Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 4
STÖÐUTÁKNIÐ Það þykir nokkuð gott að eiga hring með stórum demanti, en hvað ef demanturinn er svo stór að hann myndar sjálfan hringinn? Einmitt þannig hringur verður boðinn til sölu á uppboði Sothe- by‘s í Miami 5. desember næst- komandi. Er áætlað að hringurinn seljist á 150-250.000 dali, sem verður að teljast nokkuð vel sloppið þegar haft er í huga hversu mikið hefur verið í hann lagt. Um sérhannaðan og sérsmíð- aðan hring er að ræða, og er hann slípaður úr gervidemanti sem bandaríska sprotafyrirtækið Dia- mond Foundry framleiddi. Verður stærð hringsins löguð að fingri kaupandans, svo lengi sem hann þarf ekki meira en stærð 5. Tvær af skærustu stjörnum vöru- og iðnhönnunarheimsins, þeir Jony Ive hjá Apple og Marc Newson, eiga heiðurinn að útliti hringsins, og hafa gefið honum nafnið The (Red) Diamond Ring. Mun ágóðinn af sölu skartsins renna til Product (RED) verkefn- isins sem vinnur að því að upp- ræta HIV og alnæmi í Afríku. ai@mbl.is Demants hringur engum öðr- um líkur 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR Það mæðir mikið á Ólafi Erni enda hugbúnaðaryrirtækið Kolibri í ör- um vexti. Hann gætir þess að viða að sér þekkingu úr ýmsum áttum og núllstillir sig inni í eldhúsinu. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Kolibri hefur tvöfaldast að stærð á rúmlega tveimur árum og því hafa fylgt alls kyns áskoranir. Það hefur falið í sér mikla aðlögun á því hvernig við vinnum, eigum sam- skipti og skipuleggjum okkur. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Í síðustu viku sat ég námskeiðið Mastering Innovation & Design Thinking sem Háskólinn í Reykja- vík stóð fyrir í samstarfi við kenn- ara úr MIT. Það gaf mér kröftugan innblástur. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? David Heinemeier Hanson og Jason Fried skrifuðu bókina Gett- ing Real en hún er mér ofarlega í huga sem allsherjar heilræðakver í rekstri, nýsköpun og vöruþróun. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Ég verð yfirleitt fyrir aðkasti frá konunni minni þegar ég voga mér að setja upp derhúfu. Þá segir hún að ég líti út eins og danski Klovn leikarinn Frank Hvam Nielsen. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég upplifi vinnustaðinn minn sem mikið lærdómsumhverfi en annars les ég og hlusta á við- skiptabækur og fylgist almennt vel með því sem skrifað er um í brans- anum. Hugsarðu vel um líkamann? Ég æfi hjólreiðar og hef með hverju árinu hugsað betur um mat- aræði og andlega heilsu. Hvert væri draumastarfið ef þú markaði og í efnahagsmálum er svo galli við rekstrarumhverfið sem er sérstaklega erfiður fyr- irtækjum í nýsköpun. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ég fæ mestan innblástur af að ræða við hugmyndaríkt og öflugt fólk. Stundum finnst mér gott að fá ráðleggingar frá einhverjum sem kemur úr allt öðru samhengi en maður sjálfur. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Fyrir hádegi myndi ég leggja áherslu á nútímavæðingu í siðferði- legum efnum, vistvænan iðnað og samgöngur. Eftir hádegi legði ég allt kapp á að framkvæma framtíð- arsýn mína um hugvitslandið Ís- land. SVIPMYND Ólafur Örn Nielsen framkvæmdastjóri Kolibri Fyrirtæki eru að hugsa stafrænt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ólafur segir óvissu á vinnumarkaði og í efnahagsmálum koma sér illa fyrir nýsköpunarfyrirtæki. Vatnshitablásarar hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10, græn gata | 200 Kópavogi FÁst aðeins í & Vinsælu jóladagatölin eru komin aftur STÖRF: Forritari hjá mbl.is 2006-2009; forstöðumaður staf- rænna viðskipta Eddu útgáfu 2009-2010; sérfræðingur í vef- greiningu hjá mbl.is 2010-2012; vefmarkaðsstjóri WOW air 2012- 2013; framkvæmdastjóri Form5 2013-2014; ráðgjöf, sala og markaðssetning hjá Kolibri 2014-2015; framkvæmdastjóri Ko- libri síðan 2015. ÁHUGAMÁL: Ég er nörd og eru tækni, hjólreiðar og matreiðsla þeir staðir sem ég fæ útrás fyrir það akkúrat núna. FJÖLSKYLDUHAGIR: Giftur Árdísi Ethel Hrafnsdóttur lögfræð- ingi hjá Eik fasteignafélagi og eigum við tvær dætur. HIN HLIÐIN þyrftir að finna þér nýjan starfa? Þá væri ég klárlega kokkur. Ég næ ákveðinni núllstillingu og jarð- tengingu með eldamennsku og hef gífurlega ástríðu fyrir henni. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Öll fyrirtæki eru að hugsa meira stafrænt og því fylgja skemmti- legar áskoranir. Óvissa á vinnu- Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.