Morgunblaðið - 17.12.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.12.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Gleðilega hátíð Bez t á k alkúninn Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er margt sem freistar í heiminum og þar er líka margt að varast. Leitaðu eftir hverju tækifæri til að launa góðmennsku sem þér hefur verið sýnd. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú vilt endilega ná tökum á fjármál- unum á næstunni og verður pirruð/aður ef það tekst ekki. Velgengni þín getur virkað sem ógn fyrir aðra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þegar þú gerir þér grein fyrir hvað þú vilt ekki, þá ertu rokin/n. Gættu þess að hafa fólk í kringum þig sem fyllir þig andagift. Maður á ekki að umgangast þá sem hafa slæm á áhrif á mann. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fleygðu frá þér öllum neikvæðum hugsunum þess efnis að þú ráðir ekki við þau verkefni, sem þér eru falin. Hugmynd sem makinn fær er alveg út úr kú. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vertu viðbúin/n því að tölvur eða annar búnaður bili í dag. Ráðstefnur, fundir og sam- ræður við aðra einkennast af hressleika, bjartsýni og jákvæðni. Þú blómstrar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Reyndu ekki að slá ryki í augu annarra ef mál taka óvænta stefnu. Loksins hefurðu slitið barnsskónum og tekur einhverja ábyrgð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinsældir þínar hafa sjaldan verið meiri og ekki er laust við að þú njótir þess að baða þig í sviðsljósinu. Taktu í taumana ef það stefnir í óefni heima við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Taktu metnaðarfulla drauma þína með þér inn í framtíðina. Vertu stöðugt á tánum, þannig geturðu brugðist hratt við. Þú nærð lendingu í erfiðu máli. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú nýtur þess að vera í hópi góðra vina í dag. Láttu það eftir þér að stinga af frá öllu saman í einn eða tvo daga ef þú mögulega getur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gerir upp við þig hverjir eru raunverulegir vinir og hverjir ekki. Treystu innsæi þínu í sambandi við nýjan ástvin. Ekki er allt gull sem glóir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur lengi stefnt að því að það verk, sem þú hefur unnið að, hljóti góðar undirtektir. Þú hefur aldrei farið í manngrein- arálit, það kunna yfirmenn að meta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú færð stöðuhækkun og lætur aðra njóta þess með þér. Einhver skellir á þig skuldinni í viðkvæmu máli, en þú veist að þú ert með hreinan skjöld. Þegar ég settist niður til aðskrifa Vísnahorn greip ég bók- ina „Heiman ég fór“. Móðurbróðir minn Sveinn Benediktsson gaf mér hana. Bókin er skilgreind sem vasa- lesbók en efni hennar völdu Gísli Gestsson, Páll Jónsson og Snorri Hjartarson. Í formála segir Snorri m.a. að á ferðalögum sé gott að hafa við höndina í lítilli bók nokkuð af því, sem fegurst hefur verið skrifað og ort á íslensku máli. Og nú opnast bókin á bls. 31. Þar er staka efst úr Pontusrímum eftir Magnús prúða: Þegar að sólin harmi hratt hryggð af öllum skepnum datt, lifandi dýrin léku glatt, laufið út á blómi spratt. Og síðan eftir Stefán frá Hvíta- dal: Langt til veggja – heiði hátt. Hugann eggja bröttu sporin. Hefði ég tveggja manna mátt mundi ég leggjast út á vorin. Úr gátum Gestumblinda stendur: Heiman ég fór, heiman ég för gerði, sá ég á veg vega; vegur var undir og vegur yfir og vegur á alla vegu. Jónas Hallgrímsson orti og er dýrt kveðið! Markaði ljótum eg var á, arkaði blótum meður, sparkaði grjótum stinnt með stjá, slarkaði fótum til og frá! Jón lærði kvað: Væri eg einn sauðurinn í hlíðum, skyldi ég renna í Áradal, forða hríðum, forða mér við hríðum. Hér er Guðmundur Friðjónsson á Sandi líkur sjálfum sér eins og hann er bestur: Veit ég vonarskarð vera í fjöllum – Braga blá-fjöllum, beint í austri, móti morgunsól, – margra rasta, ótal einstiga undraskarð. Alltaf er gott að rifja upp þjóð- vísur: „Þegar lundin þín er hrelld, þessum hlýddu orðum: Gakktu við sjó og sittu við eld“, svo kvað völvan forðum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gott er að grípa í „Heiman ég fór“ „HANN ER ALGER NÍSKUPÚKI. ÉG VIL RÁÐA LEIGUMORÐINGJA TIL AÐ DREPA HANN – HANN VILL FREKAR GERA ÞAÐ SJÁLFUR.” „ÁGÆTI KVIÐDÓMUR, VINSAMLEGAST HUNDSIÐ ÞAÐ SEM ÉG SAGÐI RÉTT ÁÐAN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera ánægð saman í eigin hjúpi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann BANK! BANK! BANK! BANK! BANK! BANK! OG Á ÞENNAN HÁTT HÖLDUM VIÐ Í HEIÐRI LANGTÍMA JÓLAHEFÐ JÓNS AÐ SKREYTA OG SKEMMA ARRG! NAGLINN ER BEYGLAÐUR! OHHH! GAT Á VEGGNUM! ÁI! FLÍS Í AUGANU! KONAN MÍN ER ALLT OF FUNDVÍS! HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM MÁ ÞAÐ VERA? HÚN FINNUR MEIRA AÐ VIÐ MIG EN ÉG KÆRI MIG UM! HJÓNABANDS- RÁÐGJÖF Deila má um ágæti sanngirnisbótasem fólk sem forðum var vistað á Kópavogshælinu eða sambærilegum stofnunum hefur fengið greiddar. Vissulega eru greiðslurnar ákveðin staðfesting á því að rangt hafi verið haft við í umönnun allri en höfum samt í huga að peningar græða ekki sár eða andlegar þjáningar. Sál- fræðiaðstoð fólkinu til handa eða annar andlegur stuðningur, greiddur af opinberum aðilum, hefði verið besta hjálpin þessu fólki til handa. Með fyrrgreindum bótagreiðslum hefur þó hins vegar verið gefið for- dæmi og margir geta því vænst þess að fá greiðslu fyrir illa meðferð. Grunnskólarnir eiga að vera griða- staður barna sem komin á fullorðins- aldur greina sum hver frá einelti sem þau urðu þar fyrir af hálfu skóla- systkina og stundum kennara. Hug- ur Víkverja er hjá því fólki, sem get- ur sennilega lítils vænst. x x x Í pistli á vef AkureyrarblaðsinsVikudags segir Björn Snæbjörns- son, formaður Einingar-Iðju, að tæp- lega 40% aðspurðra í könnun félags- ins hafi frestað því síðasta árið að fara til tannlæknis vegna kostnaðar. Margir hafi sömuleiðis frestað lækn- isferðum og lyfjakaupum af sömu ástæður. Þetta telur verkalýðs- leiðtoginn kalla á að opinbera heil- brigðiskerfið verði styrkt, þó skýr- ingin geti að mati Víkverja verið meint okur tannlækna og lyfsala. Auknar niðurgreiðslur úr opinberum sjóðum taka ekki á rót vandans. x x x Nú um miðjan desember er sígiltað fjölmiðlar birti myndríkar frásagnir um fallegar jólaskreyt- ingar sem eru við hús víða í borg og bæjum. Litadýrð þessi pirrar ein- staka fólk, sem finnst dýrðin komin úr hófi. Í Morgunblaðinu sl. fimmtu- dag sagði síðan frá því að þess væri dæmi að arkitektar ömuðust við skreytingum í húsum sem þeir hafa teiknað, enda spilli þær sköp- unarverki þeirra. Slík afstaða finnst Víkverja vera hallærisleg, því nú þegar heimsskautamyrkrið vokir yfir Íslandi nánast allan sólarhringinn veitir okkur ekkert af sem mestri birtu. vikverji@mbl.is Víkverji Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur vera dáin frá syndinni en lifandi Guði í Kristi Jesú. (Rómverjabréfið 6.11)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.