Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Bílaheimurinn leikur á reiðiskjálfi
Gylfi hættir sem forstjóri Eimskips
Segir stöðu Icelandair flókna
Hagvaxtarstefnan að „líða undir .........
Samkaup kaupir verslanir Baskó
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
EFLA verkfræðistofa hefur fest
kaup á skosku lýsingarhönnunar-
stofunni KSLD og fjölgar starfs-
mönnum EFLU þannig tvöfalt á því
sviði þar sem fyrir starfa sjö starfs-
menn. KSLD var stofnað árið 1989
og hefur komið að fjölda verkefna
víða um heim. Kaupverðið mun vera
trúnaðarmál.
„Þetta er mjög þekkt nafn í heimi
lýsingarhönnunar og er margverð-
launað í gegnum tíðina,“ segir Guð-
mundur Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri EFLU. KSLD mun
áfram starfa undir því heiti í Ed-
inborg en í vöruþróun EFLU munu
vörumerkin tengjast saman. „EFLA
starfar við lýsingarhönnum hér á Ís-
landi og í Noregi en með þessu fáum
við feikilega sterkt nafn, með gríð-
arlega flóru af sýnilegum verkefnum
í gegnum tíðina,“ segir Guðmundur.
„Með því að tengjast KSLD með
þessum hætti getum við verið virk
hvar sem er í heiminum ef tækifærin
bjóða upp á það.“
Hann segir tvö meginmarkmið
með kaupunum. Annars vegar sé
það að styrkja þjónustu EFLU á
þessu sviði á Íslandi og í Noregi,
með aðkomu KSLD að verkefnum á
þessum svæðum. Og hins vegar að
skapa sóknartækifæri í hinum al-
þjóðlega heimi lýsingarhönnunar.
„Við höfum þegar verið að ná um-
talsverðum árangri þar og höfum
fengið viðurkenningar fyrir þau verk
sem við höfum gert hér heima. T.d.
var lýsingin í ísgöngunum í Lang-
jökli valið verkefni ársins á alþjóð-
legum vettvangi. Þannig að við höf-
um verið að ná árangri utan
landsteinanna en með þessu fáum
við gríðarlegan stökkpall inn í al-
þjóðaumhverfið,“ segir Guðmundur í
samtali við ViðskiptaMoggann.
EFLA hannaði lýsinguna í ísgöngum í Langjökli og hlaut alþjóðleg verðlaun.
Kaupa skoska
hönnunarstofu
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Verkfræðistofan EFLA hef-
ur keypt skoska lýsingar-
hönnunarstofu og hyggst
fyrirtækið styrkja stöðu
sína erlendis.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Gefi menn í á Reykjanesbraut-inni getur reynst nauðsynlegt
að tylla fæti á bremsu til þess að
bíllinn þokist ekki um of yfir lögleg-
an hraða. Við það hægir mögulega
eilítið á bílnum en þar með er ekki
sagt að hægt sé farið yfir. Þótt
bremsað sé á fullri ferð kann bíllinn
enn að þeytast áfram á 90 kílómetra
hraða.
Íslenska hagkerfið er að einhverjumarki í þessum gír í dag. Krónan
hefur gefið eftir og hefur raunar
veikst um rúm 14% á hálfu ári.
Þrátt fyrir það stendur geng-
isvísitalan í sömu sporum og hinn
27. júní 2016. Það var daginn sem
Ísland sigraði England í sextán liða
úrslitum EM í Frakklandi.
Staðreyndin er sú að hagkerfiðhefur verið á blússandi siglingu
síðustu misserin, kaupmáttur vaxið
gríðarlega og einkaneysla, sam-
neysla og fjárfesting verið mikil.
Það að nú sjáist aðeins í bremsu-
ljósin og ákveðin merki um að stað-
an í hagkerfinu verði að einhverju
marki strembnari næstu misserin
en verið hefur undanfarin ár, þá er
engin ástæða til að örvænta.
Verslunareigandi sem ég ræddivið í vikunni og sagðist sjá 5%
samdrátt í sölu nú í nóvember miðað
við fyrra ár sagðist ekki áhyggju-
fullur. Nú væri tími hagræðingar
runninn upp og að af langri reynslu
vissi hann að það væri nauðsynlegt
og hollt með reglulegu millibili.
Hann, eins og fleiri, eru kannski að
ná áttum eftir mikla gósentíð.
Áttum náð
Venju samkvæmt krýnir Rík-isskattstjóri á ári hverju nýj-
an skattakóng eða drottningu og
fer athöfnin fram samhliða því að
álagningarskrár eru lagðar fram
til að svala forvitni hinna hnýsnu.
En nú bregður við að tilhlaup að
titli næsta árs er nú tekið á hinu
háa Alþingi – og myndu frjáls-
íþróttamenn án efa fella það undir
augljóst þjófstart.
Þar er á ferðinni þriðji þing-maður Reykjavíkurkjördæmis
suður, Ágúst Ólafur Ágústsson.
Fer hann nú mikinn og telur rík-
issjóð verða af gríðarlegum
tekjum vegna of lágra skatta. Hef-
ur hann nú svo mánuðum skiptir,
nær þindarlaust, bent á tækifæri
til aukinnar skattpíningar og virð-
ist hann m.a. sjá sérstök sókn-
arfæri þegar kemur að fjármagns-
tekjuskattinum. Um það sagði
hann í þingræðu í september síð-
astliðnum: „Fjármagnstekjuskatt-
urinn. Það er líka vannýttur tekju-
stofn [auk hærri kolefnisskatts].
Hann á núna að skila 2 milljörðum
kr. minna í ríkiskassann en fjár-
málaáætlunin frá því í vor gerði
ráð fyrir.“
Hagfræðingurinn Ágúst Ólafurvirðist ekki átta sig á að
minni fjármagnstekjuskattur er
afleiðing af minni umsvifum í hag-
kerfinu – lægri fjármagnstekjum
þess ógurlega hóps sem hefur
tekjur af fjármagni í hagkerfinu.
Og hann virðist halda að með því
að hækka álögur á fjármagn, þá
muni skatttekjurnar aukast!
En það er fleira sem skatta-kóngurinn virðist ekki taka
inn í reikninginn. Hvaða áhrif ætli
hann telji að hærri fjármagns-
tekjuskattur muni hafa á hinn
óburðuga leigumarkað með íbúð-
arhúsnæði? Ætli eigendur hús-
næðisins muni taka skattahækk-
anirnar á kjammann eða ætli þeim
verði velt út í hærri húsaleigu?
Eða sykurskatturinn sem kóng-
urinn virðist afar hrifinn af og vill
hafa sem mest af. Ætli hærri
skattur á matvæli – sem sykur er
nýttur til að bragðbæta – muni
bara skila sér í hærri tekjum í rík-
issjóð og lægri framlegð versl-
unarinnar? Líklegast er að þessar
hugmyndir feli í sér að helst verði
höggvið, þegar uppi er staðið,
nærri þeim sem hlífa skyldi.
Skattakóngur þjófstartar
Fjölskyldufaðir í Que-
bec í Kanada hefur
höfðað mál gegn
McDonalds vegna
barnamáltíða.
Í mál vegna
barnamáltíða
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ