Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 11FRÉTTIR Af síðum Nærhaldaframleiðandinn Victoria’s Secret hefur æst fjárfestana á Wall Street upp, en þó ekki af þeirri ástæðu sem eggjandi undirföt gera yf- irleitt. Sölutölurnar hafa verið á niðurleið og hlutabréfaverð móðurfyr- irtækisins L. Brands hefur lækkað um meira en 40% það sem af er þessu ári. Von er á róttækum aðgerðum. Rétt eins og skærlitar nælon- nærbrækurnar sem finna má í verslunum Victoria’s Secret, sem er mik- ilvægasta vörumerki L. Brands, munu arðgreiðslur ekki verða efn- ismiklar. Fram til þessa hefur tekist að halda arðgreiðslum óskertum með því að draga úr kostnaði, og eftir að hlutabréfaverðið lækkaði gátu fjárfestar vænt nærri því 9% ávöxtunar á ári. Nú er búið að lækka arðreiðslur um helming, niður í 1,20 dali á hlut – sem jafngildir samt 4% ávöxtun og verður að teljast prýðilegt. Það fé sem tekst að spara með því að skera arðgreiðslur niður verður notað til að lækka skuldir – sem er alveg upp- lagt þegar heildarskuldir jafngilda þreföldum rekstrarhagnaði fyrir af- skriftir og fjármagnsliði. En það þarf meira til en að lækka arðgreiðslur um 325 milljónir dala ef á að takast að grynnka almennilega á skuld- unum. Annaðhvort þarf L. Brands að kreista meira fé út úr fyrirtækjum sínum ellegar loka fleiri verslunum. Til skemmri tíma litið verður að teljast ólíklegt að salan muni taka kipp. Victoria’s Secret virðist eins og eitthvað aftan úr fortíð þegar ásýnd vörumerkisins er borin saman við framsæknari undirfatamerki á borð við Savage X Fenty sem Rihanna stendur á bak við, eða ThirdLove. Það bætti ekki úr skák þegar Ed Razek, yfirmaður markaðsmála, sagði í við- tali við Vogue að árleg undirfatasýning fyrirtækisins myndi ekki skarta fyrirsætum með fjölbreytilega líkamsgerð. Að því undanskildu að eitt nærfatamódelið er orðið 37 ára! Það var þá aldeilis fjölbreytnin. Hann ber það fyrir sig hvað áhorfstölurnar eru góðar og heldur því fram að milljón manns hafi fylgst með síðustu sýningu. En gott áhorf skiptir litlu máli ef það skilar sér ekki í aukinni sölu. Þegar frammistaða hverrar verslunar fyrir sig er skoðuð hafa sölutekjur að jafnaði dregist saman um 6% hjá Victoria‘s Secret, sem skaffar meira en helminginn af samanlögðum sölutekjum L. Brands. Það að skipta um manninn í brúnni, fá stjórnanda sem áður var hjá Tory Burch, gæti þýtt að varan mundi breytast, en áhrifin kæmu ekki fram alveg strax. Kannski mun óvæntur bjargvættur spretta fram. Victoria’s Secret hélt sýninguna sína í Sjanghæ í fyrra og lagði út netin fyrir kínverska kaupendur. Nú síðast fór sýningin fram í New York, á heimaslóðum framtakssjóða. En ef ekkert breytist þarf L. Brands að taka verslanir sínar til ræki- legrar skoðunar. Eins og stendur er reiknað með að heildar-fermetra- stærð verslana Victoria’s Secret í Bandaríkjunum muni nokkurn veginn standa í stað. Það er lítið vit í því. Nú þegar búið er að skera arðgreiðsl- urnar niður ætti næst að beita niðurskurðarhnífnum á versl- anirnar. LEX Victoria’s Sceret: á nál- um út af nærklæðum Í viðtali við Financial Times í júní sagði Carlos Ghosn að það skipti höfuðmáli hvernig stjórnandi fyr- irtækis léti af störfum, því starfs- lokin senda ákveðin skilaboð. Ghosn var á mánudag, eins og upp úr þurru, sakaður af japanska bíla- framleiðandanum Nissan – sem hann átti á sínum tíma þátt í að koma á réttan kjöl – um að hafa „oft- sinnis“ gerst uppvís að „stórtækum“ brotum í starfi; þar á meðal að nota eignir félagsins í eigin þágu og gefa ekki tekjur sínar upp að fullu. Sak- sóknari í Tokyo lét handtaka hann og fyrirtækið sagði að sú tillaga yrði lögð fyrir stjórnarfund í dag að fjar- lægja Ghosn úr stöðu stjórnarfor- manns. Ghosn hefur ekki enn tjáð sig um ásakanirnar, en næsta víst er að þau skilaboð sem hann mun senda um brottför sína frá fyrirtækinu verða ekki þau skilaboð sem hann hefði viljað. Sennilega er orðspor Ghosn ónýtt fyrir fullt og allt, en hann hefur leitt þríhliða samstarf Nissan, Mitsubishi og Renault, þar sem hann er enn for- stjóri. Er mögulegt að sjálft sam- starfið, þar sem Ghosn var límið sem hélt öllu saman, gæti verið í hættu. Prýddi bentó-box Ghosn fellur úr alveg sérstaklega mikilli hæð. Á 10. áratugnum stokk- aði hann upp rekstur Renault og hlaut fyrir það viðurnefnið „le cost killer“. Árið 1999 beitti hann sömu aðferðum á Nissan, sem þá var í vanda statt, og uppskar mikið lof Japana sem vottuðu honum virðingu sína með því t.d. að gefa út teikni- myndasögu sem fjallaði um lífshlaup forstjórans og selja bento-nestisbox sem líktust andliti hans. Ef við lítum fram hjá svona skrautlegum smáatriðum þá minnir vegferð Ghosn á æði marga úr efstu lögum atvinnulífsins, sem þurfa sí- fellt að hafa það hugfast að dramb er falli næst. Ef til vill eru ófarir Ghosn til marks um að tímabil alþjóðlegra stjörnu-stjórnenda hafi náð vissu há- marki, og reki sig núna á nýjar hindranir í alþjóðaviðskiptum og minni þolinmæði almennings gagn- vart ofurlaunum stjórnenda, fríð- indum þeirra og lífsstíl. Þar með er ekki lítið gert úr þeim árangri sem Ghosn náði snemma á ferlinum, og afburðahæfileikum hans sem stjórnanda. Á fundi með blaðamönnum í Tokyo seint á mánu- dagskvöld gerði Hiroto Saikawa, sem tók við af Ghosn sem forstjóri Nissan á síðasta ári, það alveg skýrt að Ghosn-tímabilið væri á enda. En jafnvel hann viðurkenndi að Ghosn hefði „afrekað hluti sem fáir aðrir hefðu getað“, sér í lagi á fyrstu stig- um viðsnúningsins hjá Nissan. Það er skiljanlegt að hluthafar og stjórn taki undir fagnaðarlætin þeg- ar hæfileikaríkir stjórnendur stíga fram í sviðsljósið. En það verður til þess að margir leiðtogar atvinnulífs- ins draga rangar ályktanir um eigið ágæti: að þeir séu óskeikulir og eng- inn geti komið í þeirra stað. Há laun og ýmis fríðindi, eins og einkaþotur og lúxusíbúðir, bæta upp fyrir það álag sem fylgir því að stýra fyrirtækjum sem spanna margar heimsálfur. En hætturnar koma í ljós þegar stjórnendur fara að taka þessum fríðindum sem sjálfsögðum hlut. Þeir leysa landfestarnar sem tengja þá við samfélagið þar sem fyrirtækin þeirra starfa, og fljóta upp til himins í gylltri loftbólu með öðrum auðkýfingum sem eru ein- angraðir frá heiminum á alveg sama hátt. Þegar bólan springur þá er fall- ið til jarðar alveg sérstaklega erfitt fyrir stjórnendur sem voru bara ráðnir til að sinna starfinu, borið saman við þá sem eru frumkvöðlar eða stofnendur. Að þekkja sinn vitjunartíma Rétt eins og með stjórnmálamenn þá eru það mistök sem binda endi á feril margra forstjóra. Þeir sem sitja lengur en þeir ættu í forstjóra- stólnum lenda oft í því að misstíga sig síðustu árin í starfi. Og ofur- áhersla á að fá sem mest greitt fyrir störfin – sem Ghosn var oftsinnis gagnrýndur fyrir – þýðir að enn meiri þrýstingur er á stjórnendur kauphallarfélaga að standa sig í stykkinu. Ghosn virtist vera að tak- ast vel til við að kveðja með mjúkleg- um hætti. Hann hafði rétt Saikawa stjórnartaumana hjá Nissan, og fyrr á þessu ári ráðið nýjan forstjóra til að stýra Renault til að geta einbeitt sér betur að samstarfi Nissan og Mitsubishi. En þegar upp er staðið virðist Ghosn, rétt eins og Íkarus, hafa flog- ið einkaþotu sinni aðeins of nálægt sólu. Örlög Ghosn ættu að vera víti til varnaðar fyrir stjórnendur sem hrærast allir í sömu kreðsunni og virðast alltaf með fæturna langt frá jörðu, og minna þá á að tími sé kominn til að lenda. Stjórnendur þurfa að gæta sín á drambinu Ritstjórn FT Þeir sem stýra risastórum alþjóðlegum fyrirtækjum þurfa að gæta sín á því að missa ekki jarðteng- inguna. Ef þeim skrikar fótur falla þeir til jarðar úr mikilli hæð. AFP Carlos Ghosn hefur áorkað miklu sem stjórnandi en virðist hafa farið fram úr sjálfum sér. Þegar menn falla úr svona háum söðli gagnast hjálmurinn lítið. TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til l i 286,8 2 verslunar-/ þjónustuhúsnæði á mjög góðum stað við Skútuvog. Laust samkvæmt nánar samkomulagi. Húsnæðið skiptist upp í opið verslunarrými, fundarherbergi/ skrifstofuherbergi, eldhús/ kaffistofu, snyrtingar og lager með innkeyrsluhurð frá suðurhlið hússins. Góð lýsing í loftum. Næg bílastæði. VSK leggst við leigufjárhæðina. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Skútuvogur 11, 104 Rvk Gerð: Verslunar-/ þjónu t húsnæði Stærð: 286,8 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Helgi Már Karlsson Löggiltur leigumiðlari, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. 897 7086 | 534 1024 hmk@jofur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.