Morgunblaðið - 22.11.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 22.11.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) SJOVA -1,89% 14,55 HEIMA +7,34% 1,17 S&P 500 NASDAQ -3,12% 7.021,727 -2,48% 2.668,43 +0,60% 7.056,18 FTSE 100 NIKKEI 225 22.5.‘18 22.5.‘1821.11.‘18 1.800 85 2.270,15 1.953,30 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 64,19 -0,80% 21.507,54 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 79,57 65 2.400 21.11.‘18 Allt bendir til þess að til harðra átaka muni koma á hluthafafundi sem boð- að var til síðastliðinn mánudag í tryggingafélaginu VÍS. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 14. des- ember og efni fundarins er í raun að- eins eitt. Að kjósa nýja stjórn. Fund- urinn er haldinn að kröfu tveggja af fjórum stærstu hluthöfum félagsins, Lífeyrissjóðs verslunarmanna (8,64%) og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (6,25%). Beiðnin um fund og stjórnarkjör var lögð fram í kjölfar þess að tveir stjórnarmenn, lögmennirnir Helga Hlín Hákonardóttir og Jón Sigurðs- son, sögðu sig fyrirvaralaust úr stjórninni og báru við trúnaðarbresti. Úrsögnina mátti m.a. rekja til þess að nýr meirihluti var myndaður í stjórn- inni um að Valdimar Svavarsson yrði stjórnarformaður og Gestur B. Gestsson varaformaður. Helga Hlín Hákonardóttir var starfandi stjórn- arformaður frá því í byrjun júní síð- astliðins eftir að Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir sté úr stóli formanns í kjölfar þess að héraðssaksóknari hóf umfangsmikla rannsókn á málefnum tengdum Skeljungi en hún var um nokkurra ára skeið eigandi félagsins ásamt eiginmanni hennar, Guð- mundir Erni Þórðarsyni. Vilji til að stilla til friðar Heimildir ViðskiptaMoggans herma að lífeyrissjóðirnir tveir freisti þess, með fulltingi annarra stórra hluthafa, að ná tveimur til þremur nýjum stjórnarmönnum inn á hlut- hafafundinum í desember. Með því standa vonir til þess að hægt verði að stilla til friðar í félaginu en mikill styr hefur staðið um það síðustu fjögur ár- in. Þannig hafa þrír forstjórar verið hjá félaginu síðustu þrjú árin, fimm stjórnarmenn síðustu fjögur árin og þrír stjórnarmenn, sem allir tengjast lífeyrissjóðunum ákveðnum böndum sagt sig frá störfum fyrir félagið eftir að hafa lent í rimmu við Svanhildi Nönnu á vettvangi stjórnarinnar. Vilja öll sitja áfram Í tilkynningu sem VÍS sendi frá sér þegar boðað var til fyrrnefnds hlut- hafafundar kom fram í máli Valdi- mars Svavarssonar að allir núverandi stjórnarmenn félagsins óski áfram- haldandi umboðs til stjórnarsetu. Samhliða því greindi hann frá því að tilnefningarnefnd VÍS, sem kosin var á síðasta aðalfundi muni nú „taka til starfa og fara yfir framboð til stjórn- ar með tilliti til bestu samsetningar hæfni, reynslu og þekkingar, þannig að hún geti lagt fyrir hluthafafundinn tillögu sem líkleg er til að fá breiðan stuðning hluthafa. Viðmælendur ViðskiptaMoggans, sem ekki vilja láta nafns síns getið, segjast undrast þá ákvörðun stjórn- arformanns félagsins að nýta fund- arboðunina til að lýsa yfir framboði sínu og hinna tveggja stjórnarmann- anna. Ekki traust til nefndarinnar Heimildir ViðskiptaMoggans herma að nú meti lífeyrissjóðirnir stöðu mögulegra frambjóðenda út frá því hvernig tilnefningarnefnd félags- ins er skipuð. Ljóst sé að hluthafarnir sem styðja við stjórnarmennina þrjá sem enn sitja, hafi tögl og hagldir á nefndinni. Nefndin er skipuð fimm einstak- lingum. Þar situr reyndar enn Helga Hlín Hákonardóttir. Ásamt henni sitja þar Svanhildur Nanna, sem sjálf sækist eftir áframhaldandi umboði til stjórnarsetunnar og þau Engilbert Hafsteinsson, Gunnar Egill Egilsson og Sandra Hlíf Ocares. Þau þrjú eru öll nátengd félaginu Óskabeini sem er í eigu Gests Breiðfjörð, sem sækist eftir endurkjöri í stjórn, Engilberts, sem situr í tilnefningarnefndinni, Fannars Ólafssonar og Sigurðar Gísla Björnssonar, sem oftast er kenndur við fyrirtækið Sæmark. Gunnar Egill Egilsson er eigandi að lögmannsstofunni Nordik lög- fræðiþjónustu ásamt Andra Gunn- arssyni, eiganda Óskabeins. Sandra Hlíf Ocares er einnig náin vinkona Andra. Ekki er talið ósennilegt, í ljósi hinna nánu tengsla þeirra sem sitja í tilnefningarnefndinni að þeir fulltrú- ar sem lífeyrissjóðirnir hyggjast styðja til stjórnarsetunnar, muni bjóða sig fram og halda framboði sínu til streitu, óháð niðurstöðu nefnd- arinnar. Stefnir í vopnabrak á vettvangi VÍS Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Afar ósennilegt er talið að stórir hluthafar í VÍS muni taka mið af niðurstöðum nýlega kosinnar tilnefning- arnefndar VÍS. Morgunblaðið/Eggert Mikil átök hafa geisað á vettvangi stjórnar VÍS á síðustu árum. Nú stefnir í mikinn slag við stjórnarkjör. ORKUGEIRINN Rekstrarhagnaður Landsvirkjunar (EBIT) nam 62,6 milljónum banda- ríkjadala á þriðja ársfjórðungi, eða um 7,7 milljörðum króna á gengi dagsins í dag, og hækkar um tæp 18% miðað við sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur fyrirtækisins á fjórðungnum námu 129 milljónum dala, eða um 16 milljörðum króna, og hækka um rúm 12% miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður þriðja árs- fjórðungs eftir skatta nam 34,7 millj- ónum bandaríkjadala, eða um 4,3 milljörðum íslenskra króna. Heildareignir Landsvirkjunar í lok september námu 4,4 milljörðum bandaríkjadala, eða um 548 millj- örðum íslenskra króna. Nettó skuld- ir námu 1.940 milljónum bandaríkja- dala, um 215,3 milljörðum króna, og lækkuðu um 102,6 milljónir dala frá áramótum. Eigið fé nam 2,1 milljarði bandaríkjadala, eða um 263 millj- örðum króna. Eiginfjárhlutfall í lok september var 48%. Sé litið til fyrstu níu mánaða árs- ins nam rekstrarhagnaður án af- skrifta, EBITDA, 291,7 milljónum bandaríkjadala, um 32,4 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Rekstr- artekjur fyrirtækisins námu 398,8 milljónum bandaríkjadala, eða um 44,3 milljörðum króna, og hækkuðu um 51,5 milljónir dala, 14,8%, frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins nam 89,3 milljónum dala en var á sama tíma- bili í fyrra 78,5 milljónir dala. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir reksturinn ganga vel. „Fjölbreytt eftirspurn var frá bæði núverandi og nýjum viðskiptavinum og jókst orkusala Landsvirkjunar um 345 GWst á tímabilinu.“ peturhreins@mbl.is 4,3 milljarða hagnaður á þriðja ársfjórðungi Ljósmynd/Landsvirkjun Eignir Landsvirkjunar nema 4,4 milljörðum bandaríkjadala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.