Morgunblaðið - 21.11.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-LAUSU
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður gáskafullur í dag og fullur
lífskrafts, nýtur þess að spjalla við fólk. Þú ert
áköf/ákafur og ástríðufull/ur og hrífur aðra
með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft á öllum þínum kröftum að halda
nú þegar þér er falið óvenjuerfitt verkefni.
Gættu þess að láta skapið ekki verða þér fjötur
um fót og sýndu öðrum þolinmæði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að
undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylli-
boðum um skjótfenginn gróða. Gættu þess að
gera ekki meiri kröfur til annarra en sjálfs þín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að íhuga hvort eirðarleysið
sem hrjáir þig sé merki um óuppfylltar þarfir
þínar. Oft fylgir heppni fyrirhyggju svo þú skalt
gefa þér góðan tíma til þess að ráða fram úr
hlutunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er ekki rétti tíminn til þess að taka
ákvarðanir um skiptingu eigna. Hlustaðu vand-
lega á þá ráðgjöf sem þú færð og berðu hana
saman við það sem þér finnst sjálfri/sjálfum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað veldur þér kvíða og hann
þarftu að losna við. Reyndu að leiða hjá þér
efasemdir um sjálfa/n þig sem láta á sér
kræla.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hugsanlegt er að þú lendir í útistöðum í
dag enda finnst þér sumir bæði hrokafullir og
einstrengingslegir í viðmóti. Vertu skilnings-
rík/ur og hlustaðu vel á sjónarmið annarra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Í dag er notalegt að rækta vin-
skap og blanda geði við aðra. Eyddu tíma með
þeim vinum sem kunna að meta litlu skrítnu
uppátækin þín.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn er þess eðlis að þú verð-
ur að leggja mikla vinnu á þig til þess að ná ár-
angri. Það er aldrei hægt að gera svo að öllum
líki né segja það sem allir samþykkja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Farðu varlega í vinnunni í dag, ein-
hver reynir hugsanlega að beita þig blekk-
ingum. Dyttaðu að heima og lagfærðu það
sem bilað er.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt þú standir klár á þínu er ekki
víst að það sama gildi um aðra. Losaðu þig við
það sem miður er og temdu þér betri venjur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að falla ekki í þá gryfju að líta á
þá sem standa þér næst sem sjálfsagða. Það
þýðir ekkert að sitja með hendur í skauti og
bíða þess að aðrir geri hlutina fyrir mann.
Á sunnudaginn skrifaði PéturStefánsson í Leirinn:
Úti er veðrið afar skítt,
ýmsir fyllast stressi.
Það er annars ekkert nýtt
að það rigni og hvessi.
Helgi Zimsen bætti við:
Vetur, sumar, vor og haust
verður regn að vana.
Alltaf streymir endalaust
eins og vatn úr krana.
Og Filli eða Friðrik Stein-
grímsson:
Alveg nóg ég af því fæ,
ekkert lengur gleður.
Svona er það sí og æ,
sýnishornaveður.
Á Boðnarmiði kvað við svip-
aðan tón. Hallmundur Kristinsson
orti:
Seig er þessi sunnanátt,
sýnist vaxa rokið,
enda verður ugglaust brátt
öll í skjólin fokið.
Og nafni hans Guðmundsson:
Utandyra rífur rokið
í ræfilstusku mína.
Af höfði mínu hefur fokið;
húfulokið fína.
Steinn G. Lundholm sló á létta
strengi, sagði að í þessu vatns-
veðri rifjaðist það upp sem ort
var til veðurfræðinga:
Þið spáðuð sól og sunnan blæ
en sólin var í leyni
og það rigndi um allan bæ
eldi og brennisteini.
En Siggi á við öllu svar,
er í slíku laginn.
Við spáðum rétt en veðrið var
vitlaust þennan daginn.
Þessi vísa Ingólfs Ómars Ár-
mannssonar skýrir sig sjálf:
Ergja lyndi illar spár,
úti vindar gjalla.
Úr himinlindum hrynja tár,
hvín í tindum fjalla.
„Veðurgnýr“ sagði Kristjana
Sigríður Vagnsdóttir:
Úti rymja ólgu spár,
í öllum sundum glymur.
Kári oft af kólgu þrár
kátur í lofti rymur.
Halldór Halldórsson orti:
Stríður úti stormur hvín,
strekkingsvindar sveima.
Glaður inn ég geng til mín.
Gott að vera heima!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hann rignir
og hann rignir
„GUÐ HJÁLPI ÞÉR.“ „VERTU KYRR, ÉG TÓK VITLAUSA TÖNN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna þig, að finna
mig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÁI! SKAR MIG
Á BLAÐI!
SKIL-
URÐU?
EKKI HÆTTA Í
DAGVINNUNNI
ÞAÐ ER LANGT
SÍÐAN VIÐ
DÖNSUÐUM
SAMAN
SÍÐAST!
ERTU MEÐ TÁR Í
AUGUNUM ÞESS VEGNA?
NEI, VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ STÍGUR Á FÆTURNA Á MÉR!
Víkverji las á forsíðu Morgun-blaðsins eftir að Ísland beið 2:0
ósigur gegn Belgum á fimmtudag að
þar hefðu strákarnir okkar tapað
fyrir „besta landsliðinu“ og hugsaði
með sér að það hlyti bara að vera
nokkuð góð frammistaða ef ekki frá-
bær. Sama dag var hann reyndar
spurður hvort rétt væri að hamra á
því að Belgar væru með besta lands-
liðið hvað sem liði öllum heims-
listum. Ekki væri lengra síðan en í
sumar að Frakkar báru sigur úr být-
um á HM og myndu geta hampað
heimsmeistaratitlinum næstu fjögur
árin. Á sama móti urðu Belgar að
sætta sig við brons.
x x x
Víkverji varð enn ráðvilltari þegarhann sá á sunnudag að landslið
Belga hafði steinlegið fyrir landsliði
höfunda gauksklukkunnar. Ekki er
langt síðan Ísland og Sviss áttust við
á Laugardalsvelli. Þá unnu gestirnir
með naumindum 1:2 og var sótt svo
að þeim á lokamínútunum að þeir
máttu teljast heppnir að sleppa með
stigin þrjú. Nú valta þeir yfir Belga.
Hversu góðir eru Svisslendingar ef
þeir vinna besta liðið 5:2? Fyrir vikið
er Sviss í efsta sæti riðilsins á
markatölu, Belgía í öðru og Ísland
rekur lestina.
x x x
Víkverji hefði verið kampakátur efekki himinlifandi hefði honum
verið sagt að 2018 yrði árið, sem
landslið Íslands myndi ná sama ár-
angri og þýska landsliðið í knatt-
spyrnu. Sú virðist ætla að verða
raunin. Líkt og Íslendingar máttu
Þjóðverjar sætta sig við að komast
ekki upp úr sínum riðli á heims-
meistaramótinu í Rússlandi í sumar.
Ekki er afraksturinn betri hjá Þjóð-
verjum í þjóðadeild UEFA. Líkt og
Ísland er Þýskaland fallið í B-
deildina. Nú hefði Víkverji frekar
viljað ná sama árangri og Þýskaland
árið 2014, en ekki verður á allt kosið.
x x x
Því má bæta við að þessar vanga-veltur bera því helst vitni hvað
lukkudísirnar geta verið hvikular í
fótbolta og það er það sem gerir
íþróttina þá vinsælustu í heimi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Kenn mér að gera vilja þinn því að þú
ert Guð minn, þinn góði andi leiði
mig um slétta braut.
(Sálmarnir 143.10)