Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 12

Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við Gréta kynntumst í gegn-um hundana fyrir 14 árumá Akureyri þegar hún komí heimsókn til mín með börnin sín til að skoða hvolpa hjá mér. Þá var ég með got undan þýsk- um pointer hundi sem hét Teitur, en við bróðir Grétu, Kjartan Guðbrands- son, fluttum hann saman inn frá Nor- egi, og fyrstu tíkinni minni sem hét Zelda og ræktun okkar hjóna er kennd við í dag. En við Kjartan höfð- um þekkst lengi,“ segir Kjartan Antonsson um upphaf kynna sinna og eiginkonunnar, Grétu Guðbrands- dóttur, en á heimili þeirra hjóna búa fjórir hundar, þrír þýskir pointerar og einn enskur setter. Gréta segist alltaf hafa elskað hunda. „Við erum bæði af öllu hjarta hundafólk, sem kemur sér vel því hundarnir eru stór hluti af okkar veruleika og snýst því okkar líf mikið um þá. Við og hundarnir erum fjöl- skylda og börnin saka okkur stund- um um að við elskum hundana meira en þau,“ segir Gréta og hlær og bætir við að óneitanlega snúist heimilislíf þeirra Kjartans mikið um hundana, að þjálfa þá og hreyfa. Auk þess er skotveiði mikið áhugamál hjá þeim og fara þau saman á veiðar með hundana. „Þetta eru okkar veiðihundar og þeir eru heldur betur mikil hjálp, geta fundið fyrir okkur rjúpur með þefskyninu einu á löngu færi. Þýsku hundarnir okkar eru miklir vatna- hundar og í þeirra eðli er að sækja bráðina og skila í okkar hendur.“ Villibráðartilraunir í eldhúsi Gréta var ekki vön að skjóta áð- ur en hún kynntist Kjartani. „En ég hafði mikinn áhuga á því, enda eru bróðir minn og pabbi miklir veiðimenn. Ég margspurði hvort ég mætti koma með þeim á veiðar, en fékk það ekki, af því ég er stelpa. Aft- ur á móti fékk elsti sonur minn að fara með þeim,“ segir Gréta sem var eðlilega ekki sátt við þessa mis- munun. „En þegar ég fór að stunda veiðiskap með Kjartani, þá fóru þeir að biðja um að fá að koma með okkur, þar sem við veiddum oftast mun meira en þeir,“ segir hún og hlær. „Ég elska allt sem tengist villi- bráð og finnst gaman að gera til- raunir, elda og nýta allt af skepnunni. Við veiðum líka gæsir og endur og förum stundum á hreindýr. Við borð- um heilsteikta gæs á aðfangadag og ég geri paté, gref rjúpur og gæsir, bý til soð úr beinunum frá grunni og fleira skemmtilegt,“ segir Gréta. Mamma gaf honum saumavél Kjartani og Grétu er annt um heilsu og velferð sinna hunda og því sér Kjartan um að sauma sokka á þá fyrir veiðarnar, svo þófarnir fari ekki illa á þeim. „Hundar eru að eðlisfari með misjafnlega sterka þófa en þurfa þó alltaf að vera í góðri þjálfun til að þola álagið, en á meðal veiðidegi hlaupa þeir yfir hundrað kílómetra á dag. Þeir eru að vinna með okkur og hafa brennandi áhuga á því, enda ræktaðir sem miklir vinnu- og veiðihundar sem njóta sín best við það sem þeir eru ræktaðir til, sem eru veiðar. Það er því mikið álag á þófana, sér- staklega ef færi er ekki gott, mikið harðfenni eða grjót. Enginn hundur þolir slíkt yfir heilan dag án þess að skaddast á þófum,“ segir Kjartan og rifjar upp veiðidag fyrir margt löngu þegar hundur sem hann átti þá fór mjög illa. „Hann spændi nánast upp á sér þófana og ég þurfti að bera hann úr bílnum og hingað inn. Hann stóð ekki upp í tíu daga. Ég fæ móral við að rifja þetta upp,“ segir Kjartan sem eftir þetta var harðákveðinn í að bjóða sínum hundum ekki framar upp á slíkt. „Ég handsaumaði hundasokka og fór stoltur til móður minnar að sýna henni snilldina, en hún hló og sagði þá ekki endast tíu metra, slíkur væri saumaskapurinn. Hún gerði í framhaldinu almennilegt snið fyrir mig og saumaði sokka á hundana okkar. Nokkrum árum seinna kenndi hún mér á saumavélina svo ég gæti saumað sjálfur og stuttu áður en hún lést þá gaf hún mér saumavélina því hún vissi að þá yrði hún notuð. Ég hef séð um að sauma okkar hunda- sokka síðan, og stundum líka handa vinum okkar. Hundarnir okkar eru því aldrei sárfættir lengur.“ Þau hjónin hafa gert heilmiklar tilraunir með efni í sokkana, segja best að hafa það sem slitsterkast en um leið þægilegt, það má til dæmis ekki vera sleipt í snjó. Þau „teipa“ sokkana fasta á hundana yfir stroffin og á erfiðustu veiðidögunum skipta þau þrisvar um sokka á sama hundi. „Þeir eru fljótir að slíta þeim í vondu færi, svo það er nóg að gera í saumaskapnum hjá mér,“ segir Kjartan og bætir við að þau hjónin hjálpist nú að við sokkagerðina og nái að sauma hundrað sokka á tveim- ur kvöldum. Ekki er laust við að þau hjónin séu spennt fyrir næsta ári en ef allt gengur upp þá áætla þau got seint á árinu ásamt öðrum spennandi hlutum sem snerta hunda. Ræktun þeirra hjóna heitir Zeldu ræktun eft- ir fyrsta hundi Kjartans því ef ekki væri fyrir Zeldu þá hefðu málin þróast allt öðruvísi. Skyttur Kjartan og Gréta með feng sinn eftir góðan veiðidag.Hundasokkar Kjartan saumar hundasokka af miklum móð.Flott Tíkin Siw í sokkunum góðu á köldum degi á skytteríi. Samstiga skyttur og hundelskar Á jólaborði þeirra er heil- steikt gæs sem þau hafa sjálf veitt. Kjartan og Gréta njóta þess að fara saman á skytterí með hunda sína en þá skarta þeir heimasaumuðum sokkum, til hlífðar þóf- um, ef færi er vont. Morgunblaðið/Hari Hundalíf Þegar fjórir stórir hundar búa á heimili, þarf heimilisfólkið að vera einlægt hundaáhugafólk. Kjartan og Gréta með Fönn (hvít tík, enskur setter) en fyrir aftan eru Tíur, Siw og Níta, sem öll eru þýskir pointerar. Útivist Gréta og Tíur njóta veiða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.