Morgunblaðið - 21.11.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
/solohusgogn
Ásgeir Einarsson
hönnuður
Sindrastólsins
(1927 – 2001)
SINDRASTÓLLINN
Sindrastóll
185.000,-
Sindraskammel
55.000,-
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Markaðurinn tók vel í áform Heima-
valla um endurskipulagningu eigna-
safns félagsins og hækkaði gengið á
bréfum félagsins í gær um 2,78% í 144
milljóna króna viðskiptum í Kauphöll
Íslands. Í tilkynningu til Kauphallar
voru ný stefnumið og endurskipu-
lagning á fast-
eignasafni Heima-
valla kynnt. Í því
felst að gera fjölg-
un minni íbúða að
forgangsmáli.
Einnig er stefnt
að umsvifameiri
endurskipulagn-
ingu eignasafns-
ins en fyrri áætl-
anir gerðu ráð
fyrir en upphaf-
lega stóð til að selja eignir sem metn-
ar voru á 10 milljarða króna á tíma-
bilinu 2018-2020. Nú er hins vegar
gert ráð fyrir að eignasalan muni
nema 17 milljörðum króna yfir tíma-
bilið. Spurður um þessa breytingu
segir Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heimavalla, ástæðuna
vera tvíþætta.
Stórar íbúðir seldar
„Þessi viðbót sem við erum að tala
núna um er tvíþvætt. Þetta eru ann-
ars vegar nýbyggingar sem við ætl-
uðum að setja í leigu en höfum ákveð-
ið að gera ekki og fara þær þess vegna
í sölu á almennum markaði. Hins veg-
ar eru þetta viðbætur við eignasafnið
sem við vorum áður búin að skil-
greina. Fyrst og fremst er að um að
ræða óhentugar leigueiningar, stærri
eignir og stakar eignir, víðsvegar um
landið, bæði á höfuðborgarsvæðinu og
annars staðar,“ segir Guðbrandur.
En hvað á Guðbrandur við með
óhentugum eignum? „T.d. raðhús sem
eru með íbúð á efri og neðri hæð og til-
tölulega dýrar eignir í rekstri. Eða þá
mjög stórar íbúðir, kannski 150 fer-
metrar, sem eru þá að skila hlutfalls-
lega lélegri framlegð í rekstrinum. Oft
og tíðum eru þetta einnig eldri eignir
en við leggjum áherslu á að vera með
nýrri eignir. Helst viljum við eiga hús
sem eru einangruð að utan með lang-
tímaklæðningu. Það er stór munur á
viðhaldi og við finnum fyrir því í
rekstrinum hjá okkur,“ segir Guð-
brandur.
Engin u-beygja
„Þetta er engin u-beygja eða kú-
vending hjá okkur. Við erum að setja
meiri áherslu á það, og við sjáum það
eftir því sem við tökum betur til í
rekstrinum, að við þurfum að losa
meira um óhentugar eignir. En á móti
kemur að við erum að styrkja rekst-
urinn til þess að geta boðið upp á hag-
kvæma leigu í því sem verður eftir,“
segir Guðbrandur í samtali við Morg-
unblaðið. Á sama tíma og stefnt er að
því að selja eignir fyrir 17 milljarða
frá 2018-2020, um 30%, af fasteigna-
safni félagsins, hyggjast Heimavellir
þó kaupa nýjar leigueignir fyrir 9
milljarða króna. Um er að ræða nán-
ast að öllu leyti nýbyggingar ef frá-
taldar eru gamlar setustofur á Ásbrú
sem búið er að innrétta sem stúdíó-
íbúðir sem nema 3-4% af kaupverð-
inu.
Svara gagnrýnisröddum
„Við erum ekki að kaupa eldri íbúð-
ir og setja á markað. Við viljum það
alls ekki. Annar þáttur í þessu er að
við finnum vel fyrir því að það er mjög
sterkur markaður fyrir minni eignir
sem eru eðli málsins samkvæmt á
lægri leigu,“ segir Guðbrandur.
Helstu nýbyggingar sem um ræðir
eru Einivellir 1 til 3 á Völlunum í
Hafnarfirði en þar eru 47 íbúðir
komnar á leigu, 32 stúdíórými á Ásbrú
og 164 íbúðir að Hlíðarenda sem fara í
leigu á seinni hluta næsta árs.
Eins og fyrr segir hækkuðu Heima-
vellir um 2,78% í Kauphöllinni í gær
og stendur gengi félagsins í 1,11 sem
enn er þó 10% undir útboðsgengi fé-
lagsins frá því í maí síðastliðnum.
„Það eru auðvitað margir sem hafa
verið þeirrar skoðunar að það ætti
hreinlega að selja félagið. Ég held að
við séum að gera hlutina skynsamlega
með hagsmuni allra aðila í huga,“ seg-
ir Guðbrandur og svarar gagnrýnis-
röddum. „Ég held að við séum að
koma mjög langt til móts við sjónar-
mið þeirra sem hafa talið að það ætti
kannski að gera einhverja aðra hluti
en það sem við erum að gera dags-
daglega.“
Óhentugar íbúðir seldar
Morgunblaðið/Eggert
Uppbygging 164 íbúðir að Hlíðarenda fara í leigu hjá Heimavöllum árið 2019.
Heimavellir hyggjast selja 30% af eignasafni sínu frá 2018-2020 Um er að
ræða óhentugar eignir sem bókfærðar eru á 17 milljarða og skila minni framlegð
Heimavellir
» Gengi félagsins hækkaði um
tæp 3% í Kauphöllinni í gær.
» Heimavellir ráðgera nú að
selja óhentugar eignir fyrir um
17 milljarða í stað 10 eins og
upphaflega stóð til.
» Ýmist er um er að ræða
stakar íbúðir, stærri og eldri.
Guðbrandur
Sigurðsson
ingu á sama viðskiptagengi og
ákvarðað var í fyrrnefndum samn-
ingi. Gengið á bréfum félagsins
mun vera trúnaðarmál. Ástæða við-
skiptanna tengist því að líftími
Horns II var markaður með þeim
hætti að sjóðnum yrði lokað á kom-
andi ári. Því eru breytingar á eign-
arhaldi Hvatningar hf. í raun óhjá-
kvæmilegar. Nýti núverandi
hluthafar Horns II hins vegar for-
kaupsrétt sinn til fulls gæti það leitt
til þess að Kólfur auki í raun ekki
við hlut sinn í Hvatningu heldur
haldist eignarhaldið óbreytt.
Horn II heldur á 49,45% hlut í
Hvatningu og því er óbeinn eign-
arhlutur framtakssjóðsins í Bláa
lóninu rétt undir 20%.
Í ársreikningi Horns II fyrir síð-
asta ár er hlutur sjóðsins í Hvatn-
ingu metinn á ríflega 8 milljarða
króna. Hafði hluturinn þá vaxið að
virði í bókum sjóðsins um 2,6 millj-
arða milli ára. Hagnaður Bláa lóns-
ins í fyrra nam 31 milljón evra,
jafnvirði 4,4 milljarða króna á nú-
verandi gengi.
Eignarhaldsfélagið Kólfur ehf.,
sem að stærstum hluta er í eigu
Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa
lónsins, hefur náð samkomulagi við
framtakssjóðinn Horn II, sem er í
rekstri hjá Landsbréfum, um kaup
á hlut sjóðsins í Hvatningu hf.
Hvatning heldur á 39,1% hlut í Bláa
lóninu.
Í tilkynningu sem send var út í
tengslum við viðskiptin kemur
einnig fram að samhliða þeim gefist
hluthöfum í Horni II tækifæri til að
nýta kauprétt að hlutnum í Hvatn-
Vill kaupa 20% hlut í Bláa lóninu
Hluthafar Horns II geta gengið inn í kaupin á sama verði
HS
Orka
30,03%
Bláa lónið hf.
Aðrir
hlut-
hafar
30,87%
Hvatn-
ing hf.
39,1%
Kólfur
ehf.
50,55%
Horn II
slhf.
49,45%
● Gengi upplýsingatæknifyrirtækisins
Origo hækkaði mest allra félaga í Kaup-
höllinni í gær, eða um 4% í 158 milljóna
króna viðskiptum. Félagið tilkynnti í
fyrradag um sölu á 55% hlut í Tempo til
Diversis. Næstmesta hækkunin varð á
bréfum íbúðaleigufélagsins Heima-
valla, en félagið tilkynnti í gær að það
hygðist selja eignir fyrir alls 17 milljarða
króna á árunum 2018-2020 líkt og
fjallað er nánar um í frétt hér til hliðar.
Hin fastaeignafélögin í Kauphöll
hækkuðu einnig. Eik hækkaði um
2,57% í 232 milljóna króna viðskiptum,
Reginn hækkaði um 1,99% í 217 millj-
óna viðskiptum og Reitir um 1,1% í 231
milljónar króna viðskiptum. Mest lækk-
uðu bréf Marels í Kauphöllinni, eða um
1,59% í 235 milljóna króna viðskiptum.
Næstmest lækkun varð síðan á gengi
sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda,
eða um 0,62% í 16 milljóna króna við-
skiptum.
Origo hækkaði um 4%
eftir söluna á Tempo
21. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.85 123.43 123.14
Sterlingspund 157.98 158.74 158.36
Kanadadalur 93.25 93.79 93.52
Dönsk króna 18.786 18.896 18.841
Norsk króna 14.534 14.62 14.577
Sænsk króna 13.638 13.718 13.678
Svissn. franki 123.19 123.87 123.53
Japanskt jen 1.0894 1.0958 1.0926
SDR 170.25 171.27 170.76
Evra 140.21 140.99 140.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.1643
Hrávöruverð
Gull 1223.55 ($/únsa)
Ál 1913.5 ($/tonn) LME
Hráolía 66.99 ($/fatið) Brent
● Vísitala bygging-
arkostnaðar reikn-
uð um miðjan nóv-
ember 2018
hækkar um 0,5%
frá fyrri mánuði og
er 141,6 stig. Þetta
kemur fram á vef
Hagstofunnar. Vísi-
tala byggingar-
kostnaðar hefur
hækkað um 4% á
síðustu tólf mánuðum. Innflutt efni
hækkaði um 1,6% í nóvember en af því
nema áhrif á vísitölu 0,3%. Innlent efni
hækkaði um 0,5% en af því nema áhrif
á vísitölu 0,2%.
Vísitala byggingar-
kostnaðar hækkar
Vísitala Upp um
0,5% milli mánaða.
STUTT