milljarða króna, á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Tekjur félagsins á fyrstu níu mán- uðum ársins jukust um 4,6% eða 22,2 milljónir evra, jafnvirði 3,1 milljarðs króna. Rekstrargjöldin jukust hins vegar um 6,3% eða 27,7 milljónir evra. EBITDA félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 39,8 milljón- um evra, jafnvirði 5,6 milljarða króna og lækkar um 12,1% frá fyrra ári. Af- komuviðvörun sem gefin var út í sept- ember og kveður á um að EBITDA fyrir árið í heild verði 49-53 milljónir evra helst óbreytt. ses@mbl.is Hagnaður Eimskips dregst saman um ríflega 28%  Afkomuspá félagsins helst óbreytt frá því í september Morgunblaðið/Árni Sæberg Flutningar Hagnaður Eimskipa- félagsins er undir væntingum. Eyþór Arnalds, oddviti borgar- stjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins, segir að vandi leikskól- anna í borginni sé ekki skortur á húsnæði heldur mannekla. Hann telur að bæta megi úr mannekl- unni með því að ráða fólk með bak- grunn í tónlist eða öðrum listum og íþróttum til að örva sköpun og hreyfingu í leikskólum, fáist ekki menntaðir leikskólakennarar. Eyþór segir að vandi leikskólanna í Reykjavík sé í aðalatriðum þrí- þættur. „Í fyrsta lagi hafa biðlistar verið langir, þrátt fyrir að því hafi verið lofað fyrir 16 árum að þeir yrðu engir fyrir 18 mánaða börn,“ segir Eyþór. „Í öðru lagi var börnum vísað heim úr leikskólum síðasta vet- ur vegna skorts á starfsfólki. Í þriðja lagi hafa leikskólakennarar bent á að hlutfall menntaðs starfsfólks sé með því lægsta í Reykjavík. Ein- ungis um fjórðungur starfsfólksins er leikskólakennaramenntaður en á að vera 66% samkvæmt lögum.“ Ey- þór segir að Reykjavík standi verr en nágrannasveitarfélögin og Ak- ureyri varðandi hlutfall menntaðs starfsfólks á leikskólum. Aðalvand- inn er mannekla Eyþór Arnalds  Vill örva listsköp- un í leikskólum „Það er sjaldgæft að við séum að mála utanhúss þetta seint í nóvember, en ekki einsdæmi. Við höfum oft verið að úti við fram á haustin. Það vantar bara meiri birtu á daginn,“ sagði Þórður Þórðarson, málarameistari hjá Múr- og málning- arþjónustunni Höfn ehf. Starfsmaður hans sést hér að störfum í Fossvogi í gær. 20. nóvember. Þórður sagði að nóvember væri búinn að vera betri en sumarið var. Þeir voru 1-2 mánuðum á eftir áætlun í haust með verkefni vegna rigning- anna. „Við erum búnir með þrjú verkefni nú í nóvember sem við höfum málað að utan.“ Þórð- ur sagði að á þessum árstíma máli þeir utanhúss með olíumálningu sem er hægt að nota þótt orð- ið sé kalt og þolir hún næturfrost nýmáluð. Nóvember hefur nýst til málningarvinnu úti Morgunblaðið/Hari Mála hús í nóvember sem ekki var hægt að mála í sumar vegna rigninganna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.