Morgunblaðið - 17.12.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018
595 1000
Bratislava
Brottfarir 1. maí eða 19. september
Frá kr.
96.995
verð m.v. brottför 1. maí í 4 nætur
Veður víða um heim 16.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Hólar í Dýrafirði 2 slydda
Akureyri 2 súld
Egilsstaðir 3 skýjað
Vatnsskarðshólar 4 léttskýjað
Nuuk -5 alskýjað
Þórshöfn 5 rigning
Ósló 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 alskýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki -4 alskýjað
Lúxemborg 1 snjókoma
Brussel 3 þoka
Dublin 6 skýjað
Glasgow 4 skýjað
London 7 léttskýjað
París 6 þoka
Amsterdam 3 þoka
Hamborg 0 skýjað
Berlín -1 léttskýjað
Vín -1 heiðskírt
Moskva -14 þoka
Algarve 17 skýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 8 heiðskírt
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -4 léttskýjað
Montreal -1 alskýjað
New York 4 rigning
Chicago 1 þoka
Orlando 17 rigning
17. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:19 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:06 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:50 14:34
DJÚPIVOGUR 10:58 14:50
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast
á annesjum og talsverð væta austantil, en
annars mun úrkomuminna. Hvessir austast
um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig.
Austlæg átt, 5-15 m/s, og gengur í austan 15-23 m/s með rigningu seinni partinn, en
23-28 um tíma syðst. Dregur úr vindi seint í kvöld. Hiti eitt til níu stig, mildast syðst.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, segist ekki ætla að
tjá sig um störf trúnaðarnefndar
flokksins og vísar á heimasíðu
Samfylkingarinnar spurður um
verkferla nefndarinnar og þau mál
sem nefndin hefur haft til umfjöll-
unar. Þá segir hann að eðli málsins
samkvæmt ríki trúnaður um mál
sem trúnaðarnefnd hafi til umfjöll-
unar.
Lögbrot til lögreglu
Formaðurinn vildi heldur ekki
tjá sig um það að Guðrún Ög-
mundsdóttir, formaður trúnaðar-
nefndar, líkaði við færslu Ágústs
Ólafs Ágústssonar, þingmanns
flokksins, um að hann hefði ákveð-
ið að taka sér launalaust leyfi í
kjölfar áminningar frá nefndinni.
Spurður hvernig metið sé hvort
mál eigi heima hjá nefndinni eða
yfirvöldum, segir hann að í öllum
tilfellum þar sem grunur sé um að
lögbrot hafi verið framið séu máls-
aðilar hvattir til þess að leita til
lögreglu.
Varaformaður Samfylkingarinn-
ar, Heiða Björg Hilmisdóttir, sagði
við mbl.is á laugardag að nefndin
hefði haft fimm mál til umfjöllunar
frá því að hún tók til starfa í febr-
úar. Þá taldi hún það ekki hættu á
hvítþvotti að mál yrðu gerð upp
innan flokks. Sagði hún þetta frek-
ar opna á umræðu um starfshætti
flokksins.
Tjá sig ekki
Ekki hefur fengist upplýst hvers
eðlis þau fimm mál eru sem nefnd-
in hefur haft til skoðunar. Ekki
tókst að ná í Þorlák Helgason, sál-
fræðing, sem situr í trúnaðarnefnd
Samfylkingarinnar. Katrín Theo-
dórsdóttir, lögmaður, sem einnig á
sæti í nefndinni vill ekki tjá sig um
málefni trúnaðarnefndarinnar.
gso@mbl.is
Ekkert gefið
upp um nefndina
Logi
Einarsson
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Fimm mál innan Samfylkingarinnar
frá febrúar 2018 fyrir trúnaðarnefnd
Jólamatarmarkaður Búrsins var haldinn í Hörpu um
helgina. Fólk kom þar við í Flóa og Norðurbryggju á
jarðhæð byggingarinnar til þess að verða sér úti um
góðgæti fyrir jólahátíðina beint frá framleiðandanum.
Matarmarkaðurinn í Hörpu rekur sögu sína til ársins
2011. Þangað sækja bændur, sjómenn og smáframleið-
endur og jafnan hefur aðsókn neytenda einnig verið
góð. Var jólamarkaðurinn í ár engin undantekning.
Verslað var með mat og handverk í Hörpu um helgina
Morgunblaðið/Hari
Jólastemning á matarmarkaði Búrsins
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Helgi Magnús Gunnarsson vararík-
issaksóknari virðist í Facebook-
færslu taka undir pistil sem Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Miðflokksins, birti á vef sínum
í gær þar sem því var velt upp hver
viðbrögð við Klausturmálinu hefðu
verið ef annar flokkur en Miðflokk-
urinn ætti í hlut. Í pistlinum, sem Sig-
mundur kvaðst ekki hafa skrifað og
ber titilinn Er sama hver er?, er Mið-
flokknum og Flokki fólksins skipt út
fyrir Samfylkinguna og Vinstri
græna og dregnar fram ólíkar mynd-
ir af því hvernig Klausturmálið hefði
getað þróast við þær aðstæður. Er í
síðara tilfellinu lögð áhersla á þá
reglu að mannréttindi fólks séu ekki
brotin með persónunjósnum og að
jafnræðis sé gætt.
„Ég held að þetta sé rétt. Það er
lítill hópur af vinstri mönnum sem
virðist telja að þeir séu dómarar um
hvað sé siðferðilega rétt. Þeir virðast
telja að þeir í nafni PC [pólitísks rétt-
trúnaðar] geti hrópað niður þá sem
eru þeim ósammála,“ skrifar Helgi
Magnús. Þetta sé fólk sem skapi þá
hættu sem steðji að lýðræði á Íslandi.
„Vegna þess að tjáningarfrelsið er
undirstaða alls góðs sem við eigum í
dag og allra framfara í framtíðinni.“
„Gapuxar eigin pólitísks rétttrún-
aðar“ sem þarna hafi sig í frammi séu
ekki mikils virði ef þjóðin láti þá ekki
stjórna sér. Því miður hafi verulegur
hluti háskólasamfélagsins hoppað á
þennan vagn. Þetta fólk sé ekkert
meira en hræsnarar sem enginn ætti
að virða viðlits.
„Ég vil taka það fram að þetta hef-
ur ekkert með mínar stjórnmála-
skoðanir að gera,“ sagði Helgi Magn-
ús í samtali um færslu sína.
Umræðan hafi hins vegar sýnt að það
sé ekki sama Jón og séra Jón.
„Það þarf ekkert að fara á milli
mála að ég er ekkert að samsama mig
þessum ummælum. Það eru allir bún-
ir að fordæma þessa vitleysu,“ segir
hann og bætir við að afgreiða hefði
mátt Klausturummælin á einum degi
sem ósæmileg og óþolandi. „Það sem
er merkilegt við þetta er að viðbrögð-
in eru nánast jafn vitlaus og þessi
ummæli.“ Eins sé galið að ætla öðr-
um sem þarna voru að bera ábyrgð á
því sem hinir sögðu. Hefðu samræð-
urnar ekki verið teknar upp þá hefðu
þessi ummæli, líkt og þeim var ætlað,
dottið niður dauð. Með upptökunni
séu þeim hins vegar gefnir vængir.
„Menn segja að þetta eigi erindi
við almenning af því þá vitum við
hvernig menn þetta eru, og allt í lagi,
við vitum þá hvernig þeir eru þegar
þeir eru búnir að drekka mikið
áfengi. Við þurfum hins vegar að
passa okkur á því að gæta jafnræðis
og getum ekki leyft einhverjum að
dæma fólk opinberlega á misjafnan
hátt eftir því í hvaða stjórnmálaflokki
það er.“ Helgi Magnús kveðst ekki
ætla að fara að gera Ágústi Ólafi
Ágústssyni, þingmanni Samfylkar-
inngar, neitt upp, en engu að síður
verði að sýna eitthvert umburðar-
lyndi. Hann telur að viðbrögðin hafi
að sínu viti verið svolítið pólitísk.
„Menn sjá þarna færi til að koma
höggi á pólitískan andstæðing og það
ýkir viðbrögðin. Það verður til þess
að menn nýta þetta út í eitt.“
Sjá nánar um málið á mbl.is.
Viðbrögð jafn vitlaus og ummælin
Sigmundur Davíð birti pistil um meintan pólitískan tvískinnung í umræðunni um Klaustursmálið
Vararíkissaksóknari segir lítinn hóp vinstri manna telja sig dómara um hvað sé siðferðilega rétt
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Helgi Magnús
Gunnarsson