Morgunblaðið - 21.11.2018, Page 8

Morgunblaðið - 21.11.2018, Page 8
Tíminn er að hlaupa frá okkur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Tíminn er að hlaupa frá okkur. Margir bændur bíða með ákvörð- un um það hvort þeir treysta sér til að halda áfram eftir því hvort og þá hver aðkoma ríkisins verður,“ segir Einar Eð- vald Einarsson, minkabóndi á Syðra-Skörðugili í Skagafirði og formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda, spurður um stöðuna í viðræðum við ríkið um hugsanlegar aðgerðir til bjargar því sem eftir er af loðdýraræktinni í landinu. Greinin er í alvarlegri stöðu vegna verðfalls skinna á heimsmarkaði. Nokkrir minkabændur hættu í fyrra og fleiri munu þurfa að hætta í haust, að óbreyttu, eða fara í þrot. Samband íslenskra loðdýrarækt- enda hefur verið í viðræðum við stjórnvöld frá því ágúst. Forsvars- menn þess hafa óskað eftir þriggja ára samningi um aðkomu ríkisins, í samræmi við tillögur Byggðastofn- unar. Í þeim felst meðal annars fyr- irgreiðsla um lán til loðdýrabænda í ár til að fleyta þeim áfram og síðan stuðningur við fóðurstöðvar næstu tvö árin. Jákvæðar viðræður Nú eru loðdýrabændur að velja dýr til ásetnings fyrir næsta ár og pelsa önnur dýr. Mikilvæg forsenda við þessa vinnu er ákvörðun um hvort hægt verður að reka búið áfram eða ekki. Átján minkabændur eru eftir og segir Einar að ef þeim fækki frekar fari að þrengja að fóðurstöðvunum og rekstri þeirra. Það geri rekstur- inn enn erfiðari fyrir þá sem eftir verða. Fóðurstöðvarnar eru ein helsta röksemdin fyrir því að stunda eigi minkarækt áfram. Þær nota af- skurð frá sláturhúsum og fisk- vinnslum, úrgang sem annars þyrfti að urða. Einar bendir á að loðdýra- ræktin skapi einnig atvinnu á lands- byggðinni og gjaldeyri fyrir þjóð- arbúið. „Viðræðurnar við stjórnvöld hafa verið jákvæðar, okkur hefur verið vel tekið, en niðurstaða hefur ekki fengist,“ segir Einar.  Ekki ljóst með aðstoð við minkarækt Einar Eðvald Einarsson 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 KORRIDOR Steypudýr fleiri tegundir Verð frá 6.990,- IITTALA KAASA Kertastjaki 115mm Verð frá 12.700,- KÄHLER NOBILI Kramarhús f/sprittkerti Verð frá 4.190,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Glæsileg gjafavara KAY BOJESEN Jólasveinn og sveinka Verð 11.990,- stk. LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.890,- KAY BOJESEN Söngfugl RAVN Verð frá 10.990,- KARTELL TAKE Borðlampi – margir litir Verð 12.900,- IITTALA Toikka PUFF- BALL CRANBERRY 7x5 cm Verð 21.900,- JUST RIGHT STOFF Kertastjaki Verð frá 5.100,- stk. MR.WATTSON LED lampi Verð 16.990,- KARTELL BOURGIE Lampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- Það er von aðStyrmir Gunn- arsson verði undr- andi og spyrji bæði sjálfa sig og aðra:    Það er for-vitnilegt að fylgjast með þeirri þögn, sem ríkt hefur að verulegu leyti um samþykkt miðstjórn- arfundar Framsóknarflokksins um helgina um að hafna beri innleiðingu orkupakka 3 frá ESB.    Í gær, mánudag, var lítið sem ekk-ert að finna í fjölmiðlum um þá samþykkt.    Í gærkvöldi og í hádegisfréttumRÚV var bersýnilega engin ástæða talin til að ræða við forsvars- menn hinna stjórnarflokkanna tveggja, VG og Sjálfstæðisflokks, um þessa samþykkt, sem þó hlýtur að valda nokkrum usla í stjórn- arherbúðum.    Þegar þetta er skrifað upp úr há-degi á þriðjudegi hefur þess ekki orðið vart að stjórnarandstaðan hafi spurt spurninga.    Hvað ætli valdi?    Gera fjölmiðlar sé ekki grein fyrirmikilvægi þessarar sam- þykktar?    Á það sama við um þingmennstjórnarandstöðunnar?“    Haft er á orði að þögnin geti ver-ið sterkt vopn og til eru atvik sem staðfesta það. En ekki er þó úti- lokað að menn geti fengið þögn sína í höfuðið og það orðið furðu mikið högg af svo loftkenndu fyrirbæri. Styrmir Gunnarsson Bjúgverpill þagnar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gerð aðaluppdrátta nýrra höfuðstöðva Lands- bankans eru á lokastigi. Áætlað er að í desember verði þeir sendir til byggingarfulltrúa Reykja- víkur. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið hjá Rúnari Pálmasyni, upplýsingafulltrúa bankans. Hann segir að bankinn sé nú þegar þátttak- andi í sameiginlegum framkvæmdum á lóð, þ.e. gerð Reykjastrætis. Miðað er við að fyrstu verk- þættir hússins verði boðnir út á fyrri hluta næsta árs og framkvæmdir hefjist fljótlega í kjölfarið. Nýjar höfuðstöðvar bankans munu rísa við Austurbakka 2 í Austurhöfn, í nágrenni Hörpu. Hið nýja hús verður 16.500 fermetrar. Bank- inn hyggst nýta um 10.000 m2 í nýju húsi, um 60% af flatarmáli hússins, en selja eða leigja frá sér um 6.500 m2 sem nýtist fyrir verslun og aðra þjónustu. Byggingarkostnaður er áætlaður tæpir 9 milljarðar króna, að lóðarverði meðtöldu. Sjö arkitektateymi voru valin til að skila frum- tillögum að hönnun hússins og í janúar sl. bárust bankanum tillögur frá sex teymum, að viðhafðri nafnleynd. Þriggja manna ráðgjafaráð var bankastjóra og bankaráði til fulltingis við ákvörðunina og mælti ráðgjafaráðið með tillögu Arkþings ehf. og C.F. Møller. Kletturinn var nafnið sem höfundarnir völdu á tillöguna. sisi@mbl.is Hönnun Landsbankans að ljúka Tölvumynd/Arkþing ehf. & C.F. Møller Landsbankinn Nýjar höfuðstöðvar munu rísa á næsta ári við Kalkofnsveg, skammt frá Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.