Morgunblaðið - 17.12.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 17.12.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Gunnar Baldvinsson á langan starfsferil að baki í rekstri lífeyrissjóða og hefur verið framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins frá árinu 1990. Hann er menntaður við- skiptafræðingur og lauk MBA-námi frá University of Rochester árið 1988. Þetta er fimmta bók Gunnars, sem allar hafa fjallað um fjármál einstaklinga. Hann segist með þessari nýju bók hafa viljað benda á leiðir til að stuðla að góðum eftirlaunum. Bókin eigi að höfða til allra, hvort sem langt eða stutt sé í eftirlauna- aldurinn. Þannig er í bókinni sérstök umfjöllun um hálfan lífeyri sem Gunnar segir geta hentað einstaklingum sem vilji draga úr vinnu eða vera lengur á vinnumarkaði og þá í allt að hálfu starfi. Hægt er að nálgast bókina í flestum bókaverslunum og þá er hægt að panta hana á vef útgef- anda, www.framtidarsyn.is. Fimmta bókin um fjármál GUNNAR MEÐ LANGA REYNSLU AF REKSTRI LÍFEYRISSJÓÐA Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Tryggvagötu 18 - 552 0160 Gjöfin sem vermir Bankastræti 12 Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA www.yrsa.is Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn fyrir jólin Guð blessi ykkur öll út frá því. Það fyrsta sem hver og einn þarf að gera er að kanna hvað hann getur á von á að fá í eftirlaun miðað við núverandi réttindi og sparnað. Því næst þarf að leggja mat hvort áætluð eftirlaunin séu ásættanleg eða hvort viðkomandi þurfi eða geti gert ráðstafanir til að hafa áhrif á þau. Yfirleitt er hægt að hafa áhrif á eftirlaunin, sér- staklega hjá þeim sem eiga langt í eftirlaun. Í bókinni er bent á leiðir til þess.“ Auka sparnað og lækka skuldir Gunnar segir að þeir sem eiga langt í eftirlaun hafi yfirleitt svig- rúm til að gera ráðstafanir til að tryggja sér góð eftirlaun og ráða sínum eigin starfslokum. Helsta ráðleggingin hér sé að auka sparnað og/eða greiða niður skuldir. Þeir sem fara á eftirlaun eftir nokkur ár hafi minna svigrúm en engu að síð- ur sé margt hægt að gera til að hafa áhrif á eftirlaunin og fjárhagslegt öryggi. Spurður hvenær fólk ætti að hefja töku eftirlauna segir Gunnar það yfirleitt persónubundið. „Sumir verða að hætta þegar launagreiðandi ákveður svo eða þegar þeir geta ekki unnið lengur af heilsufarsástæðum. Þeir sem geta hins vegar ráðið því hvenær þeir láta af störfum eiga að gera það þegar þeir eru tilbúnir, það er ef þeir telja sig fá næg eftirlaun og eru reiðubúnir að hætta og breyta um lífsstíl,“ segir hann. – Hvað á að gera þegar taka eftirlauna hefst? „Hver og einn á að byrja á að safna upplýsingum um réttindi og sparnað sem samanlagt mynda eftirlaun. Að því loknu er ráðlegt að gera áætlun um samsetningu eftir- launa eða um lífeyrisgreiðslur og hvernig gengið er á eignir. Mark- miðið er að tryggja jafnt tekju- streymi og að eftirlaunasjóðurinn tæmist ekki of fljótt. Til viðbótar mæli ég með að hjón eða sambýlis- fólk fari yfir fjármál maka við frá- fall.“ Samningar hafa verið samþykktir á milli Sýndarveruleika ehf. og Sveit- arfélagsins Skagafjarðar um upp- byggingu nýrrar ferðaþjónustu- starfsemi á Sauðárkróki. Samningurinn er gerður til 30 ára og samkvæmt honum mun félagið Sýndarveruleiki koma upp og starf- rækja sýningu um Sturlungaöldina þar sem áhersla er á nýjustu tækni í miðlun, m.a. með sýndarveruleika. Ætlunin er að sýningin skapi vel á annan tug beinna starfa í Skagafirði og að hún efli Skagafjörð sem áfangastað fyrir ferðafólk. Með framlagi sínu eignast sveitarfélagið 10% hlut í Sýndarveruleika ehf. Stefnt er að því að sýningin verði opnuð á fyrsta ársfjórðungi 2019. Verið er að standsetja húsnæðið að Aðalgötu 21 á Sauðárkróki. Sýningin hefur fengið nafnið 1238 – The Battle of Iceland og þar verð- ur áhersla lögð á að miðla sögu Sturlungaaldar með hjálp nýjustu tækni í miðlun s.s. með sýndarveru- leika. Auk þess verður í húsnæðinu veitingaaðstaða, safnbúð og snyrt- ingar, auk upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn sem rekin verður á vegum Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar. Sveitarfélagið leggur Sýnd- arveruleika jafnframt til húsnæði undir áðurnefnda starfsemi endur- gjaldslaust en Sýndarveruleiki mun annast rekstur þess. Fjárfesting Sýndarveruleika ehf. í áðurnefndri sýningu og uppbygg- ingu í Skagafirði hleypur á hund- ruðum milljóna króna. Nú starfa hjá fyrirtækinu tveir starfsmenn í fullu starfi, Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri og Svanhildur Pálsdóttir verkefnastjóri og ráðn- ingar á fleira starfsfólki hefjast í upphafi nýs árs. Sýndarveruleiki er í eigu fjögurra fjárfestingahópa, meirihlutaeig- endur og leiðandi fjárfestar eru fyr- irtæki í eigu Ingva Jökuls Logason- ar. Búist er við að sýningin muni skapa 12-14 bein störf í ferðaþjón- ustu á Sauðárkróki. Opnun hennar er ætlað að fjölga þeim ferðamönn- um sem sækja Norðurland og Skagafjörð heim og efla þannig alla ferðaþjónustu á svæðinu. Sýningin hefur þegar fengið mikil og góð við- brögð hjá ferðaskipuleggjendum og aðilum sem standa að markaðs- málum íslenskrar ferðaþjónustu er- lendis, segir í fréttatilkynningu. Sýndarveruleiki í sam- starf við Skagfirðinga  Sýndarveruleikasafn opnað á Sauðárkróki á næsta ári Sýndarveruleiki Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri sýningar- innar, með kynningu á verkefninu fyrir sveitarstjórnarmenn í Skagafirði. Reykjavíkurborg og íslenska ríkið eru formlega búin að sækja um að fá að halda 33. verðlaunahátíð evr- ópsku kvikmyndaverðlaunanna árið 2020. Þetta staðfestir Dagur B. Egg- ertsson, borgar- stjóri Reykjavík- ur, í samtali við mbl.is í gær. Greint var frá því í Morgun- blaðinu nýverið að borgin og ríkið hefðu samþykkt heimild til að sækja um hátíð- ina. Sendinefnd á vegum Íslands var á kvikmyndahá- tíðinni í Sevilla á Spáni um helgina og kynnti sér framkvæmd og ræddi við evrópsku nefndina. Reykjavík mun keppa við tvær aðrar borgir, en Dagur segir að ekki sé gefið upp hvaða borgir þær séu og í raun viti þau hjá Reykjavík það ekki með vissu hverjir keppi þar gegn þeim. Hann segir að þau hafi lagt fram skjöl frá Reykjavíkurborg og ríkinu með formlegri umsókn auk þess að hitta nefndarmenn og fara yfir með þeim hvað Reykjavík hefði upp á að bjóða. Sækja um kvikmynda- hátíð 2020  Formleg um- sókn frá Íslandi Dagur B. Eggertsson Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.