Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 7
leiðslu en öðrum plasttegundum og
endurvinnsla frauðplasts sé ann-
mörkum háð: „Þeir innviðir sem þarf
til að endurvinna frauðplastið eru
ekki endilega til staðar á öllum mörk-
uðum og ekki hægt að nota endur-
unna frauðplastkassa aftur undir
matvæli.“
Harpa segir hægara sagt en gert
að minnka plastnotkun sjávarútvegs-
ins en vert að skoða lausnir eins og
t.d. nýja kynslóð plastkassa sem
gætu, í sumum tilvikum, leyst
frauðplastöskjur af hólmi. Hún bend-
ir á að þó æskilegt sé að draga úr
notkun þess sé plastið mikið þarfa-
þing og hjálpi til að viðhalda gæðum
vörunnar og tryggja að neytandinn
fái heilnæma máltíð á diskinn sinn.
„Ef Ísland tæki forystu á þessu
sviði gæti það verið jákvætt fyrir
markaðssetningu íslenskra sjávaraf-
urða, ætti um leið að hjálpa við að
minnka kolefnisspor greinarinnar, og
væntanlega ná fram sparnaði með
minni umbúðanotkun,“ útskýrir
Harpa og bætir við að alls staðar í
keðjunni þurfi að hafa vakandi auga
með leiðum til að nota minna af
plasti.
En eins og getið var í byrjun er
gott fyrsta skref að reyna að draga
upp skýra mynd af stöðunni eins og
hún er í dag. „Í framhaldinu væri t.d.
vert að skoða að þróa og innleiða ein-
hvers konar umhverfisvottun sem
tekur mið af því að fyrirtæki í sjávar-
útvegi leggi sig fram við að lágmarka
plastnotkun, eða noti plast sem fram-
leitt er með minna kolefnisspori og
auðveldara er að endurvinna eða end-
urnýta,“ segir Harpa. „Við þurfum
líka að vara okkur á því hugarfari að
halda að okkar ákvarðanir skipti
engu máli í stærra samhengi hlut-
anna: margt smátt gerir eitt stórt og
sem heild geta neytendur og fyr-
irtæki komið miklu til leiða í barátt-
unni gegn plastmengun.“
Ekki hefur farið framhjá neinum sú
vitundarvakning sem orðið hefur um
mikilvægi þess að draga úr plast-
notkun. Beinast spjótin ekki hvað síst
að matvælaframleiðendum og eykst
þrýstingurinn frá bæði verslunum og
neytendum að hafa sem minnst plast
í umbúðum og pakkningum.
Harpa Brynjarsdóttir segir mik-
ilvægt að sjávarútvegurinn sé með-
vitaður um þessa þróun en fyrsta
skrefið til að finna leiðir til að minnka
plastnotkun sé að kortleggja stöðuna.
Harpa útskrifaðist frá sjávarútvegs-
fræðibraut Háskólans á Akureyri
fyrr á þessu ári og fjallaði lokaverk-
efni hennar um plastnotkun í sjávar-
útvegi. Verkefnið byggðist m.a. á ít-
arlegri rannsókn sem Harpa gerði í
samstarfi við HB Granda þar sem
hún mældi og greindi plastnotkun fé-
lagsins.
„Í náminu kviknaði hjá mér áhugi
á umhverfismálum sjávarútvegsins,
og þá sér í lagi á plastmengun.
Snemma á fyrstu önninni í háskól-
anum heimsóttum við vinnslu HB
Granda og fylgdumst með pökkun á
makríl. Þetta var í fyrsta skiptið sem
ég kom inn í fiskvinnslu og meðal
þess sem ég veitti athygli var hve
mikið plast væri notað við pökk-
unina.“
Mikið plast fylgir
ferska fiskinum
Það hjálpaði Hörpu að HB Grandi
er með vandað umbúða- og pökk-
unarkerfi sem safnar alls kyns upp-
lýsingum um umbúðanotkun. Var því
einfaldara en ella að telja umbúð-
irnar, flokka eftir misunandi teg-
undum plasts, og vigta hverja um-
búðategund til að fá út nákvæmar
heildartölur. „Ég greindi plastnotkun
síðustu þriggja ára og kom í ljós að
notuð eru 40,2 kg af plastumbúðum,
að jafnaði, fyrir hvert tonn af fersk-
um fiski. Við landfrystingu á fiski eru
hins vegar notuð aðeins 4,8 kg af
plasti fyrir hvert tonn af afurð, í upp-
sjávarvinnslu 4,4 kg á tonn og í sjó-
frystingu lækkaði hlutfallið niður í
3,9 kg á hvert tonn.“
Ástæðan fyrir því að svo mikið
meira plast fylgir hverju tonni af
ferskum fiski er að honum er pakkað
í frauðplastumbúðir sem eru þungar
og fyrirferðarmiklar. Fer líka minna
af fiski í hverja öskju og afurðinni
ekki pakkað eins þétt og ef hún væri
fryst. „Umbúðirnar þurfa að taka
mið af því að ferski fiskurinn er oft
ekki fluttur í hitastýrðu umhverfi og
þarf að verja hann fyrir bæði hnjaski
og sveiflum í hita á leiðinni á áfanga-
stað. Hefur frauðplastið orðið ofaná
enda frauðplastkassar sterkbyggðir
og með góða einangrunargetu.“
Harpa segir gagnlegt að setja
þessar tölur í samhengi við aðra mat-
vælaframleiðslu en sams konar út-
tekt var gerð á plastnotkun í íslenskri
grænmetisrækt árið 2015. „Sú úttekt
sýndi að um 2 kg af plastumbúðum
voru notuð fyrir hvert tonn af kart-
öflum, blómkáli og gulrótum, 4 kg
fyrir hvert tonn af tómötum og 7 kg
fyrir tonnið af gúrkum, en 80 kg af
plasti fyrir hvert tonn af sal-
atplöntum.“
Hafa verður þann fyrirvara á sam-
anburði sjávarútvegs við grænmet-
isræktun að rannsókn Hörpu náði
ekki yfir það plast sem notað er þeg-
ar fiski er pakkað í neytenda-
umbúðir. „Sá hluti sem seldur er til
hótela og veitingastaða er vænt-
anlega afhentur í þeim umbúðum
sem fiskinum var pakkað í á Íslandi,
en reikna má með að sá fiskur sem
ratar í verslanir sé seldur í minni bit-
um sem hverjum um sig er pakkað í
smærri neytendapakkningar og þá
líklegast í plastumbúðir.“
Frauðplastið með
stærra kolefnisspor
Í verkefni Hörpu kemur fram að
um 30% af heildar plastumbúðanotk-
un á Íslandi tengist sjávarútvegi og
að greinin hafi notað á bilinu 6-7.000
tonn af plastumbúðum árin 2015 og
2016. Frauðplastkassar mynda stór-
an hluta af heildinni og segir Harpa
það áhyggjuefni því frauðplasti fylgi
stærra kolefnisfótspor í frumfram-
Nota um 7.000 tonn af plastumbúðum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Rannsókn leiddi í ljós að
fyrir hvert tonn af ferskum
fiski þarf ríflega 40 kg af
plastumbúðum. Við sjó-
frystingu lækkar plasthlut-
fallið niður fyrir 4 kg á tonn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hörpu grunar að geti hjálpað við markaðsetningu ef sjávarútvegurinn tekur forystu í að draga úr plastnotkun.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 7
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Varahlutir í allar
Cummins vélar
Fljót og áreiðanleg þjónusta
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Afurðaverð á markaði
21. nóv. 2018, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 265,84
Þorskur, slægður 307,36
Ýsa, óslægð 232,17
Ýsa, slægð 241,17
Ufsi, óslægður 91,78
Ufsi, slægður 95,43
Gullkarfi 246,21
Blálanga, óslægð 273,37
Blálanga, slægð 208,56
Langa, óslægð 208,95
Langa, slægð 214,17
Keila, óslægð 100,86
Keila, slægð 121,60
Steinbítur, óslægður 267,26
Steinbítur, slægður 542,14
Skötuselur, slægður 571,80
Grálúða, slægð 360,20
Skarkoli, slægður 311,05
Þykkvalúra, slægð 653,43
Bleikja, flök 1.570,00
Grásleppa, óslægð 13,00
Hlýri, óslægður 395,36
Hlýri, slægður 478,43
Lúða, óslægð 406,00
Lúða, slægð 471,29
Lýsa, óslægð 60,02
Lýsa, slægð 117,97
Skata, óslægð 17,00
Skata, slægð 88,00
Stórkjafta, slægð 162,79
Tindaskata, óslægð 8,00
Undirmálsýsa, óslægð 109,98
Undirmálsýsa, slægð 135,00
Undirmálsþorskur, óslægður 110,44
Undirmálsþorskur, slægður 95,49