Morgunblaðið - 21.11.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 21.11.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd forsætisráðuneytisins, hefur óskað eftir tilboðum í fram- kvæmdir við fornleifagröft á lóð Stjórnarráðshússins við Lækj- artorg. Framkvæmdir, sem gert er ráð fyrir í útboðinu, felast í forn- leifagreftri, rannsóknum og grein- ingu á fornminjum. Annars vegar er um að ræða rannsókn á rót- uðum mannvistarlögum undir nú- verandi yfirborðslögnum og hins vegar á rannsókn á eldri mannvist- arleifum, sem kunna að leynast undir rótuðu mannvistarlögunum, eins og það er orðað. Tilboð í verk- ið verða opnuð 18. desember nk. en verkinu skal að fullu lokið 31. október 2019. Stjórnarráðshúsið er eitt elsta hús Reykjavíkur, byggt árið 1765. Ekki er talið útilokað að mannvist- arleifar frá fyrstu öldum Íslands- byggðar séu á staðnum. Vitað er að undir Stjórnarráðshúsinu sjálfu eru leifar byggingar frá 13. öld. Til stendur á næstu árum að við- bygging, 1.200 fermetrar, rísi á baklóð Stjórnarráðshússins, þar sem nú eru bílastæði. Haldin var samkeppni um bygg- inguna og bárust 30 tillögur. Dóm- nefnd er að störfum og verða úr- slit tilkynnt í næsta mánuði. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnarráðshúsið Fornleifa verður leitað undir bílastæðinu á næsta ári. Fornleifa leitað við Stjórnarráðshúsið Nærri því þriðji hver Íslendingur leitar til Landspítalans á ári og ann- ar hver íbúi höfuðborgarsvæðisins. Á síðasta ári leituðu tæplega 110 þúsund einstaklingar til spítalans. Til samanburðar má geta þess að íbúafjöldi landsins var í byrjun þessa árs liðlega 348 þúsund manns og rúmlega 220 þúsund á höfuðborgar- svæðinu. Komur á Landspítalann eru mun fleiri, eða nærri 428 þúsund, eins og sést á meðfylgjandi yfirliti. Margir fara aldrei á spítalann en aðrir oft. Meðaltalið slagar upp í það að hver sjúklingur sem leitar til Landspítal- ans komi þangað fjórum sinnum. Starfsemi spítalans hefur aukist á síðustu níu árum. Þannig leita nú um 5.000 fleiri einstaklingar til spítalans en á árinu 2009 og komur eru 26 þús- und fleiri. Rannsóknum hefur fjölg- að á 9 árum um 348 þúsund. helgi@mbl.is Þriðji hver landsmaður á spítala Starfsemi Landspítala (LSH) 2009 til 2017 Fjöldi innlagna (þús.) Fjöldi einstaklinga sem leituðu til LSH (þús.) 110.000 leituðu til spítalans árið 2017 sem er nærri þriðjungur af íbúafjölda landsins sem var um 348.000 í ársbyrjun 2018 2.434.000 rannsóknir voru framkvæmdar á Landspítalanum árið 2017 sem eru 30 28 26 24 22 20 112 110 108 106 104 102 Á dagdeildir Á slysa- og bráðadeild Á göngudeildir Heimild: Landspitali.is Allar tölur eru í þúsundum 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Breyting 2009-2018 Einstaklingar sem leituðu til LSH 105 103 107 107 107 108 107 110 110 5% Komur á slysa- og bráðadeild 95 91 96 99 98 98 101 104 106 11% Komur á göngudeildir 239 236 238 235 237 227 226 241 244 2% Komur á dagdeildir 76 81 80 78 78 84 75 84 89 16% Fjöldi innlagna 29 28 28 27 27 26 25 26 27 -6% Fjöldi legudaga 212 204 209 214 215 219 224 229 225 6% Rannsóknir 2.086 1.738 1.822 1.832 1.921 1.968 1.906 2.267 2.434 17% Skurðaðgerðir 14 14 14 14 14 13 13 16 16 18% 17% fleiri enárið 2009 Fjöldi koma árið 2017 (þúsundir) 89 106244 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 2726 25 2627 272828 29 Karlmaður sem lést í hörðum árekstri tveggja bifreiða á Reykja- nesbraut í október fyrir um tveimur árum síðar var ekki í öryggisbelti og var undir áhrifum fíkniefna þeg- ar slysið varð. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar sam- gönguslysa sem var birt í gær. Maðurinn var einn í Toyota Co- rolla fólksbifreið sinni þegar henni var sveigt yfir á rangan vegarhelm- ing við Rósaselstorg, beint framan á VW sendibifreið, sem kom úr gagnstæðri átt, án þess að ökumað- ur sendibifreiðarinnar gæti brugð- ist við. Einn farþegi var í þeirri bif- reið. VW bifreiðin kastaðist út fyrir veginn sunnan megin og Toyota- bifreiðin norðan megin og lenti á ljósastaur. Ökumaður Toyota- bifreiðarinnar kastaðist fram á stýrið og lést af völdum fjöláverka. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar var spenntur í öryggisbelti en hlaut alvarlegan brjóstholsáverka. Far- þeginn í bifreiðinni var einnig í ör- yggisbelti. Hann missti meðvitund í nokkrar mínútur og hlaut belt- isáverka. Hámarkshraði var 90 km/ klst þegar slysið átti sér stað en hefur nú verið lækkaður í 70 km/ klst. Bíltækniskoðun á Toyota- bifreiðinni leiddi í ljós að hemlabún- aður að framan var ekki í lagi fyrir slysið. Þrjár mismunandi tegundir hjólbarða voru undir bifreiðinni og voru hjólbarðarnir allir gamlir og slitnir. Í ljósi ástands hemla var bif- reiðin ekki í notkunarhæfu ástandi fyrir slysið, að því er kemur fram í skýrslunni. Hafði neytt fíkniefna fyrir slysið  Skýrsla rannsóknarnefndar samgönguslysa birt Bráðabirgðaviðgerðir á flutn- ingaskipinu Fjordvik hófust í fyrra- dag og ganga vel. Ljóst er að um- fang skemmda á skipinu er gríðarlegt og að mikið verk verður að gera skipið hæft til siglinga. Þetta staðfestir Ásbjörn Helgi Árnason, verkefnastjóri hjá Vél- smiðju Orms og Víglundar sem sér um viðgerðirnar í Hafnarfirði. Fulltrúar eigenda og trygginga- félaga eru á staðnum og fylgjast með viðgerðunum. Enn hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort ráðist verður í frekari viðgerðir á skipinu, en óvíst þykir hvort það borgar sig að gera við það. Hlut- verk Vélsmiðjunnar er einungis að gera bráðabirgðaviðgerð á skipinu til að hægt sé að koma því frá Ís- landi, hvort sem því verður síðan fargað eða við það gert. Flutn- ingaskipið Fjordvik strandaði í Helguvík á Reykjanesi fyrir rúmum tveimur vikum. Nokkra daga tók að koma skipinu frá strandstað, en það var flutt til Hafnarfjarðar í síðustu viku, þar sem það var sett í flotkví. Viðgerðir á Fjordvik ganga vel

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.