Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 ✝ Magnea KristínSigurðardóttir fæddist 13. ágúst 1921 í Seljatungu í Flóahreppi. Hún lést 11. nóvember 2018 á Foss- heimum. Faðir hennar var Sigurður Einarsson frá Holtahólum, f. 1884, d. 1951. Móðir hennar var Sigríður Jónsdóttir frá Kala- stöðum, f. 1883, d. 1970. Magnea Kristín var sjötta í röð átta systkina. Þau eru Sig- ríður, f. 1912, Þorsteinn, f. 1913, Sesselja Sumarrós, f. 1915, Jón, f. 1916, Laufey, f. 1917, Guðjón Helgi, f. 1922, Einar Gunnar. f. 1924. Þau eru öll látin. Mágkona Kristínar, Guðrún ekkja Þor- steins, er ein eftirlifandi. Þrjú dóttur: A) Bergur Sverrisson, f. 1979, kvæntur Júlíönnu Boga- dóttur. Hann á tvo syni frá fyrra hjónabandi og þrjú fósturbörn. B) Ólafur Magni Sverrisson, f. 1981 kvæntur Brynju Magnús- dóttur og þau eiga tvö börn. 3) Ólöf Ólafsdóttir, f. 1956, gift Skúla Einarssyni. Börn þeirra: A) Laufey Kristín Skúladóttir, f. 1979, gift Indriða Einarssyni og þau eiga þrjár dætur. B) Eyrún Ösp Skúladóttir, f. 1982, gift Bjarka Karlssyni og þau eiga tvö börn. C) Guðrún Eik Skúla- dóttir, f. 1988, gift Óskari Jóns- syni og eiga þau tvær dætur. D) Ólafur Einar Skúlason, f. 1989, í sambúð með Stefaníu Valdi- marsdóttur og eiga þau eina dóttur. Magnea Kristín vann í mötu- neyti KÁ fyrir giftingu. Seinna var hún nokkrar sláturtíðir hjá SS. Vann hún við afgreiðslu í Brauðgerð KÁ, í Söluskála Hafnar og seinna í Kjötvinnslu Hafnar. Útför Magneu Kristínar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 21. nóvember 2018, klukkan 14. yngstu systkinin voru fædd í Selja- tungu í Gaulverja- bæjarhreppi. Magnea Kristín giftist þann 7. júní 1947 Ólafi Nikulás- syni, f. á Móeiðar- hvoli í Rangár- vallasýslu. Börn þeirra eru: 1) Sig- ríður, f. 1948. Börn hennar með Steina Þorvaldssyni: A) Ólafur Steina- son, f. 1967, kvæntur Ólöfu Lilju Eyþórsdóttur. B) Þorvaldur Ingi Steinason, f. 1972. C) Kristín Laufey Steinadóttir, f. 1980, er í sambúð með Guðmundi B. Frið- rikssyni. Hún á einn son og þrjú fósturbörn.Sigríður í sambúð með Sigurði Á. Þorsteinssyni. 2) Sverrir Ólafsson, f. 1949 d. 2011. Synir hans og Guðveigar Bergs- Ólafur og Kristín byrjuðu bú- skap á Árvegi 4. Byggðu síðan hús á Kirkjuvegi 22 og fluttu í það 1953, Ólafur var mjólkurbílstjóri og Kristín húsmóðir og verkakona þegar börnin stálpuðust. Fyrsta launaða vinna hennar var það sem kallað er au pair í dag, eða vinnukona. Hún var hjá Magneu Bjarnadóttur á Grettis- götunni. Þá var hún 17 ára. 21 árs fór hún á Hallormsstað og vann við gistihúsið um sumarið. Þegar leið á bauð frú Blöndal henni að fá skólavist um veturinn. Skyldi hluti sumarkaupsins renna í skólagjöld. Þetta varð úr og svo var skrapað saman aurum, seldur hestur sem hún átti o.fl. Þetta ár var bæði verk- og bók- legt og mest fannst henni gaman að vefa og setja saman litina í vefnum. Fékk viðurkenningu fyrir gott auga fyrir litasamsetningum. Þegar suður var komið fór hún að vinna á vefstofu í Reykjavík og þá fékk hún leigt herbergi hjá Magn- eu, fyrsta vinnuveitandanum. Hún minntist þess að bróðursonur hennar Valdimar Þorsteinsson var orðinn eins árs þegar hún sá hann í fyrsta sinn. Hún komst líka seinna að því að stúlka sem vann í Grænumörkinni um sumartíma var langömmubarn Magneu, með því að spyrja hverra manna ert þú. Kristín, Ólafur og fjölskyldan áttu góða hesta og voru samstillt í hestamennskunni. Tvo uppá- haldshesta átti Kristín; Vöku, gráa meri, og Hlyn, jarpan öðling frá Skollagróf. Þau höfðu líka gaman af að ferðast og létu sig ekki vanta í bílstjóratúrana en fyrsti bíllinn kom á heimilið þegar eldri börnin voru að nálgast fermingu. Hún var alla tíð handavinnukona, saumaði út, heklaði, prjónaði og saumaði öll föt sem þurfti á börnin. Það var mikið áfall þegar Ólaf- ur varð bráðkvaddur aðeins 67 ára. Kristín bjó áfram í sjö ár á Kirkjuveginum, en flutti 1994 í Grænumörk 5 og bjó þar til 30. júní. Þar var gott að vera og hún átti góða vini, bæði íbúa og starfs- fólk. Kristín átti góðan vin í Græn- umörkinni, Þormóð Torfason. Þau drukku miðdagskaffið hjá henni og fóru svo í góða göngu. Á sunnu- dögum bauð hann henni á kaffihús eða í bíltúr. Þau voru líka alltaf velkomin hjá okkur í boðum og á jólum. Þormóður endaði ævi sína á Ljósheimum 2011. Síðustu mánuðina bjó hún á Fossheimum og líkaði betur með hverri vikunni. Hún hafði alla tíð ákveðnar skoðanir og lét þær í ljós. Hún veiktist í mars síðast- liðnum og fór á Sjúkrahúsið. Svo átti að senda hana heim fyrir páskana, hún sagði læknunum að hún hefði nú borgað skatta í ansi mörg ár og gerði enn og ætti bara rétt á hjúkrun. Læknirinn sagðist aðeins hugsa um velferð hennar. Hún sagði: „Þú sýnir það á und- arlegan hátt.“ Hún var alla tíð samviskusöm og þegar hún greindist með beinþynningu og var sagt að hreyfingin væri henni lífsnauðsyn sinnti hún hreyfing- unni alla daga. Reglusemin var henni eðlileg bæði í matmálstím- um og lyfjainntökum, ekkert kæruleysi. Nú að leiðarlokum vil ég þakka mömmu minni fyrir samfylgdina, veit að það verður stór eyða í dagsprógramminu mínu að hvorki heyra né sjá elsku mömmu. Vona að við eigum eftir að hittast í sum- arlandinu. Takk fyrir 70 ára sam- fylgd, elsku móðir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Sigríður Ólafsdóttir. Í dag kveðjum við ömmu okkar, Magneu Kristínu Sigurðardóttur, sem lést 11. nóvember síðastlið- inn. Amma var yndislega hjartahlý og góð kona, og var allt- af boðin og búin að hjálpa börnum sínum og barnabörnum. Sem dæmi um það má nefna að þegar mamma okkar eignaðist sitt fyrsta barn, Óla, bauðst henni að fara að vinna snemma eftir barns- burðinn. Þá ákvað amma að hjálpa til og hætti sinni vinnu til að geta passað barnabarnið, svo að mamma gæti þegið vinnuna og foreldrarnir gætu safnað sér pen- ing til að kaupa hús. Síðar hjálpaði hún einnig mömmu okkar við að passa Kristínu þegar hún var lítil áður en hún komst inn á leikskóla, og að sjálfsögðu fengu önnur barnabörn ömmu líka pössun hjá henni þegar þörf var á. Hannyrðir voru líf hennar og yndi og þá einkum prjónaskapur. Þær eru ófáar lopapeysurnar, vettlingarnir og sokkarnir sem hún prjónaði á börn sín, tengda- börn, barnabörn og barnabarna- börn og hafa veitt köldum höndum og fótum hlýju í gegnum tíðina. Þá hafði amma mjög gaman af hest- um og þau afi áttu hesta í áratugi. Við systkinin höfðum afskaplega gaman að því að fara með þeim í hesthúsið og hjálpa til við um- hirðuna. Og þegar við komum í heimsókn heim til ömmu átti hún alltaf einhvern góðan mola sem hún vildi bjóða okkur upp á. Elsku amma. Við söknum þín sárt en eftir lifa góðar minningar okkar og við minnumst þín með hlýju og ást og þökkum fyrir allar þær mörgu og góðu stundir sem við höfum átt saman. Nú eruð þið afi sameinuð á ný á himnum. Við viljum enda þessi stuttu kveðjuorð okkar á þessum línum úr ljóðinu Kveðja eftir Bubba Morthens: Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Ólafur Steinason og Kristín Laufey Steinadóttir. Magnea Kristín Sigurðardóttir Ekki er hægt að líta fram hjá því að í aðgerð- aráætlun stjórn- valda í loftslags- málum er misræmi milli markmiðs og út- hlutunar fjár- magns. Meira en helmingi þeirra 6,8 milljarða króna sem verja á til þess að fylgja verkefninu eftir á fyrstu fimm árunum er ráð- stafað til aðgerða sem leggja lítið til þess að Ísland nái markmiði Parísarsam- komulagsins til 2030. Verk- fræðingafélag Íslands (VFÍ) telur að áætlunina skorti skýrari sýn og meiri metnað í því hvernig eigi að virkja at- vinnulíf og efla nýsköpun í loftslagsvænni tækni. Þegar horft er á hvert fjármagnið, sem fylgir áætluninni, rennur má segja að nýsköpun og græn tækni hafi orðið út- undan. Um fjórum milljörðum á að verja til kolefnisbindingar á árunum 2019-2023. Aðgerðir til þess að minnka losun vegna landnotkunar eru í sjálfu sér lofsverðar og Ís- land getur vafalaust lagt mik- ið af mörkum á heimsvísu í rannsóknum og þróun á því sviði. Vandinn er sá að Par- ísarsamkomulagið snýst fyrst og fremst um „losun án land- notkunar“. Veigamestu þætt- irnir í losun, sem falla undir samkomulagið, eru brennsla jarðefniseldsneytis, losun frá iðnaðarferlum, landbúnaður og meðferð úrgangs. Í núver- andi reglum Evrópusam- bandsins er ekki hægt að færa loftslagsávinning vegna aðgerða í landnotkun til tekna á móti losun í öðrum geirum, nema að mjög tak- mörkuðu leyti. Breytinga er að vænta en sennilega verður þak á mögulegum ávinningi um það bil 45.000 tonn á ári, sem er ekki nema ca. 1% af bókfærðri losun Íslands án landnotkunar. Loftslagssjóður óburðugur Löndin í kringum okkur hafa lagt mikla áherslu á ný- sköpun og græna tækni. Sem dæmi má taka að Danir hafa náð miklum árangri í að byggja upp fyrirtæki á sviði grænnar tækni. Opinberir sjóðir í Dan- mörku styðja markvisst við slík verkefni. Í þessu sambandi fagnar VFÍ því að Loftslags- sjóður skuli loks taka til starfa. Sjóð- urinn var sett- ur á fót sam- kvæmt lögum árið 2012 en hefur enn ekki fengið fjármagn. Ætlunin er að verja 100 milljónum á ári til nýsköpunar í gegnum Loftslagssjóð á næstu fimm árum. VFÍ telur að þangað ætti að renna mun meira fé. Sjóður sem úthlutar 50-100 milljónum á ári er ekki burð- ugur. Til samanburðar má nefna að Tækniþróun- arsjóður úthlutar um 2,3 milljörðum árlega og AVS- Rannsóknarsjóður í sjávar- útvegi úthlutaði 238 millj- ónum króna 2017, og má hann þó muna fífil sinn fegurri. Með eflingu Loftslags- sjóðs, rannsókna og þróunar á loftslagsvænni tækni, næst varanlegur árangur í losun og um leið skapast atvinnutæki- færi í fyrirtækjum sem byggjast upp. Höfundum að- gerðaáætlunar er greinilega vel ljóst að samkeppnis- forskot á sviði grænna tækni- lausna getur stuðlað að því að draga úr heilsuspillandi loft- mengun og auðlindasóun. Þeirri sýn er bara ekki fylgt eftir með fjármagni. Fjöl- mörg dæmi eru um þennan góða spíral á Íslandi. Þannig hefur til dæmis losun sjávar- útvegsfyrirtækja minnkað umtalsvert á undanförnum árum. Þann árangur má með- al annars þakka tækniþróun íslenskra fyrirtækja sem hanna og selja lausnir í skip framtíðar. Öflugur Loftslags- sjóður gæti einnig komið sterkur inn í átak til þess að draga úr losun frá úrgangi, sem er vaxandi hluti af losun á Íslandi. Það er mikil vöntun á opinberum sjóði á þessu sviði. Eðli verkefna, þar sem unnið er með nýtingu úr- gangs, er á þann veg að þar þarf til að koma samstarf margra aðila og þau eru oft unnin á samfélagslegum for- sendum ekki síður en við- skiptalegum. VFÍ telur ráðlegt að Lofts- lagssjóður verði vistaður hjá RANNÍS sem er með innviði til þess að taka við verkefninu og getur auk þess tryggt óhlutdrægni. Mikil samlegð felst í því að reka umsýslu með samkeppnissjóðum sam- an, en dreifa henni ekki á ólíkar stjórnsýslueiningar sem að öllu jöfnu hafa öðru að sinna. Orkuskipti meginmál VFÍ fagnar áherslu á orku- skipti í áætluninni enda meg- inverkefnið að minnka notk- un jarðefnaeldsneytis samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Þar bendir félagið á að úrbætur í raforkuflutningum um landið og leiðir til að koma rafmagni til notenda geta ráðið af- drifum fyrirhugaðrar rafbíla- væðingar. Um leið er ástæða til þess að einblína ekki um of á tilteknar tæknilausnir. Við orkuskipti í höfnum mætti til að mynda nota íslenskt met- anól og í vissum tilfellum geta aðrar tæknilausnir en rafbíl- ar verið heppilegri. Meðal annars er kallað á sérstaka greiningu á orkuskiptum í stærri bifreiðum og atvinnu- tækjum. VFÍ vekur í umsögn sinni um Aðgerðaáætlun í lofts- lagsmálum athygli á nauðsyn þess að hún sé fléttuð inn í aðrar áætlanir stjórnvalda, svo sem Samgönguáætlun og Orkustefnu. Þá er ekki nóg að virkja frjáls félagasamtök í fræðslu um loftslagsmálin heldur þurfa háskólar og fyr- irtæki að koma með enn markvissari hætti að þessum þætti. Þar bendir VFÍ sér- staklega á fordæmið með Vís- indasmiðju Háskóla Íslands þar sem félagið hefur tekið þátt í að byggja upp samstarf háskóla og grunnskóla. Það mættu teljast tíðindi til næsta bæjar verði Vísindasmiðjunni ekki falið stórt hlutverk á þessu sviði. Á þeim vettvangi fá nemendur að kynnast vís- indum á nýjan hátt og það má yfirfæra á loftslagsmálin. Græn tækni útundan Eftir Pál Gíslason Páll Gíslason » „Misræmi er milli markmiðs og úthlutunar fjár- magns“, segir Verkfræðinga- félagið í umsögn um Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Höfundur er formaður VFÍ. pg@pg.is Það er svo margt sem kemur upp í huga mér, elsku pabbi. Hversu mikil forréttindi það eru að hafa átt þig að. Alltaf ljúfur og þolinmóður. Alltaf til í að hlusta og spjalla. Leyfðir okkur börnunum þínum að fara þær leiðir sem hugur okk- ar sneri til, með viðeigandi at- hugasemdum til leiðbeiningar. Engar skammir, bara góð ráð. Þú varst virkur í uppbyggingu góðs samfélags á Patreksfirði, þér var treyst og þú varst vinnu- samur. Varst oft að koma seint heim á á virkum dögum þar sem þú áttir eftir að sitja ýmsa nefnd- arfundi eftir að vinnu lauk. Þér var mjög annt um Patreksfjörð og vildir leggja þitt af mörkum. Oft var brugðið í stuttan dans á eldhúsgólfinu, bara svona þeg- ar þú áttir leið hjá. Þú raulaðir mikið og textarnir voru ekkert að Ingólfur Arason ✝ Ingólfur Ara-son fæddist 6. desember 1921. Hann lést 1. nóv- ember 2018. Útför Ingólfs fór fram 12. nóvember 2018. þvælast fyrir þér, skáldaðir bara inn í eins og þér fannst passa hverju sinni. Alltaf gaman að hlusta á og heyra hvaða útgáfa kæmi í þetta skiptið. Allar ferðirnar á sunnudögum til Bíldudals að heim- sækja ömmu og afa, oft í ófærð og leið- indaveðri. Allar ferðirnar til Reykjavíkur vegna innkaupa í búðina ykkar mömmu, Verslun Ara Jónssonar sem flestir þekkja bara sem „Ingólfsbúð“. Allar stundirnar sem ég eyddi í búðinni með þér og mömmu við vinnu á lagernum, sækja vörur, verð- merkja, afgreiða, eða bara hangsa því ég nennti ekki heim eftir skólann. Mér leið alltaf svo vel með ykkur. Hvað vill maður biðja um meira. Elsku pabbi, ég sakna þín mik- ið, en samt með svo miklu þakk- læti og auðmýkt fyrir að hafa þekkt þig og fengið öll þessi ár með þér. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Kristín Elfa Ingólfsdóttir. Á prýðilegri Íslend- ingaopnu Morgun- blaðsins 14. nóv- ember er sagt frá merkum Íslendingi, sr. Birni Halldórs- syni í Laufási. Þar segir að sr. Björn hafi verið fæddur 14. nóvember 1823. Við það er að bæta að í ritgerð sr. Bolla Gúst- avssonar fyrir ljóðasafni sr. Björns, útg. 1994, segir neð- anmáls: „Björn er venjulega talinn fæddur 14. nóvember, svo sem í Prestaævum Sig- hvats Borgfirðings og Íslenskum ævi- skrám, og svo taldi hann sjálfur lengi vel. En síðar komst hann á aðra skoðun og ritar vini sínum Þorláki á Stórutjörn- um svo um það 11. nóv- ember 1874: „Ég hef allt til skamms tíma ætlað mig fæddan annan mánaðardag, nfl. 14. nóv., því að fóstra mín, Sólveg, hafði svo sagt, og trúði ég minni hennar og greind, en nú er ég kominn að þeirri raun, … að ég er tveimur dögum eldri, þ.e. fæddur 12. nóv., og eru hér þrjú vitni móti einu“ (þ.e. kirkjubókin, Jón Krist- jánsson í Þúfu og það er fóstri hans hafði sagt um vikudaginn.)“ Með þökk fyrir birt- inguna. Fæddur lesandi. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Fæddur sr. Björn í Laufási Björn Halldórsson Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.