Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 Matvælastofnun þarf nauðsynlega aukið fjár- magn til að geta sinnt bæði eftirliti og um- fangsmikilli stjórnsýslu vegna fiskeldis. Að mati stofnunarinnar þarf að ráða inn starfsfólk sem sinnt getur stjórnsýslunni og haft eftirlit með rekstrarleyfum sem og fisksjúkdómum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Ernu Karenar Óskarsdóttur, fagsviðsstjóra fiskeldis hjá Matvælastofnun, við fyrirspurn 200 mílna. Stofnunin tók við stjórnsýslu og eftirliti vegna rekstrarleyfa í fiskeldi árið 2015. Á því tímabili hefur framleiðsla í greininni nær þre- faldast hér á landi. Samhliða þeirri þróun hef- ur stjórnsýsla aukist mikið vegna vinnslu og útgáfu rekstrarleyfa, úrvinnslu fyrirspurna og úrvinnslu kærumála, auk annarra atriða. Á sama tíma hefur fjöldi starfsmanna við eftirlit haldist tiltölulega óbreyttur. Hjá stofn- uninni starfa tveir dýralæknar, í rúmlega einu og hálfu stöðugildi, sem hafa eftirlit með heil- brigði og velferð fiskanna. Auk þeirra ber einn starfsmaður ábyrgð á meðferð rekstrarleyfis- umsókna fiskeldisfyrirtækja, útgáfu leyfanna og eftirliti með þeim. Muni leggja til verulegar úrbætur Erna Karen segir atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið vinna nú að tillögum að veru- legum úrbótum, með það að markmiði að efla bæði stjórnsýslu og eftirlit með málaflokkn- um. „Stofnunin hefur staðið ágætlega undir þeim kröfum sem gerðar eru til opinbers eftir- lits í núgildandi löggjöf um fiskeldi, en eftir- litsþörf eykst með auknu fiskeldi og það kallar á ítarlegri kröfur og meira eftirlit,“ segir Erna Karen. Eftirlitinu sé sinnt eins og kveðið sé á um í lögum og reglugerðum, en ekki sé svig- rúm til að auka eftirlitið nema til komi meira fjármagn. Hún bendir á að áskorun stofnunarinnar í fiskeldismálum í dag komi einnig til af því að lítill tími gefist til að sinna stjórnsýslunni, það er meðferð umsókna um rekstrarleyfa og út- gáfu leyfa. „Úrlausnarefni Matvælastofnunar og ráðu- neytisins nú er því ekki síður hvernig efla megi stjórnsýsluþátt samhliða því að tryggja áfram eftirlit og aukið vægi þess með hliðsjón af auknu fiskeldi og ráðgerðum breytingum á löggjöf. Þá þarf að vinna að þróun aðferða í eftirliti, svo sem áhættuflokkun fiskeld- isstöðva með tilliti til ákvörðunar á tíðni eft- irlits, skráningu verklags, þróun gagnagrunna fyrir eftirlitsniðurstöður og rýni gagna frá fyrirtækjum.“ Geti bætt úr brýnustu verkefnum Í þessu sambandi segir Erna Karen að vert sé að geta þess að ýmis ný ákvæði bæði varð- andi eftirlit og stjórnsýslu hafi komið fram í tillögum um breytingu á lögum um fiskeldi. Þar á meðal sé mun tíðari upplýsingagjöf frá fiskeldisfyrirtækjum til opinberra eftirlits- aðila, sem um leið kalli á stöðuga rýni og eftir- fylgni af þeirra hálfu og aukinn starfskraft. Stofnunin hefur nýverið auglýst laust starf sérfræðings í fiskeldi, sem ætlað er að starfa muni bæði við eftirlit og stjórnsýslu. „Tímabundnar tilfærslur verkefna hjá starfsfólki stofnunarinnar og ráðning nýs starfsmanns geta bætt úr brýnustu verk- efnum, en eru ekki lausnir sem duga til að ráða bót á núverandi verkefnaálagi og duga skammt þegar horft er til ráðgerðra breytinga á löggjöf og áætlaðs vaxtar í fiskeldi á kom- andi árum,“ segir Erna Karen. „Matvælastofnun leggur fram fjármagn til þeirra úrbóta sem nú er unnið að, en til stuðn- ings þeim ráðstöfunum og til frekari uppbygg- ingar þarf aukið framlag á fjárlögum.“ Aukið fiskeldi kallar á fjárútlát Skúli Halldórsson sh@mbl.is Framleiðsla í íslensku fiskeldi hefur stóraukist undanfarin ár. Samhliða hefur álag í stjórnsýslu farið vax- andi og eftirlit staðið í stað, að mati fagsviðsstjóra fiskeldis hjá MAST. Ljósmynd/Kjartan Lindbøl Erna Karen segir að ráðuneytið vinni nú að tillögum að verulegum úrbótum í málaflokknum. Allt að 3.000 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð við Víkurhvarf 1 í Kópavogi til leigu. Einnig er hægt að skipta hús- inu í ca 2.000 fm rými og ca 1.000 fm rými. Húsnæðið býður uppá mikla möguleika. Hentar vel fyrir verslun, lager og iðnað. Einnig eru lausir um 400 fm á horni jarðhæðarmeð góðum gluggum og fallegu útsýni. Glæsileg bygging með hárri lofthæð. Næg bíl- astæði fyrir framan og ofanverðu við húsið. Eignin er laus til afhendingar nú þegar. Síðumúli 13 108 Reykjavík S. 577 5500 atvinnueign.is Fasteignamiðlun TIL LEIGU ATVINNUHÚSNÆÐI VÍKURHVARF 1 - KÓPAVOGI Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Hentar vel fyrir verslun, lager og þjónustufyrirtæki 3.000 fm - 2.000 fm - 1.000 fm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.