Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 13

Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Rithöfundar, álitsgjafar og fræði- menn eru mjög uppteknir af því, þessi misserin, að reyna að svara þeirri spurningu hvort fjármálageir- inn geri meira ógagn en gagn. Afleiðingar alþjóðlegu fjár- málakreppunnar eru öllum enn í fersku minni og margir óttast að alls kyns brestir leynist undir yfirborð- inu: fjármálakerfið sé meingallað og annað hrun geti dunið á heimsbyggðinni þegar síst varir. Er nema von að sumir séu á nálum einmitt þegar allt virðist leika í lyndi á Wall Street. Uppsveiflu hlýt- ur jú að fylgja sársaukafull nið- ursveifla. Gott ef kvíðinn magnast ekki upp í kringum október, en það hefur gerst alloft í sögunni að tíundi mán- uður ársins hefur verið mánuður stóráfalla í fjármálageiranum. Nicholas Shaxon hefur skrifað nýja bók um kosti, en þó aðallega galla, fjármálamarkaða. Bókin heitir The Financial Curse: How Global Finance Is Making us All Poorer. Shaxon beinir sjónum sínum eink- um að vexti fjármálakerfisins á und- anförnum þremur áratugum. Hann vekur athygli á hvern- ig fjármálaheimurinn hefur orðið æ flóknari og torskildari, og hvernig það hafa ver- ið bankarnir og fjár- málaspekingarnir sem hafa notið góðs af mun frekar en al- menningur. Höfundurinn af- skrifar ekki fjár- málageirann eins og hann leggur sig en vill meina að hann þjóni ekki lengur upphaflegu hlutverki sínu, og geri meira af því að sjúga til sín verðmæti úr samfélaginu en að skapa þau. Líkir Shaxon vexti fjármálageir- ans við þann vanda sem oft kemur í ljós í löndum sem reiða sig um of á eina verðmæta auðlind, s.s. olíu: til verður ein risastór atvinnugrein sem malar gull en kæfir í leiðinni aðra kima atvinnulífsins. ai@mbl.is Gerir fjármálageir- inn okkur fátæk? HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Svört afsláttarvika 19 - 24. nóvember Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í 40-70% afsláttur af völdum HILTI, Snickers og Honeywell vörum Það er algengt í alþjóðlegum viðskiptasamningum aðmálsaðilar semji með þeim hætti að úr ágreinings-málum sem upp kunna að koma skuli leyst fyrir gerðardómi. Forsenda þess að mál sé lagt fyrir gerðardóm er samningur aðila þess efnis. Algengasta birtingarform slíks gerðarsamnings er að hann er hluti af viðskiptasamn- ingi þar sem mælt er fyrir um úrlausn ágreiningsefna. Það er þó ekki útilokað að aðilar semji sérstaklega um málsmeðferð fyrir gerðardómi eftir að ágreiningur kemur upp en slíkt er þó mun sjald- gæfara enda að öllu jöfnu mun erf- iðara að ná slíku samkomulagi þegar ágreiningur er kominn upp. Þegar samningsaðilar hafa náð samkomulagi um það að ágreiningsmál skuli lögð í gerð standa þeir frammi fyrir því að taka ýmsar ákvarðanir sem munu koma til með að hafa áhrif á málsmeðferðina ef til hennar kemur. Þannig hafa samningsaðilarnir tök á að nýta samningsfrelsi sitt til þess að tryggja eftir fremsta megni að úrlausnarformið henti því samningssambandi og sakarefni sem um ræðir hverju sinni. Málsmeðferð fyrir gerðardómi hefur ákveðna kosti og geta aðilarnir aukið skilvirkni og kostnaðarhagræði málsmeðferðarinnar með því að huga sér- staklega að tilteknum atriðum og nýta samningsfrelsi sitt til fulls þegar samið er um gerðarmeðferð. Fyrsta ákvörðunin sem aðilarnir standa að öllu jöfnu frammi fyrir er hvort þeir kjósi einstaklega ákveðna gerð- armeðferð (ad hoc) eða gerðarmeðferð í umsjón sérstakrar gerðardómsstofnunar. Þegar um er að ræða aðkomu sér- stakrar gerðardómsstofnunar þá eru það reglur stofnunar- innar sem liggja til grundvallar málsmeðferðinni og stofn- unin hefur ákveðnu umsýsluhlutverki að gegna, t.a.m. þegar kemur að því að meta hæði og sjálfstæði gerðarmanna, ákvörðun tímafresta, greiðslu kostnaðar o.þ.h. Á Íslandi er starfandi ein slík stofnun en það er Gerðardómur Við- skiptaráðs Íslands. Aftur á móti þegar um er að ræða ein- staklega ákveðna gerðarmeðferð er gerðardómur skipaður fyrir þann ágreining sem uppi er og tekur gerðardómurinn að öllu jöfnu ákvarðanir um og hefur umsjón með máls- meðferðinni. Í slíkum tilvikum er því ekki um að ræða sér- stakar reglur sem gilda um málsmeðferðina en aðilarnir geta þó samið um að tilteknar reglur skuli gilda eða jafnvel samið sínar eigin reglur. Algengt er að aðilar nýti gerðardóms- reglur UNCITRAL í þessum tilgangi en mun sjaldgæfara er að aðilar semji sínar eigin reglur. Það má því segja að ein- staklega ákveðin gerðarmeðferð feli í sér mun meiri óvissu um það hvernig gerðarmál verður rekið samanborið við það þegar slíkt mál er rekið eftir reglum gerðardómsstofnunar. Önnur ákvörðun sem aðilarnir standa frammi fyrir er hversu fjöl- mennur gerðardómurinn á að vera. Í þessu sambandi er langalgengast að mælt sé fyrir um að gerð- ardómur skuli skipaður ann- aðhvort einum eða þremur gerð- armönnum. Þau sjónarmið sem koma helst til skoðunar í þessu sambandi eru annars vegar kostnaðarhagræði og hins vegar réttaröryggi. Þegar ágrein- ingsmál eru leyst fyrir gerðardómi eru það aðilarnir sjálfir sem greiða þóknun gerðarmannanna. Það að takmarka fjölda gerðarmanna hefur því í för með sér ákveðið kostn- aðarhagræði sem og að málsmeðferðin kann að vera skilvirk- ari. Á móti hefur verið bent á að þar sem úrlausn gerð- ardóms felur í sér endanlega niðurstöðu þess ágreinings sem um ræðir og sætir ekki efnislegri endurskoðun kunni að fel- ast í því meira réttaröryggi að fela þremur aðilum að leysa úr málinu í stað eins. Þegar kemur að því að meta hversu marg- ir gerðarmenn skuli skipa gerðardóminn þurfa aðilarnir því að vega og meta þessi sjónarmið og þá hagsmuni sem þeim tengjast. Ef gerðarsamningurinn mælir ekki fyrir um fjölda gerðarmanna skulu þeir vera þrír samkvæmt lögum um samningsbundna gerðardóma. Það að leysa úr ágreiningi fyrir gerðardómi hefur ýmsa kosti í för með sér. Það hversu vel aðilum tekst að nýta sér kosti gerðarmeðferðar veltur meðal annars á því með hvaða hætti aðilarnir semja og hvaða reglur skuli gilda um máls- meðferðina. Því er mikilvægt þegar samið er um gerð- armeðferð að vandað sé til verka og hugað sé að þeim þátt- um sem líklegir eru til þess að hafa áhrif á rekstur gerðarmáls fari svo að ágreiningur komi upp. Að öðrum kosti getur sú afleidda staða komið upp að sjálfstæður ágreiningur sé uppi um það með hvaða hætti skuli leyst úr ágreiningi aðila. Mismunandi tegundir gerðarmeðferðar LÖGFRÆÐI Garðar Víðir Gunnarsson, lögmaður á LEX lögmannsstofu ” Á Íslandi er starfandi ein slík stofnun en það er Gerðardómur Við- skiptaráðs Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.